Letilíf í dag eins og vera ber á sunnudegi. Fékk góða gesti í kvöldmat til mín í gær, systur mínar báðar og Jónínu Ingibjörgu, og við fórum svo að sjá Jesú lítla í Borgarleikhúsinu. Það er skemmst frá því að segja að þettas er alveg stórskemmtileg sýning. Snilldarleikur hjá trúðunum þremur, rosalegt hugmyndaflug og æðislegur húmor.
Í dag var einstaklega fallegt veður og himinninn eins og listaverk. Myndin var tekin í hrauninu við Garðabæ þar sem við röltum í blíðunni með Arwen sem fær þar að hlaupa um, frjáls og frí.





Þetta er soldið skondin saga um landabrugg og leynilega fólksflutninga. Persónurnar eru skemmtilega æðrulausar og heilsteyptar, prinsippfólk sem er ekki að eltast við eitthvað rugl. Minnir doldið á Heinesen finnst mér. Höfundurinn
Býfluga(Little Bee í USA, The Other Hand í UK) er mögnuð saga um samnefnda stúlku sem hefur flúið frá heimalandi sínu, Nígeríu, til Bretlands. Hún leitar á náðir Söru, blaðakonu sem nýlega hefur misst mann sinn vegna atburða sem tengjast Býflugu og er þar að auki í tómu tjóni vegna framhjáhalds o.fl. Víð á Vesturlöndum höfum ekki grænan grun um allan þann hrylling sem viðgengst í Afríku, mannréttindabrot, morð og nauðganir eru daglegt brauð. Samt eiga Vesturlönd sök á þessu með botnlausri græðgi sinni, þau hafa sölsað undir sig auðlindir Afríkubúa, t.d. olíu og demanta, og ala á ófriði til að geta selt þeim vopn. Sorgarsaga, hörkuspennandi, ekki fyrir viðkvæmar sálir.