Hér er verið að hlaða mp3-spilarann í tölvunni og hlusta á tónlist úr spilaranum í græjunum. Myndin var færð úr myndavélinni yfir í tölvuna, gsm-inn er til taks og fjarstýringarnar bíða þess að röðin komi að þeim. Ég er ss. að vinna í að koma hljóðskrám í wordpressið (nánar síðar). Er ekki lífið einfalt og þægilegt?
Ýmislegt
Himinblámi
Mikið hef ég gaman af Himmleblå í sjónvarpinu á sunnudagskvöldum. Alveg frábærir þættir, allt gerist á lítilli eyju þar sem allir þekkja alla og samfélagið þrífst aðeins ef menn eru samhentir og bera virðingu hver fyrir öðrum. Skipstjórinn Roy er eins og uppkominn Emil í Kattholti, Roland er eilífðartöffari, Brynjar kaupmaður og Britt svo mikil krútt, Marit og Kim líka. Allur tilfinningaskalinn er undir þegar ég horfi á þessa frábæru þætti og ég bíð spennt eftir næsta. Á heimasíðu þáttarins segir að 1/3 Íslendinga fylgist spenntur með þessum þáttum. Og það er víst mikið drama í lokaþættinum. Syrpa tvö er í smíðum sem betur fer.
Heilræði vikunnar er frá Heiðrúnu K: fáðu þér litla bók og skrifaðu á hverju kvöldi í hana eitthvað þrennt sem þú getur verið þakklátur fyrir þann daginn eða í lífinu yfirleitt (ekki hafa það samt allt sjálfmiðað). Og brátt verður lífið bara betra.
Bóndadagurinn
Að heiðra bóndadaginn er gömul og góð hefð og alveg hægt að gera sér glaðan dag án þess að hlaupa til að kaupa rándýrar gjafir eða setja allt á hvolf. Smá dagamunur er samt nauðsynlegur. Þorrinn er að byrja, nú renna upp dagar sláturs og punga og handboltinn í algleymingi, það er ekta karlatíð. Minn fær norðlenskt hangikjöt á bóndadaginn og ég luma á nokkrum laufabrauðskökum síðan um jólin sem ég ætla að splæsa í geimið. Hann þarf ekki að koma nálægt uppvaskinu. Ég verð auðvitað á peysufötum í tilefni dagsins.
Hlýtur að vera engill
Himneskt vídeó, dásamlegt lag – sem minnir á djamm með Heiðrúnu og Ester, Birnu og Sibbu á Þórshöfn á niunda áratug síðustu aldar.
Veit ekki meir
Ég ætla alls ekki að taka upp mikið netpláss til að röfla um ICEsave en er enginn í heiminum öllum sem veit fyrir víst og getur rökstutt það óvéfengjanlega hvort skuldin fellur á þjóðarbúið eða ekki?
Smella Hér til að lesa skemmtileg grein sem lýsir eflaust hugsunum margra Íslendinga þessa dagana.
Jólin búin
Jólatréð okkar í ár var einstaklega falleg og stór stafafura sem var Karlakór Kópavogs var með til sölu en áður höfum við alltaf haft nötrandi normansþin. Á síðustu dögum jólanna gaf efsta serían á trénu sig enda orðin gömul. Ég er strax farin að hlakka til næstu jóla, búin að kaupa nýja seríu og skraut á útsölu, hin hagsýna húsmóðir.
Elvis konungur
Stórgóður þáttur í Víðsjá, tileinkaður afmælisbarninu: Elvis Presley sem hefði orðið 75 ára í dag. Sagt var frá áhrifum hans á tónlistarsöguna en hann nýtti sér takta úr negrasálmum og tónlist þeldökkra sem þá var bönnuð. Frægð hans var gríðarlega mikil en líkt og Michael Jackson varð hann fórnarlamb hennar, innilokaður á heimili sínu og stútfullur af læknadópi. Hann var líka útpískaður karlgreyið, árið 1972 hélt hann t.d. að meðaltali 10 tónleika í mánuði með miklu stuði og mjaðmahnykkjum, þar sem trylltir aðdáendur hylltu hann og tónlist hans. Bros hans er ómótstæðilegt, göngulagið og hreyfingarnar ótrúlega kynþokkafullar. Hann lést haustið 1977, óumdeilanlega eini konungurinn sem Ameríkanar hafa átt. Þegar ég var ca 15 fékk ég Elvis-æði, við Elva Guðna, elsku vinkona mín heitin, lágum fyrir framan grammófóninn í stofunni með Elvis í botni, skrifuðum upp textana og horfðum djúpt í augu hans á plötuumslaginu. Sjáið bara hvað hann er rosalega heitur í þessu lagi:
Elvis hefur yfirgefið bygginguna en hann lifir:
Gönguferð í Heiðmörk
Gamla árið
Árið 2009 var mörgum þungt í skauti. Þegar ég lít um öxl er mér efst í huga erfið veikindi foreldra minna á árinu. Svo er kreppan að herða takið og áhrifa hennar farið að gæta verulega í samfélaginu. Ég sé soldið eftir að hafa ekki verið duglegri að halda sambandi við vini og ættingja á árinu. En það gerðist margt gott 2009. Fermingardagur Ingu var frábær og Óttar sneri heim frá útlöndum. Húsbílareisan í sumar var skemmtileg, endalaus sól og sumar á hinum fögru Vestfjörðum, Snæfellsnesi og víðar. Endurfundir nemenda í Barnaskóla Íslands á haustdögum voru stórskemmtilegir, Budduleikar með frænkum mínum lifa lengi í minningunni, stórafmæli vina og ættingja bar upp á árið, sumarbústaðaferðir, matarboð og leikhús lyftu andanum ásamt miklum bóklestri, samveran við systur mínar er góð og mikilvæg. Tíkin Arwen varð heimilisföst hjá okkur og er mikill gleðigjafi. Ég hlakka til ársins 2010. Eftir því sem aldurinn færist yfir verður manni ljósara að mikilvægast af öllu í lífinu er góð heilsa, fjölskylda og vinir. Gleðilegt nýtt ár tígursins!
Maður er manns gaman
Í kveld er samkvæmi. Börn barna ömmu og afa á Akureyri ætla að hittast ásamt mökum sínum og skemmta sér saman. Við erum ss systkinabörn. Allt er þetta bæði fallegt og skemmtilegt fólk. Það er mikilvægt nú sem aldrei fyrr að halda tengslum við ættingja sína og vini, rækta sambandið og njóta samvistanna. Þann 3. janúar er svo annað samkvæmi þar sem afkomendur ömmu og afa í Ásgarði gera sér glaðan dag. Það er líka bæði fallegt og skemmtilegt fólk. Svona er maður af góðum ættum.


