
Japönsk fjöldaframleiðsla
Ég lauk við Skaparann í dag, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Ég hef alltaf verið mjög hrifin af verkum Guðrúnar Evu Mínervudóttur, Albúm fannst mér frábær bók og einnig Fyrirlestur um hamingjuna. Í þeim er einhver þægileg hippastemning sem ég fíla vel, liðinn / glataður tími, venjulegt fólk sem hefur sína sérviskur og fortíðarþrá. Í Skaparanum segir frá Sveini sem smíðar kynlífsdúkkur og Lóu, einstæðri móður á barmi taugaáfalls, eldri dóttir hennar þjáist að anorexíu og sjálf er Lóa á góðri leið með að missa stjórn á drykkjunni. Sjónarhorninu er skipt á milli þeirra Sveins og Lóu og sömu atburðum lýst út frá upplifun hvors þeirra. Um leið er tekist á um heimspekilegar og siðferðilegar spurningar, um líkama og sál, sköp-un og sílikon, kynlífsiðnað, firringu og einmanaleika. Hér er hvorki klám eða predikanir, bara einmana manneskjur sem þurfa á ást og umhyggju að halda og kynnast af tilviljun. En margs konar misskilningur, komplexar og flækjur koma upp enda er lífið flókið og fullt af veseni. Þó leynist von í allri þjáningunni og ruglinu. Flott bók og vel skrifuð. Mér og minni fjölskyldu kom verulega á óvart að sjá vísu eftir pabba í bókinni, orta um Kópavogsskáldið góða Hjört Pálsson fyrir margt löngu:
Hann sem aldrei átti föt / né krónu fyrir kaffi / er nú kominn út á göt- / u á Béemmvaffi.








