Vegurinn eftir Cormac McCarthy er hrikalega svartsýn heimsendabók. Feðgar staulast eftir bráðnu malbikinu með innkaupakerru sem í eru allar jarðneskar eigur þeirra (ábreiður og nokkrar niðursuðudósir), allt í kringum þá er auðn og sviðin jörð, heimsendir hefur dunið yfir fyrir mörgum árum og vonarglætan um nýtt eða betra líf er ansi dauf. Glæpagengi, nauðgarar og mannætur sitja um líf fólks sem berst við sult og vosbúð. Í hverju heimsendirinn felst er ekki útskýrt sem eykur á spennu og dulúð. Áhrifamikil bók. Óneitanlega verður manni hugsað til fjarlægrar framtíðar, hvernig verður þetta allt ef við höldum áfram að menga og eyðileggja, útrýma dýrum og berast á banaspjót?
Bókmenntir
Brúðkaupsnóttin
Örstutt skáldsaga eftir Ian McEwan, gerist snemma á sjöunda áratugnum, s.s. fyrir kynlífsbyltinguna svonefndu. Ung og nýgift hjón eru að ljúka málsverði á hóteli og brúðkaupsnóttin er framundan. Bæði eru reynslulaus og fáfróð um kynlíf. Hverjum (hvaða kalli?) datt eiginlega í hug að hjón ættu að sofa saman fyrst á brúðkaupsnóttina og að konan ætti að vera hrein mey? Á þessum tíma er kynlíf tabú og unga parið er ótrúlega bælt og þvingað og hrætt við að tala um tilfinningar sínar. Misskilningur, ólíkar væntingar, misvísandi skilaboð o.fl. valda því að tilvera þeirra beggja umturnast þessa nótt. Sagan líður afar hægt, lýsingarnar eru afar nákvæmar, samtölin stirð og þrungin ótta og feimni, fortíð og nútíð spinnast saman og spennan í loftinu er áþreifanleg. Það er ótrúlega pirrandi hvað persónurnar eru þvingaðar og þrjóskar og eiga erfitt með samskiptin en í því er snilldin fólgin. Sorgarsaga sem nístir í merg og bein.
Ummyndanir
„Dagur mun koma að kveldi og Föbus mun baða lafmóða fáka sína í sjávardjúpunum, áður en ég fái upp talið allt það sem hefur tekið á sig nýja mynd“ (418) segir Óvíd í Ummyndunum en Kristján Árnason fékk þýðingarverðlaunin 2009 i dag. Þau voru afhent á Gljúfrasteini og þar með lauk störfum dómnefndarinnar.
Þýðing Kristjáns er bæði stórvirki og menningarviðburður, svipað og Shakespeare, 1001 nótt og Biblían. Kristján býr yfir miklum orðaforða, skáldgáfu, innsæi og þekkingu á myndmáli og stíl sem birtist vel í þýðingu hans. Hún er afar læsileg og aðgengileg, það er hægt að grípa niður hvar sem er og sökkva sér ofan í sögur af örlagaglettum hinna fornu guða. Alls staðar eru dæmi um útsjónarsemi og næmi þýðandans fyrir blæbrigðum tungumálsins, bæði frummáls og þýðingar. Af handahófi má nefna endalok hins sjálfhverfa unglings, Narkissusar, sem málgefna dísin Ekkó elti á röndum:
„En er Narkissus sá þetta í vatninu, sem var nú aftur orðið slétt sem spegill, þá var honum öllum lokið, og svo sem hið gula vax bráðnar af léttum eldi og klaki leysist upp af yl sólarinnar, þannig bráðnaði hann af ást og tærðist upp smám saman af innibyrgðum eldi. Þá hvarf roðinn af björtu hörundi hans, honum þvarr máttur og megin, og fegurð hans bliknaði, sá líkami sem Ekkó hafði unnað svo mjög varð ekki nema svipur hjá sjón“ (106-7).
Kristján hefur með þýðingu sinn á Ummyndunum fært nútímalesendum fornklassískan sagnaheim á gullaldaríslensku eða eins og þeir Óvíd orða það (432): Hann hefur lokið „verki sem hvorki bræði Júpíters né eldur né járn né tönn tímans munu fá grandað.“
Leshringur
Um síðustu helgi var árshátíð hins virta leshrings, ringo.15 sem er „blandaður leshringur karla og kvenna“ sem hefur starfað síðan á 10. áratug síðustu aldar. Þemað var franskt: bók kvöldsins var Hlutirnir eftir Georges Perec; svo var lax í hvítvínslegi, dýrindis lauksúpa, eplasorbet, grænt salat, ostar, beinlausir fuglar og súkkulaði-mousse. Og eðalvín með hverjum rétti. Veisla ársins! Hér sést Hulda handleika Pegasus, hinn vængjaða skáldfák Medúsu.
Horfðu á mig
Ódáðahraun
Lauk við Ódáðahraun eftir Stefán Mána í gær. Þetta er krimmi sem fjallar um hálftröllið Óðin sem er díler og glæpon en dregst inn í heim fjárglæfra og hlutabréfabrasks og er þar eins og fíll í postulínsbúð… Bókin byrjar vel, æska og uppeldi Óðins er alveg óborganlegt en svo dettur botninn úr því. Það eru góðir sprettir en kvenpersónur bókarinnar eru svo grunnar og einhliða að það er bara hrikalegt. Svo er ég búin að fá svo nóg af íslensku viðskiptalífi að ég hljóp mjög hratt yfir kaflana um yfirtökur og hluthafafundi… Það er einhver fljótaskrift á þessari bók, hún er hins vegar efni í magnað kvikmyndahandrit.
Amtmaðurinnn á einbúasetrinu
Ég hef verið að lesa ævisögu Gríms Jónssonar amtmanns á Möðruvöllum í Hörgárdal (1785-1849) eftir Kristmund Bjarnason. Ég hef varla getað lagt hana frá mér þar sem hún er afar fróðleg og skemmtileg. Tímabilið sem fjallað er um er svo merkilegt og heillandi, Grímur sjálfur var merkismaður sem stóð í stappi bæði opinberlega og í einkalífi og dregin er upp sannfærandi mannlýsing, fjallað er bæði um lífshlaup hans og framavonir, ættir og fjölskyldu, persónuleika hans, kosti og galla. Mál og stíll bókarinnar má kenna við gullaldaríslensku. Engu er haldið fram í bókinni án raka og heimilda en stundum spurt kurteislega hvort hitt og þetta gæti verið orsök og afleiðing, margt er hrakið og ný gögn dregin fram í dagsljósið. Gaman er m.a. að lesa um skólahald á Íslandi í byrjun nítjándu aldar en Grímur var fátækur nemandi í Hólavallarskóla í Reykjavík. Kennslan er bágborin og snjóar inn í kennslustofurnar, margir skólapiltar eru með skyrbjúg, líkamlegar refsingar viðgangast og skólameistari er sífullur. Þá gerði ég mér ekki almennilega grein fyrir önnum þeim sem embættis-og valdsmenn hér á landi höfðu hér áður fyrr. Maður skyldi ætla að allt hefði verið hér meira og minna í dróma og deyfð og fátt borið til tíðinda sem Danakóngur hefði áhuga á eða vildi setja sig inn í. En aldeilis ekki, skrifa þurfti ótal skýrslur, yfirlit, tilkynningar og bréf í tví- og þríriti, taka við tilskipunum konungs og koma þeim til framkvæmda, eltast við að óléttar vinnukonur, níðskáld og niðursetninga, yfirheyra og ávíta vanhæfa hreppstjóra og svikula presta, refsa alþýðunni grimmilega fyrir minnstu yfírsjónir, standa skil á öllu regluverkinu, sköttum og verðgildi jarða, fjalla um verslun og búnaðarmál, vísitera í amtinu um óbrúaðar ár og í vondum veðrum, og skera úr deilum og margvíslegum klögumálum sem bárust endalaust inn á borð amtmannsins. Einkalíf Gríms var líka snúið, kona hans var dönsk og vildi búa í heimalandi sínu, börnin voru mörg og þau hjónin skuldum vafin. Á efri árum var hann oft sárþjáður bæði á sál og líkama, hann var rúmfastur og langt leiddur af margvíslegum kvillum (s.s. gyllinæð og tannleysi) þegar þjóðfrelsisþenkjandi bændur tóku sig til og riðu heim til hans með þeirri kröfu að hann segði af sér þar sem hann væri fulltrúi kúgunarvalds. Hálfum mánuði síðar lést Grímur amtmaður. Ævisaga hans er stórmerk heimild um manninn og aldarfarið, minnst er á margt fólk og merkilegt sem gaman er að lesa um, ýmist þjóðþekkt eða löngu gleymt. Vísað er í margvíslegar heimildir, m.a. er vitnaði í dagbók Nínu, dóttur Gríms, sem ég hefði hug á að lesa meira í. Ekki hefur mikið þess háttar efni eftir konur varðveist frá þessu tímabili, þó er eitthvað til að bréfum, t.d. þau sem fóru á milli Gríms og systur hans, Ingjbjargar sem var móðir Gríms Thomsens.
Gauragangur
Það var mikið rokk og ról á Gauragangi í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Sýningin ber nafn með rentu, leikritið fjallar um strákagaura fyrst og fremst, aðallega hið önuga og uppreisnargjarna ungskáld Orm Óðinsson. Guðjón D. Karlsson leikur Orm og gerir það bara fantavel. Lögin eru grípandi og skemmtileg og vel flutt, söngurinn flottur (Guðjón er fínn söngvari og Valgerður algjör díva), dansarnir líka og sviðsmyndin er smart, grafíkin á tjaldi innst á sviðinu kom mjög vel út. Leikararnir stóðu sig almennt mhög vel. Ég fattaði ekki alveg yngstu systur Orms sem var algjört krútt en átti hún að vera smábarn eða var hún þroskaheft? Sigrún Edda var ægilega tilgerðarleg, eins og hún er nú góð leikkona yfirleitt. Kennararnir voru frábærir, Bergur Þór fór algerlega á kostum. Karakterarnir eru grunnir, dregnir einföldum dráttum og boðskapurinn ekki sérlega djúpur en svoleiðis eru söngleikir og það er bara gaman. Nokkur atriði hefði að ósekju mátt stytta eða sleppa þar sem sýningin er fulllöng (kl 20 til 23). Það mátti heyra saumnál detta í salnum sem var troðinn unglingum úr grunn- og framhaldsskólum landsins en síðan brutust út mikil fagnaðarlæti í sýningarlok. Gauragangur er flott fjölskyldusýning, stuð og stemning.
Góð kaup
Skellti mér á bókamarkaðinn í Perlunni og gerði þessi líka reyfarakaup á öndvegisritum: Aðalgeir Kristjánsson. Síðasti Fjölnismaðurinn, ævi Konráðs Gíslasonar. 990 kr. Benedikt Gröndal: Rit 2. 495 kr. Brynjúlfur frá Minna-Núpi: Saga hugsunar minnar. 990 kr. Gils Guðmundsson. Í nærveru sálar, Einar Hjörleifsson Kvaran, Maðurinn og skáldið. 390 kr. Guðrún P. Helgadóttir: Brautryðjandinn Júlíana Jónsdóttir skáldkona. 490 kr. Kristmundur Bjarnason. Lífsþorsti og leyndar ástir. Svipmyndir úr lífi Gríms Thomsens og nokkurra samferðamanna hans. 490 kr. Oddný Guðmundsdóttir frá Hóli á Langanesi: Skuld. 495 kr. Svo keypti ég eina bók til viðbótar og gaf í afmælisgjöf, samtals var þetta 5325 kr fyrir 8 eigulegar bækur sem ég ætla að lesa næstu vikur og á ferðalaginu í sumar. Gamlar bækur eru á sæmilegu verði á markaðnum en nýlegar alltof dýrar. Hand- og fræðibækur eru líka of dýrar. Þarna var fullt af fólki og góð stemning.
Hringferð blóðsins
Ég sótti fyrri hluta málþings hjá Félagi um átjándu aldar fræði í dag en félagið er að hefja sitt 17. starfsár. Finnst líka mjög langt síðan ég sat stofnfund félagsins og tók sæti í stjórninni sællar minningar. Þema þingsins að þessu sinni var læknavísindi og heilbrigðismál, miklu meira spennandi en það kannski hljómar. M.a. fjallaði Örn Hrafnkelsson um Jón Magnússon (1662-1738), bróður Árna handritasafnara, sem skrifaði m.a. íslenska málfræði og lækningabókina Praxis Medica úr hálærðum bókum samantekin. Jón var mikill lærdómsmaður en féll í hórdóm nokkrum sinnum og var dæmdur til dauða en náðaður. Rithönd hans er jöfn og fögur og hann skrifaði margt fyrir Árna bróður. Bók hans var aldrei prentuð en gekk manna á milli í afskriftum. Hún byggir á svokölluðum raunlækningum, þe. ekki á alþýðutrú um fullt tungl, kattargall og hár úr höfði hengds manns. Þar segir m.a. svo skemmtilega: „Hringferð blóðsins er óaflátanleg…“ og þar eru gefin ráð við þungum andardrætti kvenna (smyrja kremi á hnakkann á þeim). Bragi Þ. Ólafsson sagði frá bókinni Yfirsetukvennaskólinn sem út kom 1749 og fjallar um fæðingar, með frábærum lýsingum og skýringarmyndum. Þar fjalla menntaðir miðaldra karlar í yfirstétt um fæðingarreynslu kvenna. Ólöf Garðarsdóttir sagði m.a. frá fyrstu ljósmóðurinni, Margarítu Magnússen, sem hafði mikil áhrif á að konur gæfu nýfæddum börnum sínum brjóst. Það dró verulega úr ungbarnadauða sem var mun meiri hér en á hinum Norðurlöndunum. Kannski ekki furða þegar ráðlagt var í handbókum og af landlækni að gefa nýburum mysu fyrstu 2 vikurnar. Á þinginu sagði Örn Hrafnkelsson frá stafrænu handritasafni á netinu sem verið er að vinna að og verður spennandi að fylgjast með því.


