Ýmislegt

ja hérna

Vetrartískan

Það er alltaf gaman að fá sér ný föt og poppa fataskápinn aðeins upp. Ég keypti mér þennan fína sparijakka (Zara), samkvæmiskjól og kimono (Topshop) á ágætu verði og er nú tilbúin í fjörið. Bæði kjóll og jakki eru í djörfum litum en kimonoinn í gamla, góða og örugga svarta litnum sem ég dett alltaf í en þarf endilega að hvíla mig á. Ég var með tískulöggu með mér sem gaf góð ráð og hlífði mér hvergi þegar kom að smekk og mátun.  Hún vélaði mig til að splæsa á sig gaddaskónum sem sjá má á myndinni.

Dalvíkin er draumablá

Nú þegar verslunarmannahelgin nálgast rifjast upp fyrir mér ferðalög með fjölskyldunni forðum daga, í vw-bjöllu sem alltaf var troðfull af farangri, vegaryki og sígarettureyk. Við þrjár systurnar vorum alltaf bílveikar en til að hressa okkur við voru ýmsir leikir í boði, gátur, sögustundir og landafræðikennsla og alltaf var mikið sungið í bílnum. Meðal þess vinsælasta var einn af fjölmörgum lagatextum sem pabbi hefur samið í gegnum árin. Þessi texti er um Dalvík við lagið Love me tender, en þá var hann skólastjóri við Húsabakkaskóla í Svarfaðardal. Í hvert sinn sem farið var í kaupstaðarferð út á Dalvík frá Húsabakka var þetta lag alltaf sungið hástöfum og margoft síðan og það minnir mig á ljúfa bernskudaga.

:;:Dalvíkin er draumablá

og dýrðleg til að sjá:;:

Ofar stendur Upsafjall

eins og gamall kall

:;:Sólin skín á stein og stekk

og stúlku í fyrsta bekk:;:

Gullkorn

Ég sakna stundum míns fyrra starfs sem kennari en það líður hjá þegar ég hugsa til ritgerðasmíða nemenda. Ég rakst um daginn á nokkur gullkorn úr ritgerðum fyrrum nemenda minna:

…meðan faðir hennar liggur rænulaus í gröfinni

Höfundur talar í þriðju persónu eins og myndavél

Þá festist hann milli steins og sleggju

Danir sviku Íslendinga með mauróttu mjöli

Svo fór hann á eigin fótum í skóla á Bessastöðum

Þegar Salka Valka og Sigurlína komu til Óseyrar voru allar eigur þeirra í einum plastpoka