Á dögunum hittumst við nokkrar kellur úr 1963 árganginum góða úr Barnaskóla Íslands. Við fengum okkur hressingu á Caruso og kjöftuðum alveg stanslaust enda höfum við marga fjöruna sopið. Rifjuð voru upp ýmis bernskubrek auk nýrra áfangasigra í lífinu í leik og starfi. Þetta var mjög gaman, þetta eru svo fallegar, skemmtilegar og klárar konur. Planið er að hittast aftur í sumar og hafa meira geim.
Ýmislegt
Ný tæki
Í dag var keyptur nýr ísskápur á heimilið. Ég vildi vera ísskápahönnuður, þessi þarfaþing hafa bara ekkert breyst gegnum árin í takt við neysluvenjur nútímafólks. T.d. ættu ávallt að vera amk. tvær eða þrjár grænmetis-/ ávaxtaskúffur sem hægt væri auðveldlega að taka út svo maður þurfi ekki að bogra inní ísskápnum við að velja hráefni. Svo á ekki að vera hilla í hurðinni þar sem skúffan er, bara renna skúffunni hindrunarlaust út úr skápnum. Svo er alveg nóg að hafa lítið frystihólf (fyrir ber og klaka í boostið) neðst í skápnum, ekki efst, og óþarfi að spandera í 3 frystiskúffur, amk. fyrir þá sem eiga kistu. Blástur er bara óþarfi og bruðl, ég lærði það í dag en flöskuhilla getur komið í góðar þarfir. Ég skellti mér líka á eina brauðrist þar sem mín gamla blés eldglæringum um daginn. Sú nýja er 1100w sem er víst algjört möst, hún glóðar tvær brauðsneiðar á nýju brautarmeti og er líka geðveikt retró. En þessi tæki voru svo rándýr að nú hef ég hvorki efni á brauði í ristina né mjólkursopa úr ísskápnum – fyrir utan það að skápurinn passar ekki í innréttinguna svo ég verð að rífa helminginn af henni niður…


Rannsóknarskýrslan
Hvað er svona ægilega spennandi við rannsóknarskýrsluna? Hvað kemur á óvart? Að virðingarleysið við lög og reglur sést núna svart á hvítu? Að eignatengsl og tilfærslur voru óeðlilega flókin og fjöldi skúffufyrirtækja fáránlegur? Óeðlileg lánafyrirgreiðsla? Markaðskúnstir? Að pólitíkusar, fjárfestar og fjölmiðlar voru allir með í bullinu? Að búið er að stela og stinga undan milljörðum króna? Svik og prettir? Ég segi nú bara eins og konan: What else is new?
Annar í páskum
Páskaleyfið er dásamlegt, kyrrlátt og friðsælt. Ég hef hlustað mikið á útvarpið, rás eitt og tvö, og er frekar ánægð með dagskrána þar. Alls konar fróðlegir þættir um fortíð og nútíð, viðtöl og þægileg tónlist. Svona er maður orðinn ráðsettur. Við Binni stinni gengum svo á Helgafellið með Arwen um miðjan dag, vorum eldsnögg upp og hlupum niður. Engin mynd er til af atburðinum, aldrei þessu vant. Um kvöldið kom Þura systir og fjölskylda og mamma og pabbi í mat, menuinn var einfaldur og hefðbundinn: hamborgarahryggur og ís. Þessa vísu fékk ég senda frá föður mínum sem telur sig vera tiltölulega syndlausan á upprisuhátíðinni:
Drottins frið og fögnuð kýs,
fjarri sálarháska,
líkur engli upp ég rís
á öðrum degi páska.
Útivist
Í dag var skrönglast áleiðis upp Esjuna. Veðrið í suðurhlíðum Kópavogs var mun betra en í Esjuhlíðum, þar var hörkuvindur og örlítil hríð en við vorum ágætlega búin. Við fórum eins langt og við nenntum, ég lít á svona ferð sem samveru, heilsubót og útsýnistúr en Brynjar setur ljósmyndun og aflraunir í fyrsta sæti. Bæði fengum við fyrir okkar snúð. Arwen fannst ekki sérlega gaman að vera í bandi en naut sín svo í botn á niðurleiðinni þegar hún fékk að hlaupa frjáls en þá fórum við útaf stígnum og inn í þennan gullfallega lerkiskóg sem sést á myndinni.
Frestur
Ég er mjög skipulögð kona og slæ hlutum yfirleitt ekki á frest. Mér finnst best að drífa hlutina af og vil ekki hafa þá hangandi yfir mér. Illu er alltaf best aflokið, það er margsannað mál. En þetta er þó ekki algilt með mig þótt ég sé yfirleitt til fyrirmyndar með þetta. Ég er með skattskýrslufælni. Og er búin að sækja um frest.
Logi í beinni
Við erum með vikulanga ókeypis kynningaráskrift að Stöð 2 og duttum þess vegna inn á Loga í beinni á föstudagskvöldið. Þar var Benedikt Erlingsson í heimsókn ásamt fleirum og var alveg frábær eins og hans er von og vísa. Hann var ómyrkur í máli þegar hann dissaði algjörlega þennan furðu vinsæla sjónvarpsþátt. Hann sagði blátt áfram við þáttastjórnandann að hann væri ósköp þægilegur og hlýðinn, tæki ekki á neinu sem skipti máli eða væri óþægilegt, að hann talaði bara um yfirborðslega hluti, voða stutt við hvern viðmælanda og skipti svo strax um umræðuefni ef talið bærist að einhverju vitrænu. Svo skvetti hann úr vatnsglasinu framan í Loga. Er hægt að fá fleiri svona sjarmerandi, fyndna, hreinskilna og hugumstóra menn í fjölmiðla eins og Benedikt?
Hótel Hekla
Ég var á námskeiði í síðustu viku um menntun til sjálfbærni (sjá td. hér), bæði fróðlegt og skemmtilegt. Námskeiðið var haldið á Hótel Heklu á Skeiðunum, frábæru sveitahóteli sem ég verð að mæla með. Þar er allt í þægilegum kántrístíl, starfsfólkið elskulegt og skemmtilegt og maturinn alveg frábær. Ég er enn að hugsa um rauðsprettuna og mangóísinn góða með rósapiparnum, þvílík veisla. Þarna var mikið pælt í framtíðarmöguleikum Íslands og heimsins alls í hátækniheimi neyslu- og gróðahyggju, virkjunum, mengun, velferð og lýðræði; djúpar pælingar í gangi og hlutverk þátttakenda er að huga að þessu hugtaki, sjálfbærni, (sem er síður en svo einfalt mál) í námskrárgerð fyrir framhaldsskóla framtíðarinnar.
Saga hlutanna
Hér er myndband sem ALLIR ættu að horfa á og læra af: Story of Stuff with Ann Leonard.
Leðurblökur á rúv
Hvar nema á RÚV getur maður horft á fræðsluþátt með frönsku tali um leðurblökur og læknavísindi? Bergmálstækni leðurblakna getur nýst blindu fólki og fært þeim „sýn“ og efni í munnvatni blóðsuguleðurblakna kemur í veg fyrir storknun blóðs. Úr því má vinna lyf fyrir sjúklinga sem eiga á hættu að fá heilablóðfall eða draga verulega úr afleiðingum þess. Svo eru leðurblökur langlífastar allra dýra miðað við stærð og hafa eitthvert undra DNA sem etv er hægt að nýta gegn öldrun og krabbameini. Allt er þetta stórfróðlegt. En kannski hefði ég átt að eyða kvöldinu í annað?







