Skuldir heimilisins

Ég skil ekki hvernig aðgerðir ríkisstjórnarinnar eiga að leysa skuldavanda heimilanna, allavega míns heimilis. Mikilvægt skref var tekið með að færa niður skuldastöðuna og byrja upp á nýtt og tengja lánin við launavísitölu en ekki vístölu neysluverðs en hvaða djók er þetta með að lengja lánstímann þá um þrjú ár? Bara það eitt kostar mig margar milljónir eins og staðan er nú. Þetta er bjarnargreiði og hefndargjöf í einum pakka. Ég gat ekki betur heyrt á félagsmálaráðherranum fallega að illa dulinn tilgangur þessara aðgerða væri að tutla áfram mjólkurkúna sem á samtímis að strýkja með sköttum. Ég sé ekki sanngirnina í þessu. Spaugstofan var ansi beitt á laugardaginn þegar hún sýndi skuldarana sem voru rukkaðir út yfir gröf og dauða. Kannski ætti maður að ganga í flokk þeirra sem ætla í greiðsluverkfall og borga ekki neinum neitt sem gerir ekki neitt fyrir neinn.

Mogginn

Mogginn er möst um helgar, hann er lesinn í tætlur með kaffi og rúnnstykki. Í honum eru oft fínar greinar,  skemmtileg viðtöl og  flottar myndir. Ég hef verið viðloðandi blaðið, vann þar á auglýsingadeildinni m.a. og skrifaði fjölmiðlapistla og ritdóma árum saman. Þarna vann gott fólk gott starf. Ég var ekki sátt þegar Þröstur Helgason var rekinn, hvað þá Ólafur Stephensen og furða mig mjög á ráðningu nýrra ritstjóra blaðsins. Til hvers er fólk að læra fjölmiðlafræði í háskóla ef gamlir pólitíkusar fá feitustu djobbin í bransanum án þess að hafa nokkrar sérstakar kvalifikasjónir í þá veru? Í sunnudagsblaðinu er boðað að brátt muni sannleikurinn um bankahrunið koma í ljós í ítarlegum greinaflokki. Það minnti mig á hið gríðarlega vald sem  fjölmiðlar hafa til að búa til og stjórna veruleika fólks og ekki síður rifjaðist upp fyrir mér sovésk blaðamennska, PRAVDA, ritskoðun, sögufalsanir og áróður. Þetta leggst illa í mig.

Enn endurfundir

Ég er enn uppnumin eftir endurfundina og svo margt rifjast upp fyrir mér, t.d. Ritæfingar, reikningsbók eftir Elís Bjarna, Kalli handavinnukennari, Biggi Söng, Dagsins besta melódí, blár leikfimibolur og heimalærdómur og kakó hjá Helgu Gunnlaugs.  Hér má sjá nokkra bekkjafélaga í keiluspili, f.v. Ásdís  er rosa flott í bleikum bol, Þorsteinn (barnaskóla-flamminn) situr og glottir við tönn, Helgi Bergþórs var að koma í fyrsta sinn og þekkti mig ekki fyrst, Tumma var snarbrött að vanda, fremstir sitja þeir Valdi Ö og Bjarni Ármanns, báðir snillingar. Þorsteinn og Helgi eru ekki á bekkjarmyndinni, Helgi sagðist hafa skrópað einu sinni og það var þegar bekkjarmyndin var tekin en Þorsteinnn hefur engar skýringar gefið á fjarveru sinni. Kannski þurfti hann að skila þvagprufu.

 

F.v. er Ásgeir Ásgeirsson, keilusnillingur og kvennaljómi, Hafdís Ólafs sem tók miklu framförum í keilunni, Bjögga sem rúllaði þessu upp og Sigga Jóhanns sem stóð alveg við yfirlýsingarnar um leikni sína í íþróttinni. Þessar fögru konur má allar sjá á bekkjarmyndinni

„Sveivirðileg skítsauði“

TöffaralegurInglourious Basterds (Tarantino) er hörkuspennandi, þrælfyndin, blóðug og ofbeldisfull. Fullt sem kemur á óvart, engar klisjur nema til að gera grín að þeim. Hópur morðingja gerir út á að drepa nasista og safna höfuðleðrum þeirra. Stóra planið er að drepa allt herforingjaráðið og Hitler líka. Hrikalegur suðurríkjahreimur hjá Brad Pitt orkar etv. tvímælis og líka ýktur ofurtöffarasvipurinn sem er á honum allan tímann og leikstjórinn hefur efalaust fyrirskipað.  En Pitt missir aldrei kúlið. Christopher Waltz (sem hefur oft leikið þýska hermenn og njósnara, m.a. í Bond) leikur Hans Landa, stormsveitarmann og Gyðingaveiðara. Hann sýnir snilldartakta, algjör stórleikur hjá manninum. Aðrir leikarar skila sínu líka  mjög vel, gaman að sjá þýska og franska leikara sem maður hefur ekki séð oft áður. Skemmtilegar tökur og töfrandi senur, frábær samtöl og drama, allt flott í þessari mynd.