Um helgina voru endurfundir hjá 1963-árganginum í Barnaskóla Akureyrar. Gleðin hófst hjá gamla bekknum mínum með samveru og keiluspili og svo var matur og ball í Lóninu. Það var almennt vel mætt og mikil stemning, góður matur og frábært ball þar sem gamlir slagarar voru rifjaðir upp og dansgólfið var troðið allan tímann. Mér fannst alltaf mjög gaman í skólanum, mér gekk vel að læra, átti góðar vinkonur og var skotin í strákunum í bekknum (mest í Valda B og Þorsteini Hjalta), og ég vildi ekki skipta yfir í Lundaskóla þegar hann var stofnaður rétt hjá heimili mínu í Víðilundinum. Í mínum bekk voru frábærir krakkar og oft glatt á hjalla þótt við séum öll mjög alvarleg á bekkjarmyndinni frá 1976. Við vorum að mig minnir 27 í bekknum, á myndina vantar a.m.k. þrjá. Við erum öll við hestaheilsu, lifum góðu lífi og finnst mjög gaman að hittast en þetta er í þriðja sinn sem við gerum okkur glaðan dag saman. Næst er stefnan tekin á fimmtugsafmælisárið, 2013.
Rakki óskast – ekki
Það er mikið að gerast í hormónunum hjá Arwen þessa dagana, hún sem er alltaf svo yfirveguð er nú alveg friðlaus. Hún þráir flottan, fjörugan og stæltan rakka, ekki seinna en strax. En af því verður ekki, hún verður að bæla löngunina og þrána, greyið. Svona er hundalífið.
Á Vestfjörðum

Víða er fallegt á Vestfjörðum, langir firðir, snarbrött fjöll og hvítar sandvíkur. Gyða og Brynjar taka birtustigið í einni víkinni meðan Arwen hvílir sig undir þrífæti.
Lisa Ekdahl
Fór á tónleika með henni í Háskólabíói 2006. Dásamlega ljúf og tjáningarrík rödd og svo er það krúttlega sænskan.
Skuggamyndir úr ferðalagi

„Daginn eftir fór ég á puttanum austur á Þórshöfn. Ég fékk far með frönsku pari sem var á hringferð um landið. Þau töluðu sáralitla ensku og ég enn minni frönsku svo það var frekar lítið um samræður á leiðinni. Þau settu mig úr við Gistiheimilið Lyngholt en þar átti ég pantaða gistingu. Herberginu fylgdi aðgangur að eldhúsi svo ég gat hitað kaffi og eldað sjálfur ofan i mig. Þetta var í fyrsta skipti sem ég kom til Þórshafnar svo ég ákvað að fara í göngutúr um plássið og skoða mig dálítið um. Skammt frá höfninni uppgötvaði ég gamla sundlaug sem var að grotna niður. Laugin var hálffullaf brotnum hörpudiski og hafði greinilega ekki verið notuð lengi, litlir steinsteyptir búningsklefar voru enn uppistandandi og allt krökkt af flugum og minningum á sveimi (42).“
Skuggamyndir úr ferðalagi eftir Óskar Árna Óskarsson er afar hugljúf og falleg bók, bara alltof stutt. Vonandi verður eitthvað gert fyrir gömlu sundlaugina á Þórshöfn. Hún var byggð 1940 fyrir framlög fólksins í þorpinu og mektarmenn gáfu lóðina.
Gömul mynd

Mynd frá Arnþóri, úr albúminu í Borgarfelli
Spurt er: hvar er þessi mynd tekin og hvaða efnilegu ungu stúlkur eru á henni? Takið eftir hvað sú eldri er ábyrg og leiðir þá yngri. Takið líka eftir hvað sú eldri er skelmisleg á svipinn en sú yngri sakleysið uppmálað.
Mótmælendur í Helguvík
Þessa frétt á mbl.is væri hægt að orða svona:

Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum hlekkjuðu sex hugdjarfir mótmælendur samtakanna Saving Iceland sig við vinnutæki á vinnusvæðinu í Helguvík í morgun. Þetta eru dugmiklir einstaklingar sem eru tilbúnir að fórna miklu til að vekja athygli á málstað sínum, sem er að afstýra allri stóriðju sem getur spillt íslenskri náttúru. Skv. vinnureglum voru þeir handteknir og færðir til skýrslutöku. Að sögn lögreglu kom ekki til neinna átaka enda boðar þessi hópur ást og frið og svo var öllum sleppt. Tilgangi hópsins var náð, að láta almenning og umheiminn vita af fyrirhuguðum náttúruspjöllum í Helguvík…
Tíðarandinn
Allir verða að sjá þetta: ZEITGEIST 1 og 2
Í hendi Guðs
„Cristiano greip lúku af sandi og hnoðaði úr honum bolta. „Það er alveg satt, maður hefur ekki frelsi til þess að skrifa það sem maður hugsar.“ Rino renndi að sér jakkanum. „Ekki minnast á frelsi. Það eru allir voða góðir í að tala um frelsi. Frelsi hér, frelsi þar. Fólk blaðrar um það í sífellu. En hvað í fjandanum er hægt að gera við þetta frelsi? Ef þú átt ekki peninga, hefur ekki vinnu, þá ertu frjáls eins og fuglinnn – en hvað áttu þá að gera við allt frelsið? Þú ferð burt. Og hvert ferðu? Og hvernig kemstu þangað? Rónarnir eru frjálsasta fólk í heimi og þeir frjósa við bekkina í almenningsgörðunum og drepast. Frelsi er bara orð sem er notað til að rugla í fólki. Veistu hversu margir bjánar hafa drepist fyrir frelsið án þess einu sinni að vita hvað það er? Veistu hverjir eru þeir einu sem hafa eitthvert frelsi? Það er fólkið sem á peningana. Það hefur það…“ Hann þagnaði og velti vöngum. Svo lagði hann höndina á öxl drengsins. „Viltu sjá hvernig mitt frelsi er?“ Cristiano kinkaði kolli. Rino dró fram byssu sem hann hafði geymt fyrir aftan bak. „Þessi ungfrú hérna heitir Frelsi að eftirnafni. Fornafnið er Magnum 44“.
Ég las Í hendi Guðs eftir Niccolò Ammaniti í sumar (Como Dio Comanda), alveg frábær bók. Hryllingur, spenna, mannleg eymd. Ekki fyrir viðkvæma.
Ísfólkið 5 – Dauðasyndin
„Blíðu varfærnu hendurnar tóku að gæla við hana. Í þetta sinn lét hún strax undan, svo innilega hafði hún þráð að upplifa það ómögulega. Hún andaði í rykkjum, lyfti sér mót hönd hans og nuddaði hnénu við mjöðmina á honum og engdist í krampakenndum hreyfingum. Líkaminn var svo spenntur að hún kveinaði. Alexander sá að allt myndi gerast fljótt svo hann kynti undir nautninni. Í þetta sinn var fullnægingin svo sterk og áköf að hann varð stóreygur af undrun. Cesilja átti það til að sýnast kuldaleg, þótt hún væri hláturmild og hvatvís“ (224).