Ég var að lesa tvær bækur sem báðar eru um tvíbura. Önnur heitir einfaldlega Tvíburarnir og kom út 2007. Hún er eftir Tessu de Loo (f. 1946), hollenskan rithöfund búsettan á Spáni. Þar segir frá tvíburasystrum, Önnu og Lottu, sem skiljast að þegar þær eru 6 ára, önnur verður eftir í Hollandi en hin flytur til Þýskalands. Heimstyrjöldin síðari brýst út og báðar ganga þær í gegnum miklar hörmungar. Þær hittast svo aftur á heilsuhæli á gamals aldri og þá er óumflýjanlegt að gera fortíðina upp. Fín saga, var kvikmynduð 2003. Hin bókin er frá níunda áratug síðustu aldar Á Svörtuhæð eftir Bruce Chatwin, efnilegan enskan rithöfund sem skrifaði bæði skáldsögur og ferðasögur, en lést tæplega fimmtugur úr eyðni 1989. Bók hans fjallar um tvíburabræðurna Lewis og Benjamin sem búa á afskekktum sveitabæ í Wales og foreldra þeirra. Þetta er ljúfsár saga, um átthaga, nostalgíu, glötuð tækifæri, bræðrabönd og kærleika. Svo var þáttur í útvarpinu í dag þar sem verið var að fjalla um snilldartónlist blindu bræðranna úr Vestmannaeyjum, þeirra Gísla og Arnþórs. Smellpassaði í þemað.
Mánudagur
Hvorki fór ég í ferðalag um helgina né tók ég til hendinni í bílskúrnum. Hins vegar fékk ég góðan gest í heimsókn á laugardagskvöldið, Þorstein frænda minn, hvalveiðimann og stjórnmálafræðing. Á sunnudaginn var afmæli hjá Haraldi bónda á Laugalandi í Holtum, mági mínum, og voru móttökur höfðinglegar að vanda. Það er tómlegt heima, Inga mín er komin til Danmerkur í orlof og lætur vel af sér. Og Óttar minn í Hollandi að taka stórar ákvarðanir varðandi framtið sína. Ég hef verið að lesa helling, með tebolla og Lu-kex, dottað og látið mér líða vel.
Föstudagur

Kann á Canon
Hvar skyldi maður nú enda um helgina? Hossast í húsbílnum þangað sem sólin skín, liggja í sólbaði með góða bók og þeysast svo upp á fjöll með myndavélina, eða sitja heima, fara í Sorpu og taka til í bílskúrnum?
Spilaborgin sem splundraðist
Þá hef ég lokið við allar bækurnar þrjár í millenium-seríunni svokölluðu. Síðasta bókin, Spilaborgin sem splundraðist (á ensku: The Girl Who Kicked the Hornets’ Nest eða Castles in the Sky), var hæg í gang, hún er voða mikið um SÄPO-eitthvað (sænska leyniþjónustan / öryggislögreglan sem hlerar símtöl, falsar skjöl, njósnar um og losar sig við óæskilegt fólk) en svo jókst spennan með hverri blaðsíðu (700 s), m.a.s. réttarhöldin voru hörkuspennandi. Það er þannig í þessari bók eins og miðjubókinni að Mikael og Lisbeth hittast varla en það er alveg magnað! Erika Berger fær nýjan vinkil í þessari bók, svo kemur Annika sterk inn, systir Mikaels, og fleiri persónur eru kynntar til sögu sem gaman hefði verið að fylgjast áfram með. En Stieg skrifar ekki meira í þessu lífi, nema fjórða bókin komi í leitirnar og samningar takist um höfundarréttinn. Sagan er hörkuádeila á samfélagið; spillingu, valdaklíkur, ofbeldi og tvískinnung. Mikael Blomkvist, rannsóknarblaðamaðurinn röski, tekur saman efni bókanna þriggja í stuttu máli, þær fjalla um ofbeldi gagnvart konum og þá karla sem standa fyrir því: „När det allt kommer omkring handlar den här storyn inte i första hand om spioner och statliga sekter utan om vanligt våld mot kvinnor och de män som gör det möjligt…“ (643).
Niðjamót á Melgerðismelum
Um helgina var niðjamót í Brynjars ættlegg, haldið á Melgerðismelum í Eyjafirði. Þar voru samankomnir afkomendur Ágústs Ásgrímssonar (1911-1991 minnir mig) sem byggði og bjó í Aðalstræti 70 á Akureyri með konu sinni, Elísabetu Geirmundsdóttur , listakonu (sem teiknaði húsið) en hún lést úr krabbameini aðeins 44 ára að aldri. Þau áttu þrjú börn, Ásgrím ljósmyndara, Iðunni listakonu og Geir en hann lést 1990. Síðar kvæntist Ágúst Sigríði V. Rögnvaldsdóttur og átti með henni þá pörupilta Brynjar og Heiðar Inga. Þeir ólust svo upp þarna í innbænum, litlu stubbarnir, renndu sér á skíðum og skautum, stálu rabarbara og stukku í skafla ofan af húsþökum… Það var kalt í veðri fyrir norðan um helgina en enginn lét það á sig fá, heldur var rölt upp að Borgarrétt með nesti, keppt í krikket upp á skrautrituð viðurkenningarskjöl, flugdrekar hafnir á loft og sungið við varðeld. Á laugardagskvöldið var hátíðarmatur, holugrilluð lambalæri, og þá sýndi Ásgrímur Ágústsson gamlar ljósmyndir af forfeðrum og ættingjum og fallega garðinum við Aðalstræti 70. Það er alltaf gaman að hitta skemmtilegt fólk, styrkja fjölskylduböndin og finna þegar samhljómur myndast um sameiginlegar minningar og fortíð.

Hópurinn við Borgarrétt
Prjónakonur

Í útilegu með systrum mínum og fjölskyldum þeirra var mikið prjónað, þ.e. þær prjónuðu en ég horfði á.
Menn sem hata konur – bíómyndin
Ég fór í fimmbíó og myndin var búin rétt fyrir átta (hún er tæpar 150 mín.). Þetta er ansi góð bíómynd, flottar senur, smekkleg birta og klippingar, dramatísk notkun á t.d. gömlum ljósmyndum sem eru haglega notaðar í myndinni, og fín tónlist. Sænskan er ótrúlega krúttlegt mál og gaman að hlusta á hana. Það er auðvitað ekki hægt að hafa allt úr bókinni með í myndinni, t.d. fær Erica Berger, sem er mikilvægur hluti af lífi Mikaels og mjög skemmtileg persóna, ekkert pláss í þessari mynd. Mikael Nyquist, þekktur leikari i Svíþjóð, leikur nafna sinn Blomquist og er doldið eldri en ég bjóst við (49), ég hafði séð hann fyrir mér aðeins yngri og fríðari, en Nyquist er mikill sjarmör, ekki spurning. Lisbeth Salander er bara flott, vel leikin af Noomi Rapace og ein áhugaverðasta kvenpersóna sem sést hefur lengi í bókmenntum. Ég varð strax sátt við hana sem Lisbeth. Leikstjóri er Niels Arden Oplev sem m.a. leikstýrði dönsku öndvegisþáttunum Örnen, Rejseholdet og Taxa. Myndin er hörkuspennandi og persónurnar verða manni hjartfólgnar, sérstaklega Lisbeth en þó þarf að varast í framhaldinu að gera hana grínaktuga. En hvernig á maður að geta beðið eftir næstu 2 myndum? Mér skilst að þær verði ekki sýndar í bíó heldur aðeins í sænska sjónvarpinu og dreift á dvd. Ég er ekki alveg búin með þriðju og síðustu bókina en það stefnir í svaðalegt uppgjör.
Reykjafjörður
Þar er heit laug sem er sjálfstætt starfandi. Ekkert þrifa- eða klórvesen þar, engar sturtur, búningsherbergi bara útveggir. En voða notalegt að dýfa sér í hana ef ónæmiskerfið er í lagi.
Tækni og vísindi
Nú hefur mér tekist að búa til skjal og tengja við síðuna en það var aðallega þess vegna sem ég valdi að blogga á wordpress, skv. ráðleggingum Drengs tölvugúrús, síðla hausts 2008. Þetta er svo sáraeinfalt þegar maður fattar það að það er bara fyndið. Lesendur góðir, skoðið til gamans flokkinn Ferðasögur hér til hægri og smellið þar á Húsbílareisa 2008 en það er pdf-skjal! Þar eru hugleiðingar húsbílafreyju frá sumarfríinu í fyrra og myndir sem Brynjar tók.
Tálknafjörður
Á Lambeyri við Tálknafjörð er gömul hvalstöð, hlaðin úr múrsteinum, og standa 2-3 útveggir uppi ásamt heljarmiklum strompi. Við gistum þar eina nótt (fengum til þess leyfi landeiganda en í raun er öllum heimil för um annars manns land og að tjalda til einnar nætur, skv. lögum). Brynjar tók þessa mynd af okkur Arwen, á móti sól með flassi. Daginn eftir hittum við Stefán Kristjánsson á Innari-Lambeyri, einsetumann og sérvitring, og áttum við hann fróðlegt spjall. Hann hefur m.a. sett subaruvél í trabant og hækkað hann upp, þessi bíll er vel gangfær en hefur ekkert verið hreyfður í sumar því það er þrastarhreiður í vélinni. Hann smíðaði hús sitt sjálfur og er að gera upp bíla og báta auk þess sem hann dútlar ýmislegt inni við, hugleiðir og spekúlerar. Hann hefur dregið sig í hlé frá skarkala heimsins, séð ljósið, öðlast heimspekilega ró og innri frið. Kannski verður maður sjálfur einhvern tímann svona þroskaður.