Hrafnseyri

Hér fæddist prinsinnHrafnseyri við Arnarfjörð heitir eftir Hrafni Sveinbjarnarsyni sem oft hefur verið nefndur fyrsti læknir á Íslandi (veginn 1213). Þar er safn tileinkað Jóni Sigurðssyni (1811-1879) og stílhrein minningarkapella um hann. Við komum þar í brakandi sól og fengum okkur kaffi og vöfflu með sultu og rjóma. Útsýnið af bæjarhlaðinu er dýrðlegt og ekki furða að hugur Jóns hafi stefnt hátt eftir að hafa notið þess í uppvextinum. Safnið er áhugavert og alltaf jafn sérstakt að sjá Jón og Ingibjörgu saman á mynd, hann svo ungur og myndarlegur, dökkhærður og sposkur, en hún eins og herfa enda beið hún eftir honum í 12 ár og yngdist ekki á meðan. Hrafnseyri er fornt prestsetur og þar er gullfalleg kirkja með útskornum skírnarsá eftir Ríkharð Jónsson. Æskuheimili Jóns, fallegur burstabær, hefur verið endurgerður mjög smekklega og þar er veitingasalan. Þar má  sjá svefnherbergi prestshjónanna og rúmið sem Jón fæddist í. Einnig er þarna reisulegur bautasteinn til heiðurs Jóni og auðvitað er flaggað þarna alla daga.

Dýrafjörður

Sumarkvöld

Ekið inn Dýrafjörðinn á fögru sumarkvöldi. Stutt í að sólin hverfi bak við fjöllin. Seinna um kvöldið lögðum við bílnum á Holtsbryggju í Önundarfirði. Þar voru steiktar fiskibollur bornar fram með hvítlaukssoðnum kartöflum, rjómalagaðri tómatsósu og fersku salati. Vindurinn vaggaði okkur í svefn og við vöknuðum árla næsta morgun við kríusöng…

Selárdalur

Hús Samúels Við komum í Selárdal þar sem listamaðurinn með barnshjartað, Samúel Jónsson, bjó og stundaði list sína. Verið er að endurgera hús hans við hlið rústanna af þvi gamla sem var orðið gjörónýtt. Hópur fólks vinnur þarna í sjálfboðavinnu við að komá staðnum í upprunalegt horf. Kirkjan sem Samúel reisti við hlið hússins er afar sérstök í frumstæðri fegurð sinni. Skammt frá kirkjustaðnum Selárdal eru Uppsalir þar sem Gísli blessaður bjó, annar einfari í lífinu. Það er einnig verið að gera upp hús hans. Á Uppsölum ná grasstráin manni í mitti, allt ilmar af lyngi, sól og greni, og lágir grjótgarðar hlykkjast um í undarlegu tilgangsleysi. Lífsbaráttan var hörð í Selárdal eins og víðar á síðustu öld og það snertir streng í brjóstinu að virða fyrir sér tóftir bæjarhúsa þar sem fólk átti börn og buru, bjó sér heimili við ysta haf, ræktaði sinn túnblett, gerði út bátskel  og glímdi við náttúruöflin. Árið 1900 fórust fimm bátar úr sveitinni í óveðri, 24 börn urðu föðurlaus og 11 konur ekkjur.

Reisan á enda

Endalaus fegurð

Endalaus fegurð

Eftir hálfs mánaðar reisu á húsbílnum sný ég aftur í borgarysinn. Veðrið lék við okkur ferðalangana, það var barasta sól og blíða allan tímann. Hvítir sandar, klettar og fjöll, sögustaðir, stórkostlegt landslag, Ég tók myndina út um bílgluggann í Örlygshöfn, Arwen virðir fyrir sér endalausa fegurð Vestfjarða á einum sólskinsdeginum. Ferðasagan bíður betri tíma.

Loftkastalar

Nú fer ég á Vestfirðina fögru með karl og tík í húsbílnum góða. Ég er með nokkrar góðar bækur í farteskinu, hef sparað mér Loftkastala Stieg Larsons (Luftslottet som sprängdes) sem Laufey lánaði mér og ætla að njóta þess að lesa hana í fríinu. Nú hefst sænskulestur með tilþrifum, held ég byrji bara strax í Borgarnesi.

Salander og Blomkvist iðin við kolann

Salander og Blomkvist iðin við kolann

Tilræðið

pal-isrÆgilega á ég erfitt með að skilja sjálfsmorðsárásir, að drepa sig og fjölda óbreyttra borgara í leiðinni í þágu (göfugs) málstaðar. Vissulega er tilgangur þeirra háleitur og fórnarlundin algjör. Tilræðið eftir Yasmina Khadra (not, það er dulnefni) fjallar um arabískan skurðlækni í Tel Aviv, kona hans sprengir sig í loft upp á kaffihúsi en hann hafði ekki hugmynd um að hún væri hryðjuverkamaður og berðist með Palestínu. Sagan lýsir harmi hans og hefnd sem leiðir hann á slóðir uppruna síns og það rennur upp fyrir honum að á meðan hann var að lækna sjúka og slasaða og búa um sig í öryggi og vellystingum er verið að murka lífið úr þjóð  hans. Hér sér maður stríðið milli araba og gyðinga í Ísrael í skýru ljósi.  Sagan er ágæt en alltof stutt, mér finnst vanta einhver málalok (t.d. hverfur Kim bara úr sögunni) eða kannski er það bara friður og sátt sem ég þrái? Og hvorugt er að finna á þessu svæði þar sem stríð hefur geisað í áratugi,  risaveldin kynda undir ófriðnum og græða á vopnasölunni.

Handbók um hugarfar kúa

Skáldfræðisaga eftir Bergsvein Birgisson. Þetta er stórskemmtileg bók, vel skrifuð og hárbeitt, hugmyndafræðin sem hún boðar er íronísk  og ótrúlega sannfærandi í allri geðveikinni. Flott analýsa á sögu mannsins á jörðinni, trúarbrögðum, kapítalisma, neyslu og græðgi, Drengur, þú verður að lesa þessa!
„Ég sagði að niðurstaða mín væri í raun sáraeinföld, að því betur sem maður sökkti sér í rannsóknir á kúm, þeim mun skýrar skildist manni að maður var í rauninni að stúdera mannskepnuna. Ég sagðist halda það væru ósýnileg bönd á milli kúa og menningar. Var ekki nútímamanninum markaður þröngur bás líkt og kúnni? Hafði hann ekki misst sína góðu geislan og persónuleika líkt og sýnt hafði verið fram á með kýr sem gengu inni alla daga? Minnti ekki vöxtur hans meir og meir á útlínur hormónakúa? Urðu ekki nautgripasýningar og verðlaunaveitingar fyrir stærstu og fallegustu skepnurnar að veruleika á sama tíma og útvalningarkenning kristninnar fór að breiðast út eins og pest um alla Evrópu og Bandaríkin? Og urðu ekki fegurðarsamkeppnir að veruleika um hundrað árum síðar? Mátti ekki bráðum tala um mannrækt í sama skilningi og nautgriparækt? Og hvað um mjólkina? Hún var orðin þynnri sökum fóðurbætisins og hún var gerilsneydd. Var hér kannski um að ræða beina mynd af útþynningu mannlegrar hugsunar og raunverulegra efnisgæða, þar sem allir hefðu meira af því sem varð lélegra og lélegra… (110)

Hér eru nokkur þúsund hamborgarar

Hér eru nokkur þúsund hamborgarar

„…hin belgíska blákýr, ræktuð í Englandi, sem var rænd sínu náttúrulega mýóstatín-geni sem stöðvar vöðvavöxt eftir að vissu marki er náð. Ef kapítalíska kýrin snerist um lágan fóðurkostnað og hagkvæmni þá sýndi sú túrbókapítalíska hvernig afkastaaukningartrúin hafði valtað yfir hagkvæmnistrúna með sínum fóðurbæti, hormónum og genaíhræringum. Blákýrin hélt bara áfram að vaxa, langt út fyrir þau mörk náttúrunnar sem beinagrindin setti, hún var mynd af tímum sem teygðu mörkin æ meira og virtu lífið að sama skapi minna – jafnvel Grikkirnir hefðu grátið í sínum mussum hefðu þeir séð slíka misþyrmingu hlutfallajafnvægisins, þar sem útblásið rassgatið var í engu samræmi við  haus eða fætur skepnunnar. Nýjustu tölur sýndu að í þessu hormóna-uppblásna og riðandi finngálkni lá framtíð sífellt „afkastameiri“ kjötiðnaðar, kvartmilljón af sæðishólkum úr bláuxum var seld til Bretlands bara árið 2005. Framtíðin var þetta þunglynda kjötfjall rekið áfram með rafhundum og stuðkylfum…(205).

Ástarleikur


Þá er Carlos gamli ekki síðri plokkari en Chris. Hann lyftir þessi lagi í æðra veldi, án hans væri það bara gutl. Hann fær samt ekki að vera í útvarpsþætti að þessu sinni. Á sumarvegi er alltaf kl. 1300 alla virka daga í júli, útsending á mínum þætti: 17. júlí, ég er búin að hlusta á þáttinn og veit ekkert hvaða nefmælta stamandi kona er að fimbulfamba þetta um gamlar ferðasögur, frekar þvoglumælt…

Leyndardómar Snæfellsness

Á GrundarfirðiFyrsta ferðalag sumarsins var á hið fagra Snæfellsnes. Dísin Arwen hegðaði sér mjög vel í ferðinni en vildi ekki éta matinn sinn, heldur kaus að ræna grillmat og eggjabrauði frá okkur ferðalöngunum. Fyrri nóttina var gist í Grundarfirði á fínu tjaldstæði þar sem var nóg pláss og snyrtileg salerni. Grundarfjörður er bæði fallegur og menningarlegur bær, þar er fínasta sundlaug, sólsetrið yndislegt og höfnin fögur. Á nesinu var mikil umferð um helgina og seinni nóttina gistum við á týpísku tjaldstæði við Arnarstapa þar sem úði og grúði af Íslendingum á risapallbílum með fjórhjól, kajaka, felli- og hjólhýsi fyrir milljónir, gaulandi slagara fram undir morgun. Við Arnarstapa er mikið fuglalíf og ég skil ekki í því hvað krían er þrautseig að koma þarna ár eftir ár eins og ágangurinn er á varpsvæðinu og sjófuglar hafa tæpast frið heldur fyrir glápi túrista.  Veðrið var yndislegt, ótrúlega hlýtt og milt og sólin bakaði okkur.  Inga fór á hestbak og í sund á Lýsuhóli eins og þaulvön sveitastelpa. Reisan endaði í Hyrnunni í Borgarnesi, með viðbjóðslegum hammara, á meðan átti Arwen að bíða í bílnum en gelti stanslaust og var við það að fá taugaáfall.

Þessi þrjú voru í framsætinu