Hundur í bíl

Við fögnuðum of snemma! Dísin Arwen hefur aftur tekið upp fyrri ósiði í bílnum og er nú fallin í ónáð hjá hundasálfræðingnum. Hún er mjög góð í að vera ein heima, liggur í bæli sínu og hlustar á rás eitt, sötrar vatn og nagar bein, hún er til fyrirmyndar í alla staði nema í bílnum. Hvað er til ráða?

Fílar sig ekki í bíl

Fílar sig ekki í bíl

Tré Janissaranna

Í kvennabúri soldáns

Í kvennabúri soldáns

Ég er að lesa Tré Janissaranna, sakamálasögu eftir Jason Goodwin í svolítið stirðri þýðingu Ragnars J. Gunnarssonar. Geldingnum Yashin er falið að rannsaka dularfull morð við hirð Tyrkjasoldáns. Óvenjuleg rannsóknarlöggan, sögutíminn (nítjánda öldin) og framandi umhverfi heimsveldis Ottómana í Istanbúl minnir mig aðeins á sögurnar um Erast Fandorín (Boris Akunin), hinn fræga og rökvísa, rússneska spæjara sem ég held mikið upp á. Yashim er fágætur karakter og merkileg persóna, geltur á unga aldri, kynlaus en ekki alveg laus við langanirnar. Hann er útsmoginn og lunkinn að leggja saman tvo og tvo, fíhraustur og afbragðs kokkur (girnilegar uppskriftir eru í sögunni). Það er gaman að fylgjast með iðandi borgarlífinu, markaðstorgum og moskum, kurteisisvenjum og tedrykkju, stéttaskiptingu og samfélagsgerð þar sem súpugerðarmenn, vændiskonur og sútarar hafa hver sitt umráðasvæði. Fortíð og framandi menningarheimar eru svo sannarlega heillandi söguefni. Janissarar þeir sem bókin er kennd við voru úrvalssveit hermanna sem hafði verndarhlutverk og naut ýmissa forréttinda. Á friðartímum gerðust þeir yfirgangssamir og loks fékk soldáninn nóg, snerist gegn þeim og voru þeir felldir  þúsundum saman hvar sem til þeirra náðist. Nú er ég á bls. 204 (af 345) og svo virðist sem einhverjir Janissarar hafi lifað af helförina og hyggi á hefndir. Líst vel á og held að Yashim muni takast að leysa málið en til þess hefur hann aðeins tíu daga.

Hundadagar

Í dag fórum við upp fyrir Hellisheiðarvirkjun, gengum þar á góðan hól í blíðunni og nutum útsýnisins. Við vorum á leið til Óttars Haraldssonar í afmælisveislu í Holtunum. Óttar er flottur á því, hann á ekki bara afmæli á bjórdaginn heldur er hann líka með sundlaug í garðinum. Tíkin Arwen fékk að sjálfsögðu að skottast með. Við höfum verið að æfa hana í að vera til friðs í bílnum en í fyrsta skipti sem við fórum með hana vældi hún og spangólaði allan tímann. Nú er hún eins og ljós, situr kyrr eða liggur og dormar. Þeim, sem vilja læra að venja hunda af ósiðum, er bent á Brynjar hundasálfræðing!

Á toppnum

Á toppnum

 

Frábært að fá að hlaupa frjáls úti í náttúrunni

Frábært að fá að hlaupa frjáls úti í náttúrunni

Segðu mömmu að mér líði vel

Skyldi Gandri  hafa notað svona fallega ritvél?

Skyldi GAndri hafa notast við svona fallega ritvél?

„Ástin læðist. Skjálfandi niður stigann sem marrar í líkt og í kveðjuskyni, framhjá svefnherberginu þar sem hjónin hrjóta í eindrægni… – framhjá Borgundarhólmsklukkunni með sínum afmörkuðu stundum, framhjá eldhúsinu sem angar af kjötsúpu og mjólk í gömlum tuskum, framhjá hneyksluðum stólum og hnýsnum glerdýrum, framhjá tuttugu og átta hekluðum dúkum sem bíða notkunar prúðir og undirgefnir, framhjá sperrtum sófa með nýju rósamynstri. Ástin læðist framhjá hundunum í forstofunni sem lyfta haus í virðingarskyni og horfa snortnir á eftir henni; framhjá stígvélum, úlpum, reiðtygjum, snærishönk, veiðistöng, byssuhólk, skeifum; framhjá spariskóm og skáldkonukápum, yfir þröskuld og út á tröppur – út á stétt og út á tún og bak við fjós þar sem júnínóttin bíður spennt“ (119).
Einstaklega hugljúf saga og fallegur texti eins og Guðmundur Andri er þekktur fyrir. Margar persónurnar eru í fjarlægri fortíð sem vekur nostalgískar kenndir. Sagan snýst um ást og sorg og gleði. Ljóðrænn texti, vísanir, nostrað við orðin, söknuður eftir horfnum tímum svífur yfir vötnum. Doldið antíklæmax í restina, bjóst við meira drama en er samt mjög sæl með bókina (kápan er gaga).

Fyrir frostið

Rannsóknarlögreglumaðurinn geðstirði, Kurt Wallander, fær liðsauka frá Lindu dóttur sinni í nýjustu bók Henning Mankells, Fyrir frostið ( Innan frosten kom út 2002 í Svíþjóð en 2008 hér á landi, hvaða seinagangur er það eiginlega?) Linda litla ætlar líka að verða lögga og er sannarlega betri en enginn, bráðskörp og hugrökk kona. En þarf hún ekki bara að fá sinn eigin bókaflokk? Sagan er alltof löng og langdregin, undarlegar þýðingar á stöku stað og óskipuleg greinaskil í samtölum en spennan er vissulega til staðar og karakterarnir áhugaverðir þótt þeir séu orðnir frekar fyrirsjáanlegir, löggurnar stressaðar og glæponarnir snarklikkaðir trúarofstækismenn. Wallander hefur verið í betra formi, ég vil meira af honum og minna af Lindu.

Gengið á Helgafell

Hressandi fjallganga

Helgafell í Hfj.

Nú er meiningin að halda sér sprækum á árinu með útivist og góðri hreyfingu. Fyrsta fjallganga ársins var á sunnudaginn, á Helgafell við Kaldársel í Hafnarfjarðarlandi (293 mys). Frænkur mínar, Unnur og Oddný, gengu með mér, báðar alræmdar fjallageitur. Ganga á Helgafell er 5,6 kílómetrar skv. göngumælinum sem ég fékk í jólagjöf frá Brynjari, tekur ca. einn og hálfan til tvo klukkutíma og er þægilegur sunnudagsrúntur á troðnum stíg með góðu útsýni. Á eftir var bollukaffi hjá Þuru systur, ekki amalegt.

Rólegheit

Hjá mér verða mestmegnis rólegheit um helgina, Arwen kemur í heimsókn svo ég á ekki von á að fá mikla athygli frá karlinum. Löng gönguferð er á dagskrá og eitthvað gott að borða að henni lokinni. Vonandi líta vinir og ættingjar inn og vonandi drullast ég í ræktina. Svo er skemmtileg ráðstefna um Jörund hundadagakonung hjá Félagi um 18. aldar fræði á laugardaginn. Á mánudag og þriðjudag er vetrarfrí, þá ætla ég á snyrtistofu, búðarráp, heimsóknir og kaffihús , lesa góðar bækur og gleyma bæði sorgum og kreppu í bili.

Inga í loftköstum

Inga í loftköstum

Bláir skór og hamingja

Sólsetur í Afríku

Sólsetur í Afríku

„Mma Ramotswe hallaði sér aftur í stólnum og lokaði augunum. Hún vissi að til voru staðir í heiminum sem voru alltaf grænir og gróskumiklir, þar sem vatn hafði enga merkingu því að það var alltaf til staðar, þar sem gripirnir voru aldrei horaðir og sljóir; hún vissi það. En hana langaði ekki til að búa á slíkum stað því hann væri ekki Botsvana, að minnsta kosti ekki hennar Botsvana. Uppi í norðri, nálægt Maun, við óseyrina þar sem áin rann öfugt, aftur inn í landið, var gróskan meiri. Hún hafði komið þangað margoft og tærir lækirnir og víðáttur Mopani-skóganna og hátt grasið hafði fyllt hana undrun. Hún hafði verið glöð fyrir hönd fólksins þarna því það hafði vatn allt í kringum sig, en henni hafði ekki fundist þetta vera sinn staður, heldur var hann í suðrinu, í brakandi þurru suðrinu“ (208).

Enn ein hugljúf saga um Mma Ramotswe á Kvenspæjarastofu nr. 1 eftir Skotann Alexander McCall Smith, sú sjöunda í röðinni. Maður er eiginlega kominn til Afríku og finnur lyktina af kraumandi graskersbitum í potti, rauðrunnatei og kleinuhringjum og iljarnar brenna í sjóðheitum sandi. Skemmtilegar persónur og góður andi svífur yfir, viska og yfirvegun; þetta er mannbætandi lesning. Og nú er verið að gera bíómynd um Kvenspæjarastofuna, það verður gaman að sjá. Ekkert popp og kók í hléinu, heldur  mopani-ormar og vatn.