Herra Pip

Dickens, 1812-1870

Dickens, 1812-1870

„…Ég hef reynt að lýsa þvi sem kom fyrir mig og mömmu á eynni. Ég hef ekki reynt að fegra neitt. Allir segja það sama og Dickens. Þeir hafa dálæti á sögupersónum hans. En eitthvað hefur breyst innra með mér. Eftir því sem ég hef elst hef ég fjarlægst sögupersónur hans. Þær eru of háværar, þær eru ýktar. En séu grímurnar teknar af þeim má sjá skilning hjá skapara þeirra á mannssálinni og öllum þrautum hennar og fordild. Þegar ég sagði föður mínum frá dauða mömmu féll hann saman og grét. Það var þá sem ég áttaði mig á því að fegrun getur átt rétt á sér. En hún á heima í lífinu – ekki bókmenntunum“ (233).

Herra Pip er frábær bók. Á afskekktri suðurhafseyju geisar stríð en hin 13 ára Matilda kynnist Glæstum vonum eftir Dickens hjá hinum undarlega Hr. Watts, eina hvíta manninum á eyjunni. Hermenn og skæruliðar halda eyjarskeggjum í helgreipum, eina flóttaleiðin er á náðir skáldskaparins en hann getur verið skeinuhættur. Sagan er um kærleika, grimmd og hinn undarlega eiginleika eða náðargáfu mannskepnunnar að geta raðað saman lífi sínu úr rjúkandi rústum.

Landsfundir

Dæmigerður pólitíkus

Fleiri svona á þing?

Nú funda stóru stjórnmálaflokkarnir hver um annan þveran og svokölluð kosningabarátta er að komast í algleyming hjá öllu batteríinu.  Það þarf að tryggja völdin, halda sinni þægilega innivinnu og þeim bitlingum sem rekið hafa á fjörurnar. Þegar ég sé þetta fólk, með hvítþvegnar ásjónurnar, gömlu þreyttu stefnumálin og úldna frasana verður mér bara illt.

„Pabbi“ reiður

Fallegur dagur á Vatnsleysuströnd

Fallegur dagur á Vatnsleysuströnd

Fallegur sunnudagur er brátt á enda, þorskflak í ofni og hrísgrjón krauma í skálduðum potti, hundslappadrífa liðast niður og Sommer er i fjernsynet i aften.

Við fengum okkur göngutúr á ströndinni í blíðunni í dag, Arwen til mikillar gleði en hún fékk að hlaupa og leika sér, laus og liðug. Hún er byrjuð með stæla þegar hún á að fara inn í bíl eftir útivistina, á fimmtudaginn vorum við á Nesjavallaleið og þá stakk hún hreinlega af, brokkaði bara framhjá og þóttist ekkert vilja með okkur hafa. Þá var nú „pabbi“ reiður. En nú settum við ólina á hana í tæka tíð svo hún komst ekki upp með neitt múður en hún reyndi það samt. Þótt hún sé falleg og blíð og mörgum kostum búin, hefur hún allmarga ósiði sem þarf að venja hana af.  Til dæmis: að gelta og ryðjast niður stigann þegar dyrabjöllunni er hringt, að gelta að því sem hún sér út um gluggann, væla og sífra um athygli, að ýlfra í bílnum þangað til barið er bylmingshögg í búrið, að hlýða skipunum ekki alveg strax, að reyna að stjórna og toga í ólina í gönguferðum og gelta í tryllingi á  hunda og ketti sem verða á vegi hennar. Það er ærinn starfi framundan.

 

Skáldkona

Ég var að lesa Dægurvísu (1965) og Í sama klefa (1981) eftir Jakobínu Sigurðardóttur, greip Snöruna (1968) í leiðinni. Dægurvísa var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs á sínum tíma. Hún eldist ekki sérlega vel, er doldið unglingaleg í byggingu en vel stíluð, persónurnar eru einfaldar og söguþráðurinn frekar óspennandi. Hugmyndin gengur út á að fylgjast með íbúum húss í einn sólarhring, hvunndegi þeirra og örlögum, ástum, sorg og vonbrigðum. Jakobína gerði margvíslega tilraunir með sögumann og sjónarhorn, í Snörunni (sem er mjög sósíalísk bók) er verið að ávarpa annan mann og í Í sama klefa segir alþýðukona annarri konu frá lífshlaupi sínu, frásögn hennar er slitrótt og tilþrifalítil en þegar hún raðast saman finnur maður til samúðar og samstöðu með lítilmagnanum.  Verk Jakobínu eru ýmist flokkuð sem módernismi eða undir félagslegt raunsæi. Jakobína fæddist á Hornströndum frostaveturinn mikla. Hún bjó rausnarbúi í Mývatnssveit til dauðadags 1994 og hóf að skrifa skáldsögur eftir að hafa komið upp fjórum börnum. Það var (er?) hlutskipti margra skáldkvenna. Það er engin mynd til af henni á netinu og hún er ekki á bókmenntavefnum undir joð.

Árskort í Hreyfingu

Við Sossa keyptum árskort í Hreyfingu og höfum spriklað þar til málamynda. Nú er árið liðið í aldanna skaut og ég sá í hillingum að ég mundi losna við tæpan 6000 kall af vísakortinu um mánaðamótin. En nei, þá er smátt letur í samningnum og þrír mánuðir bætast við nema ég rifti samningi og greiði riftunargjald! Þetta segir í bréfi frá þessum ræningjum: „Samningur þinn við Hreyfingu er undirritaður: 31.03.08 til 12 mánaða og með 3 mánaða uppsagnarfrest. Binditíminn er til : 31.03.09. Berist uppsögn fyrir 14. dag mánaðar gildir hún frá 1. degi næsta mánaðar á eftir. Telst sá mánuður sá fyrsti af þrem. Uppsögn þín telst frá og með 01.04.09 og verður kortinu þínu lokað 30.06.09. Ef þú kýst að rifta samningi þínum áður en binditíma er lokið þarf að greiða kr. 5.279,- í riftunarkostnað í síðasta lagi 17.03.09. Þá verður korti þínu lokað 31.03.09. … Þegar gengið hefur verið frá riftun munt þú fá staðfestingu á tölvupósti frá samningar@hreyfing.is. Við viljum líka benda þér á að hægt er að framselja samninginn til annars aðila fyrir 5000 kr.“

Hvað finnst ykkur um þetta? Ég er náttúrulega sauður að lesa ekki samninginn almennilega en hvernig á maður að búast við þessu? Hefði ekki verið lágmarkskurteisi og gúddvill við kúnnann að vekja athygli hans á þessu og benda honum á í tíma að segja þyrfti upp árssamningi eftir 9 mánuði? Að árskort sé óvart rukkað í 15 mánuði? Er ekki bara verið að ræna mann og féfletta?

Fúl prófkjör

Ég verð að taka undir með Dreng frænda mínum með vonbrigði vegna niðurstaðna í prófkjörum stjórnmálaflokkanna. Þetta er allt sama, gamla liðið, fúlir uppvakningar og múmíur með sömu lummurnar: taka á vanda heimilanna, koma hjólum atvinnulífsins í gang, krefjandi verkefni, mörg tækifæri og bla bla bla. Þetta fyrirkomulag, flokkar, prófkjör, listar, kosningarbarátta og kjaftæði, er algjörlega úrelt.

Hundauppeldi

Í dag kom Albert, hundaþjálfari Íslands, og sagði Arwen til syndanna. Fyrst var hún laus í bílnum og þegar hún vældi sprautaði hann vatni framan í hana. Eftir ca. 10 gusur hætti hún að væla. Svo setti hann hana í búr og breiddi teppi yfir búrið svo hún sæi ekki út (áreitin úr umhverfinu spenna hana upp). Þegar hún fór að væla barði hann bylmingshögg í búrið og sagði bannorð. Eftir 2-3 högg hætti hún að kvarta og heyrðist ekki í henni meir! Svo fór hann með hana í stuttan göngutúr og vandi hana af því að troðast fram fyrir og draga mann hálfhlaupandi á eftir sér. Þetta tók hann ca. hálftíma. Þetta er algjör snllingur, sér algjörlega inn í huga hundsins og gjörþekkir eðli hans. Nú þurfum við bara að halda þessu við, með aga og ákveðni og hrósi þegar við á. Þegar hún er búin að læra þetta almennilega ætlum við að æfa hana í að vera kyrra uppi þegar gestir koma, ekki gelta og ryðjast niður stigann að dyrunum, heldur bíða þar til gestunum þóknast að heilsa henni. Það er nefnilega gaman að vera hundur þegar hann veit til hvers er ætlast og að hann þarf ekki að hafa umsjón með öllu og stjórna heimilislífinu.

Skaparinn

Japönsk fjöldaframleiðsla

Japönsk fjöldaframleiðsla

Ég lauk við Skaparann í dag, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Ég hef alltaf verið mjög hrifin af verkum Guðrúnar Evu Mínervudóttur, Albúm fannst mér frábær bók og einnig Fyrirlestur um hamingjuna. Í þeim er einhver þægileg hippastemning sem ég fíla vel, liðinn / glataður tími, venjulegt fólk sem hefur sína sérviskur og fortíðarþrá. Í Skaparanum segir frá Sveini sem smíðar kynlífsdúkkur og Lóu, einstæðri móður á barmi taugaáfalls, eldri dóttir hennar þjáist að anorexíu og sjálf er Lóa á góðri leið með að missa stjórn á drykkjunni. Sjónarhorninu er skipt á milli þeirra Sveins og Lóu og sömu atburðum lýst út frá upplifun hvors þeirra. Um leið er tekist á um heimspekilegar og siðferðilegar spurningar, um líkama og sál, sköp-un og sílikon, kynlífsiðnað, firringu og einmanaleika. Hér er hvorki klám eða predikanir, bara einmana manneskjur sem þurfa á ást og umhyggju að halda og kynnast af tilviljun. En margs konar misskilningur,  komplexar og flækjur koma upp enda er lífið flókið og fullt af veseni. Þó leynist von í allri þjáningunni og ruglinu. Flott bók og vel skrifuð. Mér og minni fjölskyldu kom verulega á óvart að sjá vísu eftir pabba í bókinni, orta um Kópavogsskáldið góða  Hjört Pálsson fyrir margt löngu:

Hann sem aldrei átti föt / né krónu fyrir kaffi / er nú kominn út á göt- / u á Béemmvaffi.