
Um helgina voru bakaðar og skreyttar piparkökur í sumarbústað í Skyggnisskógi með Sossu og Hafsteini. Börnin drógu ekki af sér við skreytingarnar (Magnús, Írena og Inga, Erik náðist ekki á myndina). Veður var gott, veislumatur á borðum og heiti potturinn yndislegur. Góð afslöppun frá vinnu og jólastressi.
Jólastemning
Í gær var aðventugeimið. Það var rosa gaman, dýrindis veitingar og frábær skemmtiatriði. Best var samveran í góðra vina hópi og við erum líka öll rosalega skemmtileg og fyndin. Þór, Silja, Hildigunnur og Þórdís sungu nokkur jólalög fjórraddað við mikinn fögnuð og farið var í svaðalegan pakkaleik þar sem engin miskunn var sýnd, síðan í orðaleik sem reyndi á leiklistarhæfileika, útsjónarsemi og orðsnilld. Með þessu öllu var sötrað jólaglögg og fleira, spjallað og spekulerað. Stuð og stemning sem kemur manni aldeilis í jólaskap.
Tilnefndir til þýðingarverðlaunanna 2010
Þá hefur dómnefndin tilnefnt fimm öndvegisþýðendur til verðlauna. Í nefndinni voru auk mín Kristján Árnason, sem þýddi Ummyndanir eftir Óvíd og fékk verðlaunin í fyrra, og Ragnheiður Margrét Guðmundsdóttir. Það fór vel á með nefndarmönnum, fundir voru tíðir og skemmtilegir.
Atli Magnússon
tilnefndur fyrir Silas Marner eftir George Eliot (Mary Ann Evans)
Erlingur E. Halldórsson
Tilnefndur fyrir Guðdómlega gleðileikinn eftir Dante Alighieri
Njörður P. Njarðvík
tilnefndur fyrir Vetrarbraut eftir Kjell Espmark
Óskar Árni Óskarsson
Tilnefndur fyrir Kaffihús tregans eftir Carson McCullers
Þórarinn Eldjárn
Tilnefndur fyrir Lé konung eftir William Shakespeare
Aðventugeim
Laugardaginn 4. des. kl. 20 á ég von á ættingjum mínum í heimsókn. Barnabörn afa og ömmu á Akureyri eru 14 og flest búa hér á höfuðborgarsvæðinu. Ég er elst og rennur blóðið tiil skyldunnar að hafa partí enda er hér um að ræða einstaklega fallegt og skemmtilegt fólk. Þeir sem vettlingi geta valdið ætla að líta inn í jólaglögg og gæða sér á skinku og kannski paté líka og svo kemur hver og einn með sitt bús og eitthvað gúmmulaði á borðið eftir efnum og ástæðum. Ég hlakka til að sjá ykkur, elskurnar!
Heimasætan
Hollar smákökur
Til að gera „hollar“ smákökur er þjóðráð að nota spelt i staðinn fyrir hveiti, hrásykur í staðinn fyrir sykur, vínsteinslyftiduft, og smjör eða kókosolíu í staðinn fyrir smjörlíki. Nota svo 70% súkkulaði og duglega af hnetum og möndlum, döðlum og rúsínum, hafragrjónum og kókosi. Kökurnar verða mýkri og geymast e.t.v. ekki eins lengi en hver er að geyma smákökur inn í eilífðina? Tvær sortir úr kökubók Jóa Fel lágu kylliflatar í kvöld: döðluspes og konfektsmákökur.
Vinnan
Ritdómar
Vegna fjölda áskorana verða ritdómar mínir settir inn jafnóðum og þeir birtast í Mbl. Sjá Ritdómar 2010 hér til hægri.






