Frestur

Ég er mjög skipulögð kona og slæ hlutum yfirleitt ekki  á frest. Mér finnst best að drífa hlutina af og vil ekki hafa þá hangandi yfir mér. Illu er alltaf best aflokið, það er margsannað mál. En þetta er þó ekki algilt með mig þótt ég sé yfirleitt til fyrirmyndar með þetta. Ég er með skattskýrslufælni. Og er búin að sækja um frest.

Logi í beinni

Við erum með vikulanga ókeypis kynningaráskrift að Stöð 2 og duttum þess vegna inn á Loga í beinni á föstudagskvöldið. Þar var Benedikt Erlingsson í heimsókn ásamt fleirum og var alveg frábær eins og hans er von og vísa. Hann var ómyrkur í máli þegar hann dissaði algjörlega þennan furðu vinsæla sjónvarpsþátt. Hann sagði blátt áfram við þáttastjórnandann að hann væri ósköp þægilegur og hlýðinn, tæki ekki á neinu sem skipti máli eða væri óþægilegt, að hann talaði bara um yfirborðslega hluti, voða stutt við hvern viðmælanda og skipti svo strax um umræðuefni ef talið bærist að einhverju vitrænu. Svo skvetti hann úr vatnsglasinu framan í Loga. Er hægt að fá fleiri svona sjarmerandi, fyndna, hreinskilna og hugumstóra menn í fjölmiðla eins og Benedikt?

Gauragangur

Það var mikið rokk og ról á Gauragangi í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Sýningin ber nafn með rentu, leikritið fjallar um strákagaura fyrst og fremst, aðallega hið önuga og uppreisnargjarna ungskáld Orm Óðinsson. Guðjón D. Karlsson leikur Orm og gerir það bara fantavel. Lögin eru grípandi og skemmtileg og vel flutt, söngurinn flottur (Guðjón er fínn söngvari og Valgerður algjör díva), dansarnir líka og sviðsmyndin er smart, grafíkin á tjaldi innst á sviðinu kom mjög vel út.  Leikararnir stóðu sig almennt mhög vel. Ég fattaði ekki alveg yngstu systur Orms sem var algjört krútt en átti hún að vera smábarn eða var hún þroskaheft? Sigrún Edda var ægilega tilgerðarleg, eins og hún er nú góð leikkona yfirleitt. Kennararnir voru frábærir, Bergur Þór fór algerlega á kostum. Karakterarnir eru grunnir, dregnir einföldum dráttum og boðskapurinn ekki sérlega djúpur en svoleiðis eru söngleikir og það er bara gaman. Nokkur atriði hefði að ósekju mátt stytta eða sleppa þar sem sýningin er fulllöng (kl 20 til 23). Það mátti heyra saumnál detta í salnum sem var troðinn unglingum úr grunn- og framhaldsskólum landsins en síðan brutust út mikil fagnaðarlæti í sýningarlok. Gauragangur er flott fjölskyldusýning, stuð og stemning.

Kjúlli Kristjáns Jóhannssonar

Ein afar einföld, holl og góð uppskrift sem ég  rakst á í Fréttablaðinu 29. jan.sl. og prófaði óðara:

3-4  kjúklingabringur, smjör, ólífuolía, 1 sítróna, salt og (sítrónu)pipar.

Bringur skornar í þunnar sneiðar (flattar út) og slegnar létt niður svo þær verði þunnar. Kryddaðar og steiktar á pönnu úr samblandi af smjöri og olíu. Þegar bringurnar eru fullsteiktar er meira smjöri skellt á pönnna og þegar það er bráðið á að kreista yfir safa úr einni sítrónu: „ed ecco tutto é pronto!“ segir Kristján. Sítrónan gefur frábært bragð og gyllir kjúklingabringurnar og sítrónusmjörsósan sem verður til er dásamleg. Borið fram með hrísgrjónum og því sem vill. Ég prófaði þessa í sumarbústað um daginn og uppskar einróma lof.

Holl súkkulaðikaka

Fékk þessa hollu kökuuppskrift frá þjálfaranum í Hreyfingu, rosalega góð. Nú eru þrjár vikur búnar af átakinu, eitt kíló fór í viku tvö og hálft er komið aftur á sinn stað. Ég er nú ekki í neinni megrun en er mun lögulegri og liðugri og fíla mig í botn, rennsveitt í spinning, lóðalyftingum og magaæfingum.

Sunnudagssúkkulaðikaka

100 g möndlur, 100 g kókosmjöl, 2 msk rifið appelsínuhýði, 250 g döðlur, 2-3 msk hreint kakóduft, 1/2 msk hreint vanilluduft. Allt sett í matvinnsluvél og þjappað ofan í form og sett í frysti.  

Súkkulaðikrem

1 dl kaldpressuð ólífu- eða kókosolía, 1 dl hreint kakóduft, 1/2 dl agave síróp. Setjið olíuna í skál sem er svo sett ofan í heitt vatn svo hún verði fljótandi. Hrærið svo restinni saman við og berið ofan á kalda kökuna.

Hótel Hekla

Yndislegt sveitahótel

Ég var á námskeiði í síðustu viku um menntun til sjálfbærni (sjá td. hér), bæði fróðlegt og skemmtilegt. Námskeiðið var haldið á Hótel Heklu á Skeiðunum, frábæru sveitahóteli sem ég verð að mæla með. Þar er allt í þægilegum kántrístíl, starfsfólkið elskulegt og skemmtilegt og maturinn alveg frábær. Ég er enn að hugsa um rauðsprettuna og mangóísinn góða með rósapiparnum, þvílík veisla. Þarna var mikið pælt í framtíðarmöguleikum Íslands og heimsins alls í hátækniheimi neyslu- og gróðahyggju, virkjunum, mengun, velferð og lýðræði; djúpar pælingar í gangi og hlutverk þátttakenda er að huga að þessu hugtaki, sjálfbærni, (sem er síður en svo einfalt mál) í námskrárgerð fyrir framhaldsskóla framtíðarinnar.

Leðurblökur á rúv

Hvar nema á RÚV getur maður  horft á fræðsluþátt með frönsku tali um leðurblökur og læknavísindi? Bergmálstækni leðurblakna getur nýst blindu fólki og fært þeim „sýn“ og efni í munnvatni blóðsuguleðurblakna kemur í veg fyrir storknun blóðs. Úr því má vinna lyf fyrir sjúklinga sem eiga á hættu að fá heilablóðfall eða draga verulega úr afleiðingum þess. Svo eru leðurblökur langlífastar allra dýra miðað við stærð og hafa eitthvert undra DNA sem etv er hægt að nýta gegn öldrun og  krabbameini. Allt er þetta stórfróðlegt. En kannski hefði ég átt að eyða kvöldinu í annað?

Draumalandið

Ég ætla rétt að vona að kvikmynd Þorfinns Guðnasonar og Andra Snæs, Draumalandið, sé reglulega sýnd í öllum grunn- og framhaldsskólum landsins. Þar sést skýrt og greinilega að íslenskir stjórnmálamenn hafa verið og eru enn gráðugir og heimskir og að þeim er skítsama um land og þjóð. Að sjá forsetann, Davíð Oddsson, Geir Haarde, Halldór Ásgrímsson og Valgerði  Sverrisdóttur selja erlendum auðhringum og þungaiðnaði landið án þess að depla auga, það er hrikalegt. Sjá afleiðingar virkjunarinnar á Austurlandi á land og gróður, fólk og dýralíf er hrikalegt. Sjá glæpi, mútur og eyðileggingu Alcoa um heim allan, t.d. í Ástralíu er hrikalegt. Það er úthugsað hvernig fólki er talin trú um að hagvöxtur, þróun, framfarir, tækifæri og uppbygging fylgi álveri. Þjóðinni ber heilög skylda til að spyrna við fótum, láta ekki glepjast heldur varðveita náttúru Íslands, ekki bara okkar vegna heldur heimsins alls.