Lauk við Ódáðahraun eftir Stefán Mána í gær. Þetta er krimmi sem fjallar um hálftröllið Óðin sem er díler og glæpon en dregst inn í heim fjárglæfra og hlutabréfabrasks og er þar eins og fíll í postulínsbúð… Bókin byrjar vel, æska og uppeldi Óðins er alveg óborganlegt en svo dettur botninn úr því. Það eru góðir sprettir en kvenpersónur bókarinnar eru svo grunnar og einhliða að það er bara hrikalegt. Svo er ég búin að fá svo nóg af íslensku viðskiptalífi að ég hljóp mjög hratt yfir kaflana um yfirtökur og hluthafafundi… Það er einhver fljótaskrift á þessari bók, hún er hins vegar efni í magnað kvikmyndahandrit.
Ný tæki
Í dag var keyptur nýr ísskápur á heimilið. Ég vildi vera ísskápahönnuður, þessi þarfaþing hafa bara ekkert breyst gegnum árin í takt við neysluvenjur nútímafólks. T.d. ættu ávallt að vera amk. tvær eða þrjár grænmetis-/ ávaxtaskúffur sem hægt væri auðveldlega að taka út svo maður þurfi ekki að bogra inní ísskápnum við að velja hráefni. Svo á ekki að vera hilla í hurðinni þar sem skúffan er, bara renna skúffunni hindrunarlaust út úr skápnum. Svo er alveg nóg að hafa lítið frystihólf (fyrir ber og klaka í boostið) neðst í skápnum, ekki efst, og óþarfi að spandera í 3 frystiskúffur, amk. fyrir þá sem eiga kistu. Blástur er bara óþarfi og bruðl, ég lærði það í dag en flöskuhilla getur komið í góðar þarfir. Ég skellti mér líka á eina brauðrist þar sem mín gamla blés eldglæringum um daginn. Sú nýja er 1100w sem er víst algjört möst, hún glóðar tvær brauðsneiðar á nýju brautarmeti og er líka geðveikt retró. En þessi tæki voru svo rándýr að nú hef ég hvorki efni á brauði í ristina né mjólkursopa úr ísskápnum – fyrir utan það að skápurinn passar ekki í innréttinguna svo ég verð að rífa helminginn af henni niður…


Rannsóknarskýrslan
Hvað er svona ægilega spennandi við rannsóknarskýrsluna? Hvað kemur á óvart? Að virðingarleysið við lög og reglur sést núna svart á hvítu? Að eignatengsl og tilfærslur voru óeðlilega flókin og fjöldi skúffufyrirtækja fáránlegur? Óeðlileg lánafyrirgreiðsla? Markaðskúnstir? Að pólitíkusar, fjárfestar og fjölmiðlar voru allir með í bullinu? Að búið er að stela og stinga undan milljörðum króna? Svik og prettir? Ég segi nú bara eins og konan: What else is new?
Mangóís
Nú er 6 vikna átakið í Hreyfingu búið og antisportistinn búinn að kaupa 6 vikur í viðbót. Enda orðin svo löguleg og liðug og búin að ná af mér tilætluðum 2 cm. Ísskápurinn okkar gaf upp öndina í gær og til að bjarga rjómaslettu og þroskuðu mangói frá eyðileggingu prófaði ég að gera mangóís eftir uppskrift sem ég fann á netinu. Ég átti ekki sítrónusafa sem gert er ráð fyrir í uppskriftinni en notaði smá steyttan rósapipar, mér finnst það mætti vera meiri rjómi og minni mjólk (skítt með alla centimetra), en hér er uppskriftin:
| 1 þroskað mangó, flysjað og steinhreinsað, skorið í bita 90g (hrá)sykur 2 matskeiðar hunang 2 matskeiðar sítrónusafi 50ml rjómi (má vera meiri rjómi) 200ml nýmjólk 1 eggjarauða Maukið mangóið saman við sítrónusafann, sykurinn, hunangið, mjólkina og eggjarauðuna. Hrærið rjómanum saman við. Passið vel að allt sé vel blandað saman. Fryst (tekur 3-4 klst að frjósa). Það þyrfti að vera einhver góð sósa með þessu, einhver? |
Berjumst fyrir ástinni
Nú er ég (eilífðargelgjan) komin með þetta á heilann, set allt í botn og dansa á stofugólfinu:
Snyrting
Það eru ýmsir snúningar með Arwen aðrir en að fara með hana út að ganga. Hér er t.d. verið að klippa á henni langar og svartar klærnar. Síðan fer lafðin í bað (Inga sér um það) og er nudduð hátt og lágt með fína vellyktandi sjampóinu sínu, þurrkuð með mjúku handklæði og svo fær hún nammi á eftir. Öllu þessu tekur hún með jafnaðargeði.
Annar í páskum
Páskaleyfið er dásamlegt, kyrrlátt og friðsælt. Ég hef hlustað mikið á útvarpið, rás eitt og tvö, og er frekar ánægð með dagskrána þar. Alls konar fróðlegir þættir um fortíð og nútíð, viðtöl og þægileg tónlist. Svona er maður orðinn ráðsettur. Við Binni stinni gengum svo á Helgafellið með Arwen um miðjan dag, vorum eldsnögg upp og hlupum niður. Engin mynd er til af atburðinum, aldrei þessu vant. Um kvöldið kom Þura systir og fjölskylda og mamma og pabbi í mat, menuinn var einfaldur og hefðbundinn: hamborgarahryggur og ís. Þessa vísu fékk ég senda frá föður mínum sem telur sig vera tiltölulega syndlausan á upprisuhátíðinni:
Drottins frið og fögnuð kýs,
fjarri sálarháska,
líkur engli upp ég rís
á öðrum degi páska.
Föstudagurinn langi
Amtmaðurinnn á einbúasetrinu
Ég hef verið að lesa ævisögu Gríms Jónssonar amtmanns á Möðruvöllum í Hörgárdal (1785-1849) eftir Kristmund Bjarnason. Ég hef varla getað lagt hana frá mér þar sem hún er afar fróðleg og skemmtileg. Tímabilið sem fjallað er um er svo merkilegt og heillandi, Grímur sjálfur var merkismaður sem stóð í stappi bæði opinberlega og í einkalífi og dregin er upp sannfærandi mannlýsing, fjallað er bæði um lífshlaup hans og framavonir, ættir og fjölskyldu, persónuleika hans, kosti og galla. Mál og stíll bókarinnar má kenna við gullaldaríslensku. Engu er haldið fram í bókinni án raka og heimilda en stundum spurt kurteislega hvort hitt og þetta gæti verið orsök og afleiðing, margt er hrakið og ný gögn dregin fram í dagsljósið. Gaman er m.a. að lesa um skólahald á Íslandi í byrjun nítjándu aldar en Grímur var fátækur nemandi í Hólavallarskóla í Reykjavík. Kennslan er bágborin og snjóar inn í kennslustofurnar, margir skólapiltar eru með skyrbjúg, líkamlegar refsingar viðgangast og skólameistari er sífullur. Þá gerði ég mér ekki almennilega grein fyrir önnum þeim sem embættis-og valdsmenn hér á landi höfðu hér áður fyrr. Maður skyldi ætla að allt hefði verið hér meira og minna í dróma og deyfð og fátt borið til tíðinda sem Danakóngur hefði áhuga á eða vildi setja sig inn í. En aldeilis ekki, skrifa þurfti ótal skýrslur, yfirlit, tilkynningar og bréf í tví- og þríriti, taka við tilskipunum konungs og koma þeim til framkvæmda, eltast við að óléttar vinnukonur, níðskáld og niðursetninga, yfirheyra og ávíta vanhæfa hreppstjóra og svikula presta, refsa alþýðunni grimmilega fyrir minnstu yfírsjónir, standa skil á öllu regluverkinu, sköttum og verðgildi jarða, fjalla um verslun og búnaðarmál, vísitera í amtinu um óbrúaðar ár og í vondum veðrum, og skera úr deilum og margvíslegum klögumálum sem bárust endalaust inn á borð amtmannsins. Einkalíf Gríms var líka snúið, kona hans var dönsk og vildi búa í heimalandi sínu, börnin voru mörg og þau hjónin skuldum vafin. Á efri árum var hann oft sárþjáður bæði á sál og líkama, hann var rúmfastur og langt leiddur af margvíslegum kvillum (s.s. gyllinæð og tannleysi) þegar þjóðfrelsisþenkjandi bændur tóku sig til og riðu heim til hans með þeirri kröfu að hann segði af sér þar sem hann væri fulltrúi kúgunarvalds. Hálfum mánuði síðar lést Grímur amtmaður. Ævisaga hans er stórmerk heimild um manninn og aldarfarið, minnst er á margt fólk og merkilegt sem gaman er að lesa um, ýmist þjóðþekkt eða löngu gleymt. Vísað er í margvíslegar heimildir, m.a. er vitnaði í dagbók Nínu, dóttur Gríms, sem ég hefði hug á að lesa meira í. Ekki hefur mikið þess háttar efni eftir konur varðveist frá þessu tímabili, þó er eitthvað til að bréfum, t.d. þau sem fóru á milli Gríms og systur hans, Ingjbjargar sem var móðir Gríms Thomsens.
Útivist
Í dag var skrönglast áleiðis upp Esjuna. Veðrið í suðurhlíðum Kópavogs var mun betra en í Esjuhlíðum, þar var hörkuvindur og örlítil hríð en við vorum ágætlega búin. Við fórum eins langt og við nenntum, ég lít á svona ferð sem samveru, heilsubót og útsýnistúr en Brynjar setur ljósmyndun og aflraunir í fyrsta sæti. Bæði fengum við fyrir okkar snúð. Arwen fannst ekki sérlega gaman að vera í bandi en naut sín svo í botn á niðurleiðinni þegar hún fékk að hlaupa frjáls en þá fórum við útaf stígnum og inn í þennan gullfallega lerkiskóg sem sést á myndinni.


