Samlede værker

Ég vek athygli dyggra og útvalinna lesenda minna á því að nú er hægt að lesa bókmenntagagnrýni mína hér á síðunni (frá árinu 2000 og til vorra daga). Þetta efni hef ég dundað við að grafa upp og brotist í gegnum myrkviði WordPress með hyggjuvitið eitt að vopni. Ef til vill vantar einhverja dóma en þetta er mestallt hér samankomið. Ef stemning er fyrir því, mun ég setja inn fjölmiðlapistlana mína sem ég skrifaði í Moggann á árunum 2001-2003. Njótið vel.

Munaðarlaus

Í gærkvöldi fórum við Sossa á leikritið Munaðarlaus eftir Dennys Kelly (breskt leikritaskáld) sem sýnt er í salnum í Norræna húsinu. Þetta er hörkuleikrit, keyrt áfram án hlés í einn og hálfan tíma. Þrjár persónur takast á í þröngu rými, tengsl þeirra og stórar siðferðislegar spurningar koma fram í samtölum á milli þeirra: uppgjör, ásakanir, slitróttar setningar, misvísandi skilaboð, beiskja, höfnun; slettur, frammígrip, æsingur, hver talar ofaní annan, misskilja eða  leiða talið að öðru. Hér er meðvirkni, öryggisfíkn, samviska, réttlæti, rasismi, stéttaskipting, fjölskyldubönd, ofbeldi og ást. Helena og Danni búa saman og eiga fimm ára gamlan son Þau búa í fallegri íbúð í „fokking skítahverfi“ í stórborg, þau hafa góða vinnu og lifa sínu fjölskyldulífi innan um ofbeldi götunnar. Bróðir Helenu, Ívar, er í vondum málum og birtist eitt kvöldið á stofugólfinu hjá þeim, alblóðugur. Þau systkinin urðu ung munaðarlaus og hefur Helena haldið hlífiskildi yfir bróður sínum alla ævi. Eftir því sem líður á leikritið sést betur og betur hvaða mann persónurnar hafa að geyma og það er ekki fagurt. Verkið er þýtt á  hispurlaust talmál sem svínvirkar, fokk og sorrí í öðru hverju orði auka á trúverðugleikann. Þrír ungir leikarar fara með hlutverkin og eru allir upprennandi snillingar. Vignir Rafn Valþórsson þýðir og leikstýrir (gamall MK-ingur). Magnað leikrit, hrátt og átakanlegt, sem allir ættu að sjá, örfáar sýningar, sjá HÉR.

Ps. hlusta á Lostafulla listræningjann á rúv í dag kl. 14.30.

Faust

Mefistó og Faust díla um sál hins síðarnefnda (Delacroix 1798-1863)

Sagan af Faust hinum lífsþreytta sem seldi djöfsa sál sína forðum er sígild og Goethe gerði hana að efnivið sínum í samnefndu verki. Faust Goethes er sundurlaus ljóðabálkur sem hann var áratugi að hnoða saman en innan um eru gullmolar. Til eru tvær hálfkláraðar þýðingar á íslensku á Faust. Hið frábæra Vesturport hefur samið leikgerð af Faust og ég var á lokaæfingu í gær í Borgarleikhúsinu. Margt er gott og fallegt í sýningunni en ég var samt ekki alveg heilluð þótt þarna sé frábært og sérlega myndarlegt listafólk. Hilmir Snær er Mefistóteles og æðir frussandi um sviðið með ýktri rödd eins og vanalega, Björn Hlynur er litlaus sem Faust ungur og Rúnar Freyr alltaf jafnstirður. Nína Dögg var algerlega frábær og Þorsteinn Gunnarsson líka, alvöruleikarar sem lýstu upp sviðið með nærveru sinni, góðri framsögn og blæbrigðaríkri tjáningu. Gréta, ungmeyjan sem heillaði Faust  með sakleysi sínu og fegurð, var ekkert sérstök, hvorki sérlega saklaus né tælandi. Sviðsmyndin er smart útfærð en oft hrikti í henni þegar leikararnir klifruðu í henni. Yfir áhorfendur er strengt net þar sem leikið er og dansað af mikilli innlifun. Loftfimleikar þessir komu vel út fyrir djöfla og púka og innkoma t.d. Rúnars sem Valentinos (sem er orðinn einhver Valli skrípafígúra) var áhrifamikil en í sumum atriðum voru þeir næstum því kjánalegir. Í leikgerðina finnst mér vanta að túlka miklu dýpra angistina, bölið og efann í breysku manneðlinu. Hins vegar er þetta flugeldasýning í flottum sviðs- og leikhúslausnum, húmor og leikgleði og mér leiddist aldrei. Ég mæli hiklaust með því að fólk sjái þessa sýningu, hún er smart, frumleg og skemmtileg.

Veit ekki meir

Inga og Arwen eru ekkert að spá í ICEsave

Ég ætla alls ekki að taka upp mikið netpláss til að röfla um ICEsave en er enginn í heiminum öllum sem veit fyrir víst og getur rökstutt það óvéfengjanlega hvort skuldin fellur á þjóðarbúið eða ekki?

Smella Hér til að lesa skemmtileg grein sem lýsir eflaust hugsunum margra Íslendinga þessa dagana.

Jólin búin

Jólatréð okkar í ár var einstaklega falleg og stór stafafura sem var Karlakór Kópavogs var með til sölu en áður höfum við alltaf haft nötrandi normansþin. Á síðustu dögum jólanna gaf efsta serían á trénu sig enda orðin gömul. Ég er strax farin að  hlakka til næstu jóla, búin að kaupa nýja seríu og skraut á útsölu, hin hagsýna húsmóðir.

Jesús litli *****

Letilíf í dag eins og vera  ber á sunnudegi. Fékk góða gesti í kvöldmat til mín í gær, systur mínar báðar og Jónínu Ingibjörgu, og við fórum svo að sjá Jesú lítla í Borgarleikhúsinu. Það er skemmst frá því að segja að þettas er alveg stórskemmtileg sýning. Snilldarleikur hjá trúðunum þremur, rosalegt hugmyndaflug og æðislegur húmor.

Í dag var einstaklega fallegt veður og himinninn  eins og listaverk. Myndin var tekin í hrauninu við Garðabæ þar sem við röltum í blíðunni með Arwen sem fær þar að hlaupa um, frjáls og frí.

Elvis konungur

Stórgóður þáttur í Víðsjá, tileinkaður afmælisbarninu: Elvis Presley sem hefði orðið 75 ára í dag. Sagt var frá áhrifum hans á tónlistarsöguna en hann nýtti sér takta úr negrasálmum og tónlist þeldökkra sem þá var bönnuð. Frægð hans var gríðarlega mikil en líkt og Michael Jackson varð hann fórnarlamb hennar, innilokaður á heimili sínu og stútfullur af læknadópi. Hann var líka útpískaður karlgreyið, árið 1972 hélt hann t.d. að meðaltali 10 tónleika í mánuði með miklu stuði og mjaðmahnykkjum, þar sem trylltir aðdáendur hylltu hann og tónlist hans. Bros hans er ómótstæðilegt, göngulagið og hreyfingarnar ótrúlega kynþokkafullar. Hann lést haustið 1977, óumdeilanlega eini konungurinn sem Ameríkanar hafa átt. Þegar ég var ca 15 fékk ég Elvis-æði, við Elva Guðna, elsku vinkona mín heitin, lágum fyrir framan grammófóninn  í stofunni með Elvis í botni, skrifuðum upp textana og horfðum djúpt í augu hans á plötuumslaginu. Sjáið bara hvað hann er rosalega heitur í þessu lagi:

Elvis hefur yfirgefið bygginguna en hann lifir:

Ólíver

Pabbi bauð okkur afkomendum sínum og tengdabörnum á söngleikinn Ólíver í Þjóðleikhúsinu, hann gaf okkur það í jólagjöf. Það var mjög gaman. Sýningin er flott show, allir á þönum, dansandi og syngjandi. Hljómsveitin heldur uppi fjörinu. Sýningin er auðvitað fyrir börn fyrst og fremst, ógnin, háskinn og grimmdin eru milduð, persónurnar einfaldar og söguþráðurinn þynntur út. Söngtextarnir eru flottir og vel heyrast orðaskil. Góð skemmtun fyrir unga sem aldna og aldrei dauður punktur.