Eldveggur eftir Henning Mankell

Brynjar alltaf með Canon á lofti

Óbeislaður kraftur

Við brugðum okkur í bústað múttu og padre í Grímsnesinu um páskahelgina. Renndum upp að Geysi sem kraumaði í rólegheitum og sáum Strokk gjósa ásamt hundruðum túrista hvaðanæva úr heiminum. Ágangur er mikill á svæðinu sem er illa merkt og lítt umhirt en peningaplokk er verulegt í þjónustumiðstöðinni. Það var skítakuldi úti en hlýtt og notalegt að liggja undir teppi og lesa góða bók. Massaði Eldvegg eftir Henning Mankell, um rannsóknarlögreglumanninn Kurt Wallander og félaga hans. Wallander finnst hann vera orðinn gamall og þreyttur, kann ekkert á tölvur og er að bugast á firringu, grimmd og heimsku mannanna. En rökhyggja hans og næmt innsæi klikkar ekki.

Sjáendur utangarðs

„Á sviði efnishyggju snúast í þjóðlífinu tveir kólfar hvor um annan, sjálfstæðismenn sem lýsa því yfir að höfuðviðfangsefni þeirra sé að berjast gegn jafnaðarmönnum (…). Jafnaðarmenn telja höfuðviðfangsefni sitt að uppræta íhald – stjórnmálaflokk sem var lagður niður í landinu 1929. Hvorugur þekkir sjálfan sig af þeirri mynd sem andstæðingurinn bregður upp af honum. Báðir beita líkum aðferðum til að vera sér úti um lífsbjörg í þeirri veiðistöð sem þeir þekkja eina, lokaðir inni í leikgrind málfars em alvaran hefur étist innan úr“.

Svo ritar Þorsteinn Antonsson (f. 1943) í grein sem heitir „Íslenskt þjóðlíf og bókmenntastofnunin“ í bókinni, Sjáendur og utangarðsskáld (1985) sem ég keypti á bókamarkaðnum í Perlunni um daginn á 290 krónur. Skemmtilegar greinar um bókmenntir eftir kallinn, honum ratast víða satt á munn og ótrúlegt að sjá að sömu draugar eru á ferð í bókmenntastofnuninni og pólitíkinni síðan á níunda áratug síðustu aldar. Ég minnist þess að lærifaðir minn í bókmenntum í háskólanum, Matthías Viðar Sæmundsson (1954-2004), las eitt sinn upp úr persónulegu bréfi frá Þorsteini í kennslustund við mikinn fögnuð. Báðir sjáendur og utangarðs.

Páskalamb með adrenalíni

Meðan maður japlar á ólseigum lambaskanka sem fékkst á útsölu í Krónunni, útslitinn og pískaður, í langþráðu páskafríi (sem er rammíhaldssamri þjóðkirkju að þakka, hei, það er kannski sparnaðarhugmynd, að skera niður  helgidagana ?)… samanherptur af áhyggjum, sligaður af vaxtabulli og stjórnmálakjaftæði,  þá kemur nýtt svindl fram í fjölmiðlum á hverjum degi, mútur og spilling, – sem „btw“ ewnginn ber ábyrgð á. Og borgarfundir á rúv þar sem frasarnir um bjargráð fyrir heimili og atvinnulíf vella fram, Jesús Pétur Jósefsson…  Er það furða þótt maður hafi enga trú á pólitíkusum lengur?

Inga fermd

Inga var fermd í gær og lýsti því yfir í kirkjunni að hún ætlaði að leitast við að gera Jesú að leiðtoga lífs síns. Takk allir sem komu í veisluna í Víkingasalnum og glöddu hana með nærveru sinni og góðum gjöfum. M.a. fékk hún myndavél og saumavél, bækur og lausafé. Það var örþreytt dama sem sofnaði í gleym-mér-ei-rúmfötunum frá Diddömmu og dætrum um miðnætti í gær, enn með krullurnar í hárinu.

Eins og fyrirsæta

Fermingarmyndin

Menn sem hata konur

Rosalega spennandi

Rosalega spennandi

Ég er að lesa Menn sem hata konur (á ensku The girl with the dragon tattoo) eftir Stieg Larsson. Æsispennandi, fjölskyldudrama, morð í fjarlægri fortíð, fjármálasvindl og forboðnar ástir. Um hana gildir gamla lumman: ekki hægt að leggja hana frá sér fyrr en að lestri loknum. Von er á framhaldi, tveimur öðrum bókum eftir Larsson en hann lést sviplega áður en þrílógía hans um bráðmyndarlega blaðamanninn Mikael Karl Blómkvist og tölvunördinn og gotharann Lisbeth Salander kom út en saman leysa þau flóknustu mál. Ég bíð spennt.

Vargurinn

Ástarbál og fleira

Ástarbál og fleira

Á Seyðisfirði gerist margt í leynum og Jón Hallur Stefánsson hefur skrifað þennan fína krimma um það. Ég skemmti mér mjög vel við að lesa bókina, trúverðugar persónur og eðlileg samtöl, spennandi söguþráður og vel skrifað (nokkrar smávægilegar mál- og stafsetningarvillur). Hressandi sófalesning, spenna og drama.

5. LOST serían hófst í gær

Tveir af mínum uppáhaldskarakterum:

CAR HOP: [to Sayid] Here’s your order sir.
[Sayid hands the bag to Hurley and turns to hand the car hop money.]
SAYID: Keep the change.
CAR HOP: [to Sayid] Thank you.
[Sayid starts the vehicle while Hurley looks in the bag.]
HURLEY: [to Sayid] Ah, awesome! Want a fry?
SAYID: No, thank you.
HURLEY: You know maybe if you eat more comfort food, you wouldn’t have to go around shooting people.
[As Hurley pops a French fry into his mouth, Sayid drives out of the parking lot. They pull into the parking lot of a large motel and park. As they ascend to the level their room is located, Hurley is eating a hamburger.]
HURLEY: So that dude you popped outside Santa Rosa, who’s he?
SAYID: I don’t care. He was armed and he was watching you. That made him an enemy.
HURLEY: Ya think he was gonna kill me?
SAYID: I’m not taking any risks after Bentham died.
HURLEY: Ya mean Locke?
SAYID: Yes, I mean Locke.
HURLEY: I need a cool code name…

Doldið orðnir flóknir þættir og margt dularfullt á ferð.

Sayid og Hurley fá sér hammara

Hammari á góðum degi

Óttar á afmæli

Óttar minn á afmæli í dag, sama dag og Quentin Tarantino og Mariah Carey. Það var fyrir 22 árum sem ég var send í snarhasti með sjúkraflugvél frá Þórshöfn á Langanesi til Akureyrar þar sem drengurinn fæddist, kl. 17.02, 47 cm og 2730 gr eða um 10 merkur.  Yndislegur drengur og gleðigjafinn hennar mömmu sinnar. Eldklár húmoristi sem fer sínar eigin leiðir, hann er hrútur.