Hvað hefur maður setið undir mörgum hundleiðinlegum Power Point- glærusýningum í gegnum árin?
Höfundur: Steinunn Inga Óttarsdóttir
Spútnik-Ástin
Spútnik-Ástin var nafnið sem Sumire kallaði Miu í huga sér upp frá þessum degi. Sumire fannst það hljóma dásamlega. Það minnti hana á tíkina Laiku. Gervihnötturinn þaut hljóðlaust á eldingarhraða í ystu myrkrum geimsins. Dökk, gljándi augu tíkurinnar skimuðu út um lítinn gluggann. Hvað í veröldinni var hún að virða fyrir sér í einmanalegum ómælisdjúpum geimsins?
Murakami 2003 (Uggi Jónsson)
Fjórða sería
Allt að gerast í Downton Abbey: þeldökk persóna bætist í hópinn, homminn örgumleiði kemst á sjens og ekkjan Mary getur valið úr vonbiðlum.
Tímarnir líða og breytast
Þessi frábæri Dylanslagari hitti mig í hjartastað þegar ég var krakki 1973. Hlustaði gat á þessa plötu heima í Víðilundi á Akureyri, þeim fagra bæ. Og þetta hér er ekki síðra.
Úr afmælinu 2

Úr afmælinu

50 + 50
Dagar í sögu þagnarinnar
Þetta er hæg og ljóðræn frásögn eftir norska skáldkonu, Merethe Lindström, þrungin leyndardómum og djúpum fjölskylduharmi. Gömul hjón þrauka í ellinni, minni mannsins hrakar með degi hverjum og konan rifjar upp gamla tíma, hugsar m.a. um barnið sem hún gaf ung frá sér. Þau eiga uppkomnar dætur sem vilja endilega fá konu til að létta undir með þeim við heimilishaldið, þau láta til leiðast og tengjast henni sterkum böndum en svo er húshjálpin skyndilega látin hætta. Dæturnar eru ósáttar við uppsögnina en fá ekki að vita ástæðuna, þögnin er eins og múr.Það hefur ekki verið mikið talað um líðan eða tilfinningar í þessari fjölskyldu. Ég vil ekki segja of mikið um efnið en hér er á ferð óvenjulegt sjónarhorn, m.a. á minni, þöggun og ekki síst á eftirköst heimstyrjaldarinnar síðari og áhrif þess hræðilega stríðs á almenna borgara, fjölskyldur þeirra og afkomendur. Orð í tíma töluð því enn eru þjóðarmorð og hernaðarbrölt daglegt brauð í veröldinni. Þýðingin er góð en prófarkarlestur slakur, villur stinga upp kolli hér og þar. Maður þarf að vera þolinmóður við lestur þessarar bókar en hún situr í manni.
Murakami og tíminn
Once you pass a certain age, life becomes noting more than a process of continual loss. Things that are important to your life begin to slip out of your grasp, one after another, like a comb losing teeth. And the only things that come to take their place are worthless imitations. Your physical strength, your hopes, your dreams, your ideals, your convictions, all meaning, or, then again, the people you love: one by one, they fade away. Some announce their departure before they leave, while others just disappear all of a sudden without warning one day. And once you lose them you can never get them back. Your search for replacement never goes well. It’s all very painful- as painful as actually being cut with a knife. ― Haruki Murakami, 1Q84
Kona með hund

Ljóð spegluð af Guðrúnu Hannesdóttur
Rakst á þessi frábæru, fallegu, fornu ljóð frá Finnlandi, „spegluð af“ Guðrúnu Hannesdóttur, í Stínu (apríl 2013)
Ef vinur minn kæmi gangandi
fengi ég enn minn vin að sjá
kæmi hann til mín langt úr fjarska
ég rétti honum hiklaust hönd mína styrka
þó héldi hann á eiturnöðru
munnur minn leitaði hans í kossi
þó drypi af vörum hans úlfablóð
ég félli honum fast að hálsi
þó sleginn væri hann líkþrá sárri
legðist fegin við hlið hans niður
þó lakið væri drifið blóði.
Sokkar handa dauðanum
ég lofaði dauðanum
að prjóna á hann sokka
tæki hann mig auma
úr táradal þessum
en það gerði hann ekki
skömmin sú arna
greip bara með sér
þá glöðu og ríku
– gerpið atarna
skeytti hvorki
um skömm né sóma
tók lukkunnar börn
í lífsins blóma
skildi mig eftir
skarn allra barna
í dimmu horni
– fanturinn svorni
hvað geri ég nú?
hvers á ég að gjalda?
gráta mun ég
þurrum tárum
þó sokkalaus skeinist hann
um veröld sárkalda
– um aldir alda!
(ort út frá fornri hálfkæringsvísu með kúnstugu rími)
Sumarkoma
mýrar þiðna
skarir gliðna
sandkorn losna
eitt frá öðru
tjarnir hlýna
strendur sindra
losnar allt
úr íssins viðjum
djúpt í hafi
kviknar ylur
seint mun hlýna
kalið hjarta
sorg mín handan
þíðumarka

