Gestakomur í Sauðlauksdal
Lauk við Gestakomur í Sauðlauksdal. Ég varð frekar svekkt því ég batt miklar vonir við bókina en ég náði engu sambandi við hana. Mál og stíll tyrfið án þess að vera skemmtilegt eða sérlega fallegt eða nógu 18. aldarlegt, jafnvel tilgerð á köflum. Óttaleg langloka, lítil tilþrif, vantaði alveg fúttið í hana. Frábær hugmynd, magnaður efniviður, stórkostlegur sögutími en úrvinnslan var ekki spennandi. Sofnaði margsinnis ofan í bókina. En líklega verð ég samt að lesa hana aftur, gefa henni annan sjens sem einlægur og yfirlýstur 18. aldar aðdáandi.Kannski fór snilldin fram hjá mér í svefndrunganum.
Jólamæðgnamynd
Jóladagur
Valeyrarvalsinn
Í Valeyrarvalsinum eftir Guðmund Andra stíga fram dramatískar persónur sem hver á sína sögu. Þungbær örlög stíga dans við hversdagslegt líf í litlu plássi. Fólkið þekkist en þó ekki, lifir sínu lífi í friði og ró, ræktar garðinn sinn, lumar á leyndarmálum, fer á kóræfingu og hugsar til barnanna sem flutt eru suður. Sögurnar eru listilega byggðar og gerast á örfáum augnablikum, þær sitja í sagnasveig þar sem sama rödd talar í byrjun og við sögulok um þokuna sem læðist inn af hafinu, það er einhver alsjáandi þokulúður og síðdegisgola sem leiðir lesandann inn í þetta pláss sem er alls staðar og hvergi. Snöggum svipmyndum af fólki og samfélagi er brugðið upp en forsaga og eftirmál læðast að manni milli línanna svo persónurnar verða manni hjartfólgnar. Ógæfa séra Sæmundar er grátbrosleg og kaflinn um Smyril skáld (Thor) er eins og fallegt ljóð, raunasaga læknisins, klaufska Jóa, angist Svenna og einsemd Jósu nísta í hjartað. Yfir sögunum hvílir ljúfsár tregi, sjaldséð samúð og væntumþykja sem minna okkur á að lífið er yndislegt um leið og það er bæði sárt og hverfult. Listavel skrifað, samið og útpælt.
Ég heyrði Guðmund Andra lesa úr bókinni á dögunum og það er unun að hlýða á hann. Ekki spillti fyrir að þegar upplestri lauk léku hinir Ástsælu spaðar nokkur frábær lög með stórskemmtilegum textum eins og þeirra er von og vísa.
Litlu jólin
Frostrósir 2011, klassík í Eldborg
Við fórum á klassíska frostrósatónleika í gær í hinum glæsilega sal, Eldborg í Hörpu og fengum gamaldags jólastemningu beint í æð. Þetta var yndisleg kvöldstund og ógleymanleg, allir voru í sparifötum og hátíðaskapi. Hljómburðurinn er frábær og hljómsveitin yndisleg. Þarna voru fjórir söngvarar á dagskrá, Garðar Cortes jr., Hulda Björk Garðarsdóttir, Kolbeinn J. Ketilsson og Ágúst Ólafsson. Þau sungu miskunnugleg lög og lagasyrpur auk aðalstjörnunnar, Sissel Kyrkjebö sem því miður syngur bara 5 lög (af 21). Í kynningarbæklingi segir að hún sé bókuð mörg ár fram í tímann en hafi fyrir löngu ákveðið að taka sér frí í desember 2011 til að verja tíma með fjölskyldu sinni. En hún stóðst ekki gott boð um að koma til Íslands þar sem hún á marga einlæga aðdáendur, m.a. mig. Það verður að segjast að hún og Garðar Cortes báru af þótt hann hafi verið eins og spýtukall við hlið sjarmadívunnar, hún var svona heillandi og glaðleg en hann virðist bara enga útgeislun hafa, þessi fallegi piltur. Hin þrjú voru hreinlega ekki alveg á sama kaliberi og e.t.v. ekki í sanngjarnri samkeppnisstöðu. Þau náðu sér alla vega ekki á strik, fipuðust og komu t.d. ekki inn á réttum stað þótt Árni Harðarson minnti þau á með skýru látbragði en hann stjórnaði fjórum kórum og stórhljómsveitinni líka af mikilli snilld. Lýsingin var stundum flumbruleg, rauð og blá ljós skiptust á og allavega einu sinni breyttist birtan þegar lagið var byrjað. Þetta voru fyrstu tónleikarnir af fjórum þessa helgi og þetta hefur örugglega allt slípast til. Hápunktur kvöldsins var þegar Sissel söng Helga nótt – á íslensku. Þá klökknaði ég og hjartað fylltist af ást og fögnuði. Það var líka hjartæmt þegar salurinn tók undir með söngvurunum öllum í lokin í Heims um ból á góðu tempói undir stjórn Árna (en sálmurinn er alltof oft sunginn of hægt!). Stjörnur kvöldsins voru þau tvímælalaust Árni og Sissel.
Bónusstelpan
Diljá er ung, hugmyndarík og nett ofvirk en varla skyggn eða kraftaverkakona, eða hvað? Lokaverkefni hennar í Listaháskólanum er gjörningur, hún ætlar að vera á kassa í Bónus, vera eldhress með bleikt hár og gult naglalakk, taka herlegheitin upp og sýna beint. Hún meinar ekkert illt en verkefnið vex hennni yfir höfuð og siðferðisspurningar vakna. Í Bónusstelpunni eftir Rögnu Sigurðardóttur er fjallað um trú, von og kærleika á skemmtilegan hátt. Persónurnar er einkar vel gerðar og smjúga beint í hjarta lesandans. Saga margra þeirra er átakanleg og dregur upp mynd af því hversu langt er fólk er tilbúið að ganga í erfiðri lífsbaráttu og réttlátri reiði (ef hún er til). Þetta er ástarsaga, hárbeitt hrunsaga og kraftaverkasaga, saga um list og hæfileika, mjög vel skrifuð og persónurnar skipta mann máli. Sagan er soldið tætingsleg, mörgu er velt upp en ýmsu ósvarað og óafgreitt í lokin, hinn dularfulli Haffi er óljós persóna allan tímann og afstaða Diljár til hans blendin eins og lesandans. Kjör Huldu og Guðrúnar eru nístandi bág og lýsandi fyrir stéttskipt íslenskt þjóðfélag með atvinnuleysi, kreppu og hörmungum en örlitla vonarglætu má þó eygja hjá Svönu og Ófeigi sem þrátt fyrir hliðarspor og tímabundna fjarlægð virðast ætla að höndla hamingjuna.
Trúir þú á töfra?
“ – Þetta er allt spurning um sköpunina, María mín, sumt fólk getur ekki lifað nema að skapa, þannig manneskja er ég og þess vegna er lífið bara ein stór spurning um kröfur sköpunarinnar. Hún sækir á og velur sér leið, lambabarn, það að mála kött er það sama og segja af honum sögu, það að sauma út mynd af hesti er það sama og að yrkja um hann ljóð. Spurningin er bara hvaða leið maður fer til að sýna þann dauðvona fugl sem maður felur innst í hjarta sér og segja honum að vera sá fugl sem hann er og syngja um hvaðeina sem hann vill, stundum um hrædda konu, stundum um ást, stundum um vá og háska og voðaleynd mannsins“ (236).
Bók Vigdísar Grímsdóttur er litrík orðaveisla með ljóðaglaumi. Ógnvekjandi er hún samt, lýsir einræðisríki þar sem ógnarstjórn, ofbeldi og grimmd viðgengst og fólk er algjörlega varnarlaust. Tilraun um fyrirmyndarríki er algengt þema í bókmenntum en sjaldnast í ljóðrænum dúr eins og hér. Verk Nínu Bjarkar Árnadóttur eru alls staðar í sögunni og ég var satt að segja búin að gleyma hversu magnað skáld hún er. Sagan er ekkert léttmeti heldur þung, hæglesin og torræð, margt er gefið í skyn um háska og voða en fátt sagt berum orðum. Myndum er brugðið upp af pyntingaherbergi, sveltandi gamlingjum, fullum kirkjugörðum, niðurlægðu og óhamingjusömu fólki. Allt er réttlætt með „leikritinu“, að hver og einn hafi hlutverk og verði að leika það hvað sem tautar og raular. Á sunnudögum er alltaf skemmtun sem sefar fólkið um stund þar eru m.a. lesin ljóð og ölið þambað. Lesandinn veit allan tímann að þetta mun aldrei fara vel. Persónurnar eru skrautlegar og eftirminnilegar, t.d. bókavörðurinn, mamman og pabbinn og Finnur, venjulegt fólk sem reynir að lifa af við hrikalegar aðstæður. Töfrum slungin saga, ofin mörgum leyniþráðum, meistaralega tengd við skáldskap og boðskap sem sannarlega er ekkert fagnaðarerindi.
Jólaboðið
Jólaboðið í ár lukkaðist aldeilis vel. Veisluborðið var hlaðið glæstum veitingum, glöggið reif í og gestirnir léku als á oddi. Pakkaleikurinn er hámark kvöldsins þegar bældar hvatir og óuppgerðar sakir ryðjast upp á yfirborðið. Sálmasöngurinn á eftir róaði liðið aðeins en síðustu gestirnir fóru um tvö, eftir trylltan dans á stofugólfinu. Svona eiga jólaboð að vera.










