Kirsuberjagarðurinn

Af Wikipedia

Chekov um 1893

Kirsuberjagarðurinn eftir Anton Chekov (1860-1904) er hefðbundið stofudrama. Það er snilldarlega vel skrifað og byggt og persónur bjóða upp á nokkra túlkunarmöguleika. Það fjallar einum þræði um hnignun aðalsins í Rússlandi og alþýðuna sem vinnur sig upp til auðs og metorða eftir margra alda ánauð. Það fjallar líka um ástina, sorgina og mannlífið. Sýningin í Borgarleikhúsinu er mjög flott og á sviðsmyndin stóran þátt í því en hún er alveg frábærlega útfærð. Hljómsveitin er líka frábær. Hér er gleðin við völd. Leikararnir standa sig vel, einkum Ilmur (Varja), Þröstur Leó (Leóníd) og Valur Freyr (Epíkov) en Sigrún Edda (Ranevskaja) fannst mér frekar frekar þreytandi, með mjóa tilgerðarlega vælurödd. Hún er sinnulaus um peninga og afdrif óðalsins, m.a. vegna uppeldis sína og uppruna og algjörrar vanhæfni til að takast á við raunveruleikann. Grátkast hennar vegna sonarmissis var eiginlega bara vandræðalegt og ekki var hægt að hafa samúð með henni í sambandi við fláráðan eiginmanninn. Pétur Einarsson kom mér mjög á óvart í hlutverki þjónsins, Firs. Theódór Júlíusson var skemmtilega brussulegur og Guðjón Davíð var sannfærandi „myglaður“. Sýningin er löng og nokkrir leikhúsgestir farnir að ókyrrast eftir hlé. Ég skemmti mér vel og finnst alltaf jafnáhrifamikið þegar kirsuberjatrén eru felld í lokin.

Ráðsett kona

Góður dagur þegar búið er að fara í Sorpu með fulla kerru af drasli, viðra sængur, þvo þvott og hlaupa 11 km, elda léttan kvöldverð, hlusta á góða tónlist, lesa nýju bókina hennar Vigdísar Gríms og dreypa á eðalrauðvíni með (Pata Negra 2003). Svona er maður nú orðinn friðsæll og nægjusamur í lífinu.

Konan við 1000°

Ég hef alltaf haft dálæti á verkum Hallgríms Helgasonar. Frjálslegt flæðið, endalausar hugmyndirnar, orðaleikirnir, íronían og hnyttnin eru heillandi. Konan við 1000° eftir Hallgrím Helgason er frábær saga. Aðalpersónan Herbjörg María er magnaður töffari og svarkur mikill sem bíður dauðans í bílskúr með tölvugarm og hárkollu (biðukollu). Lífshlaup hennar er skrautlegt og persónurnar kostulegar, s.s.  faðir hennar, Björn nasisti, móðirin Marsibil úr Breiðafirði og amman sem varð hundrað ára. Þá er eiginmaðurinn Bæring bærilega flottur  og minnir mest á Magnús í Bræðratungu. Breiðafjarðarkaflarnir eru snilldarlega vel skrifaðir (saga Svita-Gunnu er óborganleg)  lýsingar á heimstyrjöldinni eru hrikalega spennandi og pælingar hennar um lífið, samfélagið, fjölskylduna, móðurhlutverkið, karlmenn, stríð og frið og ást eru skemmtilega háðslegar. Kaflinn um stofnun íslenska lýðveldisins er algjörlega frábær.

Hallgrímur er skáld stílbragða og frumlegs myndmáls, orðgnóttar og frjórra hugmynda, hann notar stuðlasetningu, rím og húmor á listilegan hátt sem bræðir hjarta mitt alveg. Ég fell fyrir hraustlegu yfirskeggi sem verður haustlegt (306), íslenskri þagnahefð (80), meistara Jakob (53), bílatúni og bensínhofum (349), og því að varðveita eydóminn (379). Ég skemmti mér stórvel við lesturinn og leiddist aldrei, bókarkápan er hinsvegar herfileg.

Jójó

Renndi yfir Jójó eftir Steinunni Sigurðardóttur. Sérkennileg bók um viðkvæmt mál. Sagan gerist í Berlín og er mjög fjölþjóðleg, persónurnar af ýmsu þjóðerni. Margt er vel skrifað, samtölin skemmtileg, ástinni fallega lýst. Aðalpersónan er læknir sem þarf að takast á við skuggalegt atvik úr fortíðinni þegar leiðinlegur sjúklingur leitar til hans. Læknir þessi er ungur og sprækur, á fallega og góða konu og hefur alla möguleika til góðra verka en fortíðin eitrar líf hans og hann hefur aldrei unnið úr henni. Hann dregur franskan róna upp úr ræsinu og þeir bindast vináttuböndum og í ljós kemur að þeir eiga meira sameiginlegt en að heita sama nafninu. Það er erfitt að finna til samúðar með persónunum, kannski af því að þeim er lýst utanfrá. Í lokin dregur til tíðinda og endirinn er opinn til túlkunar. Frásögnin er mjög meitluð og hefði mín vegna mátt vera lengri og dýpri, verið er að fást við stórar siðferðilegar spurningar. Það er örugglega framhald í smíðum.