Annáll 19. aldar

„Ýms tíðindi (1815)

Þess er áður getið (…) að Þorkell stiptprófastur á Hólum var bersnauður orðinn. Hafði hann þá oftast lifað mjög einmana og í einhýsi í nýju timburstofunni á Hólum í mörg ár við mesta munaðarleysi og stundum skarpan kost. Oftar en sjaldnar er sagt það hafi borið við, að hann hafi eigi annað til meðdegisverðar en eldhúsreyktan hákarl, er hann keypti blautan, og það af svo skornum skammti, að fimm lóð sagðist hann ætla sjer til miðdegisverðar, og sagði sællífi ef hann hefði brauðbita með. Eftirlaun fengust engin nje bót á tekjumissi, þótt beðið væri. Var þá í tilgátum og eigi annað sjáanlegt en þessi góði öldungur mundi veslast upp af harðrjetti og annari vesöld. Þótti nú æfi hans mjög breytt orðin og umhugsunarverð. Hörmuðu það margir, einkum af kennilýðnum, er alljafnt elskaði hann og virti og hryllti við þessu dæmi. Var í ráðagjörð, að þeir fáu, er skást voru megnandi af prestum, legðu saman í einhvern lítinn forða handa honum, en það lenti við ráðagjörðina eina saman. 4. júlí sendi Stefán amtmaður skarpa ákæru til biskups um vanrækslu stiptprófasts í embættisverkum hans, einkum ungmennafræðslu. Bauð biskup Jóni Konráðssyni prófasti á Mælifelli að rannsaka það mál. Reyndust þá ungmenni betur uppfrædd en búizt var við, en til húsvitjana og annara ferða um sóknina sýndist hann, þá 78 ára gamall, eigi fær, með því hann átti enga hestnefnu, engin reiðtýgi og eigi nauðsynlegan klæðnað til að skýla kroppnum með.“ (208-9)

Annáll 19. aldar

„Embættismenn dóu.

18. júlí (1803). Magnús Ketilsson, prests í Húsavík, Jónssonar, og konu hans, Guðrúnar Magnúsdóttur, Einarssonar, systur Skúla landfógeta. (…) Magnús var höfðinglegur álitum, með hærri meðalmönnum, gildur að því skapi, limaður vel, herðabreiður og miðmjór, ennið hátt og mikið, augun í meðallagi stór, heldur ljósleit, skarpeygur og svipmikill, jarpur á hár, hraustmenni að burðum og að öllu fyrirmannlegur. Hann var fæddur 29. janúar 1792, útskrifaðist 1749, var tvö ár skrifari hjá Sveini lögmanni Sölvasyni, sigldi til háskólans 1751, fjekk Dalasýslu 1754, þjónaði henni alla æfi og bjó í Búðardal. Kvæntist fyrst Ragnhildi, dóttur Eggerts Bjarnasonar á Skarði 1765, og misti hana 1783. (Áttu 8 börn). Magnús kvæntist annað sinn 1795 Elínu Brynjólfsdóttur. Hann var vitur maður og vel lærður í flestum vísindagreinum, enda kenndi hann mörgum piltum undir skóla. Sjer í lagi var hann orðlagður fyrir framkvæmdir, en harðdrægur þókti hann í tekjum og var eigi að því skapi vinsæll, sem hann var auðugur og mikilmenni í hvívetna. Hann ritaði margt um búnað, viðburði, ættir og annað, og átti eigi all-lítið bókasafn.“ (46-7)

Í Grásteinsholti

Heimsókn til Gunnu og Halla er alltaf ánægjuleg, heilmikið hægt að hjálpa til í húsinu sem þau eru að byggja, höfðinglegar móttökur og skemmtileg samvera í sveitinni. Arwen nýtur frelsisins, skottast úti allan daginn, snuðrar og hnusar, hrellir köttinn og leggst í sólbað. Boðið var til veglegrar veislu í borðstofunni að loknu dagsverki og á meðfylgjandi mynd má sjá að engan bilbug er að finna á þeim hjónum (bilbugur er sveigja á fylkingu, undanhald eða undanlátssemi, hik eða ótti, t.d. í bardaga  (sbr. Mergur málsins,  Jón G. Friðjónsson:63).

8,6 km

Í dag skokkaði ég í kringum Elliðavatn með Brynjari, Heiðari og Signe. Það er nákvæmlega 8,6 km langur hringur. Veðrið var yndislegt, hlýtt og milt. Ég hélt að þetta  yrði alltof löng vegalengd fyrir mig og að ég þyrfti að ganga helminginn af leiðinni þar sem ég hef verið löt að trimma undanfarið og yfirleitt látið 3-5 km duga á viku… En það var ekki nándar nærri eins erfitt og ég hélt. Og ég var ekki síðust!

Hressar brúðarmeyjar

Ég fór á Brúðarmeyjarnar (Bridesmaids) í gær. Þetta er mjög fyndin mynd, sem dettur ekki í neina ameríska brúðkaupsvæmni. Samt eru klisjurnar allar mættar: trúlofunarveislan, feita, graða, saklausa og ríka brúðarmærin og sú klaufska sem Kristen Wiig leikur snilldarlega, Húmorinn er langt frá því að vera væminn og margar senurnar eru alveg óborganlegar og groddalega fyndnar. Stelpur, drífið ykkur í  bíó!

Fræg hjónabönd

Þessa dagana er ég að lesa Married to Genius eftir Jeffrey Meyers (2005). Spennandi titill sem ég rakst á á bókasafninu. Ég er búin að lesa um hjónabönd Tolstoy, Shaw, Conrad, Joyce og Woolf. Kvenrithöfundar eru 20% viðfangsefna bókarinnar og er sýn á eiginkonur karlskálda frekar einhæf. Þær bera ekkert skynbragð á bókmenntir og listir, eru vergjarnar eða kynkaldar, nískar, gráðugar og skilningslausar. Sofia Tolstoy var móðursjúk og snobbuð og gerði manni sínum lífið leitt þegar hún vildi að hann sinnti börnum þeirra 13, Bernard Shaw giftist vellríkri, kynkaldri konu og lifði munklífi í 45 ára hjónabandi, hún var tryllt af afbrýðisemi og athyglissýki en hann sjálfur kvenhræddur furðufugl, Nora Joyce var gróf alþýðustelpa sen bar ekkert skynbragð á snilli manns síns, nennti aldrei að lesa bækurnar hans þótt hún fílaði klámfengin sendibréf hans og Virgina Woolf var misnotuð í æsku, hneigðist til kvenna og hryllti við kynlífi með manni sínum, Leonard, sem annaðist hana þolinmóður í endalausum þunglyndisköstum. Joseph Conrad átti hins vegar ágæta konu (mömmutýpu) sem hugsaði vel um hann og vini hans, ól upp börnin og sá um heimilishaldið þegjandi og hljóðalaust. Ég á eftir að lesa um hjónabönd Mansfield, Lawrence, Hemingway og Fitzgerald. Þetta er eins og Séð og heyrt frá 20. öld, safaríkt og slúðurkennt, stuðst er við ýmsar heimildir og birt brot úr bréfum og dagbókum. Stundum er farið á flug og sjálfsævisöguleg atvik tengd við frægar persónur úr verkum viðkomandi. Höfundurinn segir í inngangi að ýmist hafi hjónabandið verið snillingunum skjól og staðfesta (þegar eiginkonurnar voru hógværar og heimilislegar) eða sífelld ögrun og áskorun (þegar þær voru skapandi og sjálfhverfar). Þetta er heldur einföld niðurstaða og ekki laust við að hún sé lituð af gömlum klisjum.