Nokkur óregla hefur verið á mataræðinu hjá mér í sumar. Sveittir hammarar hafa kraumað í maganum og jafnvel kók, kex og fullt af grillmat. Ég finn mjög vel að þetta gerir mér ekki gott. Ég hef ekki verið alveg eins dugleg að hlaupa eins og ég ætlaði mér sem reiknast líka á óreglulega lifnaðarhætti í sumarfríinu. En nú er fríið að verða búið og rútínan tekur við. Í dag hefst aftur hollt mataræði og hreyfing, ég er með hollustubrauð í ofninum og búin að mæta í tíma í Hreyfingu í morgun. Uppgjör júlímánaðar: hljóp samtals 67 km, hreyfing samtals í 24 klst. Þetta er glæsilegur árangur verð ég að segja en verður enn betra í ágúst.
Varðeldur
Margt var brallað um verslunarmannahelgina en við dvöldum í afar góðu yfirlæti hjá Einari og Gyðu á Akureyri, þeim fagra bæ. Ég skellti mér á Dynheimaball, heimsótti ömmu mína elskulegu, hitti frænkur mínar Ester og Höllu og Þórunni F! Endaði á notalegri kvöldstund í skógi á Svalbarðseyri með sykurpúða og allt. F.v. eru Andri, Einar Guðmann, Mikkel, ég, Gísli Hjö, Helga Kvam og Völundur. Það vantar Brynjar og Gyðu á myndina.
Grilla eitthvað nýtt
Það er hægt að grilla fleira en kjöt og pylsur. Þessa uppskrift rakst ég á um daginn:
Grillaðar sætar kartöflur
- 3 sætar kartöflur, með hýði
- Salt
- 2-4 tsk rifinn börkur af læmi, hvað viltu hafa þetta sterkt?
- cayennepipar eftir smekk
- olía, 1 dl ca
- nýmalaður pipar
- kóríander, ferskt og fínsaxað
Sjóða kartöflurnar í léttsöltu vatni þar til þær eru soldið mjúkar, kæla. Blanda saman salti, rifnum læmberki og cayenne pipar í skál. Skera hverja kartöflu langsum í sneiðar (með hýðinu á). Leggja þær á heitt grill. Pensla kartöflurnar með olíu. Grilla í ca 1-1/2 mínútu á hvorri hlið. Færa yfir á disk, krydda strax með saltblöndunni og strá síðan fersku kóríander yfir.
Konan í búrinu
Einn sá mesti hryllingur sem hægt er að hugsa sér er að vera rænt og lokaður inni í pínulitlu herbergi án nokkurrar hreinlætisaðstöðu, aðeins vondur matur, enginn munur dags og nætur, enginn félagsskapur, ekkert við að vera, dauðaþögn og einangrun til eilífðar. Út á þessa martröð gera bækur og kvikmyndir endalaust. Í bók danska rithöfundarins Jussi Adler Olson hverfur kona sporlaust og að nokkrum árum liðnum fer sérvitur lögga að garfa í málinu. Hrikalega spennandi bók, ég gat varla litið upp úr henni. Ágætlega þýdd (Hilmar Hilmarsson).
Endalok Harry Potter?
Skellti mér á hinstu Harry Potter myndina í gær. Þar er lopinn teygður verulega og aldeilis búið að tutla þetta dæmi til enda skulum við vona. Mörg atriði í myndinni voru alltof löng og hæg og endirinn orðinn verulega fyrirsjáanlegur. Stríðið um Hogwarts var aldrei tvísýnt eða spennandi að nokkru leyti, ekki eins og t.d. í Lord of the Rings þar sem spennan í bardögunum var næstum óbærileg og blóð og gor spýttist um allt. Þá vantaði alveg almennilegt drama og krefjandi spurningar um að fjölmargir unglingar létu lífið í baráttunni gegn hinum illu öflum Voldemorts. Bíómiðinn kostaði 1400 krónur og þrívíddargleraugun 140 að auki. Popp og kók 700 á mann. Ef fjögurra manna fjölskylda hefur séð allar myndirnar átta í bíó erum við að tala um fimmtíuþúsund kall á heimili sem hafa runnið til draumaverksmiðjunnar í gegnum árin. Góður bissness það.
Sumarfrí II
Þá er sautján daga árlegu úthaldi í húsbílnum lokið. Að þessu sinni var það hið fagra Snæfellsnes og Landmannalaugar. Þessa staði er hægt að heimsækja aftur og aftur. Veðrið var gott mestallan tímann (jákvæðnin í öndvegi). Planið um að hreyfa sig á hverjum degi gekk ekki alveg eftir en það eru nokkrir dagar eftir af sumarfríinu og kortið mitt í Hreyfingu hefur verið alveg óhreyft alllengi. Ferðin var frábær en það var gott að komast heim í mjúka bólið sitt, í heita sturtu og sjónvarpssófann, þrátt fyrir flögrandi húskanínur, andfúlan ísskáp og skrælnuð sumarblóm. Nú er að söðla um, bara útsölur, pinnahælar og gloss, heimsóknir og kaffihúsahangs framundan. Ferðasagan 2011 birtist hér bráðlega, reynið að hemja ykkur, lesendur góðir, meðan ég græja hana og set inn myndirnar.
Bergþóra Bachmann
Í dag er jarðsungin Bergþóra Bachmann, stúlkan sem ól Arwen upp og gaf okkur hana árið 2009 þegar hún ákvað að flytja til Sviss þar sem hún lést á dögunum í umferðarslysi. Hún fylgdist vel með tíkinni sinni og saknaði hennar mikið. Hún hafði síðast samband fyrir nokkrum dögum og þegar við svöruðum og sögðum henni hvað okkur þykir endalaust vænt um Arwen og sögðum nokkrar sögur af henni, kvaðst hún hafa klökknað og vita í hjarta sínu að tíkin væri í góðum höndum. Við þökkum fyrir að hafa fengið að eiga Arwen og njóta samvista við hana, svona fallega og góða tík, hún er yndisleg og hefur gefið okkur svo margt.
Sumarfrí
Ég hef verið á sumarferðalagi um Snæfellsnes undanfarna daga í dásamlegu veðri og skemmtilegum félagsskap. Það er mjög eftirminnilegt að hafa farið upp á topp á Snæfellsjökli í glampandi sól og útsýnið var stórkostlegt. Ég ætla að vera dugleg að hreyfa mig í sumar og helsta afrekið hingað til er skokk frá Hellissandi til Ólafsvíkur, samtals um 9 km. Það var hressandi, hljóp í gegnum tryllt kríuvarp og í miklum mótvindi. Heiti potturinn á Ólafsvík var æðislegur!
Ójafn leikur
Mér finnst undarleg þróun hafa orðið á þessu Strauss-Kahn-máli. Það er auðvelt að koma fyrir fölsuðum sönnunargögnum og gera andstæðing ótrúverðugan ef maður á peninga og volduga vini. Er hér ekki ójafn leikur, annar vegar ríkur og frægur hvítur karl í valdastöðu og hins vegar fátæk herbergisþerna, dökk á brún og brá? Á hún nokkra möguleika gegn karlinum?
Um Annál 19. aldar
Pétur Guðmundsson (1832-1902) var prestur í Grímsey og safnaði efni í Annál 19. aldar sem ég er algerlega heilluð af þessa dagana. Hann hlaut styrk til náms og innritaðist í latínuskólann í Reykjavík þegar hann rúmlega þrítugur. En þegar vantaði prest í Grímsey (enginn sótti um og sá sem var skipaður neitaði að gegna starfinu) var Pétri boðið starfið og undanþeginn lærdómsprófum og átti að fá meðalbrauð að sex árum liðnum. Tvisvar sótti hann um annað brauð en var synjað í bæði skiptin „og mun sjera Pjetri heitnum hafa fundist hið konunglega loforð frá 1868 ekki sem haldbezt“ (I:IX). Þjónaði hann Grímseyingum af dugnaði og sóma til 1895. Oft var þar mikill vöruskortur í eyjunni, húsakostur lélegur og samgöngur stopular og erfiðar. Kona Péturs var Sólveig Björnsdóttir, „reyndist hún manni sínum hin umhyggjusamasta og mjög samhent og þolgóð í löngu erfiði og einmanalegu starfi á afskektri ey úti í reginhafi“ (I:IX).
Hverju ári er skipt upp í kafla: Árferði, Embættismenn dóu, Prestar dóu, Konur embættismanna dóu, Ennfremur dóu, Slysfarir og skaðar, Útskrifaðir úr skóla, Skipan embætta, Prestaköll voru veitt, Aðstoðarprestar vígðir, Prófastar skipaðir, Nafnbætur og heiðursveitingar, Ýms tíðindi. Sex til átta nemendur útskrifast á ári og gerast þá prestar eða sýslumenn. Þeir ríku fá bestu sýslurnar og brauðin, hinir hokra í t.d. Grímsey eða Kaldaðarnesi, við illan kost. Konur áttu ellefu eða átján börn og ekki óalgengt að embættismenn og prestar væru tví- eða þrígiftir. Tugir manna farast í slysum á hverju ári, langflestir drukkna, farast í sjóróðri eða í ísilögðum ám eða verða úti á milli bæja.

