Milli trjánna

Ég er mikill aðdáandi skáldverka Gyrðis Elíassonar. Frá því ég las Bréfbátarigninguna í Kennó á níunda áratug siðustu aldar varð ég algerlega heilluð af sagnaheimi hans og frásagnarhætti. Það er hægt að gleyma sér algerlega í sögum hans og ljóðum, litum og myndum, tónum og táknum, vísunum og tengingum. Söguþráðurinn tekur óvæntar dýfur, persónurnar eru daprar og einmana, misskildar og sérvitrar. Það er alltaf eitthvað undirliggjandi, spenna og ógn, sem heldur manni í helgreipum. Lauk við Milli trjánna á dögunum og er í fyrsta skipti tvístígandi. Sögurnar í bókinni eru fullmargar og mér fannst þær misgóðar. Náði ekki tengingu við þær allar eins og ég er vön en flestar eru reyndar magnaðar. Húmorinn, ljúflegur en lúmskur textinn, bæld sorg, biturð og reiði, dapurlegar persónurnar, þetta er allt á sínum stað en hvað er ég þá að væla? Ég ætla að gefa bókinni meiri tíma, maður les ekki Gyrði á hlaupum. En ég vona að hann fái bókmenntaverðlaunin 2009 sem hann er tilnefndur til, þetta er náttúrulega snillingur.

Döðlukjúklingur

Þessi uppskrift varð til í pottunum um helgina, einföld, ódýr og bragðið kemur skemmtilega á óvart!

Tvær til þrjár kjúklingabringur (ein á mann, mega vera frosnar)

Sæt kartafla, 1-2 tómatar, 1 laukur, 3-5 hvítlauksrif,  1 epli (með hýðinu), 10-15 döðlur

3-4 msk af Patak´s Madras Curry Paste, (cumin and chili, hot) eða öðru góðu karríi. Hræra það út í slatta af matarolíu

Aðferð: Setja bringurnar í eldfast mót. Skera grænmetið gróft niður og dreifa yfir, demba svo döðlunum ofan á, þær eru aðalmálið í þessum rétti. Hella karríolíumaukinu yfir. Pipra örlítið. Inn í ofn, þar til bringurnar eru eldaðar í gegn, gott að hafa álpappír yfir mótinu, döðlurnar mega ekki brenna. Hrísgrjón með og spínat ef vill.

Seinkum klukkunni

Ég styð þá hugmynd að klukkunni verði seinkað til samræmis við tímatal siðaðra þjóða. Það er fáránlegur óþarfi að rífa sig upp og draga börnin fram úr volgu bólinu eldsnemma morguns og æða í flýti og stressi út í myrkur, snjó og kulda. Það er kappnóg að mæta kl 9 á morgnana, nýta bara tímann betur í vinnunni.  Í leiðinni vil ég stytta vinnutímann  og opnunartíma verslana þannig að allir séu komnir heim í ró, samveru og öryggi milli fjögur og fimm á daginn. Lifum í birtunni, ljósinu og njótum tómstundanna.

Hallgrímur

Á því herrans ári 2008 kom út skáldsagan Hallgrímur, um ævi Hallgríms Péturssonar, eftir Úlfar Þormóðsson. Ég varð strax heilluð af flottri bókarkápu en komst ekki í að lesa hana fyrr en á dögunum. Í verkinu er þeim Brynjólfi Sveinssyni og Hallgrími stillt upp sem vinum og fóstbræðrum á tímum galdrafárs, hjátrúar, harðra dóma og sárrar fátæktar. Brynjólfur safnar skáldskap og handritum, hann er kennimaður, trú hans er staðföst og honum er annt um heiður sinn og starfsframa. Ólík eru kjör þeirra Hallgríms og skoðanir en vinátta þeirra nær út yfir gröf og dauða. Guðríður Símonardóttir, Tyrkja-Gudda,  er heillandi kona, fögur, lífsreynd og dularfull ræktar hún rabarbara við bæjarvegginn og aðstoðar nágrannakonur í barnsnauð, hún er 15 árum eldri en hinn stóri og dökki Hallgrímur. Hann er efasemdarmaður fram í rauðan dauðann, andríkt skáld, lífið leikur hann býsna grátt og hefði leikið hann öllu verr hefði Brynjólfs ekki notið við. Þetta er stórfín skáldsaga, líkt og bæði Rauð mold og Hrapandi jörð, sem fjalla um Tyrkjaránið. Þessi verk Úlfars Þormóðssonar hafa ekki notið nægrar athygli og hylli. Hann skrifar um heillandi tíma og sögulega atburði af þekkingu og innsæi, flottur stíll, leikræn samtöl, flott umgjörð,  mikið drama.

Hvaða kvennalið?

Ég heyrði í sjónvarpinu einhvern segja um glæstan sigur Frakka á EM í handbolta að þetta væri í fyrsta sinn í veraldarsögunni sem íþróttalið hampaði þremur titlum, þ.e. heimsmeistarar, ólympíumeistarar og evrópumeistarar allt í senn. Að vísu hefði þetta áður gerst í kvennaboltanum… ég sperrti eyrun en svo var ekki sagt neitt meir. Telst það ekki með? Veit einhver hvaða lið þetta var, hvenær og í hvaða íþróttagrein? Er þetta ekkert merkilegt nema hjá karlaliði?

Tæknin

Hér er verið að hlaða mp3-spilarann í tölvunni og hlusta á tónlist úr spilaranum í græjunum. Myndin var færð úr myndavélinni yfir í tölvuna, gsm-inn er til taks og fjarstýringarnar bíða þess að röðin komi að þeim. Ég er ss. að vinna í að koma hljóðskrám í wordpressið (nánar síðar). Er ekki lífið einfalt og þægilegt?

Himinblámi

Mikið hef ég gaman af Himmleblå í sjónvarpinu á sunnudagskvöldum. Alveg frábærir þættir, allt gerist á  lítilli eyju þar sem allir þekkja alla og samfélagið þrífst aðeins ef menn eru samhentir og bera virðingu hver fyrir öðrum. Skipstjórinn Roy er eins og uppkominn Emil í Kattholti, Roland er eilífðartöffari, Brynjar kaupmaður og Britt svo mikil krútt, Marit og Kim líka. Allur tilfinningaskalinn er undir þegar ég horfi á þessa frábæru þætti og ég bíð spennt eftir næsta. Á heimasíðu þáttarins segir að 1/3 Íslendinga fylgist spenntur með þessum þáttum. Og það er víst mikið drama í lokaþættinum. Syrpa tvö er í smíðum sem betur fer.

Heilræði vikunnar er frá Heiðrúnu K: fáðu þér litla bók og skrifaðu á hverju kvöldi í hana eitthvað þrennt sem þú getur verið þakklátur fyrir þann daginn eða í lífinu yfirleitt (ekki hafa það samt allt sjálfmiðað). Og brátt verður lífið bara betra.

Bóndadagurinn

Að heiðra bóndadaginn er gömul og góð hefð og alveg hægt að gera sér glaðan dag án þess að hlaupa til að kaupa rándýrar gjafir eða setja allt á hvolf. Smá dagamunur er samt nauðsynlegur. Þorrinn er að byrja, nú renna upp dagar sláturs og punga og handboltinn í algleymingi, það er ekta karlatíð. Minn fær norðlenskt hangikjöt á bóndadaginn og ég luma á nokkrum laufabrauðskökum síðan um jólin sem ég ætla að splæsa í geimið. Hann þarf ekki að koma nálægt uppvaskinu. Ég verð auðvitað á peysufötum í tilefni dagsins.