Jæja Steingrímur. Nú er komið að þvi að standa með fólkinu sínu og breyta lánskjaravísitölunni. Kannski er ég bara barnaleg en ég spyr: Hví hangir hún á vöruhækkunum, verðlagi og neyslu? Væri ekki nær að tengja hana við framfærslukostnað, gengi og stöðuna í þjóðfélaginu? Ætti hún ekki að lækka þegar framfærslan hækkar svo fólk nái endum saman? Taktu bensín, brennivín og rafmagns- og kyndikostnað út úr vísitölunni. Láttu ekki líðast að lánin hækki hjá fólki um leið og einhverjir tilteknir vöruflokkar (hvernig voru þeir valdir á sínum tíma?) skrúfast upp í verði. Vísitala er bara mannanna verk og ekki klöppuð í stein. Sýndu að þú meinir eitthvað af því sem þú segir og stattu með þínum skattpíndu og aðþrengdu þegnum.
Vinnan
Það er rosalega gaman í vinnunni þessa dagana. Stundatöflubreytingar standa yfir og þá koma nemendur í hópum með margvísleg erindi og það er svo gaman. En annað hvort er ég farin að gamlast og farin að heyra illa eða unga fólkið farið að tala svo hratt og þvoglulega að ég skil ekki neitt. Bæði Haugringi, Manushreyr og Siujónaddni þurftu að segja nafnið sitt nokkrum sinnum áður en ég náði því.
Rautt þema
Brauðgerð
Mér gengur þrusuvel að halda mig við breytt mataræði, þ.e. enga mjólk, engan sykur og ekkert hvítt hveiti. Hef t.d. bakað bæði möffins og vöfflur án sykurs og smjörlíkis. Nota bara spelt, vínsteinslyftiduft, vínberjakjarnaolíu og agavesýróp. Og þrisvar hef ég bakað mitt eigið brauð síðustu daga sem telst mikið afrek þar sem ég hef ekki komið nálægt brauðbakstri frá því ég bjó á Þórshöfn í gamla daga en þá var það neyðin sem rak mig til þess, brauðið kom úr Kristjánsbakaríi á Akureyri í Kaupfélag Langnesinga a.m.k. 2-3ja daga gamalt. Það er ótrúlega einfalt að baka úr vínsteinslyftidufti, ekkert heferí og vesen. Deigið hjá mér hefur reyndar verið soldið blautt og brauðið klesst en afar bragðgott og ég er að vinna í úrbótum. Og ég er búin að komast að því að smá kókosmjöl og hálf rifin gulrót gera kraftaverk í brauðgerð.
Ólafur Jóhann Sigurðsson
„Það hlánaði bæði seint og illa um vorið, spilliblotar komu í halarófu, hver á eftir öðrum, – hann fraus, snjóaði og rigndi á víxl, loftið var ýmist hlætt eða nístandi, fjallið ýmist dílótt eða hvítt. Í gær flóðu bæjargöngin i leysingarvatni og torfsnyddurnar héngu í blautum lufsum milli raftanna, en ásælnir og frekir dropar runu viðstöðulaust eftir merkilega krókóttum farvegum ofan skarsúðina í baðstofunni og niður á gólf, – já mynduðu litla meinleysislega polla, sem þöndust út fyrr en varði og skutu öngum í allar áttir, líktust jafnvel ögrandi galdrastöfum…“
Ég átti alltaf eftir að lesa skáldsögur Ólafs Jóhanns Sigurðssonar og dreif í því í sumar. Ljóðskáld var hann frábært og ekki síðri rithöfundur, sé ég nú. Ég las Fjallið og drauminn í einum rykk og naut hverrar mínútu og ekki var Vorköld jörð síðri. Allur tilfinningaskalinn undir, ég hló dátt að dæmalausum einræðum og orðatiltækjum Kristjáns á Hamri og grét yfir því hve örlögin léku Sigurlaugu á Rauðalæk grátt. Stíllinn er frábær og þótt náttúrulýsingarnar geti orðið ansi langar eru þær meistaralegar. Og lýsingarnar á aðbúnaðinum á íslenskum sveitabæjum: maturinn, klæðin, húsakosturinn, jesús minn! Og þrældómurinn, baslið og fátæktin án minnstu vonar um betri tíð. Bækurnar segja frá Herdísi Hermannsdóttur, bernsku hennar og fullorðinsárum í sveitinni í byrjun 20. aldar. Þemað er kunnuglegt og minnir um margt á Sjálfstætt fólk. Falleg og góð lesning um réttlæti og ranglæti, vonir og þrár í íslensku stéttskiptu sveitasamfélag, , þar sem gömul gildi eru höfð í heiðri, ekki síst það að vera alltaf góður við minnimáttar.
Beitt áhöld
Beitt áhöld (Sharp objects eftir Gillian Flynn) segir frá Camille, drykkfelldri blaðakonu sem er send í heimabæ sinn í Missouri til að rannsaka hrottaleg stúlknamorð. Hún dvelur hjá fjölskyldu sinni sem er vægast sagt furðuleg. Sjálf hefur Camille verið haldin undarlegri þráhyggju frá unglingsárum: að skera sig, rista orð hér og þar á líkama sinn. Sagan er mjög spennandi og persónurnar sjúklega klikkaðar í ást sinni, banvænni umhyggju og eilífri baráttu fyrir viðurkenningu, algerlega staðnaðar í hrútleiðinlegum úthverfum og útbrunnum hjónaböndum. Þetta átti að verða kvöldsagan í húsbílnum en var einum of óhugguleg fyrir okkur mæðgur. Stór galli að sagan er hrikalega illa þýdd.
Inception
Loksins komst ég á Inception í gær, þá rómuðu bíómynd eftir Chris Nolan með Leonardo frá Caprí í aðalhlutverki. Ég var búin að snúa frá tvisvar því það hefur verið uppselt, meira að segja í lúxussal. Er skemmst frá því að segja að myndin er svaðalega spennandi og vel gerð, vel leikin og endirinn flottur. Plottið gengur út á að hægt sé að planta hugsunum og skoðunum í undirmeðvitund fólks, það er frekar óhugguleg framtíðarsýn. Þetta er soldið hugsað eins og tölvuleikur, því dýpra sem er farið, því flóknara og erfiðara borð í tölvuleiknum. Draumapælingarnar hefðu mátt vera fyrirferðarmeiri, heimur undirmeðvitundarinnar býður jú upp á óteljandi möguleika. Ætli Nolan sé ekki nú þegar farinn að láta sig dreyma um Inception 2?
Matur er mannsins megin
Ég er alveg sæmilega hress allajafna og þykist heilsugóð þótt ýmsir smákvillar angri mig endrum og sinnum, t.d. munnangur, orkuleysi, vindgangur, magaþemba og brotnar neglur. Ég tók mig til og fór á náttúrulækningastofu Matthildar til að fá svör við því af hverju ég, sem er grönn og spræk kona og borða hollt og reglulega, þrífst ekki nógu vel. Þar var ég sett í einhvers konar rafsegulsmælingafæðupróf sem gefur til kynna hvaða fæðutegundir henta mér og hverjar ekki. Þá kom ýmislegt í ljós, m.a. að upptaka steinefna í líkama mínum er mjög léleg, og að margt sem ég borða og drekk, og held að geri mér gott, veldur mér margvíslegum líkamlegum óþægindum. T.d. tómatsósa, svínakjöt, apríkósur, bananar og appelsínur, rúsínur, kartöflur, hveiti og hvít hrísgrjón, sterkt karrý, mjólkurvörur, tyggjó, ávaxtate, hvítur sykur, lakkrís og unnar kjötvörur eins og kæfa og pepperóní. Að ógleymdu nescafé, hvítvíni og bjór. Í morgunmat var því hafragrautur með hrísmjólk, svo var spelthrökkbrauð með eggi, tómötum, lambhagasalati og avocado í hádeginu. Það er örugglega á sig leggjandi að prófa hvort breytt mataræði hefur einhver áhrif á líðan manns. Eitt hænuskref verður tekið í senn, t.d. á ég hálffullan hvítvínskút sem ég þarf að klára og fullt af æðislegu ávaxtatei, rjóma og mjólkursúkkulaði. Þeir sem þola slíkar veitingar eru velkomnir í heimsókn að neyta þeirra, ég japla á spínatblaði á meðan.
Steinbítur
Ég sá aðallega um eldamennskuna í húsbílnum í sumar. Það er mjög gaman að elda á gashellum, maður er eldsnöggur og hefur algera stjórn á hitanum, aldrei viðbrennt eða ofsoðið. Reiddir voru fram dýrindis réttir, s.s. saltfiskur með döðlum og tómat, kjúklingaréttur með kókos og karrí, smjörsteiktar kartöflur með fersku kryddi, grænmetispanna með kjúklingabaunum, matarmikið salat og svo mætti lengi telja. Brynjar fór líka á kostum þegar hann tók sig til og eldaði steinbít með engifer, chili og hvítlauk.
Glossinn eða glossið?
Ég fór með Ingu tískulöggu í Kringluna til að kaupa mér snyrtivörur en augnskuggarnir mínir molnuðu í sundur í hringferðalaginu og glossið mitt er uppurið. Inga hefur numið förðun og hárgreiðslu á Youtube og vissi hvað hún söng. Leiðin lá í MAC í Kringlunni og þar fengum við frábæra þjónustu, athygli, áhuga og alúð, sem er nú frekar sjaldgæft í verslunum hérlendis. Í MAC er hægt að kaupa sér box (palettu) og safna svo í það þeim litum sem hentar, mjög sniðugt og eg skellti mér á eitt svoleiðis. Hef margoft keypt mér augnskuggabox þar sem ég nota suma litina aldrei. Ég fékk mér, eftir miklar pælingar, mosagrænan augnskugga („sem dregur fram bláa litinn í augunum“) og er strax komin með augastað á öðrum gylltum sem ég ætla að kaupa í næsta mánuði, svo keypti ég æðislegan varalit og varablýant í stíl. Ég hætti alveg við glosskaup og fékk mér mjúkan og rakagefandi varalit, hluti af andvirðinu rennur í sjóð til styrktar alnæmisrannsóknum í heiminum. Það vakti athygli mína að bæði Inga og afgreiðslustúlkan nota orðið gloss í karlkyni: „Þessi gloss er æðislegur…“ Ekki var þetta sérlega hagkvæmt eða ódýrt, kostaði rétt rúmar 11.000 kr. en ég er afar ánægð með kaupin og var búin að mála mig með nýja góssinu fyrir níu í morgun.
