Veðrið hefur verið svo gott undanfarna daga. Inga hefur þrælað í unglingavinnunni en ég hef legið í sólbaði, lesið og hlustað á bæði stuðið á grooveshark.com og rúv: KK, Samfélagið í nærmynd, Á sumarvegi, Víðsjá… allt mjög vandaðir og fínir þættir. Lífið er ljúft þegar maður er í fríi, ef planið er ekki of stíft eins og mörgum hættir til. Það er á dagskránni að hitta vini og ættingja, klára sólpallinn, taka til í fataskápnum, hengja upp myndir, hjóla og hreyfa sig á hverjum degi. Kannski alltof stíft plan þegar að er gáð!
Skagaströnd
Á Skagaströnd er ekki bara Kántribær. Þar er líka skemmtilegt kaffihús sem heitir Bjarmanes. Sérlega huggulegt, gömul og falleg húsgögn og rósótt bollastell, góðar heimabakaðar kökur og snarpheitt kaffi. Við fengum kaffið úti og nutum veðurblíðunnar með rabarbarapie og gulrótarköku. Rétt hjá er Spákonuhúsið, þar er hægt að skoða hvernig menn bjuggu snemma á tuttugustu öldinni, þrjár fjölskyldur í 50 fm. Í húsinu fékk ég bæði lófalestur og spilaspá svo framtíðin liggur fyrir, björt og fögur.
Hringferð lokið
Þá erum við lent eftir þriggja vikna hringferð um landið á húsbílnum góða. Það rigndi mest allan tímann sem við vorum á ferðinni en það kom sosum ekki að sök. Teknar voru snilldarmyndir, lesnar yfir 1500 blaðsiður af góðum litteratúr, farið í ótal gönguferðir auk ljúfrar samveru og afslöppunar. Við vorum örþreytt við heimkomuna og hundurinn reisti ekki haus frá bæli í heilan sólarhring. En nú erum við endurnærð og strax farin að plana næstu útilegu. Myndin var tekin þegar skipt var um olíu á bílnum á Blönduósi en þá skein sólin glatt og tóm gafst til að líta í bók. Ferðasagan sem var samviskusamlega rituð jafnóðum verður birt hér á síðunni með myndum innan skamms.
Djúpivogur
Loksins eru m við komin úr rigningunni fyrir norðan. Vorum í rigningu í Mývatnssveit og hellidembu við Dettifoss. Öll hálendisplön eru lögð til hliðar í bili. Hér á Djúpavogi er þurrt og hlýtt og notalegt. Allt viðrað og hrist og hengt til þerris áður en haldið verður til Hafnar en þar hefur gula flykkið hefur boðað komu sína á himininn.
Akureyri
Á Akureyri, þeim fagra bæ, er rigning. Við bíðum af okkur óveðrið áður en lagt verður af stað upp á hálendið. Ferðasagan bíður betri tíma, myndskreytt og safarík.
Dýrin í Saigon
Var að ljúka við Dýrin í Saigon eftir Sigurð Guðmundsson. Þetta er eins konar ferðasaga, sjálfsvævisöguleg og heimspekileg, um Íslending í framandi umhverfi og menningu, hann kynnist sjálfum sér fyrst og fremst en líka innfæddum, bæði ræstingakonum og skóbursturum, og sér nýjar hliðar á lífinu. Hann kann ekki orð í víetnömsku og þeir sem hann kynnist tala varla orð í ensku svo samskiptin verða að fara fram eftir öðrum leiðum. Inn á milli eru súrrealískir kaflar um vitur og talandi dýr sem tengjast persónum sögunnar, auk bréfa til látinnar móður. Flottar pælingar um tungumálið, ástina, lífið, listina og þjóðernið. Það er hvöss ádeila í pælingum um íslenskt þjóðerni og hið svokallaða þjóðarstolt. Hvað er það? Hvað þykjumst við vera? Erum við ekki bara vestrænir umhverfissóðar, gráðugir úlfar og merkikerti? Mig hefur alltaf langað að fara til Víetnam og vera þar í nokkra mánuði til að kynnast landi, þjóð og tungu. Ég verð þar í ellinni.
Gestir
Kvennahlaup
Við Arwen tókum á sprett í dag í Kvennahlaupinu. Fórum fimm kílómetra að þessu sinni og hlupum mestallan tímann, ekkert rölt eða gauf. Alltaf gaman að skokka í góðu veðri og hitta fullt af skemmtilegum konum. Arwen var till fyrirmyndar, margar kvennanna voru með hunda sína með sér, sumir jafnvel í kvennahlaupsbolum. Svo var heilsukaffi hjá Oddu á eftir, ekki amalegt.
Þegar kóngur kom
Ég var að lesa Þegar kóngur kom eftir Helga Ingólfsson. Sagan gerist í konungsheimsókninni 1874, skemmtileg bók, byggð upp eins og glæpasaga í formi dagbókar eða frásagnar einnar persónunnar, skólapiltsins Móritzar. Ung stúlka og lausaleiksbarn hennar finnast látin í grænni lautu einmitt þegar hátíðahöldin standa sem hæst. Saga stúlkunnar er átakanleg og örugglega ekki einsdæmi á þessum árum. Hjaltalín læknir og Móritz standa í stórræðum við lausn málsins ásamt Borgfjörð lögregluþjóni en rannsóknin má ekki skyggja á heimsókn konungsins. Margar þekktar (karl)persónur koma við sögu, s.s. Matthías Jochumsson, Steingrímur Thorsteinsson, Sæfinnur á 16 skóm, Gestur Pálsson og sjálfstæðishetjan Jón Sigurðsson sem sýndur er í óvæntu ljósi. Lýsingar á skólalífinu eru fróðlegar og sviðsetning Reykjavíkurlífsins afar lifandi, híbýlin er myglaðir torfkofar eða heilsuspillandi skúrar, göturnar drullusvað, maturinn fábrotinn og ólystugur, fatnaður fólks lélegur og skjóllítill. Almúginn er kúgaður, fáfróður og skítugur, yfirstéttin spillt og meðal hennar hlægilegar höfðingjasleikjur. Andstæður milli stétta og kynja, ríkra og fátækra, menntaðra og ómenntaðra eru skarpar og hrikalegar. Samtöl eru hressileg, persónugalleríið stórskemmtilegt, spennan helst út í gegn. Vel skrifuð (aðeins of mikið af latínuslettum) og skemmtileg bók með mögnuðum persónu- og þjóðfélagslýsingum.
Svalaveggur # 7
Þá er smíði skjólveggsins mikla lokið (reyndar á eftir að setja stál-/álhatt ofan á, bæði upp á lúkkið og til að styrkja böndin). Síðasta spýtan skrúfuð í undir kvöld, smiðshöggið hefur verið rekið. Nú vantar ekkert – nema góða veðrið.


