
Í námskeiðinu Skólaþróunarverkefni KEN213F, við menntavísindasvið HÍ á vormisseri 2014, var öflugur hópur nemenda sem fjallaði um innleiðingu lýðræðislegra kennsluhátta í Menntaskólann í Kópavogi.
Lýðræði er einn af grunnþáttum menntunar skv. aðalnámskrá framhaldsskóla (2011) og er ætlað að auka virkni nemenda í námi með lýðræðislegum kennsluháttum. Skólaþróunarverkefni hópsins góða snýst um að innleiða lýðræði inn í allt skólastarf, kennsluefni, kennsluhætti og námsmat.
Markmiðin eru:
- að nemendur taki virkari þátt í námi sínu
- að kennarar nýti sér fjölbreytta kennsluhætti og námsmat og þrói lýðræðisleg vinnubrögð innan skólastofunnar
- auka möguleika nemenda til að hafa áhrif á inntak og aðferðir náms og kennslu
Lesa má skýrsluna hér: Lýðræðislegir kennsluhættir
Höfundar:
Ásta Kristín Ingólfsdóttir, Haraldur Gunnarsson, Jón Björgvin Hilmarsson, Malla Rós Valgerðardóttir, Melkorka Edda Sigurgrímsdóttir, Steinunn Inga Óttarsdóttir og Sævar Þorleifsson
Kona þarf að setja sér markmið og ná þeim. Í sumar lét ég spana mig í að fara ofan í kaldan pott í sundlauginni á Þórshöfn (allt Gunnu systur að kenna sem lætur sér fátt fyrir brjósti brenna). Ég hélt ég gæti þetta ekki. Og það var óþægilegt og skrýtið en ekki eins slæmt og ég hélt. Svo ég setti mér markmið, að venjast því að fara í kalt bað, halda þetta út, láta hugann ekki hræða mig. Svo ég fór aftur og aftur, stutt og enn styttra, aftur og aftur. Ég er ekki farin að stunda klakaböð eða fara í sjóinn en ég komst að því að ég þoli vel miklu kaldara vatn en ég hélt. Nú læt ég renna úr garðslöngunni í pottinn á pallinum og dýfi mér þrisvar ofan í, upp að höku með hendurnar uppúr, tel upp að 20 minnst. Og það er sannarlega hressandi. Bæði að finna kalt vatnið fríska mann upp og ekki síður hitt að hafa sigrast á óttanum og náð markmiðinu. Takk Gunna!





Þann 4. maí sl. skilaði ég MA-ritgerð um Oddnýju Guðmundsdóttur, skáldkonu frá Hóli á Langanesi (1908-1985). Ritgerðin var afrakstur margra mánaða vinnu sem var bæði skemmtileg og gefandi. Ég elska að grúska, finna samhengi, kynnast fólki úr fortíðinni og miðla sögu þeirra til nútímans. Að kvöldi 11. maí skilaði ég svo tveimur útvarpsþáttum um skáldkonuna til yfirferðar hjá mesta útvarpsþáttagerðarsnillingi á Íslandi. Kannski þarf ég að laga eitthvað, kannski er þetta bara gott, kemur í ljós í vikunni. Ég er allavega fegin, sátt og glöð og ætla ekki að finna mér aðrar áskoranir næstu mánuði. Bara læra að gutla á gítarinn minn og hjóla sem lengst og oftast.