Morð

Það er ósmekklegt að tala um að Bin Laden hafi verð drepinn eða felldur eins og sagt er í fjölmiðlum burtséð frá hvaða voðaverk hann hefur drýgt. Ísbjörninn sem gekk á land fyrir vestan var drepinn / felldur en þessar sagnir notar maður ekki um manneskjur. Bin Laden var myrtur í rúmi sínu.

Frænkur

Prúðbúnar Buddur, hver annarri fegurri og skemmtilegri. Við erum 13 á myndinni, tvær frænkur vantar. Við erum afkomendur fimm systkina frá Þórshöfn á Langanesi, þeirra Skúla, Diddu, Óla, Jónu, og Lillu, og höfum alla tíð haft samgang okkar á milli. Við erum bestu frænkur og vinkonur sem hittumst af og til í heimahúsum og höldum svo veglega árshátíð saman ásamt bæði gömlu Buddunum og nokkrum heiðursbuddum. Þetta er óendanlega dýrmæt vinátta og frændsemi sem við ræktum af alúð ævina á enda.

Nemesis

Um páskana las ég Nemesis eftir Jo Nesbö. Hörkuspennandi reyfari um (eins klisjulega og það hljómar) drykkfellda, kaldhæðna og kvensama löggu með sálarflækjur en skýra rökhugsun, endalausa þolinmæði og öfluga rannsóknarhæfileika. Minnir stundum á samlanda hans Morgan Kane, lögregluforingja sem einnig var veikur fyrir víni og villtum meyjum og leysti sakamál á sinn hátt. Atburðarásin er hröð, persónurnar áhugaverðar, t.d. Beate Lönn sem er límheili og áþekk Lisbeth Salander um margt, hinn hégómagjarni Iversen, spillta löggan Tom Waaler o.m.fl. Þessi reyfari er tæpar 500 síður og kom út á frummálinu 2002! Nesbö er heitur krimmahöfundur, vonandi þarf ekki lengur að bíða árum saman eftir þýðingum á bókum hans.

Svívirða

Ég er að brjótast í gegnum Svívirðu eftir Lotte og Sören Hammer. Það er einmitt svívirðilega leiðinleg bók og frekar stirðlega þýdd. Efnið er erfitt og viðkvæmt: er réttlætanlegt að drepa barnaníðinga? Hef eytt of miklum tíma í hana nú þegar og enn eru 100 síður eftir. Verð að finna mér einhverja aðra bók til að kjamsa á um páskana.

Góður Gyrðir

Nú fær maður aftur trú á mannkynið eftir hraksmán í icesave-kosningunum því Gyrðir Elíasson fær bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2011. Það er stórkostlegt! Íslendingar hafa sex sinnum fengið þessi verðlaun, fimm karlar og ein kona (er þetta sama kynjahlutfall og í Kiljunni?). Ég hef alltaf verið mikill og einlægur Gyrðisaðdáandi, sagnaheimur hans er svo furðulega heillandi. Eitt sinn ritaði ég grein í TMM um Steintré og hengi hana hér við fyrir áhugasama. Svo vil ég að Guðbergur Bergsson fái nóbelinn og þá er kannski smá von um betri heim.