Föt

„Ég á engin föt til að fara í“ er oft mín fyrsta hugsun á morgnana og þegar eitthvað sérstakt stendur til.  Við Inga tókum fataskápinn minn í gegn um helgina, fylltum svartan ruslapoka af fötum sem ég hef ekki klæðst sl.  2-4 ár en hafa bara hangið og safnað ryki og verið fyrir mér þegar ég hef verið að gramsa eftir einhverju til að vera í.  Nú hefur öllu verið raðað fallega í skápinn og eru þar núna m.a. 7 pils og 5 kjólar, 17 langerma efripartar, 11 peysur, tvær buxnadragtir og þrjú vesti, 12 stuttermabolir og 5 pör af buxum. Svo ég ætti að geta fundið eitthvað til að vera í á morgun.

Austur-Indíafélagið

Ég hef á tilfinningunni að Austur-Indíafélagið viti ekki alveg hvernig veitingahús það vill vera. Þangað fórum við afmælisbörnin þann 7. sl. Það er gott tilboð í gangi í október (fimm réttir á 4990) en desertinn er alltof lítill  og bara hægt að fá eina tegund af hrísgrjónum. Þegar okkur var vísað til borðs stóð tuska og spreybrúsi dágóða stund á næsta borði, sem gerist ekki einu sinni á American Style. Svo virðist sem enginn þjónanna sé faglærður, sumir töluðu enga íslensku og það er sáralítil alúð lögð í þjónustuna. Borðin eru ekki dúkuð en eru snyrtileg, wc-in voru nýlega tekin í gegn. Gestir sitja nálægt hver öðrum á staðnum og oft er hávaðasamt á stórum borðum þegar líður á kvöldið. Verðskráin er eins og á Hilton eða Ritz en maturinn er heitur og hrikalega góður og þess vegna fer ég aftur og aftur þangað til betri indverskur staður býðst.

Morgnar í Jenín

Morgnar í Jenín segir frá fjórum kynslóðum Palestínumanna. Eftir seinni heimstyrjöldina var Ísraelsmönnum úthlutað landssvæði þar til eignar og ábúðar en svo virðist sem enginn hafi tekið með í reikninginn að þar var þjóð á fleti fyrir og engu skeytt um örlög hennar. Í landinu höfðu Palestínumenn búið öldum saman með geitur sínar og arabíska gæðinga, ræktað ólífur og appelsínur og unað glaðir við sitt. Yfirgangur Ísraelsmanna er hrikalegur, rán, morð og nauðganir eru daglegt brauð, og skv. bókinni var mörgum ofbeldisverkum þeirra  leynt fyrir umheiminum og vitnað er í skýrslur og blaðagreinar því til sönnunar. Palestínumenn voru hraktir frá heimilum sínum og Ísraelsmenn lögðu þau  hreinlega undir sig, ferðafrelsi þeirra var heft, þeir voru skotnir eða þeim misþyrmt og sér ekki fyrir endann á því eins og alþjóð veit. Börn í Palestínu þekkja ekki annað en að búa í flóttamannabúðum og eiga von á ofbeldi á hverjum degi. Þetta er verðugt efni að fjalla um í skáldsögu, bæði dramatískt og pólitískt, en sagan verður því miður ansi langdregin, víða er þýðingin klaufaleg, litríkt myndmálið sem tengist arabískum siðum og málvenjum verður einhvern veginn tilgerðarlegt. Bókin vekur vissulega til umhugsunar,  bæði um þau alltof mörgu stríð sem háð eru í heiminum þar sem gengdarlaust ofbeldi, fjölda- og þjóðarmorð viðgangast og um þann hrikalega vanda sem skapast af straumi flóttafólks sem hrekst af landi sínu vegna stríðsátaka og á hvergi höfði sínu að halla.

Óttar Einarsson sjötugur

Bókin hans pabba

Pabbi minn heittelskaður er sjötugur í dag og hélt glæsilega veislu í Haukaheimilinu í gærkvöldi. Atli  á Jarðbrú (í hinum ægifagra Svarfaðardal þar sem pabbi  var skólastjóri á Húsabakka til ársins 1972) sendi okkur myndir sem hann tók og lýsti þessu öllu saman á flickr-síðu sinni. Margir lögðu hönd á plóg til að gera veisluna sem best úr garði og kunnum við systur þeim öllum bestu þakkir.  Ræður og skemmtiatriði frá gestum voru á heimsmælikvarða, maturinn frábær og stemningin afar góð. Margir komu um langan veg til að heiðra afmælisbarnið og afar gleðilegt var að amma mætti og var eins og drottning, 93 ára. Í tilefni afmælisins gaf hann út bók með vísum eftir sig sem gestum gafst kostur á að kaupa á vægu verði en hann frábað sér allar afmælisgjafir.