Seðlabankastjóri

Hvað er svona merkilegt við það að vera seðlabankastjóri?  Er það eitthvað sérstakt? Hví þarf hann svona hátt kaup og margs konar fríðindi? Hvað er eiginlega í starfslýsingunni hans? Á hann að passa að þjóðarbúið fari ekki til fjandans? Á hann að gæta þess að gjaldmiðill landsins verði ekki verðlaus? Á hann að sjá um að vextir verði viðráðanlegir og að skuldir heimila, fyrirtækja og stofnana vaxi ekki yfir öll mörk? Ber  hann ábyrgð á því sem hann klúðrar og þarf að bæta fyrir það? Á hann að vera flekklaus, óspilltur, með hreinan skjöld og bera almannahag fyrir brjósti? Ekki sýnist mér það. Fyrir hvað á hann að fá mörgum sinnum hærri laun en aðrir stjórar ríkisins, skrifstofumenn og „blýantanagarar“?

Frænkur fara á kostum

Dans gleðinnar

Draugar?

Buddur á góðri stund

Árlegir snyrtibudduleikar voru haldnir í Vaglaskógi um síðustu helgi í flottasta sumarbústað norðan heiða. Mættar voru 14 hressar konur, frænkur og vinkonur og var mikið um dýrðir. Glæsilegur morgunverður, snyrting og dekur, fræðsla og menning, spurningakeppni, ræðuhöld, heitur pottur, gönguferð og kleinur frá Dillu, veislumatur, dans og það mikilvægasta: yndisleg samvera.
Fleiri myndir eru  hér.

Jazzballet

Myndin er tekin á gemsann, pínulítinn Nokia

Inga og Erla besta vinkona eru nemendur JSB og æfa jazzballet tvisvar í viku. Lokasýningin var í gær og þemað var Nýjasta tækni og vísindi. Hópurinn þeirra sýndi dansinn „Rafstuð“ við tónlist Teemper og Parasite Battery III eftir F Pomassi. Þær stigu ekki feilspor og voru æðislegar.

Brúðkaupsnóttin

Örstutt skáldsaga eftir Ian McEwan, gerist snemma á sjöunda áratugnum, s.s. fyrir kynlífsbyltinguna svonefndu. Ung og nýgift hjón eru að ljúka málsverði á hóteli og brúðkaupsnóttin er framundan. Bæði eru reynslulaus og fáfróð um kynlíf. Hverjum (hvaða kalli?) datt eiginlega í hug að hjón ættu að sofa saman fyrst á brúðkaupsnóttina og að konan ætti að vera hrein mey? Á þessum tíma er kynlíf tabú og unga parið er ótrúlega bælt og þvingað og hrætt við að tala um tilfinningar sínar. Misskilningur, ólíkar væntingar, misvísandi skilaboð o.fl. valda því að tilvera þeirra beggja umturnast þessa nótt. Sagan líður afar hægt, lýsingarnar eru afar nákvæmar, samtölin stirð og þrungin ótta og feimni, fortíð og nútíð spinnast saman og spennan í loftinu er áþreifanleg. Það er ótrúlega pirrandi hvað persónurnar eru þvingaðar og þrjóskar og eiga erfitt með samskiptin en í því er snilldin fólgin. Sorgarsaga sem nístir í merg og bein.

Grand Hótel

Flatskjárinn á hótelherberginu

Við unnum gjafakort á Grand Hótel í vísnagátusamkeppni (með góðri hjálp frá pabba). Vorum þar síðastliðna nótt í góðu yfirlæti, rosalega flott herbergi og æðislegt útsýni af 12. hæð. Veitingastaðurinn á hótelinu er hins vegar frekar púkalegur en ég fékk þó alveg  frábæran saltfiskrétt. Desertinn var alveg glataður, ég held satt að segja að hann hafi bara verið úr pakka. Það er voða gaman að gista á 4ra stjörnu hóteli í Reykjavík, með ferðatösku, sléttujárn, bók að lesa og föt til skiptanna, bara eins og að vera í útlöndum og þangað er maður víst ekkert að fara í kreppunni. Gleypti í mig i Þriðja táknið eftir Yrsu Sigurðardóttur, mjög spennandi.

Ummyndanir

„Dagur mun koma að kveldi og Föbus mun baða lafmóða fáka sína í sjávardjúpunum,  áður en ég fái upp talið allt það sem hefur tekið á sig nýja mynd“ (418) segir Óvíd í Ummyndunum en Kristján Árnason fékk þýðingarverðlaunin 2009  i dag. Þau voru afhent á Gljúfrasteini og þar með lauk störfum dómnefndarinnar.

Þýðing Kristjáns er bæði stórvirki og menningarviðburður, svipað og Shakespeare, 1001 nótt og Biblían. Kristján býr yfir miklum orðaforða, skáldgáfu, innsæi og þekkingu á myndmáli og stíl sem birtist vel í þýðingu hans. Hún er afar læsileg og aðgengileg, það er hægt að grípa niður hvar sem er og sökkva sér ofan  í sögur af örlagaglettum hinna fornu guða. Alls staðar eru dæmi um útsjónarsemi og næmi þýðandans fyrir blæbrigðum tungumálsins, bæði frummáls og þýðingar. Af  handahófi má nefna endalok hins sjálfhverfa unglings, Narkissusar, sem málgefna dísin Ekkó elti á röndum:

„En er Narkissus sá þetta í vatninu, sem var nú aftur orðið slétt sem spegill, þá var honum öllum lokið, og svo sem hið gula vax bráðnar af léttum eldi og klaki leysist upp af yl sólarinnar, þannig bráðnaði hann af ást og tærðist upp smám saman af innibyrgðum eldi. Þá hvarf roðinn af björtu hörundi hans, honum þvarr máttur og megin, og fegurð hans bliknaði, sá líkami sem Ekkó hafði unnað svo mjög varð ekki nema svipur hjá sjón“ (106-7).

Kristján hefur með þýðingu sinn á Ummyndunum fært nútímalesendum fornklassískan sagnaheim á gullaldaríslensku eða eins og þeir Óvíd orða það (432): Hann hefur lokið „verki sem hvorki bræði Júpíters né eldur né járn né tönn tímans munu fá grandað.“

Leshringur

Um síðustu helgi var árshátíð hins virta leshrings, ringo.15 sem er „blandaður leshringur karla og kvenna“ sem hefur starfað síðan á 10. áratug síðustu aldar. Þemað var franskt: bók kvöldsins var Hlutirnir eftir Georges Perec; svo var  lax í hvítvínslegi, dýrindis lauksúpa, eplasorbet, grænt salat, ostar, beinlausir fuglar og súkkulaði-mousse. Og eðalvín með hverjum rétti. Veisla ársins!  Hér sést Hulda handleika Pegasus, hinn vængjaða skáldfák Medúsu.

Hittingur 1963

Elfa Björt var eldhress

Brynja Agnars og Björg Ingadóttir
Við Elfa Björt höfum marga fjöruna sopið síðan 1977

Kristín Gunnlaugs og Laufey Herberts

Sigríður Sunneva er alltaf kát og hress

Lilja Hákonar og Ásdís voru glaðbeittar

Á dögunum hittumst við nokkrar kellur úr 1963 árganginum góða úr Barnaskóla Íslands. Við fengum okkur hressingu á Caruso og kjöftuðum alveg stanslaust enda höfum við marga fjöruna sopið. Rifjuð voru upp ýmis bernskubrek auk nýrra áfangasigra í lífinu í leik og starfi. Þetta var mjög gaman, þetta eru svo fallegar, skemmtilegar og klárar konur. Planið er að hittast aftur í sumar og hafa meira geim.