Flott að taka svona perlu og pússa hana aðeins þótt enginn toppi Vilhjálm… Þetta er rosalega flott!
Inga (18)

Inga hélt lítið kaffiboð á sunnudaginn og prentaði sjálf út uppskriftir að þeim réttum sem hún vildi hafa. M.a. var sítrónukaka og brownies úr Gestgjafanum sem hvort tveggja bragðaðist mjög vel. Nú er hún sjálfráða og telst því til fullorðins fólks framvegis..Á myndinni eru þau feðgin í boðinu, glaðbeitt.
Sunnudagur
Star Trek Into Darkness
Star Trek 2 Into darkness (JJ Abrahams) er mögnuð hasarmynd, hörkuspennandi strax frá upphafi. Nú reynir aldeilis á vináttu kafteins Kirk, sem beitir dómgreind sinni og innsæi á ögurstundum en lætur reglur Stjörnuflotans lönd og leið, og hálfvélmennisins Spock sem er kórréttur og löghlýðinn rökhugsuður. Saman eru þeir ósigrandi og tilbúnir til að fórna lífi sínu ef því er að skipta. Heill framtíðar og jarðarinnar er í húfi því hinn helfrosni Khan kemur til skjalanna svo það stefnir í styrjöld sem mun granda öllu lífi fyrir fullt og allt. Myndin er í þrívídd og brellur allar listilega gerðar, græjurnar flottar, búningarnir æðislegir, tónlistin dramatísk, vel leikin mynd, hröð atburðarás og stundum fyndin tilsvör, allt leggst á eitt til að gera magnaða bíómynd. Sumar senur er skrýtnar, t.d. birtist gamli Spock aftur en hann var líka í fyrri myndinni, og undurfögur ljóska spókar sig á nærfötunum eitt augnablik. Get varla beðið eftir næstu StarTrek því Klingónar eiga harma að hefna.
Skólabrú
Borðaði á Skólabrú á föstudagskveldið. Huggulegur staður, þjónarnir gerðu sitt besta þótt ekki bæru þeir sig sérlega fagmannlega að og maturinn var ágætur. Fékk mér saltfisk sem bragðaðist mjög vel og ís í eftirrétt, þrjár ískúlur voru allar eins á bragðið. Tveir borðfélagar fengu sér sjávarréttadisk með hrísgrjónum sem var miklu minni skammtur en saltfiskur og steinbítur með mangó. Fjögur stök rauðvínsglös eru ódýrari en ódýrasta flaskan á vínlistanum. Umhverfið er notalegt en þegar leið á kvöldið fylltist staðurinn af þýskum ljósritunarvélasölumönnum sem höfðu hátt, borðuðu lambakjöt af tacky sverðgrilli. Maturinn á Skólabrú er of dýr miðað við gæði og þjónustu.
Grillið á Sögu
Var boðið á Grillið á Sögu um helgina. Grillið á sér 50 ára sögu sem er afar sjaldgæft í íslenskum veitingarekstri. Nýlega er búið að gera staðinn upp á mjög skemmtilegan hátt. Haldið er í það gamla og poppað upp með nýju, gamlir stólar smekklega yfirdekktir og loftið með astra-hringum fræga ljósmálað. Flott skilrúm við barinn, smart snakk með (dýrum) drykkjum. Útsýnið alveg frábært yfir vesturbæinn. Í boði var sjö rétta máltíð með sérvöldu víni. Hver rétturinn öðrum betri og vínið passaði snilldarlega vel með, alveg himneskt fram að eftirrétti en hann hitti ekki alveg í mark, eitthvað súkkulaðikám með grænum baunum, hvorki fallegt né sérlega bragðgott, og óspennandi desertvíni. Uppistaðan var fiskréttir, hægreykt bleikja, rauðspretta, æðislegar rauðrófur, dásamlegt. Lambakjötið bráðnaði í munninum og sósan með var af bestu gerð. Silfurhnífapör féllu vel að frábærri þjónustu faglærðra framreiðslumanna og listilega elduðum mat. Ánægjuleg kvöldstund, toppgæði og þjónusta í fallegu umhverfi. Verð fyrir sjö rétti með víni: 20.400 kr. Þetta er bara einu sinni á ári.
Sveitin
Móðurást
Akureyri, 27. ágúst 1870
Herra Gísli Brynjólfsson! Fyrirgefið dirfsku mína, að eg ávarpa yður með línum þessum., þar sem eg er yður persónulega aldeilis ókunnug. En af afspurn þekki eg yður sem góðan Íslending. Orsökin til þessa seðils er, að yður er af öðrum falinn á hendur Jón litli sonur minn, og þess vegna hrífur mig móðurástin til að senda yður nokkrar línur með honum. Hann er barn, tæpra þrettán ára gamall. Þess vegna bið ég yður svo vel gjöra að leiðbeina þessum munaðarleysingja í öllu þvi, sem yður finnst honum nauðsynlegt. Eins bið eg yður að koma á framfæri þremur innlögðum seðlum, sem honum tilheyra. Virðið á betri veg vankunnáttuna og öll lýti þessa seðils yðar ókunnugu en alls góðs unnandi
Sigríði Jónsdóttur
(Íslenzk sendibréf III, Konur skrifa bréf, bls. 315)
Fallegasti hundur í heimi
Hannes biskup
Í dag er fæðingardagur Hannesar Finnssonar, biskupssonar og biskups (1739-1796). Hann skrifaði heilmargt um sína ævidaga, m.a. Stokkhólmsrellu, skemmtilega ferðasögu um Svíþjóðarferð sem hann fór í 1772. Um hana skrifaði ég lærða grein sem ég þarf endilega að koma á prent.




