Ég skapp á fyrirlestra um utangarðsmenn og flökkufólk fortíðar í bókhlöðunni í gær sem haldnir voru í tengslum við sýningu sem heitir Utangarðs? Það var stórfróðlegt. Að vera ekki í vinnumennsku eða vist var stranglega bannað og því voru þeir sem lögðust í flakkir skilgreindir sem glæpamenn. Þó voru þeir víða aufúsugestir og lífguðu upp á tilveruna. Þarna kom fram að Yngvi Leifsson skrifaði sögu ellefu flakkara á Norðurlandi 1783-1816 í nýrri MA-ritgerð sem er því miður læst í Skemmunni. Merkilegt var að heyra um afdrif handrits Guðrúnar Ketilsdóttur, sem líklega er fyrsta sjálfsævisaga íslenskrar konu. Karlveldið og bókmenntastofnunin gerðu handritið að skrípatexta svo það lenti utangarðs og hlaut ekki þann sess sem það á skilið. Í Norræna húsinu hlustaði ég síðan á Auði Övu Ólafsdóttur flytja erindi á bókmenntahátíð sem hún nefnir Dvergar og stríð og var bæði fyndið og flugbeitt.
Skokkað í dölunum
Kódakmóment
RM 2013
10 km hlaupið að baki og tíminn liggur fyrir. Fór á 60 mín (flögutími) svo til sléttum og er frekar svekkt með það. Gerði þau mistök að fara of aftarlega í röðina, stillti mér upp í 60-65 en hefði átt að vera framar. Þvagan þokaðist af stað og dýrmætar mínútur fóru til spillis. Pace-ið var 5,5 mestallan tímann og ég var í góðum gír, hefði átt að fara þetta á 57 allavega. Gengur betur næst! Veðrið var gott, allir glaðir og hvetjandi, Odda í markinu eins og í fyrra og toppurinn á deginum var að Gunna systir og Jóhanna Sigrún voru komnar niður í bæ og fögnuðu mér að hlaupi loknu!

RM nálgast
Vika í RM, ætla að taka 10 km og stefni á að vera undir 60 mín. Undirbúningur gengur vel, hef mætt á æfingar 3x í viku sl 3 vikur og borðað mestmegnis hollt og næringarríkt… Andinn er reiðubúinn en holdið veikt. Til að hressa mig við í kvöld er hér mynd frá Grundarfirði síðan í sumar þar sem ég tók léttan hring í sól og blíðu og svamlaði svo í sundlauginni á eftir. Yndislegt.
Nóvember 1976
Skáldsagan Nóvember 1976 eftir Hauk Ingvarsson kom út 2011 en ég var að lesa hana núna fyrst í sumar. Hún er mjög fín, vel skrifuð, fyndin og yfir henni notaleg nostalgía. Sjálf bjó ég í blokk (á Akureyri) 1976 en sagan fjallar um nokkra íbúa í blokk í Reykjavík sem allir hafa sinn djöful að draga og er um leið einskonar míníútgáfa af samfélaginu. Mjög gott form til að halda utan um persónugallerý og söguþráð en vissulega hætta á að klisjur verði til. Það gerist þó ekki í þessari sögu þótt persónurnar séu ekki sérlega flóknar eða djúpar. Þær eru svo ljóslifandi, skoplega mannlegar í neyðarlegum aðstæðum, samtölin milli þeirra eru eðlileg og stórskemmtileg og sjónarhornið skiptist á milli þeirra. Sérstaklega eru kvenpersónurnar í sögunni flottar, bæði Dóróthea, kúskuð eiginkona Ríkharðs en hann er orðheppinn pungrotta og laus höndin, og Bíbí, mussan sem fer sínar eigin leiðir. Á sögutímanum er kvennabaráttan ótrúlega stutt á veg komin (og miðar enn hægt) og augljós er samúð sögumanns með málstað jafnréttis kynjanna. Konur vinna flestar heima og þjóna körlum sínum og börnum, þær sem stíga út fyrir það hefðbunda mynstur eru litnar hornauga. Kynslóðabilið er að verða til um þessar mundir, unglingarnir eru hálfvegis týndir og komnir í uppreisn gegn ríkjandi viðhorfum, s.s.nýtni og sparsemi, að vinnan sé dyggð og að það eigi að bera virðingu fyrir sér eldra fólki. Þóroddur er fulltrúi ungu kynslóðarinnar, latur og áttavilltur. Samfélagið er að opnast og breytast, hvort sem fólki líkar það betur eða verr. Litasjónvarpið er að ryðja sér til rúms og veldur á skemmtilega íronískan hátt straumhvörfum í lífi persónanna. Sagan er efni í hörkugóða bíómynd. Mæli með þessari bók, hér er góð gagnrýni um hana.
Sumar
Annáll 19. aldar
Ennfremur dóu:
25. s.m. (apríl 1858) Dómhildur Þorsteindóttir, kona Ólafs Gunnlaugssonar Briem, timburmanns á Grund í Eyjafirði, 40 ára, þau voru í hjónabandi í tæp 20 ár og andaðist hún að nýlega afstöðnum burði þeirra 15. barns.
Slysfarir og skaðar
Í september (1858) hengdi sig Guðmundur Sveinsson bóndi í Kumlavík á Langanesi, hann hafði lengi verið geðveikur, er hófst í fyrstu við það að drengur er hann átti, á 11. ári, féll í mylnulæk og kramdist til dauða af snúningi vatnsspjaldanna.
Annáll 19. aldar, III.bindi. 1857-1869. Safnað hefur síra Pjetur Guðmundsson frá Grímsey.
Sumarfrí
Ég er komin í sumarfrí og fíla það vel. Hef haft nóg að gera, fengið góða gesti og svo hef ég heimsótt vini og ættingja sem ég gef mér alltof sjaldan tíma til. Splæsti á mig onduleringu frá toppi til táar og er til í allt. Ég hlakka til ferðalags um landið, samfunda við skemmtilegt fólk, ættarmóts, sólbaða, gönguferða og hlaupatúra o.fl. en verð víst líka að fúaverja, reyta arfa og fara í Sorpu. En það er rmerkilegur viðburður á dagskrá dagana 17.-21. júlí sem mun verða mikil upplifun og reynsla, meira um það síðar. Gleðilegt sumar!
Súpermann
Man of Steel, Stálmaðurinn, var á bíótjaldinu í gærkveldi (leikstj. Zach Snyder). Stórkostlegar brellur á ferð, rosalegt show, flott geimskip og hugljúf saga af fæðingu og uppvexti Súpermanns. Leikarann kannast ég ekki við (Henry Cavill, breskur, fæddur 1983), hann er doldið eins og Ken, massaður og sviphreinn, með klassískt andlistfall, sterklega kjálka og afar vel tenntur. Súpermann er frekar einfaldur maður, góður og hrekklaus og dyggur þjóðfélagsþegn (frá Kansas). Held að hann sé líka hreinn sveinn, 33ja ára. Geimverurnar eru dökkar og grimmar, skip þeirra eru svört og drungaleg og minna á pöddur því nú eru ekki lengur hvít, krómuð og stílhrein skip í tísku eina og var fyrir Matrix (1999). Geimverurnar vilja leggja undir sig jörðina enda plánetan þeirra, Krypton, sprungin í tætlur því íbúar hennar og æðstu stjórnvöld tóku ekkert tillit til náttúrunnar og misnotuðu orkulindir og landsgæði. Súpermann á ættir að rekja til Krypton eins og alþjóð veit og er líka gangandi forðabúr fyrir gen hinnar útdauðu Kryptonþjóðar. Söguþráður er ekki flókinn en atburðarásin er hröð, heimsendir í nánd og bara Súpermann og ameríski herinn sem er réttsýnn og rogginn geta forðað heimsbyggðinni frá því að verða útrýmt. Blaðakonan snjalla, Lois Lane (Amy Adams), er sjarmernandi með rautt hár og uppbrett nef, alltaf á réttum stað á réttum tíma. Gaman að sjá Lawrence Fishburne í hlutverki ritstjórans, ég hélt kannski að hann kæmi með frasa um sýndarveruleikann sem við lifum í. Ég hefði viljað hafa smá brýningu um umhverfismál í myndinni (og minna þá af þjóðrembu) og smá húmor hefði mátt vera með. En þetta er besta Súpermannmyndin sem ég hef séð.





