Vatn og vellíðan

Hér eru vaskir menn alla daga að brjóta, pússa og negla. Á myndinni má sjá tilvonandi sturtuaðstöðu heimilisins. Hugmyndin er sú að fyrst eigi að blanda og stíga síðan inn í mátulega heita sturtuna (í átt að áltröppunni á myndinni).  Vonandi klárast þetta nú fljótt og vel en ég hef á tilfinningunni að iðnaðarmenn séu með svona fimm eða tíu kerlingar í takinu sem þeir lofa alltaf að koma til næst – og svíkja þær svo allar. Næsti vinnudagur er allavega alltaf spennandi og óljós hjá þeim. En það er kostur að nú nýti ég mér árskortið í líkamsræktarstöðinni sem aldrei fyrr.

Regnskógabeltið raunamædda

Mig langar að lesa og helst eignast þessa bók. Þýðingu Péturs Gunnarssonar á Tristes Tropique eftir Claude Levi-Strauss sem kom út 1955 og Pétur hefur verið í tæpa tvo áratugi að þýða, með hléum. Í dag heyrði ég hann lesa úr henni og það lét afar vel í eyrum. Skemmtilegt efni (ferðasaga og mannfræðirannsókn) á gullfallegu máli, pælingar um lífið og tilveruna, siðmenninguna og manneskjuna í allri sinni nekt.

Einar Kristjánsson frá Hermundarfelli

Í tilefni af því að liðin verða hundrað ár frá fæðingu afa míns, 26. okt. 2011, var í dag haldið samsæti honum til heiðurs. Þar var stutt dagskrá með ræðu og söng síðan var  hulunni svipt af síðu eða bloggi þar sem safnað er saman efni um hann, einarkristjansson.wordpress.com. Afi var rithöfundur, hagyrðingur, útvarpsmaður og afar músikalskur en hann gerði plötu þar sem hann spilaði á tvöfalda harmónku. Han lést 6. júlí 1996. Um 70 manns komu og glöddust saman, rifjuðu upp kynni sín af afa og fjölskyldunni. Sérlegur heiðursgestur var amma sem komin er á tíræðisaldur og lætur engan bilbug á sér finna.

Framkvæmdir

Nú eru að hefjast framkvæmdir hér á heimilinu. Búið er að rífa allt innan úr baðherginu, bera steypuklumpa og flísabrot út í stórum fötum og keyra nokkrar ferðir í Sorpu.  Í fyrramálið mæta hér vaskir iðnaðarmenn sem hafa lofað að vera hálfan mánuð að búa til draumabaðherbergið.

Tækni og vísindi

Fyrsta poddmyndin, tók hana í Harvard Coops

Fyrsta kvöldið í Boston, 5. okt., var fréttatíminn undirlagður af andláti Steve Jobs, „an Entrepreneur and a Business man, always a step ahead…“ Applebúðin er glerhýsi á þremur hæðum og á gangstéttina hafði fólk lagt blóm og kerti,  hálfnöguð epli og orðsendingar eins og: Steve, you made our lives richer, We love you…“ Ég keypti mér Ipod Touch og er að fikra mig áfram með að læra á hann. Er soldið eins og risaeðla, kann ekkert á svona snertiskjá. Tókst samt að hlaða inn 2 dægurlögum á poddinn með aðstoð Ingu. Allt viðmótið er einfalt, lógískt og smart; myndir, tónlist, net, litlir forritsstubbar, e-bækur omfl. Ég er heilluð.