September var aldeilis góður, ég hljóp samtals 68,5 km og var á hlaupum utandyra í 10 og hálfa klst. Nokkuð gott m.v. fornar reykingar, letilíf og bóklestur, óhóf í mat og drykk í gegnum árin og almennt framtaksleysi fyrr og nú.
Hefndargyðjan
Ég er alltaf veik fyrir dönskum reyfurum og ætlaði að gleypa í mig Hefndargyðjuna eftir Söru Blædel. Sagan hefst með spennu og hörmulegum atburði en atburðarásin er síðan þvæld og þynnt út á 428 bls. Lýsingar á krufningum og leit að augljósum vísbendingum eru alltof langdregnar og persónurnar ekki neitt sérstaklega heillandi. Aðalpersónan Louise er ósköp venjuleg og ég gat ómögulega komið auga á að hún væri snilldarlögga. Útúrdúrar um Camillu vinkonu hennar í USA voru út úr kú og of mikið lagt í þá miðað við það litla sem hún uppgötvaði um málsatvik. Ég hef ekki lesið fyrri bækurnar tvær um Louise og ævintýri hennar svo e.t.v.þekki ég persónurnar ekki nógu vel. Þýðingin er ekkert sérstök heldur. Ég varð fyrir vonbrigðum með þessa bók og bókarkápan er alveg glötuð.
Lífsins tré
Sjónvarpsdagskráin á rúv í gærkvöldi var alveg hörmung. Ekki var hundi út sigandi svo ég kúrði undir teppi og horfði á Tree of Life í leikstjórn Terence Malick, alveg furðulega mynd með Brad Pitt o.fl. Í myndinni eru sýnd brot eða svipmyndir af O´Brien-fjölskyldunni í Bandaríkjunum á 5.-6. áratugnum, þrúgandi ást drottnandi föður á bældum sonum og áhrifum þess á uppvöxt og sálarlíf elsta sonarins aðallega. Móðirin (Jessica Chastain) er ljúf og góð og heimilislífið þægilegt þegar pabbinn er að heiman. Elsti sonurinn er þverlyndur, afbrýðisamur og þráir viðurkenningu föður síns. Fjölskyldan verður fyrir miklu áfalli þegar miðsonurinn deyr 19 ára að aldri og það hvílir á þeim eins og mara. Í myndinni eru langdregnar trúartengingar, s.s. um upphaf heimsins með tilheyrandi syndaflóði og um miklahvell og loftsteina, og þar má m.a. sjá mörg glæsileg myndbrot af íslensku landslagi. Fæðing heimsins tengist fæðingu barnanna, alheimurinn og litla fjölskyldan eru samtengd og annað spegla hitt. Margar senur sýna glæsileg mannvirki og manngert umhverfi andspænis fegurð náttúrunnar. Sean Penn leikur elsta soninn á fullorðinsaldri, hann er ráðvilltur, dapur og leitandi og mælir ekki orð af vörum í myndinni. Brad er enginn súkkulaðidrengur í þessari mynd, með skúffukjaft og nasistahár og sýnir stjörnuleik. Persónurnar tala lítið saman en beina orðum sínum að áhorfendum eða út í tómið og spyrja samhengislausra spurninga um lífið og tilveruna, sekt og sátt, dauðann og ástina. Myndin er hlaðin táknum, t.d. tréð í garðinum, sjórinn, þröngar dyr, háaloft, brú, ljós og skuggar o.s.frv. Í lokin er dramatísk sena í flæðarmáli sem líklega táknar sáttauppgjör við fortíðina. Þessi mynd er eingöngu ætluð mjög þolinmóðum áhorfendum.
Átthagafélag Þórshafnar og nágr.
Það líður að árlegum vetrarfagnaði átthagafélags Þórshafnar og nágrennis, 22. okt nk. Árið 2008 hélt ég ræðustúf undir borðum á vetrarfagnaðinum þar sem ég rifjaði upp gamlar og ljúfar minningar frá Þórshöfn. Læt hann fylgja hér: thorshafnarmot2008 svo menn komist í gott stuð og mæti svo kátir og hressir á skrallið!
Hjartadagshlaupið
Þetta var virkilega erfitt! Ég hljóp hraðar en ég er vön til að halda í við þá sem skokkuðu á undan mér. Ég var alveg að springa og þurfti að nokkrum sinnum að kasta mæðinni en bætti tímann minn úr RVKmaraþoninu verulega. Í því hlaupi ríkti fjölskyldustemning og fagnaðarlæti á hverju götuhorni en í morgun var slagviðri með sólarglennum inn á milli og fáir á ferli. Hlaupið var erfitt en á endasprettinum átti ég samt nóg til að taka fram úr einni sem ég hafði hangið í hálfa leiðina. Þá sá ég líka tímann og það hvatti mig til að spretta úr spori. Ég hélt það myndi líða yfir mig á eftir. Ég er því verulega stolt af árangrinum, 10 km á 55 mínútum! Allar MK-kellurnar tóku 5 km í MK-bolum, bættu tímann sinn og voru alsælar en við höfum verið duglegar að æfa saman í haust. Þá er að huga að næsta hlaupi…
Skattaskjól
Ég las í blaðinu í morgun að skattrannsóknarstjóri sé að rannsaka fjölda skattaskjólsmála. Einhverjir stungu eignum og peningum undan og græddu verulega á hringlinu í kringum bankahrunið, t.d. með svokölluðum afleiðsluviðskiptum og gjaldeyrisbraski. Hagnaður af slíkum viðskiptum er skattskyldur, upp á 10%. Dæmi er tekið í blaðinu um að ef hagnaðurinn nemi fimm hundrað milljónum eigi skattur og sekt að vera 100 milljónir. Fimm hundruð milljónir, hvað eru það mörg ævistörf? Mér finnst alveg merkilegt að ef maður græðir á viðskiptum þá borgar maður 10% skatt en ef maður vinnur venjulega daglaunavinnu borgar maður 40%. Ætti þetta ekki að vera öfugt?
Föstudagsslagarinn
Adam og Evelyn
Ekki druslaðist ég á neitt á bókmenntahátíð þótt skömm sé frá að segja. En ég er með Adam og Evelyn eftir Ingo Schulze undir leslampanum. Sagan gerist um 1990, nokkrum mánuðum áður en Berlínarmúrinn féll. Hún fjallar um austur og vestur, stöðnun og drauma, von og óvon, framtíð og fortíð, ást og hatur. Adam og Evelyn hætta saman eftir syndafall hans en halda samt í fyrirhugað sumarferðalag, þ.e. hann eltir hana og vini hennar um langan veg, yfir landamæri og inn í garð til vinafólks. Eftir japl og jaml og fuður og löng samtöl sem eru krúttlega þreytandi og þrungin bældri reiði reyna þau Adam og Evelyn að nálgast hvort annað aftur en ljóst er að þau stefna nú hvort í sína áttina. Persónurnar eru ekki sérlega aðlaðandi fólk, mest nöldrarar og leiðindapúkar og fer Adam þar fremstur í flokki. Milli línanna má lesa um vald skriffinnskunnar og kommúnismans í austurhluta Þýskalands, það er njósnað um fólk, útvaldir fá að fara í nám, eignast íbúð, borða góðan mat eða ferðast og fólk er á flótta í leit að nýrri framtíð. Það er umtöluð bókmenntaleg tenging við Paradísarmissi og fall Berlínarmúrsins, þau skötuhjú hafa séð betra líf og þá er ekki aftur snúið. Og það hriktir í öllum stoðum. Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýðir þessa sögu úr þýsku náttúrulega bara snilldarlega eins og hennar er von og vísa. Hún hefur mikinn orðaforða og stíllinn er kjarnyrtur og fjölbreytilegur og það er því að þakka að ég er ekki löngu búin að henda þessari bók út í horn.
Snæfellsjökull í baksýn
Hrollur
Smáhrollur í okkur mæðgum, teppi, sæng, lopapeysa og heitt te í Ingu herbergi.

