Á meðan ég svaf í nótt hækkuðu lánin mín um nokkra hundraðþúsundkalla og ég þarf að vinna fyrir 50.000 kalli í viðbót á ári til að eiga fyrir benzínhækkuninni. Og búsið orðið svo dýrt að ég get ekki einu sinni drekkt sorgum mínum.
Hasar á dönsku

Rosa hasar
Mér tókst að ná mér í næstu bók í Millenium-seríunni svokallaðri, framhald af Menn sem hata konur eftir Stieg Larsson. Það er á ylhýrri dönsku, Pigen der legede med ilden, útleggst svo: Stúlkan sem lék sér að eldinum. Lesturinn gengur ótrúlega vel, ég bý greinilega að fornri dönskukunnáttu frá áttunda áratugnum. Ég er búin með ca. 300 bls. og eftir langar lýsingar á því þegar Lisbeth Salander kaupir sér íbúð og fer í Ikea er hún allt í einu eftirlýst fyrir þrjú morð! Og auðvitað frekar grunsamleg þar sem hún er á skrá yfir léttgeggjað fólk, hún hefur verið svipt forræði og er með skuggalega fortíð. Spennan er rosaleg, ör skipti sjónarhorns, flottur og hraður stíll og stutt samtöl. Að vísu eru tölvupælingarnar stundum doldið hjárænulegar, t.d. lýsingar á alls konar hakkaraforritum, netþjónum, aðgangsorðum, möppum og skjölum, og ræsingu ýmissa forrita (t.d. Word). Mikael sjarmatröll er á sínum stað, kaldrifjaðir glæponar og misgáfaðar löggur flækja málið, alls konar krókar og útúrdúrar og hvert smáatriði er útpælt! Ég fæ þriðju og síðustu bókina eftir helgina, á sænsku og þá reynir á norrönt samarbejde.
Dill

Aspas og piparrót

Nautalund og geðveik sósa
Við brugðum okkur á veitingastaðinn Dill í norræna húsinu á dögunum. Það er lítill og skemmtilegur staður, tekur aðeins 30 manns í sæti. Þetta er gamla kaffistofan, þar sem oft var hægt að fá góða súpu og brauð og lesa skandinavísku blöðin þegar maður var fátækur námsmaður í íslenskudeild HÍ. Stundum fóru kennarar með okkur á þessa kaffistofu og ræddu við okkur um bókmenntir og listir yfir kaffibolla. Á Dilli fengum við sjö rétti og margs konar viðeigandi drykki. Skemmst er frá því að segja að maturinn var bæði fallegur og góður, borðbúnaður allur hinn fegursti (Iittala og Royal Copenhagen) og þjónustan til fyrirmyndar. Konseptið er að nota sem mest íslenskt hráefni, líkt og gert er á Friðriki V sem líka er alveg frábær staður en þar borðuðum við sl. sumar með Söndru Brynjarsdóttur sem var að vinna þar sem þjónn. Það er alltaf gaman að fara út að borða til hátíðabrigða en undanfarna daga höfum við borðað á hlaupum milli málningartarna og lifað á skyndibitum frá McDonalds og Nings, ásamt kornfleksi, brauði og skyri.
Jafnrétti kynjanna

Allt á fullu
Ég er femínisti og líka kvenremba sem er ekki það sama. Í uppeldinu hefur mamma alltaf sagt að við systur stæðum jafnfætis hvaða karli sem er, gætum gert allt sem karlar geta og ættum að aldrei að láta bjóða okkur nokkra mismunun vegna kynferðis. Hún hefur alltaf lagt á það ríka áherslu að við ættum ekki að eignast börn fyrr en námi er lokið og að mikilvægast af öllu sé að vera fjárhagslega sjálfstæður. Þetta er allt saman alveg hárrétt hjá henni. Fyrst fannst mér því frekar fúlt þegar Brynjar fór að stjórna málningarvinnunni, skipa mér fyrir og senda mig í alls konar snatt meðan hann var rosa macho að rúlla. Ég verð að brjóta odd af oflæti mínu. Það er nefnilega ansi margt sem ég, kvenremban, kann ekki (og nenni ekki) sem Brynjar er góður í, t.d. að setja upp ljós, spartla og múra, bora, setja saman sturtuklefa, rúlla loft og leggja parket. Á meðan mála ég í laggirnar, sópa og þríf málningarslettur, teipa, lakka ofna og gluggapósta, þríf skápa, sendist í búð, skrúfa lok á innstungur, rétti honum það sem hann vantar og hef til mat og drykk. Og þetta gengur ágætlega núna, eftir að ég sætti mig við að verkaskipting er sjálfsögð svo hæfileikar hvors okkar um sig njóti sín sem best.
Spartl og skrap
Hver einasta laus stund er notuð til að mála íbúðina niðri. Verkið er langt komið enda flytur nýtt fólk inn um helgina, ungt par frá Keflavík. Með þeim eru hundarnir þeirra, Neró, sem er Siberian Husky-blendingsrakki og Dimma, Labrador-Bordercollie-tík…

Smá pása í forstofunni

Rosalegur málari
Allt er í heiminum hverfult

The Office
Á þessum tíma árs er mjög mikið að gera í vinnunni hjá mér. Við höfum lagt nótt við dag til að ljúka við stúdentsskírteinin en brautskráning frá MK er á föstudaginn og á sama tíma erum við að huga að innritun fyrir næstu önn. Í stórum skóla er alltaf nóg að gera og innritun og brautskráning taka drjúgan tíma. Ég á því láni að fagna að finnast gaman í vinnunni. Ég vinn með frábæru fólki, hver dagur er ólíkur öðrum og aldrei að vita hvernig vinnudagurinn verður, ég fæ margvísleg og krefjandi verkefni og mér finnst gaman að umgangast unglingana þótt margir skilji ekki orðið „bókakostur“ eða „hverfull“. Ætli ég verði ekki í MK þangað til ég verð 67? En líf fólks getur skyndilega gjörbreyst. Mamma greindist með krabbamein í síðustu viku og fór í fyrstu lyfjagjöfina í gær.
Voða er hún falleg

Dísin Arwen
DeNiro og Þjófaborg

Kuldi og vosbúð
Miklar annir eru nú við viðhald og viðgerðir á íbúð á neðri hæð hússins sem verður til leigu frá 1. júní. Ég hef þó gefið mér tíma til að lesa nokkrar línur á kvöldin áður en ég dett út af með sementsrykið í hárinu. DeNiro og ég eftir Rawi Hage gerist í Beirút á stríðstímum (það var oft sagt um herbergið hans Óttars meðan ég var að reyna að ala hann upp í guðsótta og góðum siðum að það líktist nákvæmlega þeim stað á þeim tíma) og fjallar um þá hlið stríðsins sem snýr að hinum almenna borgara. Ég horfi núorðið sárasjaldan á sjónvarpsfréttir og er einhvern veginn dofin fyrir hörmungum, mannfalli og sprengingum. Þarna er dauðinn sífellt yfirvofandi, frumskógarlögmálin ráða, spilling, eiturlyf og manndráp viðtekin venja. Oft er vatnslaust og rafmagnslaust, skóla- og heilbrigðiskerfi í lamasessi og fólkið firrt og vondauft. Grimmdarleg saga, sums staðar spretta fram ljóðrænir kaflar eins og skrattinn úr sauðarleggnum og sagan endar í algjörri geðveiki. Þjófaborg eftir David Benioff er á svipum slóðum, umsátursástand ríkir í Leníngrad í seinni heimstyrjöldinni og óbreyttir borgarar svelta eða drepast úr kulda. Afi sögumanns, sem var á staðnum, segir söguna í nafni gyðingadrengsins Lev sem lendir í illræmdu fangelsi en getur bjargað lífi sínu með að útvega 12 egg í brúðkaupsveislu dóttur ofursta nokkurs. En egg liggja ekki á lausu frekar en annað matarkyns í borginni þar sem dúfur, hundar, rottur og jafnvel menn enda í pottinum og haldið er partí ef einhver á hálfan lauk. Með Lev í þessari hættuför er Kolja, frábær karakter, liðhlaupi og gamansamur raupari, og saman lenda þeir í ótrúlegustu ævintýrum, glíma við mannætur, skæruliða og þýska hermenn. Snilldarsenur og tilvaldar í bíómynd, maður finnur hungrið og kuldann algjörlega á eigin skinni og svo er húmorinn frábær, ég elska allt sem er eitthvað svona rússneskt!

Grimmdarleg saga
Allt í hund og kött

Á leið út í gönguferð?
Það hefur gengið á ýmsu í hundalífinu síðustu daga. Fyrir rúmri viku fórum við Arwen út að ganga í roki og rigningu og vorum að togast á, ég er að kenna henni að troðast ekki fram fyrir mig, gera ekki árás á alla hunda og ketti sem hún sér eða hlaupa snuðrandi í hringi í gönguferðinni. Ekki vildi betur til en svo að ég skall kylliflöt í götuna með olnbogann á kaf í malbikið, hnakkinn og rófubeinið fengu sömuleiðis skell. Þessu fylgdi gríðarlegur sársauki fyrir utan sjóðheita bræði og niðurlægingu – en sem betur fer var svo vont veður að það var enginn áhorfandi að þessu. Ég hef gengið með umbúðir og teygjusokk um olnbogann í viku og það er fyrst í dag sem ég er ekki sárkvalin í hendinni. Í fyrradag birtist svo óboðinn gestur á stigaskörinni þegar við Arwen komum heim en það var allvígalegur loðköttur að vísitera í hverfinu. Á mig kom fát og ég stökk til og ætlaði að henda honum út áður en Arwen réðist á hann (en það skynsamlega í stöðunni hefði verið að loka hana inni fyrst) en kötturinn leit hvorki á mig sem bjargvætt sinn né lífgjafa heldur sem óvin ríkisins nr 1 og sökkti í mig hárbeittum klónum, orgaði og hvæsti og barðist um eins og sært ljón. Ég orgaði engu minna, sleit hann af mér og nú fór allt í hund og kött. Upp hófst eltingarleikur upp á líf og dauða sem endaði með því að mér tókst að handsama tíkina og loka hana inni í þvottahúsi og þeytti kettinum út á hlað í loftköstum með tilheyrandi orðbragði um skítlegt eðli hans sjálfs og kynþáttar hans. Kattarklórið á framhandleggjum mínum tók að bólgna svo og þrútna um kvöldið og til að gera langa sögu stutta neyddist ég til að leita á náðir heilsugæslunnar og endaði með sáraumbúðir, penisilín og stífkrampasprautu. Arwen er búin að vera doldið lúpuleg síðan þessir atburðir gerðust en við látum ekki nokkur sár eða væg taugaáföll spilla vinskapnum.
Stóra Kóngsfell og Drottning

Hressandi fjallganga
Í gær var farin svaðilför: gengið á þau konungshjónin í Bláfjallalandi, Drottningu og Stóra Kóngsfell (602 mys). Við Hella, Sossa og Odda slógumst í hóp 30 (annarra) göngugarpa. Ferðin hófst rúmlega sex um kvöldið og við vorum komnar til baka á bílastæðið um hálf níu, alls rúmlega 4,5 km. Það var frekar hvasst og kalt, fjöllin eru laus í sér svo maður var mikið að spóla í grjóti og mold. Útsýnið af fjallstindunum var stórkostlegt. Ég hef ekki áður farið í svona hópgöngu, þá gengur maður hraðar en ella. En hins vegar þá horfði ég ekki eins mikið í kringum mig og ég hefði annars gert, var mest að feta í fótspor þess sem var fyrir framan mig hverju sinni. En það hleypir kappi í kinn að vera í hóp, ekki vill maður verða síðastur á toppinn.