Hereafter

Hereafter fjallar um mann á flótta undan magnaðri skyggnigáfu sinni, fréttakonu sem dó næstum því og lítinn strák sem missir bróður sinn. Leiðir persónanna liggja saman í frekar miklu melódrama um dauðann og líf að loknu þessu. Framvindan er hæg og persónurnar rista ekki sélega djúpt. Umfjöllunin um framhaldslífið ekki heldur. Gamli Clint leikstýrir og semur m.a.s. músíkina líka, ekki af baki dottinn. Hvorki mannskemmandi né sérlega merkileg mynd. Kom samt alveg út tárunum á mér en ég er reyndar frekar meyr og viðkvæmur áhorfandi.

Zuma-stemning

Við fórum út að borða í gærkvöldi í tilefni af Food and Fun-hátíðinni . Í Veisluturninum á Nítjándu hæð var boðið upp á matreiðslu gestakokka frá Zuma  í London en þangað fórum við fyrir nokkrum árum og fengum dýrðlegan mat. Þannig var það í gær líka, alveg sama hvaða rétt við fengum, allt var hrikalega gott og girnilegt! Nautaribeye sem ég annars borða aldrei var frábært og sósan ólýsanleg, ekki dropi af rjóma í henni. Zuma er japanskur staður og stemningin í Veisluturninum var japönsk, sushi og sake eins og hver vildi. Doldið dramatískt að á meðan við vorum að gæða okkur á kræsingunum er allt í upplausn þar í landi, neyðarástand og þjóðarsorg ríkir þessa dagana meðan við skemmtum okkur og kýlum vömbina.

Doktor Ásgrímur

Ásgrímur Angantýsson varði doktosritgerð sína í HÍ í gær við hátíðlega athöfn. Vörnin tókst vel, andmælendum tókst hvergi að reka hann á gat. Enginn kemur að tómum kofanum hvað aukasetningar varðar hjá doktor Ásgrími eða Gromma eins og hann var jafnan kallaður á mínu heimili þegar hann var lítill. En hann er ekki bara eldklár, hann Ásgrímur frændi minn,  heldur líka bæði fallegur og góður. Hann er hógvær snillingur,  lítillátur að eðlisfari og algjör ljúflingur.

Vísitölutuð

Bensín og olía hækka enn. Þótt ég vildi sýna ráðdeild og vera umhverfisvæn, þá losna ég ekki við bensínið úr bókhaldinu mínu. Það er í neysluvísitölunni sem einhver fann upp og er reyndar ekki miðuð við neyslu. T.d. eru það aðeins um 20% þjóðarinnar sem reykir en tóbak er samt inni í vísitölunni. Og lánin okkar hækka þegar bensín og tóbak hækkar og undanfarið er það allt að 10 sinnum á ári. Er heil brú í þessu? Á endalaust að halda áfram að fita banka og fjármagnseigendur með þessum hætti? Er ekki kominn tími á endurskoðun og hagræðingu neytendum í vil? Ég get eiginlega ekki hætt að tuða um þetta þótt ég reyni að halda haus og brosa framan í heiminn allajafna.

Dagur kvennanna, ástarsaga

Megas og Þórunn Valdimars skrifuðu erótíska sögu fyrir nokkrum árum og hefur hún legið í handriti óbætt hjá garði ef marka má texta á bókarkápu. Sagan kom út fyrir síðustu jól og er stórskondin, grótesk og gamansöm og minnir helst á stíl og frásagnarhátt Guðbergs Bergssonar. Hér erum við að tala um heilmikla nýsköpun og ögrun í stíl, nýyrði og töffaraskap, stuðla, rím og hrynjandi. Karlar og konur eru bordýr og skordýr, skotdýr og gotdýr, raufdýr og skaufdýr, strax á fyrstu bls. Ástarsaga Máneyjar og Himinhrjóðs er skemmtileg og safarík. Gaman að reynslusögum þeirra úr kynlífinu, alltof sjaldgæft stöff í bókmenntum.

En svo er það kvenfrelsisbaráttan 1975 sem er skotspónninn, á soldið karlrembulegan hátt verð ég að segja. Systralag, höfuðgribbur, kvennakirkjugarður, leggöngulög, skessur og brauðsokkur o.s.frv. Gömul mussuklisja er dregin upp og dustað af henni mesta rykið, valdið er vagínunnar, karlar eru til óþurftar. Soldið síðbúin fyndni.

Vont veður, vondar myndir

Í vonda veðrinu undanfarið höfum við kúrt inni og horft á þrjár nýjar bíómyndir sem við komum höndum yfir með ólöglegum hætti. Þetta eru reyndar myndir sem ég hefði aldrei keypt mér aðgang að í kvikmyndahúsi svo enginn skaði er skeður.

 Gulliver´s Travels með Jack Black er afar klén og ófyndin og tölvugrafíkin frámunalega léleg. Myndin öll eitthvað hallærisleg, illa farið með gott efni. Black Swan er áhrifamikil og vel leikin en mér fannst erfitt að finna til samúðar með þessari einþykku, geðveiku og grindhoruðu ballerínu. Margar senur eru samt flottar og tónlistin í Svanavatninu svíkur engan.  The Tourist er svo hæg, klisjuleg og léleg að ég bara skil ekkert í Angelinu að láta Brad vera einan heima með krakkana í margar vikur til að „leika“ í þessari hörmung. 

Hlaupaskór

Ég fór í hlaupagreiningu í Afreksvörum. Þá kom í ljós að ég stíg mjög skakkt niður, ekki síst vinstra megin, sem kemur ekki á óvart miðað við mína fótasögu. Svo ég keypti skó með extra stuðningi innan fótar og mjúkum hæl, það er allt annað að trimma á þeim en gömlu Nike Air skónum  sem ég hélt að væru toppurinn í dag. Svo nú er mér ekkert að vanbúnaði og get þotið um brekkur, stíga og götur eins og elding.