Fokk ofbeldi!

„Fyrir þrjátíu árum síðan hefði hegðun mín verið talin einn kostnaðarliða karlmennskunnar. Líklega hefði einhver þorað að segja að „strákar væru bara strákar“. Það væri þeim ekki eðlislægt að lesa í fínleg og flókin skilaboð kvenna. Þær gætu sjálfum sér um kennt. Nú er þessi lestrarhæfileiki orðinn lífsnauðsynlegur ef við ætlum að eiga í farsælum samskiptum við konur. Svo við endum ekki á bak við lás og slá“ (172)

Hegðun Sölva Kárasonar gagnvart Söru, kærustunni sinni, kristallar hvernig kærasti á ekki að vera. Hann er tillitslaus og sjálfhverfur, gerir lítið úr henni, móðgar hana og særir, hunsar hana og svíkur, bregst henni á ögurstundum, kúgar hana og misbýður henni í kynlífinu. Manneskja sem er flækt í slíkt niðurlægjandi hegðunarmynstur í ástarsambandi er of niðurbrotin til að sjá samhengið í skýru ljósi, eðlileg mörk þurrkast út og ofbeldið heldur áfram, jafnvel áratugum saman. Eftir eins árs stormasamt samband tekst Söru að rífa sig burt frá Sölva en sjálfsvirðing hennar er í molum. Hún berst við þunglyndi og skömm í nokkur ár uns hún leitar sér faglegrar hjálpar. En Sölvi er grunlaus um ofbeldið í sambandinu, unir glaður við sitt og á sér einskis ills von þegar Sara tekur til sinna ráða. Um þetta efni fjallar Valur Grettisson í fyrstu skáldsögu sinni, Góðu fólki.

Fórnarlömb kynferðisofbeldis, einkum konur, veigra sér við að sækja rétt sinn til dómskerfisins. Dæmin sanna að sú píslarganga er sjaldnast þess virði. En það er hægt að hafa önnur ráð til að ná réttlætinu fram og skila skömminni þangað sem hún á heima. Eitt þeirra er svonefnt ábyrgðarferli sem felst í að þrýsta á ofbeldismanninn til að horfast í augu við sjálfan sig, játa sök, taka ábyrgð og breyta hegðun sinni. Sara sendir Sölva formlegt bréf þar sem hann er krafinn um ábyrgð á gerðum sínum og hún setur harða skilmála, með það að markmiði að þau  bæði geti síðan hafið eðlilegt líf og orðið betri manneskjur. En Sölvi sér enga sök hjá sér, það kemur algjörlega flatt upp á hann að hún skuli líta á hann sem ofbeldisfullan dóna og fant. Hann er þrítugur bóhem og blaðamaður í góðum fíling, kannski fær hann Edduna og hann er kominn með aðra kærustu fyrir löngu. Smátt og smátt birtast brotakenndar myndir úr sambandi þeirra Söru og velt er upp ágengum spurningum um hvar mörk ástar og ofbeldis liggja. Er Sölvi bara óforskammaður og illkvittinn náungi, borinn röngum sökum í kafkaísku drama? Órétti beittur í nafni réttlætis? Eða er hann illmenni, spilltur af alkóhólísku uppeldi, klámi og rugli? Og getur Sara sjálfri sér um kennt? Gat hún bara ekki hætt þessum leik þegar hæst stóð? Lítið fer fyrir sjónarhorni hennar í sögunni sem skapar togstreita í huga lesanda um um sekt eða sakleysi og hvenær ást verður ofbeldi.

Sölvi er vel gefinn, sjálfsöruggur og gagnrýninn hugsjónamaður. Hann brynjar sig með kaldhæðni og sjónarhorn hans á samfélagið er meinfyndið og íronískt: „Þannig kvarta póst-hipparnir yfir baununum í kakóinu sem við drekkum, og eru tíndar af börnum á Fílabeinsströndinni, með því að skrifa status á Facebook með rándýru Mac-eitthvað tölvunni sinni, sem tíu ára gömul þrælabörn settu saman fyrir hálfa krónu á tímann. Svona viljum við vel. Svona erum við góð“ (187). Sölvi er alls ekki tilbúinn til að gangast við óljósum ásökunum Söru. Hann brýtur skilmálana og brátt fer hrikta í öllu í kringum hann.

Í ljós kemur að sú skjólgóða og örugga tilvera sem hver maður skapar sér er viðkvæm og brothætt og við minnstu sprungu hrynur hún til grunna. Nú berast fréttir hratt um netmiðla og heiður fólks er auðvelt skotmark á þeim veiðilendum. Sölvi málar sig út í horn, kaldhæðnin, þrjóskan og fíknin ráða örlögum hans. Gott fólk er vel skrifuð og hörkuspennandi bók, persónur líflegar og viðfangsefnið brýnt. Hún skoðar  karlmennsku, internetfemínistana, krúttkynslóðina, feðraveldið og alkabörnin í skörpu ljósi.

Bókmenntir sem endurspegla samfélagið eins og það er á hverjum tíma verða til þess að við sjáum hlutina í öðru ljósi. Gott fólk  býður lesendum að horfast í augu við blákaldan raunveruleikann, draga mörk og verða gott fólk, þá verður heimurinn kannski örlítið betri.

Birt í Kvennablaðinu, 16. maí 2015

BJ VG

Sumarkveðja

Ég hef kennt íslensku í 50% starfi í vetur samhliða endurmenntun í upplýsingatækni í skólastarfi. Nemendur mínir halda nú á vit nýrra ævintýra og sumir senda kennaranum sínum sumarkveðju:

Takk sömuleiðis fyrir önnina. Mjög ánægður með aðferðinar þínar! Fólk má fá hrós ef það á það skilið. Setur kröfur og ert sanngjörn. Mér fannst bara gaman í íslensku á þessari önn 🙂

Íslenskar heimsbókmenntir

images

Þýðingar heimsbókmennta á íslensku eru jafnan hvalreki enda gegna þær mikilvægu hlutverki fyrir tungu okkar og menningu. Bandalag þýðenda og túlka (thot.is) hafa frá árinu 2005 efnt til árlegra verðlauna fyrir bestu þýðingu á erlendu skáldverki. Þriggja manna nefnd les þýðingar hvers árs og velur fimm bestu, samhliða tilnefningum til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þýðingarverðlaunin eru afhent í Gljúfrasteini á afmælisdegi Laxness sem jafnframt er dagur bókarinnar, 23. apríl nk. Í ár eru þrjár þýðingar úr ensku, ein úr spænsku og ein úr japönsku (reyndar þýtt úr ensku).

Eftirtaldir þýðendur eru tilnefndir 2014:

Jón St. Kristjánsson er tilnefndur fyrir þýðingu sína á Burial Rites eftir Hannah Kent. Á íslensku nefnist bókin Náðarstund og segir frá síðustu dögum í lífi Agnesar Magnúsdóttur sem dæmd var fyrir morð og tekin af lífi í Húnavatnssýslu, 12. janúar 1830. Hannah Kent er áströlsk og sá strax söguefni í dramatísku lífshlaupi Agnesar. Þýðingin er afbragðsgóð, íslenskum veruleika 19. aldar er komið firnavel til skila á kjarnyrtu máli sem er eiginlega betra en frumtextinn. Jón var tilnefndur til þýðingarverðlaunanna 2011 fyrir Reisubók Gúllívers.

Gyrðir Elíasson er ekki bara listaskáld sjálfur heldur einnig afkastamikill ljóðaþýðandi undanfarin ár, þaulvanur að fást við orð og merkingu, túlkun og stemningu. Hann er tilnefndur fyrir undurfagrar þýðingar sínar á völdum ljóðum hins heimsfræga Shuntaro Tanikawa sem skrifað hefur um 60 bækur af margvíslegu tagi á sinni löngu ævi. Japönsk samtímaljóðlist á íslensku hljómar eins og fjarlægur draumur sem Gyrðir gerir að veruleika. Bókin ber heitið Listin að vera einn og er bæði falleg og djúp, þrungin ljóðrænni lífspeki og léttleika. Gyrðir hreppti verðlaunin 2012 fyrir Tunglið braust inn í húsið.

Kanadíski rithöfundurinn Alice Munro er nóbelsverðlaunahafi í bókmenntum 2014. Hún semur frumlegar smásögur sem fjalla m.a. um konur, ást, firringu, vanrækslu og ofbeldi. Verk hennar hafa ekki áður verið gefin út á íslensku. Sögur Munro eru flóknari og margræðari en virðist við fyrstu sýn. Silja Aðalsteinsdóttir er þaulreyndur þýðandi með einstaklega gott vald á bæði frummáli og íslensku og í þessu smásagnaúrvali, Lífið að leysa, fer hún á kostum.

Hermann Stefánsson þýðir Uppfinningu Morels eftir Adolfo Bioy Casares, argentískan rithöfund (d. 1999). Þessi saga er þekktasta verk Casares en ekki hefur verið þýtt eftir hann áður.Sagan birtist í tímaritinu 1005. Hermann var tilnefndur til þýðingarverðlaunanna fyrir Laura og Julio (2009) en hann hefur frábært vald á tungumálinu. Hann ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur því Uppfinning Morels er ekkert áhlaupaverk, heimspekileg vísindaskáldsaga um ást og ódauðleika.

Út í vitann (1927) er eitt af þekktustu verkum ensku skáldkonunnar Virginiu Woolf. Helga Kress þýddi frægasta verk Woolf, Sérherbergi, á íslensku 1983 en þýðing Vitans er frumraun Herdísar Hreiðarsdóttur sem stimplar sig nú rækilega inn. Woolf, sem var hörkufemínisti og langt á undan sinni samtíð, gerði margvíslegar tilraunir með módernisma í verkum sínum, .s.s. með að láta hugsanir persónanna flæða fram, söguþræði var gefið langt nef og atburðarásin hæg og óljós með þungum undirtóni. Stíllinn er lotulangur og flókinn og er þýðing Herdísar einstaklega vel af hendi leyst, vönduð og nákvæm.

Hremmið þessar þýðingar í næstu bókabúð og fylgist með á fimmtudaginn þegar tilkynnt verður hver hlýtur þýðingarverðlaunin 2014!

Birt í Kvennablaðinu, 22. apríl 2015

„Þjóðfélagið þarfnast harms svo venjulegt fólk finni til“

tramps

„… ég lifi og starfa sem útigangsmaður í Reykjavík. Starfið felst í því að vera útundan. Ég tel ég megi fullyrða  að ég sé bara góður í því og að búðareigendur miðbæjarins gæfu mér meðmæli ef þess væri óskað. Þjóðfélagið þarfnast harms svo venjulegt fólk finni til. Ákveðnum prósentufjölda hverrar kynslóðar verður að ýta út á kant. Mér ber að ganga daglega um bæinn og skapa viðbrögð og tilfinningar hjá samborgurunum…“ (161).

Þetta brot er úr nýrri og áhrifamikilli skáldsögu Kristínar Ómarsdóttir sem ber heitið Flækingurinn. Þar segir frá unglingspiltinum Hrafni (stundum kallaður Óskar eða Georg Washington Jensen), útilegumanni nútímans og sprautufíkli sem þvælist um götur Reykjavíkur í leit að mat og dópi. Þessi ógæfusami piltur hittir margs konar fólk á vegi sínum, flest er á jaðri samfélagsins eins og hann sjálfur. Þegar sagan hefst býr  hann á einhvers konar sambýli eða athvarfi fyrir fíkla og ræður bjargvætturinn Laufey þar ríkjum. Brátt hrökklast hann þaðan, hreiðrar um sig í geymslu í kjallara í dansskóla, lendir svo í slagtogi við alls konar furðufugla og fyrir ýmist ásetning eða misskilning kemst hann í kast við lögin. Sögunni lýkur svo þar sem hún hófst, í húsi Laufeyjar, með absúrd drápsenu sem minnir mest á bíóhasar, en raunveruleiki og jarðtenging eru býsna langt undan í þessu skáldverki.

Framvinda sögunnar markast af ráfi Hrafns um bæinn og samskiptum hans við misruglaðar persónur,  dóprausi og ranghugmyndum, ofbeldi og brostnum draumum. Stíllinn er mjög ljóðrænn og fallegur, senur eru margar súrrealískar enda rambar sögumaður á mörkum vímu og veruleika.

Hrafn er mállaus og skrifar á blað það sem honum liggur á hjarta. Hann missti málið/tunguna á einhvern óljósan hátt og var beittur kynferðisofbeldi í uppvextinum. Sjálfsmynd hans er verulega brengluð og mörkuð af erfiðri æsku og vímuefnanotkun: „Er ofbeldi stafróf mitt og sú tjáning sem fólk skilur?“ spurði ég sjálfan mig, þakklátur fyrir að mega skilja sjálfan mig án aðstoðar milliliðs. Úff, ég hefði ekki boðið í það hefði ég þurft á túlki að halda til að skilja mig. Felldi ég tár hlógu allir og ég mest. Það hafði ég reynt: að gráta ef ráðist var á mig. Berði ég frá mér hlógu fáir og fólk bugtaði sig jafnvel fyrir mér. Með ofbeldi öðlaðist ég vald, virðingu“ (127).

Sagan gerist um vetur, tilveran er grá og köld.  Fíklarnir búa við ofbeldi, útskúfun og auðmýkingu alla daga en á milli koma góðar stundir, sérkennileg vinátta og samkennd skapast og ástin kviknar, sjúkleg og ofbeldisfull. Hrafn lætur dagana líða við að redda sér einhverju ætilegu, vímuefnum og lyfjum, fara á bókasafnið til að lesa dánartilkynningar á netinu eða dotta með þykka bók, skreppa á klósett á bensínstöð eða í kirkju og dorma á dýnu þess á milli. Hann ruglar svo saman reytum við hinn svarta Engilbjart og týndu stúlkuna Emmu en í félagsskap þeirra fara hjólin að snúast. Hrafn er vissulega viðsjárverður gaur og ekki með öllum mjalla en Engilbjartur er stórhættulegur, snarvitlaus og siðblindur.

Þegar þeir félagar hafa brotist inn til að redda sér pening eða fundið matarafganga í ruslatunnum, fyllt vatnsbrúsa og innbyrt einhver eiturlyf, eru þeir alsælir og gerast heimspekilegir í pælingum sínum, m.a. um samfélagið sem þeir sniðganga og afneita. „Eignarétturinn er atvinnuskapandi,“ sagði Engilbjartur eitt sinn, „og skapar störf lögregluþjóna, lögfræðinga, dyravarða, húsvarða, tryggingafólks, öryggisvarða, bankastarfsfólks og fangavarða.“ „Hvað skapar eignarétturinn marga glæpamenn?“ spurði ég sjálfan mig nú, því ég var lengi að hugsa og bregðast við upplýsingum frá öðrum. Og hvað skapar hann mörgum eignaleysi og fátækt? Eignarétturinn drífur samfélagið áfram um leið og hann liggur á því eins og mara“ (159). Þeir fóstbræður eiga mögnuð samtöl í ruglinu en hrista svo af sér slenið og halda í ævintýraför þar sem ættingjar og vinir fá makleg málagjöld í  grátbroslegum ofbeldisatriðum sem varpa ljósi á bæði sjúklega hugsun fíkilsins og meðvirkni og skilningsleysi fórnarlambanna.

Útigangsmönnum í höfuðborginni fer fjölgandi en um þessar mundir eru a.m.k. 200 manns heimilislaus árið um kring og enn fleiri á götunni tímabundið. Er flækingslífið heilbrigðisvandamál, félagslegur vandi eða vandi hvers og eins? Hver ber ábyrgðina? Þetta er ekki einfalt mál og engin lausn í sjónmáli. Kristín dregur upp nöturlega mynd í Flækingnum af skuggalegum heimi sem fæstir þekkja og fólki sem við kannski finnum til með en viljum sem minnst af vita. Og á listilega íronískan hátt stangast útskúfun og einmanaleiki persóna sögunnar á við frelsis- og sjálfstæðishugmyndir þeirra sjálfra.

Tími flækingsins er runninn upp, hugsjónirnar eru dauðar, heimur hvíta mannsins er liðinn undir lok, segir Engilbjartur sem hatar bláeygt gelgjupoopp og allt sem er hvítt.  En er líf flækingsins æðsta stig tilverunnar? Er hann frjáls? Hvort er það hugrekki eða hugleysi að velja þá braut í lífinu? Þeim sem hafa í huga að leggjast út er ráðlagt að skoða lista í handbók útigangsmannsins sem birtist bls. 263-4 í bókinni. Þar kemur fram að gott er að eiga m.a. kertisstubb og kveikjara, snæri og kúbein, trefil og vatnsþéttan skófatnað, skrúfjárn, teppi og samanbrotinn plastpoka. Og svo er bara að smæla framan í heiminn:  Bless vinna, fjölskylda, eignir, ábyrgð og skuldir! Hæ, frelsi?

Birt í Kvennablaðinu, 16. apríl 2015

Í flaumi táknanna

Öræfi Ófeigs Sigurðssonar, doðranturinn sem seldist í bílförmum og hreppti Íslensku bókmenntaverðlaunin 2014, er ekki létt spennusaga eins og sumir gætu hafa haldið eftir lestur káputextans, heldur þungavigt sem reynir svo sannarlega á þolrif lesenda.Söguþráðurinn er bæði krókóttur og grýttur og hvað eftir annað liggur manni við að gefast upp. Inn á milli reynast þó vera greiðar götur, mjúkir sandar og tærar lindir sem gaman er að staldra við áður en haldið er aftur út í illfærurnar. Bókin skiptist í nokkra hluta, Drauma, Fjársjóði, Leyndardóma og Eftirleit, auk formála, Post scriptum og Eftirmála höfundar. Sögumaður lætur móðan mása um allt milli himins og jarðar; trú og tungumál, skáldskap, náttúru landsins og eðli þjóðarinnar og það eru innblásin varnaðarorð um þróun mannlífs og búsetu í þessu landi.

Persónurnar eru aðallega Öræfingar sjálfir, þrautgóðir og raungóðir. Dregin er upp mynd af hinum rómantíska íslenska sauðfjárbónda sem lifir í takt við náttúruna, þekkir drýlin í straumnum, vöðin og jöklana, veðrið, jarðfræðina og skepnurnar. Ógleymanlegir eru Tvískerjabræður, Jón föðurbróðir, tragískur túristamorðingi og landvörðurinn Snorra-Edda. Svo er það Dr. Lassi, lesbískur dýralæknir sem heldur utan um skrásetningu frásagnarinnar; furðuleg persóna, fantasía eða kannski bara óráð. Bernharður Fingurbjörg, örnefnafræðingur og doktorsnemi, leitast við að tengjast fortíð sinni í gegnum náttúruna og skilja táknfræði örnefna, hann gengur inn í jökulinn þar sem fegurðin ríkir ein en endar í kaosi og kastrasjón, lífs eða liðinn í undarlegri öskju eða kofforti á köggladekkjum sem gæti haft bæði margrætt og óljóst tákngildi.

Sagan er óreiðukennd og taumlaus, blandin fornum stíl og frásagnarhætti, textinn ryðst áfram og ærir óstöðugan. Fyrir koma langdregnir kaflar, t.d. um dauðarokk, og upptalning á íslenskum náttúrufræðingum. Þá er víða vitnað í gamlar heimildir sem sýndar eru í nýju samhengi, t.d. (óþarflega) langur kafli úr Annálum um sjálfsmorð forfeðranna sem afhjúpar öræfin innra með okkur, angist, þunglyndi og geðveiki.

Sögumannsröddin er víðóma, stórskorni dýralæknirinn skráir söguna eftir þýðingu „Túlku“ á frásögn Bernharðs sem skrifaði bréf til „höfundar“. Söguþráður er teygður á milli súrra sena, fyndni, frumlegra tilþrifa í efni og stíl, og harmsagna, ádeilu og predikana. Margfaldur í roði byggir sögumaður upp framvinduna og rífur hana jafnharðan niður og honum liggur mikið á hjarta.Í bakgrunni eru örlagaþrungnir (karl)karakterar eins og t.d. kafteinn Koch sem hafði með sér íslenska hesta á Grænlandsjökul í harmrænni hrakfallareisu sinni 1912, Sveinn Pálsson, læknir og náttúrufræðingur, sem skrifaði um eðli skriðjökla sem hefði tryggt honum heimsfrægð ef það hefði verið birt á hans dögum, skáldið Ormarr sem birtist langdrukkinn, dvergvaxinn og tussulegur og á snilldarkvæði á bls. 174 og loks hinn ógæfulegi Fastagestur á Sirkus en rödd hans minnir held ég mest á höfundinn af hinum fjölmörgu röddum verksins. Hann fer á kostum, t.d. þegar hann fær orðið í túristarútunni:

„Fyrst liggur leiðin austur yfir Hellisheiðina, sagði Fastagestur í hljóðnemann, þar er vanmetin fegurð; á Hellisheiði undruðust þeir Eggert og Bjarni yfir óvæntri fegurðinni þegar þeir áttu leið um hana um miðja 18du öld en Reykvíkingar sjá ekki þessa fegurð, þeir sjá bara námur og gróða sem eru í raun eyðilegging og sóun, og er nú fegurðin í augum Eggerts og Bjarna sundurgrafin og boruð og liggja þar gagnslausir vegir þvers og kurs um sundurtættan mosann og hraunið, og endalaus rör og raflínur og háspennumöstur útum allt, þar er og torfærubraut og drullupyttir, þar eru hálf fjöll, opnar námur og ekkert nema virkjanir og verksmiðjur, allt saman minnisvarðar um eðli Íslendinga“ (196).

Það eru margar skemmtilegar pælingar í verkinu, s.s. hvað verður um örnefni sem er sökkt í uppistöðulón? Hvað er topotime? Er villiféð örugglega útdautt? Hvað er líkt með Sámi og hundi Kafka? Er íslenski bóndinn ríkisstyrktur böðull og dýraníðingur? Skógrækt ríkisins eða Órækt ríkisins? Textinn flæðir yfir bakka sína líkt og Skeiðaráin, „höfuðskepna Öræfinga“, og hrifsar lesandann með sér, stundum liggur honum jafnvel við drukknun en loks nær hann landi og getur þá ekki annað en dáðst að krafti flaumsins:

„örnefni sem tákn, sagði ég upphátt þarna á dúandi kláfinum yfir beljandi jökulvatninu, þarna varð mér í fyrsta sinn ljóst að það var raunhæfur möguleiki að klára doktorsritgerðina, ég var orðinn hræddur um að ferðin til Mávabyggða væri skálkaskjól fyrir hugmyndaleysi og söknuð og alls enginn rannsóknarleiðangur, og þótt ég klári aldrei ritgerðina er það leitin og uppgötvanirnar sem skipta mig mestu máli, að ég sé á hreyfingu, ég stækki svið mitt, hafi óvissuna sem mitt vitaljós… alltíeinu fann ég fyrir óöryggi á kláfinum yfir fljótandi dauða mínum, köldum og fögrum, það var óttinn við táknin, allan heiminn handan við táknin, undir flaut jökulkalt fljót af táknum, örnefnum… sennilega var ekkert handan við táknin nema tómið og ríkidæmi algleymisins, ég greip um höfuðið og æpti, penninn féll ofan í strauminn, Fuck fældist við, ég æpti eins og Ópið eftir Munch á kláfinum yfir jökulvatni táknanna, sólin roðaði austurhimininn og varð jökullinn sem sollinn blóði, grágrænt jökulfljótið svall undir mér en ég og Fuck dúuðum í lausu lofti sturlaðir af tóminu bak við táknin… (284–5)

Sumir kaflar bókarinnar eru svo listilegir að hraustustu menn geta vart varist tárum. Aðrir svo sýrðir að manni er skapi næst að gefast upp. Eina ráðið er að lesa þessa bók h æ g t, í lotum, gefa henni tíma og hleypa brýnum boðskapnum inn í hjartað. Sannarlega hrjóstrug öræfi en svona líka dáfalleg.

Birt í Kvennablaðinu 15. apríl 2015

Loftslag eða selskapur?

Í dag er dánardagur ameríska rithöfundarins Mark Twain (1835-1910) sem ég hélt mikið upp á sem unglingur. Hann var einn af meisturum kaldhæðninnar. Á myndinni minnir hann svei mér þá á Tom Selleck.

Go to Heaven for the climate, Hell for the company.

http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/f6/Beckwith_Mark_Twain_Portrait.jpg/220px-Beckwith_Mark_Twain_Portrait.jpg

Úti er ævintýri

Forlagið

Dauðinn er víst það eina sem við getum reitt okkur á í þessu lífi. Hann er þrátt fyrir það furðu mikið tabú í nútímasamfélagi. Á öldum áður var nálægð dauðans hversdagsleg, fólk lá sjúkdóms- og banaleguna heima hjá sér, slasaðir voru færðir heim í baðstofu til aðhlynningar og börn fæddust í mömmubóli. Með sjúkdómavæðingu, lyfjaframleiðslu og sérnámi í læknisfræði færðist dauðinn inn á sjúkrastofnanir. Sjúklingurinn varð til sem viðfang skýrslu og rannsókna, settur í sótthreinsað umhverfi og meðhöndlaður með klínískum aðferðum. Nánustu aðstandendur áttu ekki að þvælast fyrir, læknirinn átti lokaorðið því hans var valdið og þekkingin. Á allra síðustu árum hefur þróunin orðið sú að dauðvona fólk fær að vera heima hjá sér ef það kýs eins lengi og unnt er og aðstandendur fá að vera með í ferlinu.
Þrátt fyrir þá staðreynd að dauðinn bíður okkar allra er hann ekki mikið ræddur svona hvunndags en með útbreiðslu samfélagsmiðla hefur hann ratað á netið. Nú er svo komið að ekki er óalgengt að fylgjast með sjúkdómsbaráttu og dauða á netinu og stundum flýgur andlátsfregnin hraðar á facebook en um símalínurnar. Vilborg Davíðsdóttir bloggaði um það á sínum tíma hvernig krabbamein í heila lék eiginmann hennar og dró loks til dauða í ársbyrjun 2013. Pistlar hennar vöktu athygli fjölmiðla, lesendur þökkuðu henni fyrir skrifin og deildu með henni eigin reynslu af ástvinamissi (162). Þessi reynsla Vilborgar varð síðan efni í bókina Ástin, drekinn og dauðinn sem kom út á dögunum. Bókin er byggð upp eins og ævintýri þar sem prinsinn og prinsessan una glöð við sitt þar til drekinn ógurlegi vaknar og slær til halanum. Úrvinnsla Vilborgar á þessu efni er einstaklega vönduð og skemmst er frá því að segja að bókin sker hvaða harðjaxl sem er í hjartað. Hún er vel skrifuð og aldrei væmin, myndræn og skáldleg og um leið er hún ofurraunsæ. Í gegnum nákvæmar frásagnir af tölvusneiðmyndum Björgvins, vonum hans og vonbrigðum, lyfjagjöf og flökurleika, kvíða og ótta, útlitsbreytingum, málstoli og verkstoli má lesa hversu gríðarlegt farg er lagt á aðstandendur. Og ekki síður eftir á, við að takast á við tilveruna að nýju, snúa til vinnu, kljást við erfðamál, garfa í lífeyrisréttindum o.fl. Af frásögn Vilborgar má ráða að þeim hjónum hafi lánast að nota tímann vel, horfa á björtu hliðarnar og reyna að æðrast ekki. Boðskapur bókarinnar er skýr, hann snýst um að lifa í núinu, njóta stundarinnar og reyna að skilja hversu dýmæt litlu augnablikin eru, því þau eru lífið sjálft (265).
Dauðinn er sígilt yrkisefni í bókmenntum, sveipaður ógn, grimmum goðsögnum og óhugnanlegu tákn- og myndmáli. Það er löngu tímabært að svipta hann tabúhulunni, horfast í augu við hann sem hluta af lífinu og taka honum eins og hann er. Sorg og dauða fylgir ekki bara táraflóð, sorg og reiði heldur líka æðruleysi og nýr lærdómur. Um það fjallar Vilborg ákaflega vel og viturlega. Áttatíu lítrar er víst meðaltalið af tárum sem við úthellum yfir ævina (235) og hluta þeirra mun lesandinn vafalítið fella við lestur þessarar fallegu bókar. Birt í Kvennablaðinu, 3. apríl 2015

„Skipt um sýlinder með köldu blóði“

Mynd_0890266

Elísabet Jökulsdóttir á að baki langan feril sem ljóðskáld og rithöfundur og hefur ort um ást og geðveiki á einstaklega einlægan og berorðan hátt. Ekki hefur hún notið stórra styrkja eða fyrirgreiðslna við skáldskapariðkun sína og jafnan gefið bækur sínar út sjálf en nú hefur hún hlotið Fjöruverðlaun og Lesendaverðlaun DV sem er fagnaðarefni, bæði verðskuldað og tímabært.

Í nýrri ljóðabók, Ástin ein taugahrúga. Enginn dans við Ufsaklett (2014), lýsir hún ástarsambandi við ofbeldismann með beinskeyttum myndum og skýru myndmáli, allt frá spennuþrungnu tilhugalífi til heiftarlegra sambandsslita. Hún birtist berskjölduð og nakin í ljóðum sínum, innan um naívar og blautar píkuteikningar sem endurspegla heita ástarþrána, greddu og losta sem oft er ruglað saman við ástina sjálfa.

Upphafsljóð bókarinnar, „Alvörukonan“, sýnir eðlislæga löngun eftir því að vera elskaður eins og maður er, sem stangast harkalega á við þá staðalmynd sem fólki hættir til að spegla sig í og birtist í háhælaskónum, meikinu og korselettinu sem karlinn færir konunni áður en hún veit af. Viðvörunarljósin fara að blikka en eru hunsuð og fyrr en varir er karlinn fluttur inn.

Fljótlega fer að bera á hnökrum í sambúðinni en þroskað fólk í nýju ástarsambandi vill láta hlutina ganga vel, ekki ergja sig á smáatriðum, ekki gera sömu mistökin aftur og lætur því ýmislegt yfir sig ganga. Ástin er djúp og sjóðheit, eins og sést t.d. í fallegu ljóði sem heitir „Kærastinn minn“ (21) og lýsir brynju sem karlinn hefur komið sér upp til að komast hjá sársauka í lífinu. Stundum er gaman hjá skötuhjúunum en oft er rifist og stundum slegist, mestmegnis einkennist sambandið af gagnkvæmum leiðindum og endalausum vonbrigðum.

Í ljóðinu „Mylsnuást“ sést tilfinning sem margar konur í ofbeldissamböndum upplifa: „Ég vildi verða sek og komast í fangelsið mitt. Þar átti hann að heimsækja mig og gefa mér að éta úr lófa sínum, mylsnuna“ (32). Konan þráir að vera samvistum við kærastann og er bæði heyrnarlaus og blind af ást þegar hún lofar honum því að skipta aldrei um sýlinder eins og svo margar sambýliskonur hans hafi gert „með köldu blóði“ (41).

Það er mikil sorg í þessum einlægu og nístandi sársaukafullu ljóðum Elísabetar en það er líka húmor í bland, ekki kaldhæðni heldur kvika, og ástarsagan er grátbrosleg frá upphafi til enda. Eftir lesturinn sat þetta ljóð í mér; ógnvekjandi, átakanlegt og meinfyndið í senn:

Kaffiskvettan

Hann skvetti framan í mig kaffi
einhverra hluta vegna stend ég
við kústaskápinn og ég stend þar
þangað til ég er búin að fá vitið aftur
og nú er þetta búið
fyrst þetta er byrjað
því það á aldrei að fyrirgefa ofbeldi
það verður bara meira næst
og ég ætla ekki að bíða eftir því
svo ég opna skápinn
tek út kústinn
og flýg burt.
(62)

Birt í Kvennablaðinu, 29. mars 2015