„Þjóðfélagið þarfnast harms svo venjulegt fólk finni til“

„… ég lifi og starfa sem útigangsmaður í Reykjavík. Starfið felst í því að vera útundan. Ég tel ég megi fullyrða að ég sé bara góður í því og að búðareigendur miðbæjarins gæfu mér meðmæli ef þess væri óskað. Þjóðfélagið þarfnast harms svo venjulegt fólk finni til. Ákveðnum prósentufjölda hverrar kynslóðar verður að ýta út á kant. Mér ber að ganga daglega um bæinn og skapa viðbrögð og tilfinningar hjá samborgurunum…“ (161).

Þetta brot er úr nýrri og áhrifamikilli skáldsögu Kristínar Ómarsdóttur sem ber heitið Flækingurinn. Þar segir frá unglingspiltinum Hrafni (stundum kallaður Óskar eða Georg Washington Jensen), útilegumanni nútímans og sprautufíkli sem þvælist um götur Reykjavíkur í leit að mat og dópi. Þessi ógæfusami piltur hittir margs konar fólk á vegi sínum, flest er á jaðri samfélagsins eins og hann sjálfur. Þegar sagan hefst býr hann á einhvers konar sambýli eða athvarfi fyrir fíkla og ræður bjargvætturinn Laufey þar ríkjum. Brátt hrökklast hann þaðan, hreiðrar um sig í geymslu í kjallara í dansskóla, lendir svo í slagtogi við alls konar furðufugla og fyrir ýmist ásetning eða misskilning kemst hann í kast við lögin. Sögunni lýkur svo þar sem hún hófst, í húsi Laufeyjar, með absúrd drápsenu sem minnir mest á bíóhasar, en raunveruleiki og jarðtenging eru býsna langt undan í þessu skáldverki.

Framvinda sögunnar markast af ráfi Hrafns um bæinn og samskiptum hans við misruglaðar persónur, dóprausi og ranghugmyndum, ofbeldi og brostnum draumum. Stíllinn er mjög ljóðrænn og fallegur, senur eru margar súrrealískar enda rambar sögumaður á mörkum vímu og veruleika.

Hrafn er mállaus og skrifar á blað það sem honum liggur á hjarta. Hann missti málið/tunguna á einhvern óljósan hátt og var beittur kynferðisofbeldi í uppvextinum. Sjálfsmynd hans er verulega brengluð og mörkuð af erfiðri æsku og vímuefnanotkun: „Er ofbeldi stafróf mitt og sú tjáning sem fólk skilur?“ spurði ég sjálfan mig, þakklátur fyrir að mega skilja sjálfan mig án aðstoðar milliliðs. Úff, ég hefði ekki boðið í það hefði ég þurft á túlki að halda til að skilja mig. Felldi ég tár hlógu allir og ég mest. Það hafði ég reynt: að gráta ef ráðist var á mig. Berði ég frá mér hlógu fáir og fólk bugtaði sig jafnvel fyrir mér. Með ofbeldi öðlaðist ég vald, virðingu“ (127).

Sagan gerist um vetur, tilveran er grá og köld. Fíklarnir búa við ofbeldi, útskúfun og auðmýkingu alla daga en á milli koma góðar stundir, sérkennileg vinátta og samkennd skapast og ástin kviknar, sjúkleg og ofbeldisfull. Hrafn lætur dagana líða við að redda sér einhverju ætilegu, vímuefnum og lyfjum, fara á bókasafnið til að lesa dánartilkynningar á netinu eða dotta með þykka bók, skreppa á klósett á bensínstöð eða í kirkju og dorma á dýnu þess á milli. Hann ruglar svo saman reytum við hinn svarta Engilbjart og týndu stúlkuna Emmu en í félagsskap þeirra fara hjólin að snúast. Hrafn er vissulega viðsjárverður gaur og ekki með öllum mjalla en Engilbjartur er stórhættulegur, snarvitlaus og siðblindur.

Þegar þeir félagar hafa brotist inn til að redda sér pening eða fundið matarafganga í ruslatunnum, fyllt vatnsbrúsa og innbyrt einhver eiturlyf, eru þeir alsælir og gerast heimspekilegir í pælingum sínum, m.a. um samfélagið sem þeir sniðganga og afneita. „Eignarétturinn er atvinnuskapandi,“ sagði Engilbjartur eitt sinn, „og skapar störf lögregluþjóna, lögfræðinga, dyravarða, húsvarða, tryggingafólks, öryggisvarða, bankastarfsfólks og fangavarða.“ „Hvað skapar eignarétturinn marga glæpamenn?“ spurði ég sjálfan mig nú, því ég var lengi að hugsa og bregðast við upplýsingum frá öðrum. Og hvað skapar hann mörgum eignaleysi og fátækt? Eignarétturinn drífur samfélagið áfram um leið og hann liggur á því eins og mara“ (159).

Þeir fóstbræður eiga mögnuð samtöl í ruglinu en hrista svo af sér slenið og halda í ævintýraför þar sem ættingjar og vinir fá makleg málagjöld í grátbroslegum ofbeldisatriðum sem varpa ljósi á bæði sjúklega hugsun fíkilsins og meðvirkni og skilningsleysi fórnarlambanna.

Útigangsmönnum í höfuðborginni fer fjölgandi en um þessar mundir eru a.m.k. 200 manns heimilislausir árið um kring og enn fleiri á götunni tímabundið. Er flækingslífið heilbrigðisvandamál, félagslegur vandi eða vandi hvers og eins? Hver ber ábyrgðina? Þetta er ekki einfalt mál og engin lausn í sjónmáli. Kristín dregur upp nöturlega mynd í Flækingnum af skuggalegum heimi sem fæstir þekkja og fólki sem við kannski finnum til með en viljum sem minnst af vita. Og á listilega íronískan hátt stangast útskúfun og einmanaleiki persóna sögunnar á við frelsis- og sjálfstæðishugmyndir þeirra sjálfra.

Tími flækingsins er runninn upp, hugsjónirnar eru dauðar, heimur hvíta mannsins er liðinn undir lok, segir Engilbjartur sem hatar bláeygt gelgjupoopp og allt sem er hvítt. En er líf flækingsins æðsta stig tilverunnar? Er hann frjáls? Hvort er það hugrekki eða hugleysi að velja þá braut í lífinu? Þeim sem hafa í huga að leggjast út er ráðlagt að skoða lista í handbók útigangsmannsins sem birtist á bls. 263–4 í bókinni. Þar kemur fram að gott er að eiga m.a. kertisstubb og kveikjara, snæri og kúbein, trefil og vatnsþéttan skófatnað, skrúfjárn, teppi og samanbrotinn plastpoka. Og svo er bara að smæla framan í heiminn: Bless vinna, fjölskylda, eignir, ábyrgð og skuldir! Hæ, frelsi?

Birt í Kvennablaðinu 16. apríl 2015

Ferðalangur 2015

Þá er ég heim komin eftir árlegt úthald í fjallatrukknum VWLT40. Að þessu sinni hófst ferðalagið í Vestmannaeyjum og voru gosstöðvar alveg til friðs þessa fjóra daga sem við dvöldum þar. Veðrið var nú ekkert sérstakt, frekar kalt, sól af og til en einn daginn rigndi. Við gengum á einhverja hóla til að taka myndir og reyna eitthvað á okkur, fengum okkur að borða á Slippnum, nýjum og trendí veitingastað, og keyptum sitthvað í Útgerðinni sem er afar smart hönnunar- og sælkerabúð. Farið var í fótsnyrtingu hjá Snyrtistofu Ágústu sem reyndist svo vera skólasystir mín úr Kennó og urðu fagnaðarfundir. Tjaldstæði Þórs var bara huggulegt og tjaldvörðurinn var einstaklega hress og almennileg kona sem greinilega fannst gaman í vinnunni.

Síðan var stefnan tekin upp á land eins og Eyjamenn segja. Veðrið var að batna, við vorum eina nótt hjá Gljúfrabúa að mynda Seljalandsfoss í sól og blíðu. Þar er tjaldstæði einkar huggulegt og snyrtilegt (ekki gömlu klósettin samt) en enginn kom að rukka og ég er viss um að landeigandinn tapaði þúsundum þennan sólarhring sem við vorum þarna. Næsta morgun var rigningarúði og ekki til setunnar boðið. Ekið var sem greiðast upp að Geysi en þar var einstök veðurblíða enda dýrasta tjaldstæði landsins, 1700 kr á mann. En aðstaða fyrir tjaldgesti þar er til mikillar fyrirmyndar. Að loknum sólböðum, myndatökum og veisluhöldum var ekið upp á Snæfellsnes en þar var besta spáin á landinu. Skemmst er frá því að segja að við vorum þar það sem eftir lifði af ferðalaginu, þvældumst milli víkna og tanga, hóla og stapa. Náttúrufegurð og saga hvert sem litið var. Tjaldstæði á nesinu eru til fyrirmyndar, nema á Arnarstapa, þar er salernisaðstaðan orðin heldur þreytt.

Það er fátt eins endurnærandi eins og að ferðast um landið sitt og umgangast náttúruna. Þá gildir bara að láta aðra ferðamenn ekki fara í taugarnar á sér. Umgengnin um helstu ferðamannastaði er því miður slæm, sígarettustubbar og klósettpappír eru til ama og leiðinda, tjöld útum hvippinn og hvappinn og meira að segja sáum við tjald í sjálfum þjóðgarðinum. Það er ekki við ferðamenn að sakast, heldur ferðaþjónustuaðila, bílaleigur, landeigendur, sveitarfélög, stjórnvöld og löggjafarvald sem ekki gera skyldu sína. Hvað er flókið eða dýrt við að upplýsa fólk, t.d. setja upp skilti sem bannar því að tjalda utan tjaldstæða og hvetur til að henda ekki rusli á víðavangi? Reyndar þurfum við sjálf að ganga þar á undan með góðu fordæmi. Það ætti að banna rútum að taka farþega nema vera með klósett innanborðs, reisa litla kamra við helstu viðkomustaði hið snarasta og sjá til þess að vel sé gengið um þá. Það þarf að setja skýrar reglur og upplýsa ferðamenn vel, tvær stúlkur á puttaferðalagi sem við spjölluðum við vissu ekki annað en það mætti tjalda hvar sem er á Íslandi, það höfðu þær heyrt eða lesið einhvers staðar. Sömu upplýsingar höfðu hress hjón frá Ísrael sem voru með lítinn kúkakamper, á bílaleigunni var þeim sagt að þau mættu hafa náttstað hvar sem er.

Allir ferðamenn sem koma til landsins ættu að fá einfaldan og skýran upplýsingabækling um ferðamennsku á Íslandi; t.d. umgengni, umferð, utanvegaakstur, upplýsingar um færð og veðurspá o.s.frv. Það þarf að efla vegalöggu á sumrin, 2-3 bíla í hverja sýslu til að fylgjast með umferð og umgengni. Það ætti gefa út sérstakt útileguhjóla- og göngukort með helstu leiðum þar sem salerni er sérstaklega merkt inn á. Skítapoka ættu menn að geta tekið með sér í hverri sjoppu og sett í gám í þeirri næstu. Og það þarf að gera þetta allt strax, ef við viljum fá ferðamenn til landsins verður að vera eitthvað fallegt fyrir þá að skoða og þeir verða að finna að þeir séu velkomnir. Góða ferð!

Svarti hundurinn

„Allt í einu er kominn hundur hingað að sniglast í kringum húsið. Hann er að sjálfsögðu svartur, annars hefði ég orðið undrandi. Ég veit ekki hvaðan hann kemur, líklega úr einu af húsunum sem eru í sama lit og hann. Annars hefur hann augu eins og selur, hann gæti þess vegna verið kominn upp úr sjónum, hvað veit maður. Ég gef honum kleinu út um dyrnar, en það eru líklega mistök því hann horfir á mig eins og ég sé hálfguð. Ég vil ekki vera hálfguð neinnar lífveru, hvað þá alguð. Ábyrgðin sem fylgir slíku er sligandi. Ég vil enga ábyrgð. Forðast meira að segja ábyrgðarbréf. Ef ég fæ tilkynningu um að það sé ábyrgðarbréf á pósthúsinu, þá sæki ég það ekki.“

Suðurglugginn (27-28)

Dýravernd II

Það er kunnugra en frá þurfi að segja, hve oft hundar hafa orðið ferðamönnum að liði, og oft og einatt bjargað lífi þeirra með því að rata í dimmviðrum eða vara við ófyrirséðri hættu. Allir ferðamenn, sem láta hund fylgja sér, skyldu því sýna þessum góða förunaut sínum mestu nákvæmni í allri meðferð, ekki síst á langferðum.

Dýraverndarinn, 1955

Dýravernd

_MG_8601

„Dýravinir hafa ekki það eitt fyrir augum að afstýra grimmdarfullri misþyrming á skepnum, heldur vilja þeir stuðla að því, að öllum skepnum geti liðið svo vel sem kostur er á, hvort heldur eru húsdýr eða aðrar skepnur. En til þess að nálgast það takmark, vita þeir að grafa þarf fyrir margar og djúpar rætur í þjóðlífi voru. Eigingirnin þarf að minnka, mannúðin að vaxa og verða almennari.“

Úr leiðara fyrsta tölublaðs Dýraverndarans, sem kom út í tæp 70 ár, frá 1915 til 1983

Grímsi

Grímsi 1930-2010

Arngrímur Jóhannsson frá Tunguseli, oftast nefndur Grímsi í Hvammi,  lést á Þórshöfn 7. mars 2010. Ég ætlaði að skrifa minningargrein um hann á sínum tíma og byrjaði á því sem hér fer á eftir.

Ég kynntist Grímsa vel þegar ég var tengdadóttir í Hvammi á níunda áratug síðustu aldar. Hann var einn af þessum sveitamönnum sem mundi tímana tvenna, torfbæi og vinnumennsku, fátækt og sjálfsþurftarbúskap. Hann var ungur þegar dráttarvélar komu fyrst í plássið og ollu byltingu í öllum vinnubrögðum til sjávar og sveita til blessunar fyrir landslýð. Hann lagði alltaf  inn í sitt kaupfélag og sparisjóð og bjó alla tíð í sinni sveit, ógiftur vinnumaður og barnlaus. Ekki eltist hann við efnisleg gæði eða veraldlega hluti. Hann átti gúmmískó og vinnuslopp sem hann brá utan yfir sig þegar mikið stóð til. Honum þótti gott að borða góðan mat og fá sér svo kaffi í glas og svæla pípustert á eftir í hægindastólnum sínum. Oft stóð hann með kaffiglasið eða pípuna við eldhúsgluggann og horfði út yfir sveitina sína. Hann las tölvuvert en best naut hann sín við sveitastörfin, slegin tún, ilmandi hey, drifhvít lömb og kumrandi rollur voru hans líf og yndi. Hann vann með sínu lagi, hægt og af þrjóskulegri seiglu. Alltaf hafði hann áhuga á því hvað Óttar sonur minn var að brasa og fannst pilturinn sá vera óumdeilanlegur snillingur. Þegar ég hitti á  hann í síma seinni árin sagði hann alltaf helstu fréttir af fólkinu í Hvammi, síðan af veðrinu og spurði síðan: „hvenær kemurðu svo í heimsókn, Steina mín?“

Kátt sæði óskast

download

Blátt blóð, í leit að kátu sæði eftir Oddnýju Eir er gullfalleg bók hvar sem á hana er litið. Hún er í litlu broti, fallegur og eigulegur prentgripur, með bláu letri og bláum millisíðum, þunnum pappír, óvenjulegri leturgerð og stílhreinni og táknrænni bókarkápu með margræðum titli. Innihaldið er einnig fagurt, ljóðrænt, sárt, berort og fyndið. Formið er svokölluð esseyja, frekar sjaldséð bókmenntaform sem er eiginlega hvorki skáldsaga, smásaga né ritgerð en líkist þeim systrum sínum samt. Þetta er afmarkað verk, persónulegt og knappt, aðeins rúmar hundrað síður. Yfirlýstur tilgangur sögumanns er að ljá langvinnum og misheppnuðum tilraunum sínum til að bæta úr barnleysi einhverja merkingu. Þemað er femínískt, fjallað er um egglos, getnað, meðgöngu, móðurhlutverk og fjölskylduform, hið kvenlega og karllega í lífinu. Verkið er afar persónulegt, aðalsöguhetjan er greinilega Oddný sjálf og hún er bæði einlæg í frásögn sinni og harla miskunnarlaus við sjálfa sig. Hún lýsir biturleika sínum og sorg hispurslaust, og ást sinni, vonum og heitri þrá af slíkri einlægni að það hrærir viðkvæmar sálir:

„Rétt áður en ég sofnaði með munúðina enn í mér óskaði ég þess að það hefði orðið getnaður. Ég hafði óskað þess áður. Oft. Alltaf. Að eitthvað yrði til þess að sæðið streymdi kátt og frjótt inn í kvið minn, að blóð okkar blandaðist og ég fengi að sjá hann glaðan sinna barninu sínu, kenna því fuglamálið og hundamálið og öll hin málin sem hann einn skildi“ (56).

Verkið skiptist upp í stutta og áhrifaríka kafla, sem heita t.d. Karlmennskan, Kvenleikinn, Fullnægingar, Játningar, Séfferhundur, Bænaduft, Kvika…  Allt snýst um að verða barnshafandi og margvíslegra skýringa er leitað þegar það gengur ekki. Örvæntingin grípur kærustuparið heljartökum. Svo ótal margt minnir á það sem upp á vantar til að verða „venjuleg fjölskylda“ að það verður óbærilegt.  Sambýlismaðurinn gengur líka í gegnum þjáningar vegna þessa og svo hart er gengið fram að brátt þolir parið ekki álagið lengur. Ófrjóseminni í sambandinu fylgja ásakanir, skömm, missir og sársauki sem lýst er einstaklega fallega og blátt áfram. Í bókarlok vakna bjartar vonir til þess eins að deyja og þá er ekkert orðið eftir nema uppgjöf, en líka sátt og það eftirsóknarverða ástand að vænta einskis og verða þannig frjáls. Blátt blóð er bæði listileg og lostafull bók sem þarf að liggja á hverju náttborði.

Birt í Kvennablaðinu, 20. maí 2015