„Unglingurinn er flúinn úr skóginum inn í sjoppuna.“
Matthías Viðar Sæmundsson, 1991
Matthías Viðar Sæmundsson, 1991
Eins og ég er nú lítil ljóðakelling… ofurseld ljóðum Kr.Óm.
„amma þín skuldaði sjónvarpinu pening og þú erfðir skuldina
sast hlekkjuð fyrir framan tækið en óskaðir þér að liggja hjá mér
og tókst sjálfsmynd á myndavélina og sendir systrum þínum
og mér og ég lagði ljósmyndina hjá gleraugunum á koddann
klæddi mig úr sokkunum og sofnaði – vært – eins og safngripur“
(51)

Kristín Ómarsdóttir, mynd: http://www.ralphmag.org/GW/reindeer-woods.html
Er að böggla saman ritdómi fyrir rúv um ljóðabók Kristínar Ómarsdóttur, Kóngulær í sýningarglugga. Þetta er kvöld númer þrjú sem ég sit við að skrifa, helaum í öxlinni og að auki hrollkalt þar sem ofnarnir eru í ólagi í húsinu. Mig vantar bara berkla og óendurgoldna ást til að uppfylla staðalmyndina. Það er nógur efniviður í amk 20 síðna ritgerð um Kóngulærnar. Er stórhrifin af þessu til dæmis:
hönd hvílir á diski
glös standa vörð við sorgardúk
einnig logarnir sem með hraði eldast, gestirnir kveðja
höndin á diskinum minnir bölsýnan á lambalegg
höndin á diskinum minnir bölsýnina á lambalegg
svo fagurt snerti hún snitturnar – bleiku kökurnar
svo fagurt snerti hún snitturnar – bleikar kökur
sósan teiknar varir á dúkinn
ég gaf hönd mína fyrir málsverð
hugsar skuggavera klædd döprum fötum
kápufóðrið: grátmúrinn
hve langa stund það tekur því að kveðja
hugsar fylgdarkonan og stingur augunum í vasann, brýtur saman eyrun
notar varirnar í kossa á mjúkar kinnar úr hörðnuðu regni
skuggarnir, eins og farartækin úti, sameinast regninu
ekki skilja mig eftir
hvíslar höndin væri hún ekki stödd hér heldur í ljóði
(45)
Náði mynd af Kim Leine þar sem hann las upp í Eymundsson í Austurstræti regnblautan miðvikudag. Leine fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Spámennina í Botnleysufirði og eftir upplesturinn fór hann að hitta kollega sinn, Einar Má Guðmundsson, á kaffihúsi. Kalak er sjálfsævisaga, þar sem lýst er uppvexti Kims í Kaupmannahöfn þar sem hann býr við kynferðisofbeldi og vanrækslu af hendi föður síns og leiðist út í alls konar rugl, flytur til Grænlands og gengur þrusuvel að aðlagast lífinu þar en Kalak þýðir eiginlega „gegnheill Grænlendingur“; nafn sem söguhetjan fékk sér til háðungar þar í landi. Frábær bók.


Treystu náttmyrkrinu
fyrir ferð þinni
heitu ástríku
náttmyrkrinu
Þá verður ferð þín
full af birtu
frá fyrstu línu
til þeirrar síðustu
Sigurður Pálsson, 1948-2017
Ef nefna ætti einhvern sem hefur gert íslenskum farandverkamanni almennileg skil í ljóði og myndum, kemur Bubbi Morthens auðvitað fyrst upp í hugann. Töffarinn sem birtist í sjávarþorpinu troðfullur af dópi og hassi og þrælaði sólarhringum saman í akkorði við fiskvinnu. Hann tilheyrði rótlausum verkalýð sem fór pláss úr plássi þegar vantaði fólk í uppgripavinnu í frystihúsum, loðnubræðslum, á togurum eða dagróðrabátum; ílentist hvergi, passaði hvergi. Þetta var áður en fiskveiðikvótinn varð eign sægreifanna með þeim afleiðingum sem allir þekkja.
Farandverkamaðurinn og minningar úr sögu þjóðar eru efniviður ljóðabókar Bubba sem nefnist Hreistur. Bókin sem er tileinkuð fóstru hans og helsta bókmenntapáfa landsins, Silju (Aðalsteinsdóttur) inniheldur 69 nafnlaus og númeruð ljóð og umgjörð þeirra er sjö vökunætur þar sem fortíð vitjar mælandans sem „flæktur í vetrarkvíða“ (1) „fangar ljósfælin botndýr hugans“ (35).
Já, frystihúsið, færibandið og farandverkamaðurinn, allt er það nú gott og blessað en höfum við ekki heyrt þetta allt áður hjá höfundinum? Jú, hrognin eru að koma og ef ég drukkna, drukkna í nótt skjóta upp kolli í Hreistri, þetta þema hefur fylgt Bubba frá upphafi ferils hans seint á síðustu öld og er vörumerki hans. En einhvern veginn hefur hann alltaf lag á að endurnýja sig, koma ferskur inn. Og þetta er harðvítugt efni sem er ekki tæmt, bitur reynsla sem enn á eftir að vinna úr. Vísanir í fyrri verk búa til stemninguna, lesandinn setur sig í stellingar, kominn aftur í tímann, mættur upp á verbúð eftir langa vakt í hvítum stuttermabol með hlandvolgt vokda í kók.
Fiskverkafólkið hírist í fjórtán köldum og subbulegum herbergjum á verbúðinni sem „lykta af fiski, brundi, slori, rakspíra“ (1). Þetta er munaðarlaust, menntunarlaust og skeytingarlaust fólk (3) sem vekur hálfgerðan óhug meðal þorpsbúanna. Sjávarplássin eru í uppgangi á þessum tíma, símstöðin og kaupfélagið á sínum stað, það er næg atvinna og útgerðin blómstrar og það er ball í landlegum. En afturhvarf til hreistraðrar fortíðar er hvorki nostalgískt né fegrað. Þetta er harður heimur sem einkennist m.a. af ofbeldi og vímuefnaneyslu, eins og sjá má í ljóði sem dregur upp mynd af hópnauðgun á verbúðinni; atvik sem brenndi sig í minni ljóðmælandans. Heyrum skáldið fara með ljóð nr 27.
Bubbi les ljóðið 11.23-13.02 http://www.ruv.is/frett/eg-vard-vitni-ad-brutal-naudgun
Ljóðið er grípandi og áhrifamikið. Bubbi hefur sjálfur valið það til upplestrar víða enda smellpassar það inn í þá vaxandi umræðu um kynferðisofbeldi fyrr og nú sem á sér stað í samfélaginu. Í ljóðinu er lýst hinum sundurleita hópi fólks sem dvelur á verbúðinni; krúttlegur prófessor og kona sem segir sögur við „varðeld fiskanna“ en skrýmsli liggur í leyni; ofbeldi á sér stað, eins og „fjólublátt armband“ ber vott um; það er glæpur í gangi og það að hafa ekkert aðhafst hvílir á samviskunni árum saman.
Myndmálið úr mal Bubba samanstendur oftlega af kunnuglegum eignarfallssamsetningum, eins og „ískaldir fingur vetrarins“ og „langir armar myrkursins“. En í Hreistri eru líka ljóðmyndir sem ganga vel upp og eru nýmeti, hressilega jarðtengt og alveg séríslenskt. Ég tíni hér til nokkrar slitrur:
„langir fölgrænir veggir með / blóðblettum vínblettum leifum af uppköstum / voru okkar kjarval (1)
stelpurnar / allar þessar sölkur / með hníf í hendi og hárið frjálst (15)
í þúsund fokkera fjarlægð
var borgin sem við höfðum flúið
(40)
ríkistónlistin barst frá hátalara sem hékk niður úr loftinu
torfbæjarraddir fluttu dánartilkynningar
og jarðarförin var fyrr en varði komin inn til okkar
(40)
fram þjáðir menn í lekum bússum
(53)
sjóveikt viðundur
í óráðinu ljómaði hafið í sökkvandi raunveruleika
spýjan skall á gólfið
hálfmeltar hugmyndir um sjómennskuna
skoluðust eftir þilfari fyrir borð
(62)
Ljóð nr 16 finnst mér gott, líka nr 40, 44, 55. Og að lesa nr 65 er eins og að koma í heimahöfn, það er framlenging á frægasta lagi Bubba sem gaulað er í öllum betri partýum. Hreistur boðar ekki nýjungar í skáldskap, það eru engin átök við form eða efni en vel er farið með. Hreistur er heldur ekki pólitísk bók, það er engin reiði eða ádeila á ferð í þessu uppgjöri heldur stafar einlægni af ljóðunum og jafnvel örlar á viðkvæmni. Hörkuleg ímynd töffarans með stálið og hnífinn hefur dignað og velkst af boðaföllum í lífsins ólgusjó.
Alexandra Buhl annaðist hönnun og umbrot Hreisturs sem er alltof fíngert og nostursamlegt og í hróplegu ósamræmi við hrátt og blautt innihaldið. Og ég verð að segja, sem fyrrum frystihúsgella, að ég hef á tilfinningunni að hreisturgrafíkin sem prýðir bæði bókakápu og blaðsíðurnar snúi öfugt.
Víðsjá, 7. sept 2017: http://www.ruv.is/frett/adeilunni-skipt-ut-fyrir-einlaega-vidkvaemni
…Jón var fremur lágur vexti, en hverjum manni harðgerðari og snarmenni hið mesta, svo að fáir eður engir stóðust honum snúning. Hann var vel greindur maður. Réttust lýsing á Jóni er í vísu, er hann kvað um sjálfan sig, þótt hún hafi ekki mikið skáldskaparlegt gildi. Vísan er þannig:
Einsýnn porri er að skálda
æði mikla vitleysu.
Hann er líkur gráum fálka,
þegar hann er í skinnpeysu.
(Laxárdals menn í Hrunamannahreppi eftir Þorstein Bjarnason frá Háholti.
Blanda, fróðleikur gamall og nýr VI, bls.277.
Í veizlu á Hjaltabakka í Húnavatnssýslu var Sigurður Breiðfjörð gestur og var orðinn svo drukkinn, að tveir menn fóru út með hann um kvöldið eða nóttina, til þess að hjálpa honum að kasta af sér vatni. Sjór var fallinn hátt. Lítur Sigurður þá fram á sjóinn og segir:
Fallegt er, þá fellur sjór
að fjalla klónum.
Einn er guð í öllu stór
og eins í sjónum.
(eftir blöðum að norðan, Blanda, fróðleikur gamall og nýr VII, 1940-1943, bls. 380)

Skáldsagan Allt í himnalagi hjá Eleanor Oliphant, sem er frumraun skoska rithöfundarins Gail Honeyman, hefur aldeilis slegið í gegn. Reyndar er nákvæmlega ekkert í himnalagi hjá Eleanor en hún hreiðrar strax um sig í hjarta lesandans; svo átakanlega einmana og tragísk en líka ansi skarpskyggn og hreinskiptin. Frásögnin af hremmingum hennar í samskiptum við annað fólk og skuggalegri fortíð er meinfyndin og stílinn skemmtilega kaldhamraður, í vel heppnaðri þýðingu Ólafar Pétursdóttur.
Í þrjátíu ár hefur Eleanor Oliphant hálfvegis verið hælismatur, utangarðs og umkomulaus, með margvíslega þráhyggju og fælni. Hún ólst upp hjá illgjarnri og geðveikri móður og hraktist síðan milli stofnana og misgóðra fósturheimila. Sjálfsmyndin er í molum, hún er í ömurlegri vinnu, hefur enga stjórn á lífi sínu og liggur í kojufylleríi allar helgar. Einsemd hefur alltaf verið hennar hlutskipti og vaninn hennar varnarháttur.
Nú er einsemdin nýtt krabbamein, skammarlegt og vandræðalegt fyrirbæri sem maður kallar yfir sig með dularfullum hætti. Hryllilegt og ólæknandi mein, svo viðurstyggilegt að ekki er hægt að nefna það. Aðrir vilja ekki heyra það nefnt upphátt af ótta við að verða fyrir áhrifum þess, eða að það freisti örlaganna til þess að kalla áþekkan hrylling yfir þá sjálfa (288).
Sjónarhornið í sögunni er frumlegt að því leyti að margt það sem venjulegt fólk telur til sjálfsagðra hluta, kemur Eleanor spánskt fyrir sjónir. Til dæmis að fara í klippingu, dansa, sýna tilfinningar eða eignast vini: „Það kom á daginn að þegar maður hittir sömu manneskjuna nokkuð reglulega verða samræðurnar strax ánægjulegar og óþvingaðar – maður getur eiginlega haldið áfram þar sem frá var horfið og þarf ekki að byrja upp á nýtt í hvert skipti“ (313-14). Þegar hún bregður út af vananum og stígur út fyrir þægindahringinn, verður hún alltaf jafn hissa á því hvað lífið hefur upp á að bjóða.
„Hvað á þetta að vera?“ sagði ég. „Er þetta… er þetta ostur?“ Ég hafði aldrei fengið helíumblöðru að gjöf, síst af öllu svona sérkennilega.
„Þetta er hann Svampur, Eleanor,“ sagði hann og talaði mjög hægt og skýrt eins og ég væri einhver bjáni. „Svampur Sveinsson.“
Hálfmennskur baðsvampur með útstæðar framtennur! Til sölu eins og ekkert væri! Aðrir hafa alltaf sagt um mig að ég sé skrítin, en þegar ég sé eitthvað þessu líkt rennur upp fyrir mér að ég er tiltölulega eðlileg (300).
Framan af sögu eltist Eleanor við draumkennda ást sína á „Tónlistarmanninum“ með spaugilegum tllburðum. Til þess að ganga í augun á honum þarf hún að breyta hirðuleysislegu útliti sínu og hallærislegum klæðaburði. Það er lumman langlífa, frá örófi til vorra daga, að kona heldur að hún þurfi að falla að staðalmyndum til að ná athygli karlmannsins. Þegar augu hennar opnast, sér hún að ástin er nær en hana grunaði – eins og lesandinn er fyrir löngu búinn að átta sig á. Síðasti þriðjungur bókarinnar snýst um hvernig Eleanor reynir að losna undan fortíðinni, þar á meðal meinfýsinni mömmu sinni sem er ekki átakalaust. En ungfrú Oliphant er ekki fisjað saman, hún bræðir alla með skarpri sýn á samferðamenn sína og kaldhæðnum húmor fyrir sjálfri sér.
JPV, 2017
Allt í himnalagi hjá Eleanor Oliphant
405 bls
Þýðandi: Ólöf Pétursdóttir
Birt í Kvennablaðinu, 4. ágúst 2017

Er að sýsla með sögu þessarar merkiskonu. Sperrið eyrun, á rás 1!
http://www.ruv.is/sarpurinn/ras-1/vidsja/20170815
(ljósm. Rax 1985)