
Ljósm. Brynjar Ágústsson

Ljósm. Brynjar Ágústsson

Frumraun Ásdísar Thoroddsen í skáldsagnaritun er afskaplega vel heppnuð enda má ætla að hún sé vön að sýsla með element skáldskaparins í kvikmyndagerð, svo þaulvön og þekkt sem hún er á þeim vettvangi.
Fyrsta skáldsaga Ásdísar, Utan þjónustusvæðis. Krónika, sem kemur út hjá bókaforlaginuSæmundi er vel skrifuð, skemmtileg aflestrar og persónur sprelllifandi. Þessu litla forlagi sem hefur aðsetur á Selfossi hefur vaxið fiskur um hrygg á síðustu árum og útgáfulistinn í ár spannar 20 bækur. Á saurblaði skáldsögu Ásdísar er sú nýlunda að geta yfirlesara sem vinna oftast að tjaldabaki. Bókarkápunni er vert að hrósa fyrir mikil smekklegheit.
Sögusviðið þessarar innansveitarkróniku er í afskekktu þorpskríli þar sem kjaftasögur fljúga, heitar þrár og ástríður blómstra um leið og lágkúrulegar kenndir leita útrásar. Sagan gerist fyrir daga internetsins, persónurnar eru utan þjónustusvæðis í afmörkuðum heimi. Örlög manna og samfélags ráðast af gömlum erjum, einu tilsvari; orðstír deyr á einu balli. Heiður Gyðudóttir er aðflutt sambýliskona drykkfellds skólastjóra, hún stendur í ströngu við að kenna æsku þorpsins og stjórna barnakór, réttindalaus í starfi en knúin áfram af eldmóði, ásamt því að elska giftan mann og reyna að ala upp baldinn vandræðaungling að sunnan. Hún er breysk og hvatvís; hressileg týpa með munninn fyrir neðan nefið. Heiður býr yfir mikilli orku sem getur breyst í áráttu þegar áföll dynja yfir og ekki bætir það úr skák, nógu skrýtin er hún samt ef marka má þorpsslúðrið.
Sögunni vindur fram með þjarki og tortryggni þorpsbúa gagnvart öllu nýju og fjandskap hvers í annars garð. Ýmsir koma við sögu, s.s. dularfullur viðskiptajöfur og pólskir farandverkamenn, frændur sem hatast, góðbændur og beiskar konur. Þetta er þó ekki einföld saga um skýrar andstæður sveitar og borgar, dyggða og lasta, heldur margradda raunsæisskáldsaga um heim sem mun tortíma sjálfum sér.
Röð atvika draga Heiði niður í svaðið, það eru tilviljanir sem verða til þess að tilvera hennar sundrast, þrátt fyrir velvilja hennar og fórnir. Hún lætur stjórnast af ást og kynhvöt í gamaldags og íhaldssömu samfélagi sem dæmir hana hart. Þetta er sígilt viðfangsefni í skáldskap enda er ástin líklega sterkasta lífshvöt mannins, nátengd sköpunarkrafti, erótík og sjálfsvitund. Heiður hefur marga fjöruna sopið í ástamálum um ævina en kemst að því fullkeyptu í þessari litríku og kímnu sögu.
Stíllinn er léttur og lýsingar á bæði landi og fólki skáldlegar og á gullaldaríslensku. Sjónarhornið fer víða og skyggnst er í huga þorpsbúa sem hafa hver sinn djöful að draga, m.a. Kristín Júl sem verður að teljast tragískasta persónan; „þokulæða“ sem leynir á sér. Saga fólksins í „pólskra húsi“ er dramatísk og það er kaldrifjaður lesandi sem ekki finnur til með Þórólfi, elskhuganum góða sem tekur hnökrað hjónaband á stórbýli fram yfir ástina og dæmir sjálfan sig til eilífrar óhamingju.
Heiður berst eins og ljón fyrir heiðri sínum, réttlæti og sanngirni, hún samþykkir ekki ytri viðmið og er fordæmd fyrir, bæði af almenningi og þeim sem völdin hafa. Hún er eins og Hvít, einkennilega hænan „sem fer sínar eigin leiðir og á sér hvergi stað í valdastiga hænsakofans“ (36). Það er stórskemmtilegt að guða á glugga þorpsbúanna um hríð og söguþráðurinn væri svo sannarlega feykigott efni í sjónvarpsseríu.
Sæmundur, 2016
363 bls
Bókarkápa: Aðalsteinn Svanur Sigfússon
Vel lukkuð endurlífgun á flottu lagi. Heyrði það í útvarpinu í morgun og það greip mig strax. Og æðislegt myndband.

Mynd: orcahome.de
Kunningi minn, Júlíus H. Ólafsson, rifjaði upp í spjalli í dag þegar Keikó fékk hótunarbréf, árið 2002. Þá sagði Hallur Hallsson að bréfin segðu meira um hug þeirra sem skrifuðu þau heldur en um Keikó. Hljóta þetta að vera ein frægustu ummæli í fjölmiðlasögu Íslands. Þetta bjargaði alveg deginum hjá mér.
Fyrsta skáldsaga hinnar ungu Emmu Cline, The Girls, sló í gegn í Bandaríkjunum þegar hún kom út á árinu. Hún kom nýlega út á íslensku í þýðingu Ingunnar Snædal og heitirStúlkurnar. Strax í upphafi sögunnar er tónn ógnar og ofbeldis sleginn og hann ómar til bókarloka. Hryllingur fortíðar er alltaf á sveimi í lífi Evu Boyd, sem fjórtán ára gömul var í slagtogi við hippaköltgrúppu sem seinna varð þekkt sem Manson-gengið og skildi eftir sig blóðuga slóð (lesendur undir þrítugu: Gúgglið þetta!)
Sagan byggir á sannsögulegum atburðum en nöfnum og staðháttum er breytt. Í Kaliforníu blómstraði hippamenningin undir lok sjöunda áratugarins, full vanþóknunar á ríkum smáborgurum, fjölmiðlum og stjórnvöldum. Russel (Manson), safnar um sig hirð ungra stúlkna og villuráfandi smákrimma og predikar um jöfnuð, ást og sannleika á yfirgefnum búgarði þar sem frjálsar ástir, hass og sýra eru allsráðandi. Þetta er paradís í augum Evie sem er orðin óþolinmóð eftir að glata sakleysinu og komast í fjörið. Hún er afskipt, einmana og leitandi unglingsstúlka sem þyrstir í viðurkenningu og ást; auðvelt fórnarlamb fyrir Russel sem með furðulegu aðdráttarafli nær ofurvaldi á fylgjendum sínum. En það er samt ekki Russel sem Evie girnist, heldur ein stúlknanna, Suzanne. Í von um athygli frá henni lætur Evie ýmislegt yfir sig ganga.
Á öðru tímasviði sögunnar dvelur Evie í sumarbústað, miðaldra, einmana og misheppnuð. Þar hittir hún unglingsstúlku í sömu aðstæðum og hún var sjálf forðum; á valdi kærasta sem er siðblindur og grimmur. Þetta mynstur virðist endurtaka sig í sífellu um heim allan. Kornungar stúlkur tapa áttum, glepjast af vondu gaurunum, týnast í marga sólarhringa þar til auglýst er eftir þeim í fjölmiðlum, skila sér loksins heim illa til reika eftir margvíslegt ofbeldi og sukk en sækja síðan strax aftur í sama farið. Þær eru á sama stað og Stúlkurnar, hamast við að þóknast og sjálfsmynd þeirra mótast af hegðun og viðhorfum karlkynsins:
„Það fylgdi því að vera stelpa – við urðum að sætta okkur við þau viðbrögð sem við fengum. Ef stelpa varð reið var hún sögð brjáluð, ef hún brást ekki við var hún kölluð tík. Ekkert annað í boði en að brosa út úr horninu sem búið var að króa mann af í. Taka þátt í gríninu þótt það væri alltaf á kostnað stelpunnar“ (47).

Frá réttarhöldunum yfir Manson-genginu, 1970. Fremst gengur fangavörður, síðan þrjár þeirra stúlkna sem ákærðar voru en þær eru fyrirmyndir að persónum í bókinni.(CreditHarold Filan/Associated Press)
Stúlkurnar í hirð Russels dunda sér við matseld og húsverk, hnupl og dópneyslu. Þær eru ögrandi og hættulegar; „sleek and thoughtless as sharks breaching the water” sem er þýtt sem „þær runnu í gegn á lipurlegan og ósvífinn hátt, eins og hákarlsuggi sker vatnsborðið“. Þýðingin hefur verið lúmskt erfið viðfangs og sums staðar er fljótaskrift á henni. Textinn er myndríkur, mollulegur og fjarrænn, pirrandi á stundum því lýsingarnar á niðurníddum búgarðinum, framferði Russels og skilyrðislausri hlýðni stúlknanna skapa vaxandi óþol hjá lesandanum. Framferði stúlknanna virðist ekki vera uppreisn gegn ríkjandi samfélagsgildum og karlveldi, heldur flótti sem leiðir til verra hlutskiptis.
Stúlkurnar er áhrifarík og femínísk bók um tætingslegan hugarheim unglingsstúlku, með skapandi sjónarhorni á sögulega atburði sem á sínum tíma vöktu óhug um heim allan. Á sögutímanum eru kvenfrelsishugmyndir í burðarliðnum, bók Sylvie Plath, Glerhjálmurinn ogThe Feminine Mystique eftir Betty Friedan (enn óþýdd) komu út 1963 og höfðu mikil áhrif. Þunglyndar húsmæður flykktust til sálfræðings, æfðu jóga og sötruðu te; þær skildu við eiginmennina og reyndu að slíta af sér fjötra feðraveldisins en voru ennþá ofurseldar glápi og káfi karlanna, líkt og nýfrjáls móðir Evie. Í bókarlok er Evie hætt að vera viðfang karla en er í undarlegri stöðu; „glæpamaður án glæps“, kemst ekki undan bernskubrekunum og horfir sífellt óttaslegin um öxl.
Bjartur, 2016
292 bls.
Birt í Kvennablaðinu, 9. okt. 2016

Er líf eftir þetta líf? Tórir sálin þótt líkaminn tortímist? Er guð til? Ráða fyrirfram ákveðin örlög lífi okkar og dauða eða er það slembilukkan?
Steingrímur, aðalpersónan í Ævintýri um dauðann eftir Unni Birnu Karlsdóttur, rankar við sér handan heims og þarf að sætta sig við að hafa farist af slysförum í blóma lífsins. Hann horfir á konu sína og fjölskyldu syrgja og sjálfur er hann hnugginn og bugaður, fastur milli tilverusviða og „horfinn heiminum. Ekki lengur hluti af mannlífinu“ (12). Hann hefur tekið því sem sjálfsögðum hlut að vera sprelllifandi og ekki órað fyrir að endalokin gætu komið svona snögglega. Hann sér eftir ýmsu og ætlaði að gera svo margt þegar um hægðist, eins og við öll.
Þorpið
Steingrímur ólst upp í sjávarþorpi úti á landi í stórri fjölskyldu. Systur hans og mágkona eru gæðakonur og burðarstólpar í plássinu og bróðirinn Jói er risi með hjarta úr gulli, athafnamaður með allar klær úti. Foreldrarnir eru dæmigerðir fulltrúar sinnar kynslóðar, heiðarleg og vinnusöm hjón sem hafa byggt upp allt sitt með eigin höndum og búið börnum sínum framtíð í öryggi og trausti. Ein persóna sker sig úr hópnum, vinkonan Elenóra sem átt hefur hug og hjörtu bræðranna beggja frá bernsku. Hún er gjörólík þeim, lesbísk listakona sem flúði þröngsýni þorpsins og hefur aldrei snúið aftur. Allt eru þetta sannfærandi og vel smíðaðar persónur sem takast á við sársaukann sem fylgir því að vera til og reyna að gera það besta úr lífinu. Og þegar á reynir stendur fólk saman þrátt fyrir ágreining og gamlar misgjörðir og verndar þá sem minnst mega sín.
Dauðinn er tabú
„Sorgin er eins og olía, þykk og svört“ segir Lilja (83), ekkja Steingríms. Sorgin er líka vandræðaleg, það er erfitt að tala um hana og tekur óratíma að losna við hana; hvenær er mál að harka af sér og halda áfram að lifa? Daglegar athafnir verða Lilju ofviða og hún á enga orku aflögu handa ungum syni þeirra. Hún fer ekki úr náttfötunum, hefur enga matarlyst; svefnvana og stendur varla undir sjálfri sér. Sjálfur syrgir Steingrímur líf sitt og líkama, hann átti allt og hefur misst allt.
Dauði og sorg tilheyra þeim fjölmörgu tabúum í samfélaginu sem þögnin umlykur: „Þetta er litur þagnarinnar sem umlukti svo margt þegar ég var ung. Grá og þykk þögn um það sem skiptir máli, um það að vera manneskja, um tilfinningar, um það sem er erfitt, um sorgina, ástina, eineltið, drykkjuna, um lífið, draumana, dauðann. Manstu, það mátti aldrei tala um svoleiðis. Allt var þaggað niður. Maður gat næstum gleymt að maður hefði tilfinningar þegar maður var að alast upp“ (38) segir Elenóra.
Erfitt sjónarhorn
Margar bækur hafa verið skrifaðar um líf eftir dauðann, jafnvel með frásögnum af upplifun fólks af eigin andláti, ljósinu handan ganganna og langþráðri friðsæld. Í þessari bók er sjónarhornið óvenjulegt þar sem sögumaðurinn talar að handan. Það er býsna erfitt viðureignar og frekar sjaldgæft í skáldskap, Gyrðir Elíasson hefur beitt því listilega, t.d. íSvefnhjólinu. Margir muna eftir fyrstu tveimur seríunum af Aðþrengdum eiginkonum og skáldsögunni Svo fögur bein, þar sem sögumenn eru dánir. Lesandi verður að vera tilbúinn til að gangast inn á forsendur um framhaldslíf til að samþykkja þessa annars heims tilveru þar sem framliðnir svífa um í eins konar óljósri vídd óendanleika og æðruleysis. Í Ævintýri um dauðann birtast verur frá handanheimum sem hafa það hlutverk að leiða hina framliðnu inn í hliðarveruleika sem er hugsanlega biðsalur fyrir næsta tilverustig. Þar reynir verulega á þrek og trú lesandans og vilja til að gefa sig skáldskapnum á vald.
Áhugaverðar pælingar eru í gangi í sögunni, um sæluríki, tilgang lífsins og alheimsvitundina og ótal spurningar vakna. Hvað sem fólki finnst um þessa hugmyndafræði er þetta vel gert og fallega. Ævintýri um dauðann er í senn ástar-, fjölskyldu- og samfélagssaga sem snýst um tilvist mannsins þessa heims og annars, hún einkennist af mildi og mannúð, er vel skrifuð og boðskapurinn fallegur. Að lestri loknum, þarftu ekki lengur að óttast dauðann.
Bjartur, 2016
191 bls.
Stundum verð ég afar glaður af skáldskap. En hann er ekkert nema skríngi sem skoppa saman í hugmyndir, sögur, einfaldan stór-furðulegan skáldskap. Og hann blífur. Hann er það eina sem mér finnst nokkru máli skipta.
Steinar Sigurjónsson, 1967
Innan um og saman við er ég að grúska í bókum Oddnýjar Guðmundsdóttur (d. 1985), rithöfundar frá Hóli á Langanesi. Þar er svo sannarlega eldmóður á ferð; sósíalískar og tilvistarlegar hugmyndir um samfélag og stöðu kenna og djúp meðlíðan með þeim sem minna mega sín. Fyrsta smásaga hennar, Eldhúsið og gestastofan, birtist í tímaritinu Iðunni, 1933, og segir frá samskiptum snobbaðrar húsfrúar og fátækrar vinnustúlku.
Vilborg Davíðsdóttir tók viðtal við Oddnýju sem birt var í kvennablaðinu Melkorku 1958. Oddný var hlédræg og hógvær í spjallinu: „Ég tel mig nú eiginlega ekki vera rithöfund. Ég er stundum að setja saman sögur í tómstundum mínum. Mér þykir það gaman. En ekki tel ég, að mér beri neinn gáfumannastyrkur frá ríkinu fyrir þá iðju. Nei, ég tel mig ekki með rithöfundum.“ Svo bætti hún við að útgefendur hefðu nú ekki mikið álit á henni.
Sáralítið var um skáldsögur hennar fjallað á sínum tíma, eins og raun var með margar bækur kvenna á þessum tíma. Skáldverk kvenna þóttu vera minniháttar afþreyingarefni og kerlingabækur, sem einkenndust af torfkofaraunsæi, lúinni epík og fortíðarhyggju. Engar myndir hef ég fundið á netinu af Oddnýju en hef verið að safna þeim og digitala. Fann á þessa fallegu mynd af henni sem birtist með viðtalinu.

Ástin er undarlegt fyrirbæri og þversagnakennt. Hún seiðir fólk til sín og sviptir það ráði og rænu; hún er hvunndagur og kraftaverk, full af fyrirheitum og sárum vonbrigðum í senn; djúpri hamingju og nístandi angist. Allt snýst um hana í veruleika og skáldskap; og sennilega eru allar bókmenntir ástarsögur öðrum þræði ef grannt er skoðað.
Í hjónabandshöfn
Í Ástarsögur íslenskra kvenna hafa María Lilja Þrastardóttir og Rósa Björk Bergþórsdóttir safnað saman allnokkrum reynslusögum. Markmiðið er að fanga íslenskan veruleika, eins og segir í inngangi, og leggja eyrun við rödd kvenna um upplifun þeirra af ástinni. Margar sagnanna eru áþekkar að byggingu, efasemdir skjóta upp kolli eftir fyrstu kynni, hindranir og hömlur taka völdin um hríð en við sögulok er oft dreginn lærdómur af öllu saman. Stundum endar sagan með höfnun, sorg og eftirsjá og í bókinni má finna uppskrift til að bæta líðan eftir slíka upplifun (74). En oftast endar sagan vel:
„Það er nefnilega svo að við erum ekki öll að leita að sömu ástinni, ekki öll að leita að því sama. Nú hef ég opnað hjarta mitt og fundið einstakling sem er tilbúinn að elska mig, kosti, galla, gáfur, allt í einni bunu og ég er tilbúin að gera slíkt hið sama. Nú er hversdagsleikinn það besta sem ég veit og hamingjan með honum er ótrúleg tilfinning“ (172).
Að sofa saman
Furðulega gamaldags hugmyndir um kynhlutverk eru á sveimi í sumum sögunum, s.s. að sofa ekki hjá á fyrsta deiti, bíða eftir að hann hringi, ekki láta of mikið uppi um tilfinningar sínar, ótti um að hann hafi verið „nota mig“. Og frumkvæðið þarf að koma frá karlinum: „Hann gaf mér aðeins sakleysislegan koss að skilnaði og við það fann ég hve óþreyjufull ég var orðin yfir að eitthvað meira myndi gerast“ (28). Þá svífur yfir vötnum sú hugmynd að einhleyp kona sé ófullkomin vera og hún er alltaf að leita að sínum týnda helmingi, þeim „eina rétta“(t.d. 63, 187) Enn virðist madonnu-/hórusyndrómið íþyngja konum þegar kemur að því að taka frumkvæði í ástamálum; ekki má kona vera of ýtin eða örvæntingarfull (t.d. 101). Er þetta virkilega svona? Eru konur ekki gerendur í eigin ástarsögum? Og er aðaltilgangur lífsins að finna maka og eignast börn?
Margar sagnanna birta svipaða hugmyndafræði um rómantík og samskipti kynjanna og sést í 19. aldar skáldsögum og læknarómönum. Að auki er kynlíf að mestu undanskilið í þessum sögum nútímakvenna af ástinni sem sætir nokkurri furðu á frjálslyndum tímum. Oftast er notað orðasambandið „að sofa saman“ um kynlífið sem virkar í besta falli teprulegt.
Jafnrétti kynjanna
En það er samt eitthvað við þessa bók. Hún nær því að vera á einlægum og persónulegum nótum, þótt langflestir höfundanna séu nafnlausir. En er sá veruleiki sem er dreginn upp í sögunum sannur og viðtekinn? Það er flókið mál en það hvarflar að manni við lesturinn hvort ástin sé hreinlega stærsta hindrunin í að fullkomið jafnrétti náist milli kynjanna.
Tinder eða djammið?
Deitmenning samtímans fer að mestu leyti fram á netinu, þar sem t.d. facebook-prófílar og vinabeiðnir gegna mikilvægu hlutverki í framvindu mála. Djammið og tinder eru einnig miklir örlagavaldar. Netleiðir auðvelda vissulega fyrstu skrefin í að kynnast áhugaverðu fólki og brjóta ísinn en geta verið varasöm villuleið eins og dæmi sanna.
En takk, þið konur sem lögðuð orð í belg og opnuðuð hjarta ykkar fyrir lesendum. Og nú er bara að bíða eftir Ástarsögum íslenskra karla og sjá hvort þeirra upplifun á einhverja samleið með reynslu og veruleika kvenna.
Veröld, 2016
223 bls.