Jólaaðventuboðið, sem nú er komin hefð á, lukkaðist vel þrátt fyrir heilsubrest húsmóðurinnar. Boðið var upp á jólaglögg, skinku og hamborgarhrygg og meðlæti. Á matarborðið bættist laufabrauð, tómata- og mozzarellapinnar, tortillur, gæsabringa með rauðkáli, ostur, sulta og hrökkkex, skyrterta og dajmdesert. Svo enginn fór svangur heim. Pakkaleikurinn fór vel fram en um tíma var hann tvísýnn. Samræður voru líflegar og vitrænar. Fram kom m.a. að hundar eru einstaklega gáfuð dýr, hjúkrunarfræðingar fá um 200 þúsund útborgað á mánuði, með aukavöktum og vaktaálagi, og að íslenska þjóðin greiddi á dögunum risastórt lán sem ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens tók á sínum tíma. Svona lán eru kölluð „barnalán“. Einnig kom fram að líf einhentra er ekkert spaug, eða hvað? Takk elskulega frændfólk og makar, systur og mágar, fyrir samveruna, það er svo gaman að fá góða gesti. Einn þeirra gleymdi bakpoka…
Afmæli
Jólaboð
Hið mikla jólaboð Binna er afstaðið en á morgun er jólaboð hjá mér með barnabörnum ömmu og afa á Akureyri. Við erum fjórtán og svo koma makar með eftir atvikum. Ég verð með jólaskinku að hætti hússins og heitt glögg en allir koma með eitthvað gott á jólaborðið. Svo eru óvænt skemmtiatriði og loks pakkaleikurinn grimmi þar sem við svífumst einskis. Þetta verður stuð!
Upplestur
Blakkát
Blakkát er stykki sem fjallar um áfengisbölið, sjálfsblekkinguna, bömmerinn, fíknina og flóttann, allt á góðlátlegan hátt, alveg séríslenskan og léttkaldhæðinn. Grátbroslegt leikrit þótt handritið hefði þurft að skerpa aðeins, brýna það og hvessa svo það skeri nógu mikið í hjartað því hér er alvörumál á ferð þótt verkið sé oft þrælfyndið. Leikararnir standa sig vel, Björk Jakobs er sjarmatröll og hörkuleikkona en alltof falleg og fyndin til að hægt sé að trúa því að hún sé djúpt sokkin í eymdina. Þjónarnir eru flottir, líkið leikur stórvel. Brandarnir soldið fyrirsjáanlegir og áhorfendum ekki treyst almennilega fyrir því að skilja stykkið sem er alltaf bagalegt. Myndir úr gemsanum hennar Bokku sem sýndar eru á tjaldi bæta heilmiklu við leikritið og fylla smátt og smátt í óminnið. Blakkát er býsna skemmtilegt og vel þess virði að eyða kvöldstund í Hafnarfjarðarleikhúsinu, lítil rauðvínsflaska í hléinu kostar 1000 kall.
Arwen kemst í hann krappan
Arwen var rosa spræk í morgun og stökk útí næsta limgerði í gleði sinni. Því miður var nýbúið að höggva greinar af trjánum svo hún skar sig hressilega á lærinu. Gleðilætin breyttust því snarlega í sárt ýlfur. Þetta var svöðusár og því var farið með hana til dýralæknis. Þar var hún deyfð og svæfð og saumuð 10 spor. Nú er hún slöpp og sloj og vill ekki einu sinni matinn sinn. Svo fær hún kraga um hálsinn um leið og hún hressist, það eru ekki góðir dagar (né nætur) framundan. En dýralæknirinn dýri er örugglega ánægður.
Geðröskun í Hollywood
Ég fór á forsýningu á Silver Linings Playbook, rómantískri gamanmynd um tvo einstaklinga sem eru tæpir á geði og mætast í myrkrinu. Pat (Bradley Cooper) er í vondum málum, útskrifaður af geðveikrahæli og nýskilinn í nálgunarbanni þegar hann hittir Tiffany (Jennifer Lawrence) sem er léttgeggjuð en tekur hann til bæna. Í fyrri hlutanum er ágæt innsýn gefin inn í veikindi, hugarheim og aðstæður Pats en svo tekur rómantíkin öll völd. Myndin er í heild krúttleg og fyndin, hér er ekki fengist við geðraskanir á djúpan, afhjúpandi eða fræðilegan hátt og hvorki verið að reyna það né gefa sig út fyrir það, heldur skautar hún á yfirborðinu og gerir gott úr öllu, smyr bara allt með sætum glassúr. Sem er í lagi í þessu tilfelli, því þetta er fallegt fólk, skemmtileg átök, flott myndataka og farsæll endir. Robert DeNiro er frábær sem snarklikkaður pabbi með létta þráhyggju og meðvirka mamman (Jacki Weaver) er líka snilld, íbúðin þeirra er alveg dásamlega „tacky“. Þetta var góð skemmtun, ef maður hefur húmor fyrir alvörunni.
Kantata
Kantata eftir Kristínu Marju Baldursdóttur fjallar um gömul leyndarmál og glansmynd úr fjölskyldualbúminu. Nanna og Gylfi hótelstjóri eru sæt hjón sem ættingjarnir hafa gaman af að heimsækja og einkadóttirin er augasteinninn þeirra, Finnur, bróðir Gylfa, er sérvitringur sem hýsir ungan frænda sinn og hundinn hans, hlustar á sígilda tónlist og virðist næs náungi. Hjálmar er sonur bróður Finns og Gylfa (ef ég skildi þetta rétt), leikari með fortíð og situr uppi með móður sína, snobbaða og afskiptasama en svo vill til að hún er skemmtilegasta persónan í bókinni. Þegar útlenskur ljósmyndari birtist með elskulegheit, framandi siði og furðulega ljósmynd, fer allt á annan endann í öllum litlu fjölskyldunum, ýmislegt er óuppgert og gríman gliðnar. Í ljós kemur að í fallega og vel ræktaða garðinum hennar Nönnu leynast óféti, að sumir elska suma á laun, að hótelbókhaldið er býsna götótt, að einkadóttirin hatar foreldra sína, að náttúran er ekki öll þar sem hún er séð. Allt gerist hægt í sögunni, ein persóna stíga fram í stutta stund, hverfur svo af sviðinu með sögu sína, tilfinningar og vandamál, og önnur fær orðið. Þetta eru vel skapaðar persónur og trúverðugar, þær tilheyra íslenskri miðstétt sem hefur komið sér vel fyrir, vinnur mikið en nýtur líka lífsins í matarboðum og veiðiferðum. Loksins undir lokin kemur skrið á söguna og uppgjörið ætti að vera framundan. En allt í einu er sagan búin og lesandinn er skilinn eftir í lausu lofti, veit ekki einu sinni afdrif persóna í lífshættu. Samt er þetta ekki hluti af þríleik eða framhaldssaga. Kristín Marja lætur lesendum eftir að botna söguna. Það finnst mér ekki sanngjarnt, alltof margir endar eru lausir og stefnan óljós. Og kantötupælinguna fatta ég ekki, er lífið eða sagan eins og tónverk sem hefst í jafnvægi en svo fer allt á fleygiferð? Það er nú doldið banalt. Af hverju hafa svo margar bækur Kristínar Marju upphafsstafinn K?! Ég hefði viljað sjá meiri tilþrif, dýpri pælingar og jafnvel betri stíl. Aðeins meiri ögrun, þetta er alltof þægileg lesning.
Einar Kristján Einarsson
í dag er afmælisdagur Einars frænda/föðurbróður (1956-2001). Ég man vel eftir sposkum svipnum á honum þegar hann var að stríða okkur systrum og okkur fannst hann óþolandi. Alltaf með einhverja sérvisku, glamrandi á gítar inni í herbergi og það sem amma dekraði við hann! En þegar árin liðu og við kynntumst honum betur lærðum við fljótt að hann var bæði fyndinn og elskulegur, hlýr og frændrækinn, góður kokkur og snillingur á gítar. Hann lést úr krabbameini, langt fyrir aldur fram. Minningin lifir í huga allra sem þekktu hann.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna
sem horfðu á eftir þér í sárum trega
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
(Tómas Guðmundsson)
Bastarðar
Ég fór að sjá generalprufu Bastarða um daginn í Borgarleikhúsinu. Það var skrautleg sýning, kunnuglegt plott úr heimsbókmenntum, faðir hafnar ástinni og trúnni og fyrirlítur afkvæmi sín sem eru stórskemmd fyrir vikið. Verkið er sagt tengjast eða byggja á síðustu skáldsögu Dostojevskís, Karamazov-bræðrum, en sú tenging er harla óljós. Faðirinn hyggst giftast ungri konu og boðar öll börnin til sín í veisluna til að losa sig endanlega við þau. Jóhann Sigurðarson lék pabbann, frekar tilgerðarlega fannst mér. Hann er ótrúlega grimmur við börnin sín og svívirti báðar barnsmæður sínar en það vantar alveg skýringu á eðli hans. Hilmir Snær var rosa góður enda í frjóu hlutverki, frussaði mjög en framsögnin var minna ýkt en oft áður og hann var í senn brjóstumkennanlegur og fyndinn í eymd sinni og niðurbroti. Innkoma hans og Elvu Óskar var flott. Nína Dögg var rosa sexí en skorti verulega dýpt í karakterinn, hvar var sársaukinn og ofbeldið sem hún hafði mátt þola í gegnum lífið vegna fegurðar sinnar? Stefán Hallur var einhver veginn úti á túni, ekki sannfærandi persóna með sinn trosnaða víkingaboðskap. Þórunn E Clausen var í sjóræningjabúning úr Gulleyjunni sýndist mér, ekki sannfærandi leikur og erfitt hlutverk. Víkingur Kristjánsson lék skemmtilegasta hlutverkið og fór mjög vel með, vakti bæði kátínu og samúð, hann er enda eina persónan sem klýfur sig út úr ruglinu. Yngsta soninn lék ungur leikari sem ég man ekki hvað heitir en stóð sig vel. Handritið var gloppótt en leikgleðin mikil, umgjörðin flott og auðvitað loftfimleikar og pollur í miðjunni sem leikarar stungu sér eða veltu sér í eftir atvikum. Óljóst er hvað leikritið á að gerast og skiptir etv ekki máli, sviðið er rosa flott, soldið frumskógalegt, en til að færa verkið til Íslands hefði pollurinn getað verið heitur pottur og staðsetningin sumarbústaður við Þingvallavatn. Yfir sviðinu er glerþak, það er etv hlaðið táknrænu en tilgang þess sá ég ekki alveg fyrir mér nema sem uppbrot á innkomum persóna. Þar rölti um hálfber maður og dundaði sér við ýmislegt, etv draugur fortíðar eða listamaður en það hefði kannski getað verið kvenpersóna, kona sem er dæmd til að hrekjast, móðirin svívirta?



