Á föstudaginn var Windows 8 sett upp á tölvuna mína. Það þarf tilfæringar til að það geti stutt Garmin og ég er að vinna í því. Svo ég verð að tjá mig hér um æfingarnar þar til úr rætist. Þótt úti virðist kalt ætti maður ekki að láta það stoppa sig í að fara út að skokka. Það þarf bara að klæða sig í mjúkar ullarbuxur og ullarbol innanundir hlaupafötin og hafa góða húfu og vettlinga. Og vera með gott endurskin. Þegar maður hefur hlaupið 10 skref er allur hrollur úr manni, ferska lorftið streymir ofan í lungun, roði færist í kinnar, hjartað styrkist og vöðvarnir vinna. Í dag fór ég 7,35 km á 45 mínútum, s.s. nokkra rólega hringi á Kópavogsvellinum. Er soldið stirð í nára og lærum eftir laugardagshlaupið sem var fulllangt eftir langt hlé svo ég vildi ekki sperra mig neitt. Bara býsna ánægð með þetta. Og skórnir eru alveg að gera sig, þeir eru hálfu númeri stærri en ég hef áður keypt, gott rúm fyrir tærnar. .
Úr Annál 19. aldar
(1839) Aðfaranótt hins 18.október ól Guðrún Sveinsdóttir, ógfit vinnukona í Ljótshólum í Húnavatnssýslu, barn úti í fjósi, og gekst húsbóndi hennar, Sveinn Jónsson, við, að hann væri faðir að því. Skýrði hún svo frá atvikum við fæðinguna: Þegar allir í bænum voru háttaðir um kvöldið, tók hún ljettasóttina, fór á fætur, hljóðaði nokkuð, en vakti þó engan; gekk hún svo út í fjós til þess að ala barnið, og að því búnu vafði hún það og fylgjuna í hálsklút sinn, fór með það út í skemmu og lagði það í fatakistu sína og háttaði svo aftur á þess að nokkur í bænum yrði var við, hvað gerst hafði. Meðan á fæðingunni stóð og ef til vill nokkrurn tíma á eftir, sagðist hún hafa legið í öngviti og eigi vitað af sjer, en undireins og hún raknaði við, hefði hún tekið barnið upp, hreinsað með tungunni alt slím úr munni þess, augum og nefi, en hún hefði ekkert lífsmark með því fundið. Þó fanst henni eins og barnið hreyfði sig snöggvast, þegar hún fyrst tók það upp. Hún skýrði einnig frá að hefði hún fundið lífsmark með því, hefði hún ætlað að láta fatið sitt utan um það, fara með það inn í baðstofu og hjúkra þar að því. Þegar barnið fannst 23 .s.m. skoðaði hjeraðslæknirinn það, og áleit hann að barnið hefði náð þeim aldri, að það hefði getað lifað eftir fæðinguna, og þótt honum líklegt, að það hefði verið með lífi, þegar það fæddist, en hitt þótti honum ólíklegt, að það hefði orðið fyrir nokkurri misþyrmingu. Guðrún þverneitaði einnig, að hún hefði misþyrmt barninu eða ætlað að fyrirfara lífi þess. Var mál höfðað gegn henni og sá undirrjettardómur uppkveðinn 30. desember, að hún skyldi missa líf sitt og höfuð hennar setjast á stjaka (bls. 130).
Annáll 19. aldar, safnað hefur síra Pjetur Guðmundsson frá Grímsey
Hlaupaæfing nr 3
Æfing árla morguns hjá Bíddu aðeins, um 12 manns mættir og létu veðrið ekki á sig fá. Lagt af stað kl 9 og við fórum stóran hring í rólegheitum. Fyrst upp að Veðurstofu, svo yfir Miklatún og niður Laugaveginn og Öskjuhlíðina heim. Þetta er lengsti hringur sem ég hef farið á ævinni eða 13 km. Frekar stolt af sjálfri mér, á nýju Asics skónum sem ég keypti í gær, á góðu verði á útsölu. Ég er komin í gírinn og ekkert stoppar mig núna!
Málarinn eftir Ólaf Gunnarsson
Í Málaranum eftir Ólaf Gunnarsson er mikið drama. Davíð er listmálari, vinsæll og vel stæður en honum finnst ekki hafa fengið þá listrænu viðurkenningu sem hann á skilið. Hann er reikull í ráði, vansæll og ósjálfstæður og alltaf að bera sig saman við aðra listamenn, m.a. Kjarval og því er ekki furða að hann sé í sjálfsmyndarkreppu. Hann þarf líka að sanna sig fyrir tengdapabba sem fyrirvinna fjölskyldunnar og málar því aðallega huggulegar myndir sem seljast vel. Í örvæntingu ákveður hann að mála eina mynd í anda Kjarvals og tekst svona líka vel upp. Myndin selst á uppboði á svimandi háu verði en Davíð er í vondum málum því hann ætlaði að kaupa hana sjálfur og gefa akademíunni og snobbliðinu langt nef. Eftir því sem líður á söguna flækist hann meir og meir inn í aðstæður sem hann ræður ekkert við, Frásögnin er íronísk, hröð og spennan gríðarleg, alltaf vonast maður til að rætist úr fyrir Davíð en hann framkvæmir án þess að hugsa og gerir hvert axarskaftið á fætur öðru enda stjórnast han af annarlegum hvötum. Persónurnar eru sumar dregnar einföldum dráttum (vondir útrásarvíkingar og heildsalar, heiðarlegir iðnaðarmenn), tengdafaðirinn Benedikt fannst mér samt hressandi og skemmtileg týpa og listamaðurinn Illugi var flottur sem djöfullega góður listamaður. Lesandi sér tilveruna með augum Davíðs sem er eigingjarn, afbrýðissamur, bitur og þjakaður af minnimáttar- og sektarkennd og ekki vert að gleypa það hrátt sem hann sér og heyrir. Umhverfi og staðhættir sögunnar eru bráðlifandi og allt listilega úr garði gert. Í bókinni er ekki gerð tilraun til að kryfja myndlist sögutímans, 9. áratugarins, sérstaklega en stemningin svífur samt yfir vötnum og hefur lítið breyst held ég, velgengni í bransanum snýst um frumkraft, metnað og dirfsku en ekki síður um að hafa fjársterkan bakhjarl og fá góða dóma í fjölmiðlum. Það truflaði mig ekkert hvort atburðir sögunnar vísa til Hafskipsmálsins eins og það raunverulega var eður ei, atburðarásin var trúverðug og afar spennandi. Undir lokin hefur Davíð alveg tapað glórunni og sagan endar með ósköpum. Málarinn er hörkugóður reyfari með alvarlegum undirtón og átökum upp á líf og dauða.
Fyrir Lísu
„Gott ætti sá sem væri með abstrakt sál. Mín er meira konkret og hún er svo illa lömuð greyið að hún er afskaplega mikið fyrir. Ég er alltaf að detta um hana. Svo reyni ég að standa upp. Mér gengur best þegar ég er kyrr. Í gröfinni verð ég mest kyrr. Og þá verður loksins búið að jarða afturgönguna í mér.“ (129-130)
Segir Lísa sem ásamt litla bróður var misnotuð af föður sínum um árabil. Martin Montag álpaðist í bílskúrinn til pabba hennar þegar hann var 8 ára saklaus drengur og er síðan stórskemmdur á sálinni. Hvort í sínu lagi reyna þau Lísa að tjasla saman brotunum og lifa eðlilegu lífi og taka til sinna ráða þegar leiðir þeirra liggja saman. Bók Steinunnar Sigurðardóttur, framhaldið af Jójó, Fyrir Lísu, er full af sársauka. Þemað er siðferði og afleiðingar kynferðisofbeldis á fórnarlambið og aðstandendur þess, langvinn áhrif á ástarsamband, vináttu og fjölskyldu. Martin treystir engum, vill ekki eignast börn, hann pínir líkama sinn með áti og svelti og hlaupum og höndlar ekki snertingu, ekki einu sinni frá Petru, yndislegri eiginkonu sinni. Enginn subbuskapur er í bókinni, engar ofbeldislýsingar, heldur bara sálarkvöl sem lýst er á nærfærinn og ljóðrænan hátt. Samtölin eru skrýtin enda persónurnar sér á parti en þau eru skemmtileg og fyndin þótt undir búi átakanleg sorg. Ástin í ýmsum myndum er viðfangsefni sem er Steinunni hugleikið og hún fer afar vel með. Eins og alltaf í bókum Steinunnar er nóg af rauðvíni, ostum og góðum mat, klassískri tónlist og notalegri stemningu sem er í senn stundarfró og flótti fyrir hrjáðar sögupersónur. Bókin sækir á mann að lestri loknum og smellpassar svona svaðalega í fjölmiðlaumræðuna akkúrat núna.
Fjarveran
Nördaþríleiknum hans Braga Ólafssonar lýkur nú með Fjarverunni (2012) að talið er. Aðalpersónan Ármann Valur tengist Gæludýrunum frá 2001 og kannast við fólkið úr Sendiherranum (2006) og Handritinu (2010). Ármann V er prófarkarlesari og fær próförk að sögu þar sem sagt er frá atburðum sem gerðust í Gæludýrunum og honum er þar sjálfum lýst af gestgjafanum sem var reyndar fjarverandi. Sjálfur er hann svo að skrifa bók undir dulnefni. Hann stendur í stappi við íbúana í stigaganginum, hittir vini sína og kunningja en reynir líka að forðast þá því helst vill hann vera í friði. Hann klúðrar sambandi við dóttur sína, skreppur til Akureyrar, fantaserar um heillandi konu en kemur sér ekki að verki, gruflar í gömlu sakamáli o.fl. Skáldsagnavefur Braga er með þræði í ýmsar áttir, í algerum hægagangi líður lífið áfram í sérstöku raunsæi sínu, engin stórátök verða nema þegar einhver deyr eða dettur í það. Stíllinn er ljúfur og fallegur og fyndinn, sagan þokast áfram, persónurnar spjalla, fá sér brauðsneið, koma séri í klípu og neyðarlegar aðstæður eða skrifa bréf í rólegheitum. Bragi hefur löngum glímt við tímann í verkum sínum og svo er einnig hér. Tíminn fer í hringi, sögumaður tínir til ýmsar upplýsingar sem munu koma fram síðar og tengir sig við tíma sem hann hefur alvald á. Sérstakt er að sögupersónurnar eru komnar af léttasta skeiði eða á sjötugsaldur en ekki er úr þeim allur kraftur því sjálfur segir höfundurinn í Víðsjá að hann sé ekki alveg búinn að segja skilið við þær. Hann er þó búinn að drepa nokkrar og er dauðinn í sögunni illa lyktandi, einmanalegur og pínlegur. Það hlýtur að vera yndislegt að skrifa svona bók, nostra við hana, vefa hana úr gömlu og nýju efni, tengja og pæla og láta fólk hrekjast og mæta hversdagslegum örlögum sínum. Og mér fannst yndislegt að lesa þessa bók þótt örlög Ármanns og Estherar séu býsna nöturleg en svona er lífið – og dauðinn.
Fyrsta hlaupaæfing ársins
Undanfarnir mánuðir hafa einkennst af önnum, þreytu og veikindum. Pabbi hefur verið mjög veikur og verið á spítala síðan á aðfangadag. Sjálf hef ég verið lasin og orkulaus síðan í lok október en nú er komið að því að herða sig upp og láta sér líða vel. Ég hef ætlað lengi að drífa mig en ekki fundist ég nógu hress til þess, full af kvefi og aum alls staðar. En í dag fékk ég nóg, það þýðir ekki að bíða lengur eftir að maður hressist. Fyrsta hlaup ársins var því í dag, með Bíddu aðeins. Samtals fór ég um 7 km, þar af 4 km í hringi á Breiðabliksvellinum, í myrkri og kulda. En mikið var það hressandi.
Við mæðgur
WP 2012
Á tímum margvíslegra samskiptamiðla þar sem allt er á fleygiferð allan sólarhringinn er bloggið mitt eins og risaeðla. Ég held samt mínu striki. Skv. árlegu yfirliti um umferðina á síðunni eru helstu álitsgjafar mínir 2012:
- 1
Gunna 30 COMMENTS
- 2
Steinunn 15 COMMENTS
- 3
Þura Óttars 10 COMMENTS
- 4
Silla 10 COMMENTS
- 5
Jónína Ingibjörg 7 COMMENTS
Ég þakka ykkur fyrir tryggðina og þolinmæðina.
Vinsælustu færslurnar:
Kannski ekki þær sem ég hélt að yrðu mest lesnar. Og þessa ráðleggingu fékk ég:
Some of your most popular posts were written before 2012. Your writing has staying power! Consider writing about those topics again.
Og að lokum:
In 2012, there were 101 new posts, growing the total archive of this blog to 608 posts. There were 114pictures uploaded, taking up a total of 34 MB. That’s about 2 pictures per week.
The busiest day of the year was janúar 29th with 259views. The most popular post that day was 10 km eins og ekkert sé.




