Hallgrímur Helgason, rithöfundur og myndlistarmaður, hélt stórskemmtilegan fyrirlestur hjá ritlistarnemum í HÍ um tilurð skálds og væl hundsins.
Vetrarfagnaður Átthagafélags Þórshafnar
Sl. laugardagskvöld var vetrarfagnaður Átthagafélags Þórshafnar haldinn hátíðlegur í 20. sinn (sláturhúsballið). Þá hittast brottfluttir og búsettir og „gera sér glatt undir hjalla“. Þar var margt um manninn að vanda, miklir fagnaðarfundir og gamlar og góðar minningar rifjaðar upp úr plássinu, þarna hittust aldnar frænkur og gamlir sjensar og vinir og góðar vinkonur frá fornu fari. Í upphafi kvöldsins var sýning með gömlum myndum af bráðmyndarlegum Þórshafnarbúum, síðan var haldin áróðursþrungin hátíðarræða þar sem saga félagsins var rakin, fluttur þrælfyndinn og pínlegur pistill með helstu tíðindum frá Þórshöfn og nokkrum frægum rassbögum svo var veglegt happdrætti. Dýrindis veislumatur með indverskum keim og ball á eftir með Bríeti og bandalaginu sem ég mæli með sem stuðgrúppu fyrir flesta aldurshópa. Þetta er alveg ómissandi viðburður í byrjun vetrar og ég er strax farin að hlakka til næsta móts. Gaman var að hitta t.d. Laugu, Öllu og Evu, Dreng og marga fleiri snillinga frá Langanesi. Hjálögð mynd birtist á facebook og vonandi sést á henni hvað mér þykir vænt um Sibbu en við vorum bestu vinkonur í mörg ár. Að öllum ólöstuðum er það hún og Gummi Gestur sem ég hlakka alltaf mest til að hitta.
Skírt eftir afanum
Guðbergur Nóbell
Allir sem einhvers máttu sín litu svo á að tungan væri aðeins fyrir Íslendinga, einu þjóðina í heiminum sem fékk að hafa móðurmál sitt í friði fyrir öðrum, þótt friðurinn stafaði einungis af gagnsleysi þess fyrir utan landsteinana. Tungan var ekki einu sinni nothæf til að selja með henni þorskalýsi og lopa á erlendum mörkuðum. Hið algera gagnsleysi varði tunguna, ekki hún sjálf með notagildi sínu. Menn hrósuðu sér af því að eiga tungumál sem væri svo djöfullega snúið að ekki væri á færi annarra en innfæddra að læra það og fæstum tókst það fullkomlega… (Ein og hálf bók, hryllileg saga 2006)
Endalausir gullmolar eru í verkum hins síunga snillings, Guðbergs Bergssonar. Þetta t.d. rakst ég á í gær, á áttræðisafmæli hans, þegar ég seildist í eina bók úr hillunni af handahófi. Hver einasta bók hans hefur sinn sjarma og snilld, það er stíllinn og orðaforðinn, háðið, kaldhæðnin, viska og yfirsýn, ádeila, tabú, þjóð og menning, remba og rotinpúrra, útnáraháttur, skáldskapur, pólitík, kellingar, æska og elli, ást og hjónaband osfrv. Mest held ég uppá Önnu og bernskubækurnar. Hvenær fær hann eiginlega nóbelinn?
Og rommflaska með…
Pabbi hefur það fyrir sið að bjóða dætrum sínum og barnabörnunum í leikhús af og til. Um daginn var það Gullleyjan í Borgarleikhúsinu. Skáldsaga Robert Louis Stevenson (1850-1894) er mögnuð, hörkuspennandi og hrollvekjandi. Hún kom fyrst út 1883 og var fyrsta verk hans sem sló í gegn. Leikritið hefur verið fært niður um nokkra aldursflokka og persónurnar gerðar mildari og skoplegri. Sviðið er mjög flott en tónlistin llítt eftirminnileg nema „Uppreisn um borð“ sem er smart sjóræningjalag sem festist vel í minni. Bergur Þór er stjarna leikritsins, lék sin hlutverk bæði af snilld og innlifun og átti fyndna frasa, eins Kjartan Guðjónsson sem Ben Gunn. Björn Jörundur (Langi Jón Silfur) var frekar stirður framan af en aðeins hressari eftir hlé en skorti samt allan sjóræningjasjarma og lék bara ekkert sérlega vel. Liklega var hann ekki i neinu stuði, þetta eru orðnar ansi margar sýningar og tvær sýningar á dag kannski ekki sérlega uppörvandi. Ekki tókst nógu vel að undirbyggja samband hans og Jim Hawkins svo trúnaðarbrestur og vonbrigði drengsins yfir svikum sjóræningjans voru ekki sannfærandi. Theódór Júlíusson klikkar ekki og sviðshreyfingar Álfrúnar Örnólfsdóttur eru þokkafullar en framsögnin ekki nógu góð. Þýðingin er ágæt, textarnir skemmtilegir, heyrðist mér. Krökkunum þótti gaman og það er fyrir öllu.
Michel Houellebecq á Sólon
Franski rithöfundurinn Michel Houellebecq var hér á landi á dögunum og las bæði upp eigin ljóð (m.a. hið fræga Playa Blanca) og brot úr nýrri bók sinni, Kortið og landið, með aðstoð þýðenda sinna. Það var gaman að hlusta á hann tuldra upp úr nýju bókinni og muldra ljóðin sín á frönsku. Hann hefur skarpa sýn á hlutina og er óvæginn í gagnrýni sinni á eðli mannskepnunnar og samfélagið, það er yfir honum bæði dekadens, einmanaleiki og sjálfshatur. Friðrik Rafnsson spurði hann nokkurra spurninga um skáldskap hans og Torfi Túliníus túlkaði snilldarvel. Þýðingar Hallgríms Helgasonar á ljóðum Houellebecq eru frábærar (hvar er hægt að ná í þær?) og upplestur hans yndislegur. Ég er mikill aðdáandi verka Houellebecqs og hjartað hamaðist í brjóstinu þegar ég stóð í röð og beið eftir áritun. Hann er lítill og mjór og stórfurðulegur og hann varð brátt slompaður af nokkru magni af rauðvíni sem hann innbyrti undir upplestrinum og meðan hann svaraði fyrirspurnum. Þegar röðin kom að mér horfði á mig með skrýtnu augnaráði, ekki fjandsamlegu, og muldraði eitthvað, fyrst á frönsku og svo á ensku en ég skildi hann ekki. Loks ritaði hann nafn sitt í bókina og ég varð þeirri stundu fegnust að sleppa frá honum.

Getur Borat leikið Freddie Mercury?
Í dag var staðfest opinberlega að Sacha Baron Coen mun leika Freddy Mercury í mynd um hann sem verið er að gera og verður sýnd á næsta ári. Ekki hefði mér dottið í hug svona að óreyndu að Ali G / Borat / Bruno gæti leikið þetta hlutverk. En þegar að er gáð er þetta snilldarlegt hlutverkaval, strákurinn er sjarmatröll, nauðalíkur Freddie, frábær leikari sem getur brugðið sér í allra kvikinda líki. Í myndinni verður fjallað um ævi og tónlistarferil Freddie Mercury, rokkað hressilega með Queenlögum og endað á Live Aid tónleikunum frægu 1985. Það verður ss. sem betur fer hætt á toppnum, ekkert drama um hræðilegan sjúkdóm og dauða fyrir aldur fram. Þetta verður bara stuð.
Konur og nóbell
Kínverski rithöfundurinn Mo Yan fékk bókmenntaverðlaun Nóbels í ár en ekki Murakami sem þótti líklegur en engin kona kom til greina. Mo Yan, sem er 57 ára gamall, er sá 109. í röðinni sem fær verðlaunin eftirsóttu og Kínverji nr. 2 sem hlýtur náð fyrir augum nefndarinnar. Tólf konur hafa fengið þessi verðlaun frá upphafi, eða 9% verðlaunahafa. Hér má sjá lista yfir konur sem hafa fengið nóbelsverðlaun í bókmenntum:
The Nobel Prize in Literature
Herta Müller
Doris Lessing
Elfriede Jelinek
Wislawa Szymborska
Toni Morrison
Nadine Gordimer
Nelly Sachs
Gabriela Mistral
Pearl Buck
Sigrid Undset
Grazia Deledda
Selma Lagerlöf
Lady Gaga í Viðey
Broen, gæðastöff
Þá er það Broen í kvöld á rúv, náttföt, popp og teppi. Þetta eru spennandi sakamálaþættir og ekki spillir að fá bæði að heyra bæði dönsku og sænsku í sömu andránni. Saga Norén er sænsk hörkukerling, skipulögð, sérvitur og hugmyndarík ofurlögga með Asbergereinkenni sem þvælist ekki sérlega mikið fyrir henni og er henni stundum verulega til framdrátttar í rannsóknum á flóknum morðmálum. Martin Rohde er kammó Dani sem vill fá sér öl og spjalla og kemst þannig að ýmsu gagnlegu en lendir líka í tómu veseni. Leikarar standa sig með prýði og spennusagan er vel upp byggð. Hringurinn þrengist um morðingjann og líka um Norén og Rohde sem þurfa að taka til í einkalífinu. Aukapersónur eins og hinn dularfulli seventísgaur Stefan Lindgren og ríka tæfan með hárkolluna, fjölskyldudrama Rohdes, ris og fall blaðamannsins hrokafulla og útsmoginn raðmorðingi með pólitískan boðskap gera þetta svo allt bæði spennandi og skemmtilegt. Og best er hvað þau eru krúttlega viðvaningsleg. Hver æðir vopnlaus með pínulítið vasaljós inn í yfirgefna vöruskemmu þar sem raðmorðingi er talinn liggja í leyni?





