Tek 10 stk af bókasafninu með mér í fríið sem er hefðbundinn skammtur. Hlakka mest til að lesa Nesbö og Murakami og svo ætla ég að dunda áfram við að íslenska Mansfield.
Gullkorn
Ég sakna stundum míns fyrra starfs sem kennari en það líður hjá þegar ég hugsa til ritgerðasmíða nemenda. Ég rakst um daginn á nokkur gullkorn úr ritgerðum fyrrum nemenda minna:
…meðan faðir hennar liggur rænulaus í gröfinni
Höfundur talar í þriðju persónu eins og myndavél
Þá festist hann milli steins og sleggju
Danir sviku Íslendinga með mauróttu mjöli
Svo fór hann á eigin fótum í skóla á Bessastöðum
Þegar Salka Valka og Sigurlína komu til Óseyrar voru allar eigur þeirra í einum plastpoka
Einfalt mál
Þetta lag elskaði ég forðum. Það eldist vel.
Áferð eftir Ófeig
„Jaðrar hverrar miðborgar eru bestu blettirnir, er bara hvar sem engir túristar eru, og pláss fyrir flakkara og náttúrurannsakanda eins og mig, manninn frá landinu sem er alltaf alls staðar, manninn sem er er alltaf innfæddur, kamelljónið… Jaðrarnir já, því þangað sem túristar leita, er okur garanterað. Fyrst er okrað, svo restinni rænt. Þetta er nýtt lögmál. Og jaðrarnir færast út, það er þeirra náttúra. Útþensla heimsins; rotnunin breiðist út frá miðjunni, innan frá. Það er mengun túristanna, afmáning hefðanna, sem byrjar í miðju hverrar borgar og við sérstæð náttúrufyrirbrigði, og dreifir sér síðan um alla jörðina. Hið fagra er fyrst til að rotna. Allar fallegar borgir eru þegar rústir einar, og náttúran niðurtroðin og yfirbyggð. Að ferðast og sjá nýja staði er ekkert merkilegt lengur, það er ekkert nýtt að sjá, allt er eins alls staðar, eða á hraðri leið í þessa einsleitni. Staðsetningar eru smávægilegar. Að fara á framandi slóðir er ekki hægt, allt sama óupprunalega draslið…“ (35)
Rakst á þessa stórskemmtilegu bók (2005) eftir Ófeig Sigurðsson. Sögumaður er einn á þvælingi um heiminn, án annars tilgangs eða fyrirheits en að kynnast landi og þjóð, læra að þekkja sjálfan sig, lenda í ævintýrum, mannast, drepa tímann. Mér sýnist að hann sé kannski í Afganistan eða Suður-Ameríku en það eiginlega skiptir engu máli. Það er farið út á ystu nöf. Sögumaður er oft nær dauða en lífi í öllu ruglinu, fullur og peningalaus, kynnist alls kyns furðufuglum og grimmum örlögum, sér skrýtnar siðvenjur og borðar ógeðslegan mat, lendir í klóm grimmra landamæravarða og verður ástfanginn. Hann pælir og pælir í tilgangi jarðlífsins, eðli mannsins og fáránleikanum í heiminum. Hrikalega fyndnar persónur og aðstæðurnar óborganlegar. Efitr lesturinn situr bæði ælubragð í munni og skítaykt í nösum og það er snilld, Langt síðan ég hef lesið svona krassandi og magnaða ferðasögu, vel skrifaða og eftirminnilega. Áferð myndar tengsl við Áform eftir Houellebecq (2001), þá mögnuðu bók, þar sem túrisminn, markaðshyggjan, einmanaleiki og firring mannsins fara út í átakanlegar öfgar.
Expo í Hörpu
Snarl í miðbænum
Brakið
Lauk við Brakið eftir Yrsu. Hef verið þokkalega ánægð með sumar Þórubækurnar en ekkki var þetta skemmtileg lesning. Víða kauðslega skrifað, persónur einhliða og grunnar og söguþráðurinn soldið út úr kú. Höfundur fer þó vel með margt, s.s. lýsingar á sorg aðstandenda fórnarlambanna og mörg samtöl eru vel uppbyggð. Sögusviðið er m.a. snekkja útrásarvíkings og þar er helsta spennan í gangi en frekar er dauft uppi á landi þar sem Þóra og hin frekar pirrandi Bella símamær vaða í vilu og svíma. Þema sögunnar er grægðin og boðskapurinn alveg skýr en endalokin eru einhvern veginn slöpp. Hér þarf góða ritstjórn og grimman yfirlestur hjá bókaforlaginu því hæfileikar, hugmyndir og frásagnargáfa eru fyrir hendi. Sagan mun fara vel á hvíta tjaldinu, ekki spurning.
Gamlir taktar
Krossgötur
Ný bók Lizu Marklund um blaðakonuna þrautseigu og snjöllu, Anniku Bengtson, heitir á frummáli Du gamla, du fria sem er þýtt sem Krossgötur. Í sögunni er manninum hennar rænt og haldið í gíslingu í myrkviðum Afríku upp á líf og dauða. Sjónarhornið er til skiptis hjá henni og honum og eru kaflarnir sem gerast í gíslingunni gríðarlega spennandi. Sálarstríð og björgunaraðgerðir Anniku er ekki eins spennandi, þar er lopinn teygður með senum eins og „hún pissaði og burstaði í sér tennurnar…“ þar til maður fær alveg nóg. Endirinn er óvæntur og sýnir alveg nýja hlið á þeim hjónum en ég var þeirri stundu fegnust þegar ég lauk við bókina. Ofbeldið er gríðarlegt og spennan oft óbærileg en frásögnin er langdregin og lágreist og þýðingin er víða ansi kæruleysisleg. Í bókinni kemur vel fram snörp ádeila á okkur Vesturlandabúa sem hugsum bara um okkur sjálf og skeytum engu um örlög meðbræða okkar í öðrum heimsálfum. Við stuðlum að vopnasölu, barnaþrælkun og blóðdemantasölu og hirðum arðinn af viðskiptunum til að geta búið enn betur um okkur og makað krókinn. Vondu Vesturlönd.
Kvennahlaupið 2012
Skrapp í kvennahlaupið á laugardaginn en var ekki sérlega vel undirbúin. Átti ekki einu sinni orkustöng til að naga áður en hlaupið hófst og fór því þessa 10 km eingöngu fyrir eigin vélarafli. Enda var ég fljótlega orðin rangeyg, rennsveitt og lafmóð, þurfti að stoppa til að kasta mæðinni og reima annan skóinn, og síðustu 2 km voru erfiðastir. En mér tókst að vera undir 60 mín! (59.56) og var lengst af á góðum hraða en það kom töf eða hik hjá mér í lokin þar sem markið var ekki alveg auðfundið. Veðrið var frábært og svo heitt að ég skokkaði í skugganum þar sem því var viðkomið. Ég gleymdi alveg að taka mynd. Eftir hlaupið voru svo dýrindis veitingar hjá Þuru og Skúla að vanda.




