10 km eins og ekkert sé

Ég get hlaupið tíu km, án þess að stoppa og kasta mæðinni! Ég komst að því í Reykjavíkurmaraþoninu í dag þegar ég tók í fyrsta skipti þátt í opinberum íþróttaviðburði. Veðrið var eins og best verður á kosið og stemningin frábær, hvatningarhróp og gleðilæti á hverju horni svo maður var næstum hrærður. Slökkviliðsmenn fá fimm stjörnur frá mér en þeir hlupu sveittir og stæltir í útigalla með fatlaða í kerru. Ég var nr 2778 í röðinni af 4307 konum. Og tíminn (lokatími og „flögutími“):

2778 7095 Steinunn Inga Óttarsdóttir IS200 F 40 – 49 ára 340 01:07:17 01:04:17

Hnémeiðsl

RM eftir 2 daga, stress í hámarki og skipulagið allt í klúðri. Bæði hef ég lítið æft í vikunni og svo sneri ég eitthvað upp á hnéð á mér í dag þegar ég var að klöngrast yfir girðingu. Ég læt það samt ekkert stoppa mig, fæ mér bara voltaren og hnéhlíf. Ætli fall sé ekki fararheill?

Gömul mynd

Þessi mynd (1966) úr albúminu á Borgarfelli er margfræg. Þarna erum við Soffía, bestu frænkur og vinkonur, en það vorum við ekki þegar myndin var tekin. Soffía er stærri og eldri en ég og var þess vegna látin passa mig þegar ég var í heimsókn á Þórshöfn. Eins og sést á svipnum á Soffíu er hún ákveðin í að losna við þessa stelpurófu strax á næsta horni. Hún ætlar ekki að dragnast með hana stundinni lengur. Hún hefur ýmis hrekkjabrögð í hyggju ef draugasögurnar duga ekki sem hún sagði mér kvöldið áður. En þá gat ég bara hlaupið skælandi heim og klagað í Vilborgu eða „Díöddu“ sem hugguðu mig alltaf og hresstu.

Kjötskortur

Í Fréttablaðinu í dag er verið að tala um kjötskort á Íslandi. Hvað er nú það? Ef það er ekki til kjöt í búðinni þá fæ ég mér bara fisk eða brauð eða eitthvað annað. Það þarf ekki kjöt frá útlöndum mín vegna. Og svo vilja innlendir kjúklingaframleiðendur fá að setja jafnmikið vatn og sykur í vöruna sína  eins og er í innfluttu kjúklingakjöti (allt að 20%), eins og fram kom í sömu blaðagrein. Allt snýst þetta jú um að slíta peninginn af kúnnanum. En er ekki meiri kjötskortur í Afríku þessa dagana?

Íslenskur fjárhundur og íslensk þjóð

Ég heyrði skemmtilega samlíkingu hjá snillingnum Hjörleifi Hjartarsyni frá Tjörn í Svarfaðardal en hann var var í þætti Sirrýjar sl. laugardagsmorgun á rás 2. Hjörleifur benti á að íslenska þjóðin á margt sameiginlegt með íslenskum fjárhundi og það er alveg laukrétt. Hann er alltaf með eyrun sperrt og hringaða rófuna, glaður og stoltur af sjálfum sér og afrekum sínum, fallegur á feldinn og hreinræktaður. Hann er geltandi og gjammandi í tíma og ótíma og hleypur flaðrandi upp um húsbændur sína sem sparka í  hann hvenær sem þeir geta. Hann er gjörsamlega gagnslaust húsdýr og vonlaus smalahundur: þegar menn eru búnir með þolinmæði og þrautseigju að koma safninu á einn stað, tvístrar hann því á augabragði og kemur svo á sprettinum til húsbóndans og býst við verðlaunum.

Maraþon, já sæll!

Ég er búin að skrá mig í Reykjavíkurmaraþon, 20. ágúst. Ætla að skrönglast 10 km hvað sem tautar og raular, vona að ég lifi það af og að starfsmenn hlaupsins verði ekki farnir heim þegar ég kem í mark. Nú þarf maður víst að fara að æfa sig, við Þóra hlupum rólega 5,6 km í blíðunni í dag og tókum stigann í tveimur lotum.

Enn er sumar

Sumarið er ekki búið! Ágúst er oft drjúgur með heitum dögum og húmdimmum nóttum.  Um helgina fórum við í Þjórsárdal, í gegnum Þingvelli og Laugarvatn. Gullfalleg leið. Við gistum í Sandártungu sem er frábærlega fallegt tjaldstæði þar sem hver og einn getur komið sér vel fyrir í litlu rjóðri, með afar snyrtilegri aðstöðu í hvívetna og merktum gönguleiðum í fallegu skóglendi. Á heimleiðinni var Geysir/Strokkur heimsóttur og svo var karríkjúklingur með ananas eldaður á bílastæðinu áður en ekið var heim um kvöldið  í síðsumarsólinni.

Hvað varð um Kim Wilde?

Breska eitíssöngkonan Kim Wilde (f. 1960) er flestum gleymd á Íslandi. Hins vegar er hún enn að syngja og nýtur víða mikilla vinsælda í Evrópu, t.d. í Þýskalandi (sem er nú alltaf frekar púkalegt). Hún hefur gert nokkar plötur sem hafa selst vel og haldið tónleika í mörgum löndum við mikinn fögnuð. Nýlega undirritaði hún plötusamning við Sony og von er á koverlagaplötu frá henni í lok þessa mánaðar. Ég bíð spennt, kannski mætir hún í Hörpu? Hér er eitt stuðlag með henni (gamla Supremes-lagið), textinn þrunginn boðskap og vindasamt vídeóið táknum hlaðið.

Dynheimar 1982

Á Dynheimaballinu á Akureyri um verslunarmannahelgina var þetta tekið með stæl á einu sveittasta og fjölmennasta balli sem ég hef verið á í mörg ár. Var alveg búin að gleyma þessu lagi og skildi þetta aldrei: „I think they got the alias, that you´ve been living under“. Þetta er heilræðavísa til stúlkunnar Gloríu sem er að gera einhverja gloríu. Etísvídeó og eitíslag frá helvíti:

Slysaskot

„Það bar við á þessu vori (1851), að Hallgrímur Hallgrímsson, bóndi að Vík í Flateyjardal, ætlaði að draga skot úr byssu. Hljóp það óvænt af meðan hægri handleggur hans hvíldi á byssuopinu og hljóp skotið gegnum handlegginn. Var hjeraðslæknir Eggert Johnsen á Akureyri þegar sóttur og sneið hann af honum handlegginn nokkru fyrir ofan olnboga. Eftir það hann hafði þannig heppilega lokið þessu verki kauplaust og jafnframt tekið eftir hinum bágu heimilishögum þessa fjölskyldumanns, sýndi hann ótilkvaddur það veglyndi, er hann var kominn heim, að gangast fyrir gjafasöfnun handa hinum limlesta sjúklingi meðal kunningja sinna og mannvina á Akureyri, svo að hann vonum fyr sendi 100 rd. honum til hjálpar í fátækt hans og atvinnutjóni. … – Eftir þetta smíðaði Hallgrímur margt með einni hendi, svo að snild var að.“ (Annáll nítjándu aldar, II. bindi 1831-1856: 318-19, safnað hefur Pjetur Guðmundsson, prestur í Grímsey)