Mannlýsing

Jón landlæknir var meðalmaður á hæð og vel þrekinn og sterklegur, ekki feitur, sköllóttur snemma, með mikið kinnskegg; hann var margfróðastur manna um allt sem fram fór í heiminum og lagði sig mest eftir ensku; má vera að Magnús í Viðey hafi haft áhrif á hann því Magnús var mesti enskumaður. Jón átti margar góðar bækur, einkum um lækningar og náttúruvísindi en einnig söguleg verk, og var hann vel að sér í hvívetna þótt ekki væri hann beinlínis vísindamaður. Hann var sá ótrauðasti og ötulasti læknir sem hugsast getur og vitjaði sjúklinganna hvað sem það kostaði, endar var hann sterkur og ákaflega heilsuhraustur, hófsmaður mesti, skemmtinn og glaðvær og jafnlyndur; hann óð Hraunsholtslæk í beltisstað í hörkugaddi og í annað sinn var hann sóttur frá Ráðagerði eða Gróttu um nótt í vetrarhörku; beið maðurinn eftir  honum og hélt hann væri að búast á stað; en eftir nokkuð langa stund kemur Jón þar að honum fyrir utan húsið, og var þá kominn aftur utan af nesinu. Innan húss var hann afskiptalítill, eða sýndist vera. Elín Thorstensen  var skörungur mikill, stór og fönguleg, og höfðingleg sem hún átti ætt til, og undir eins fannst einhver höfðingjabragur þegar inn var komið í „Doktorshúsið“. Þrír voru „drengirnir“, Jónas, Stefán og Theodór; dætur tvær: Ragnheiður og Guðrún. Við Jónas vorum hér um bil jafn gamlir og urðum brátt vinir þótt við værum ólíkir að eðli því hvor hefur fundið hjá öðrum það sem sig vantaði; hann er einn af þeim fáu – kannski sá eini, sem ég get kallað vinar nafni, og hélst það meðan hann lifði.

Dægradvöl, 2014:87-88

Dægradvöl

Dægradvöl eftir Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson (1826-1907) er nýkomin út í kilju, merktri „íslensk klassík“ (síðast birtist hún á rafbók 2010). Ég er alveg dottin ofan í hana og er með ritdóm í smíðum sem birtist í Kvennablaðinu fljótlega. Dægradvöl er eitt af lykilverkum íslenskrar bókmenntasögu, á gullaldarmáli, fyndin og fróðleg og einstök meðal íslenskra sjálfsævisagna, því Gröndal hlífir engum í samtíðarspegli sínum, síst sjálfum sér. Í grúski mínu rakst ég á þessa mynd af Gröndal (eftir Ólaf Th Ólafsson), hún er táknræn og doldið falleg. Bóhem með sveitalegt skólasetrið í bakgrunni, bókamaður og fagurkeri sem sker sig úr umhverfi sínu.

 

Image

Fyndin bók

Langt er síðan ég hef lesið jafnfyndna, beitta og stórskemmtilega bók og þessa, Hermann (1989) eftir Arnmund S Bachman. Um hann segir í Mbl. 10.júní 1999: „…Arnmundur S. Backman hæstaréttarlögmaður, andaðist í september síðastliðnum, langt um aldur fram. Hann var þjóðkunnur sem lögmaður, lögfræðiráðgjafi og aðstoðarmaður ráðherra og beitti kröftum sínum einkum í þágu þeirra sem minna máttu sín. Hæfileikar hans á sviði lista komu snemma í ljós. Hann hafði þá tónlistargáfu að geta spilað á svo til hvaða hljóðfæri sem var, auk þess sem hann var góður söngmaður. Þegar sem unglingspiltur var hann farinn að leika fyrir dansi. Síðan var hann meðal stofnenda og félaga í Busabandinu í Menntaskólanum á Akureyri, þjóðlagatríóinu Þremur háum tónum og Eddukórnum. Hann samdi einnig sönglög við ljóð ýmissa skálda. Arnmundur byrjaði ekki að sinna ritstörfum af alvöru fyrr en hann var kominn á fimmtugsaldur, enda þótt hann hefði alla tíð skrifað mikið, bæði skáldskap og annan texta. Frá hans hendi komu, að honum lifandi, tvær skáldsögur, Hermann (1989) og Böndin bresta (1990), og tvö leikrit, Blessuð jólin og Maður í mislitum sokkum. Fyrir síðustu jól kom út síðasta skáldsaga hans, Almúgamenn“. 

Ekki láta Hermann ykkur úr greipum ganga ef þið verðið svo heppin að rekast á eintak.

 

Árni Magnússon

Eigi að lýsa útliti hans, þá var hann með stærstu og hæstu meðalmönnum, holdugur og þrekinn en hafði nettar og smáar hendur. Samsvaraði sér vel í andliti, var jafnleitur, bar með sér persónuleika fyrirmanns, sem er yfir aðra settur. Hann var svartur á hár, skegg og augabrýr, lét krúnuraka hvirfilinn. Var nokkuð langleitur í andliti, fulllur að vöngum, hvítleitur, ekki bleikfölur (…). Augun voru venjuleg og blá, hvorki svört, gul eða grá, og voru líkt og nokkuð kyrrstæð, augnaráðið stillt og óhvikult. Þó var líkt og hann hefði einhver skugga yfir augu og augabrúnum, eitthvað sem gefur í skyn að leyndarmál liggi á hjarta. Nefið var nánast beint og munnurinn venjulegur, að öllu samanlögðu var allt andlitið fullkomið og hver líkamshluti í samræmi við annan. Og svipurinn sýndi stöðuglyndi, alvörugefni og íhygli, það er að segja, andlit hans hæfði og sýndi lærðan og atkvæðamikinn mann. Hann var ekki fljótmæltur, hafði áhersluþunga líkt og hann vildi festa allt sem hann sagði í hug viðmælanda síns. Hann var nokkuð hægur í hreyfingum og augnatilliti en öruggur og einnig hafði hann ákveðið og fast göngulag. Allur líkami hans var gildur, þykkur og karlmannlegur. Að öllu samanlögðu var maðurinn jafn traustur að útliti sem innræti og bar þess sýnilegan vott.

Ævisögur ypparlegra merkismanna eftir Jón Ólafsson úr Grunnavík

Úr Draumi um Ljósaland, 1943

Hvers vegna er konan svo viðkvæm fyrir sæmd mannins? Hvers vegna hefur hún frá örófi alda brýnt hann til dáða, jafnvel att honum útí hermdarverk, ef hún hefur álitið, að hugrekki hans og karlmannlegt atgervi yrði að öðrum kosti vefengt og orðstí hans hætta búin? er það ekki vegna þess, að heiður mannsins er um leið heiður hennar og líf – ódauðleiki hennar? Á öllum öldum hefur verið spurt, hvers móðir, hvers systir, hvers kona, hvers dóttir hún sé, við hlið mannsins hefur sagan skipað henni sess, sem einstaklings hefur hennar sjaldan verið getið. Og þótt hún hafi nú vaknað til skilnings á því, að hún geti ráðið yfir ævikjörum sínum, skapað sér nafn og sögu, lifir þó í blóði hennar þessi arfur frá hundruðum formæðra, þessi krafa um að maðurinn sé henni meiri, hann hafi ekki aðeins styrkari arm, heldur einnig sterkari vilja, heilli hug, hann sé athvarf hennar og upphefð, hann eigi að vera tákn þess, sem bezt er á hverjum tíma. – – –

Þórunn Elfa Magnúsdóttir 1943

Draumur um Ljósaland II, bls 305

Image

Þórunn Elfa (1910-1995)

Mynd úr safni Morgunblaðsins

Hljóðin í nóttinni

Hljóðin-í-nóttinniMinningasaga Bjargar Guðrúnar Gísladóttur, Hljóðin í nóttinni, hefur valdið miklu fjaðrafoki undanfarið.  Aðallega vegna þess að þar er sagt frá kynferðislegri misnotkun þekkts barnakennara gagnvart nemendum sínum. En það er fleira áhugavert í bókinni því Björg Guðrún gerir upp við fortíðina, segir frá uppruna sínum og barnæsku í Reykjavík á sjöunda áratugnum, erfiðri lífsbaráttu eftir að hún komst á legg, höfnun, þunglyndi, átröskun, vonbrigðum, ofbeldi og sársauka. Fjölskylda hennar bjó fyrst í Höfðaborginni, en það var bráðabirgðahúsnæði sem hrófað var upp til að mæta húsnæðisleysi í Reykjavík um 1940. Íbúðirnar voru pínulitlar og hrollkaldar, hreinlætisaðstaða var bágborin, skólpleiðslur lágu ofanjarðar, gólfin voru sigin, veggirnir þunnir og gisnir og vatn fraus í pípunum á veturna. Þegar Björg byrjaði í skóla fylgdi fúkkalyktin henni og fékk hún fljótt að heyra að hún væri höfðaborgarskríll og tossi, ruslaralýður og bæjarpakk.  Nemendum var á þessum tíma raðað í bekki að undangengnu þroskaprófi en börn fátækra foreldra voru sett saman í hóp svo hægt væri að sinna heldri manna börnum betur. Þarna kynntist Björg ofbeldi kennarans sem káfaði á bekkjarbræðrum hennar í skriftartímum. Heimilislífið einkenndist líka af ofbeldi, andlegu , líkamlegu og kynferðislegu, ásamt stanslausri drykkju og fátækt. Sagan nær  yfir þrjár  kynslóðir kvenna, ömmunnar sem djöflaðist áfram á hörkunni, móðurinnar sem var fíkill í  ofbeldissambandi og svo Bjargar sem brýst út úr aðstæðunum og leitar sér hjálpar. Myndin sem dregin er upp af þessum konum er óvægin og lýsir vel samfélagi, viðhorfum og ríkjandi hugmyndafræði þeirra tíma.

Uppvöxtur við þær aðstæður sem lýst er veldur kvíða og sálarkvölum sem fylgja fólki fyrir lífstíð.  Í bókinni er bæði varnarleysi barnsins og angist unglingsins komið vel til skila. Björg Guðrún lýsir því hvernig sjálfsmyndin brenglast, henni finnst hún vera ljót og hallærisleg, engum þyki vænt um hana og hún er sannfærð um að allir megi traðka á henni af því að hún eigi það skilið. „Þegar ég horfði í spegil sá ég ekkert jákvætt við mig. Eitt skiptið varð ég svo reið út í sjálfa mig að ég beit í handlegginn á mér. Sjálfshatrið öskraði á mig í spegilmyndinni, ég var ógeðsleg. Stundum gat gripið mig sterk löngun til að meiða mig, ná einhverri stjórn  á sársaukanum inni í mér, það hlyti að vera skárra að finna til í líkamanum en að líða illa í hjartanu“ (153). Í bókarlok kemur fram að þrír bekkjarbræðranna er dánir en einn þeirra var sendur á vistheimili vestur á fjörðum sem síðar kom í ljós að var helvíti á jörðu (251). Björg Guðrún er enn einn höfundurinn sem stígur fram af miklu hugrekki og lýsir því hvernig kerfið og samfélagið brást börnum sínum á þessum tímum.

Á bókarkápunni er hin táknræna og fræga mynd af af engli sem gætir barna sem fikra sig yfir hengibrú. „Ég velti oft vöngum yfir því hvort einhver engill gætti okkar systkinanna. Ég var ekki viss um að englarnir vildu vera hjá okkur. Ég gat ekki séð fyrir mér að englar þyldu mikil læti eins og oft voru heima hjá mér… Líklega gæta þeir bara barna sem eru alltaf góð og í nýjum fötum, sem eiga heima í fallegum húsum og góð lykt er af“ (100). Björg Guðrún er viljasterk og ákvað að takast á við sársaukann sem hélt henni í heljargreipum.  Seinni hluti bókarinnar snýst um uppgjör og hægfara bata með aðstoð sérfræðinga. Gamla sannfæringin úr barnaskóla um að hún væri heimsk og skítug víkur smátt og smátt og hún tekst á við djöfla sína og guð. Í frásögn Bjargar Guðrúnar af uppgjöri við föðurinn, sem er barnaníðingur, takast á vorkunn og viðbjóður en hún sýnir mikinn þroska og yfirvegun þegar hún áttar sig á að hún getur ekki tekið ábyrgð á gerðum hans (242). Hljóðin í nóttinni er eftirminnileg og vel skrifuð sjálfsævisaga, full af grimmd og andstyggð sem sagt er frá af heiðarleika og einlægni. Hún er hetjusaga um vítahring angistar og örvæntingar og grýtta leið til sáttar og bata. Um leið er varpað ljósi á skömm í sögu þjóðarinnar sem hefur verið falin alltof lengi. „Orðin sem þurfti að segja hafa verið sögð“ (252) segir í lokaorðunum en hætt er við að svo sé ekki, því miður.