Rodriguez, týndur og gleymdur, en var samt frægari en nokkurn óraði fyrir. Frábær lög og heillandi söngur.
Gamlir ritdómar
Ég rakst á ritdóma frá 1999 í iðrum tölvunnar, m.a. fyrsta ritdóminn sem ég skrifaði. Silja Aðalsteinsdóttir var þá ritstjóri menningarblaðs DV, eldklár og frábær kona, hún gaf mér tækifæri og kom mér á kortið. Dómarnir eru undir Bókmenntagagnrýni hér á síðunni.
Arto Paasilinna – Ár hérans1
Páll Pálsson – Burðargjald greitt
Björn Th. Björnsson – Hlaðhamar
Bragi Ólafsson – Hvíldardagar
Hrafn Jökulsson – Miklu meira en mest
Eysteinn Björnsson – Í skugga heimsins
Páll Hersteinsson – Línur
Ernest Hemingway – Satt við fyrstu sýn
Árni Bergmann – Sægreifi deyr
Elín Ebba Guðmundsdóttir – Ysta brún
Að elska of mikið
Áttugasta og fjórða Neonbók Bjarts, Í leyfisleysi eftir Lenu Andersson, kom út á dögunum. Þórdís Gísladóttir þýddi úr sænsku og tekst vel að halda tilgerðarlausum og klínískum stíl Anderssons til haga. Söguþráðurinn er kunnuglegur, kona verður ástfangin af þekktum listamanni, karl er í meðallagi hrifinn en hún verður fórnarlamb sjálfsblekkingar og vonar sem nærist á einu orði, raddblæ, örlitlu brosi eða bliki í auga (195). En þrátt fyrir gamalkunnugt plott er hér er frumlega farið með efnið. Vandlega er fylgst með framvindu ástarsambandsins með tilheyrandi væntingum og síðar angist aðalpersónunnar, Esterar. Hún er tilbúin til að fórna ýmsu fyrir ástina sem hún ber til Hugo en sama gildir ekki um hann. Það sem í huga hans er þægileg dægradvöl er hjartans mál fyrir Ester sem sveiflast milli vonar og ótta og þjáist bæði á sál og líkama yfir stuttaralegum tilsvörum Hugos, afskiptaleysi og ósvöruðum sms-um. Því meira sem hún þráir Hugo, því meir fjarlægist hann. Með tímanum sækja höfnunartilfinning og biturð að Ester en alltaf lifir hún í voninni. Jafnvel þótt vinkvennakórinn reyni að leiða henni fyrir sjónir að orustan sé löngu töpuð.
Þau hjúin eru jafnólík og dagur og nótt. Hann er sjálfhverfur í frægðarljóma sínum, léttur á bárunni, þrífst á aðdáun annarra og rígheldur í frelsi sitt og sjálfstæði, hún er nákvæm og gagnrýnin, orðheppin og tilbúin í langtímasamband. Fyrir honum er tíminn fljótandi en hún er vön tímasetningum og skipulögðum fundum, líf hennar verður eintóm bið eftir áheyrn hjá honum, hans líf snýst fyrst og fremst um að þjóna list sinni og losta. Hann hefur völdin og hún þarf að stíga varlega til jarðar til að fæla hann ekki frá með krefjandi örvæntingu sinni: „hún átti að vera glöð og hress þegar þau hittust í kvöld, ekki ásakandi og vonsvikin, ekki sýna neitt af því sem kraumaði innra með henni“ (76)
Ástin er þversagnarkennt fyrirbæri, með sínar endalausu flækjur, kröfur og væntingar. Hvað þýðir sameiginlegur morgunmatur eftir heita ástarnótt? Er það næring og orka til að takast á við daginn framundan? Eða yfirlýsing um ást og skuldbindingu? Og ef maður vill ekki morgunmatinn, er það þá flóttaleið til að sleppa við nánd? Hversu langur tími á að líða frá ástarfundi þangað til maður hringir?
„Hún var ákveðin í að hringja ekki í hann. Hann vann mikið, hún varð að sýna honum virðingu og að hún væri sjálfstæð, óháð og fullorðin manneskja með stjórn yfir eigin lífi án þess að vera í stöðugu sambandi. Vissulega fannst henni undarlegt ef einhver vildi ekki vera í stöðugu sambandi við manneskju sem viðkomandi væri nýbyrjaður í ástarsambandi með, en hún varð að hafa aðlögunarhæfni“ (90).
Í sögunni er m.a. fjallað um tungumál ástarinnar, um þagnir og orð sem eru endalaust misskilin og oftúlkuð. „Í hita augnabliksins áttaði Ester sig ekki á að setningar gætu verið léttar og álíka útbrunnar og aska. Þeim var dreift af kæruleysi, þær sáldruðust niður, ein og ein. Orð voru ekki traust minnismerki um skoðanir og sannleika. Þau voru hljóð til að fylla þagnir“ (123). Frasi eins og „verðum í sambandi“ er léttúðugur hjá þeim sem lítið elskar en tendrar vonarglætu og felur í sér skuldbindingu fyrir manneskju sem er ástfangin.
Sagan fjallar ekki síður um kynhlutverkin sem þróast hafa í menningunni í aldanna rás. Vilja karlar ekki það sama og konur? Veitir nokkurra daga ástarsamband Ester sérstakan rétt til að krefjast einhvers af Hugo? Stendur Hugo ógn af gáfum og orðfimi Esterar? Er hann svikari? Snýst ástin um vald, þvingun? Er Ester of aðgangshörð, er hún harðstjóri? Ástarklisjurnar eru krufnar til mergjar í sögunni, sambandið er skilgreint lið fyrir lið, orð og framkoma beggja aðila túlkuð og stúderuð. Miði á ísskápnum er táknrænn og lýsir Ester vel, hún skrifar á hann ástarorðin þrjú og skilgreinir setningarfræðileg hlutverk þeirra í huga sér, „frumlag, sögn, andlag“ (87). Þessi makalausa ástarsaga er ekki laus við íroníu og er býsna grimm á köflum en undirliggjandi er samúð með þeim sem láta blekkast af tálvonum ástarinnar og elska of mikið.
Enginn svefnfriður ef þessi er á náttborðinu
„Lars Kepler“ er dulnefni sænskra hjóna sem ákváðu að leggja í púkk og skrifa saman sakamálasögur. Verk þeirra eru mergjuð og hafa enda slegið í gegn, verið þýdd á fjölmörg tungumál og seljast í bílförmum. Parið hefur skrifað svo til eina bók á ári frá 2009 og í haust er væntanleg fimmta bók þeirra, Stalker (Eltihrellir), sem vonandi verður þýdd á íslensku hið snarasta. Sandmaðurinn frá 2012 kom út í afbragðsgóðri þýðingu Jóns Daníelssonar á síðasta ári og er ómissandi sumarlesning.
Raðmorðinginn ógurlegi, Jurek Walter, hefur setið inni á lokaðri geðdeild í Svíþjóð í 13 ár þegar eitt meintra fórnarlamba hans finnst á lífi. Þrjóskasta lögga í heimi, hinn finnskættaði Joona Linna, tekur málið upp og þar með hefst hrikalega spennandi atburðarás sem lesandinn sogast inn í og endar með ósköpum. Helstu persónur sögunnar eru listavel smíðaðar. Joona Linna er hörkunagli sem hefur fórnað lífshamingju sinni fyrir öryggi fjölskyldunnar, hann er ráðagóður og einbeittur, eldklár og gefur sig aldrei ef hann telur sig vera kominn á sporið. Hann þaulþjálfaður í sjálfsvörn og bardaga í návígi að hætti ísraelska hersins og bregður sér hvorki við sár né bana. Fyrri hluti bókarinnar fer í að rifja upp forsögu Jurekmálsins og það er ekki fyrr en eftir 150 blaðsíður sem Saga, hin aðalpersónan, birtist. Hún er yfirfulltrúi hjá Öryggislögreglunni og ekki minni jaxl en Jooni. Hún er fimur boxari, hárnákvæm skytta og sérmenntuð í yfirheyrslutækni auk þess að vera svo fögur að flestir „sem sjá hana fyllast undarlegum söknuði. “ (150). Hún fær það flókna verkefni að ná til Jureks Walters innan rimlanna og veiða hann í net sitt.
Að vera grafinn lifandi hlýtur að vera ein versta martröð sem til er og það er einmitt aðferðin sem Jurek Walter notar. Hann er stórhættulegur maður, skarpgreindur og snarbrjálaður. Jurek er haldið í algerri einangrun og starfsfólkið á geðdeildinni setur í sig eyrnatappa því hann býr yfir seyðandi afli sem fær fólk til að skelfast hann og hlýða skipunum hans umyrðalaust. Í sögunni kemur skýrt fram að lög og mannréttindi eru að engu höfð á deildinni, sjúklingar eru beittir valdi og sprautaðir með lyfjum til að auðveldara sé að eiga við þá. Það hindrar Jurek samt ekki í ætlunarverki sínu og grimmd hans virðast engin takmörk sett.
Nokkrum hliðarsögum fer fram um leið og spennan vex og allt er þetta afar vel smíðað. Hinn þjóðsagnakenndi Sandmaður gegnir svipuðu hlutverki og Óli Lokbrá, en það sofnar enginn fyrr en þessi bók er á enda lesin. Langt er síðan ég hef lesið svo magnaðan reyfara og löngu eftir að ég lauk við hann velti ég enn fyrir mér örlögum persónanna. Og sagan er ekki búin, enn meiri ógn og hryllingur bíða í næstu bók.
Einfalt trikk
Piparkökuhúsið er fyrsta bók Carin Gerhardsen og kom út í Svíþjóð 2008. Hún er auglýst í fjölmiðlum hér á landi sem „Spennutryllir sumarsins“ og stendur fyllilega undir því. Bókin hefst á átakanlegri senu þar sem hópur barna níðist á skólafélaga sínum af stakri grimmd. Sjálf segist Gerhardsen hafa orðið fyrir einelti í skóla svo hún þekkir það af eigin raun. Í sögunni snýr fórnarlamb eineltis aftur áratugum síðar og tekur til við að myrða kvalara sína með grimmdarlegum hætti. Tveir lögreglumenn í Hammarby vinna aðallega að málinu, Sjöberg, sem er viðkunnanlegur vel giftur margra barna faðir, og einhleypi töffarinn Petra Westman sem lendir sjálf í ofbeldisglæp í sögunni. Þau skötuhjú eru sosum engar ofurhetjur og fara lengi villur vegar við lausn málsins. Lesandinn heldur allan tímann að hann viti meira en löggan en niðurstaðan kemur á óvart og eftir á að hyggja er trikkið í því ótrúlega einfalt.
Dagbókarfærslur morðingjans sem fleyga söguþráðinn sýna glöggt að þolandinn hefur beðið mikið tjón á sálu sinni vegna eineltisins. Grimmdin er heiftarleg, morðunum er lýst í smáatriðum og hefndin felst í að láta gerendur og þá sem efndu til ofbeldisins horfast í augu við glæp sinn áður en líftóran er murkuð úr þeim. „Þið eyðilögðuð ekki aðeins bernsku mína, þið rústuðuð öllu mínu lífi. Það sem þið gerðuð … var að eyðileggja heilt líf. Þú dæmdir mig til að lifa vinalausu og gleðisnauðu lífi í algjörri einangrun…“ (209). Eineltið átti sér fyrst stað í leikskóla og kennarinn sem býr í piparkökuhúsinu horfði framhjá því og taldi það ekki í sínum verkahring að stöðva það. Boðskapur sögunnar er skýr, skeytingarleysið er jafnstór glæpur og ofbeldið sjálft. Hver er sekur, sá sem sviptir meðbræður sína lífsgleði og sjálfstrausti með síendurteknu andlegu og líkamlegu ofbeldi, sá sem skiptir sér ekki af eða sá sem hefnir harma sinna?
Nanna B. Þórsdóttir þýddi bókina ágætlega. Carin Gerhardsen hefur skrifað fleiri bækur um lögreglumennina í Hammarby sem njóta mikilla vinsælda þar í landi og væri gaman að fá að fylgjast meira með þeim. Sagan er vissulega hörkuspennandi og gott er að gæða sér á Piparkökuhúsi með heitum kakóbolla í sumarrigningunni.
Trúbador í morgunsárið
Sumarfrí, tebolli og rúv. Hengi út þvott og glugga í bók. Heyrði þá þennan dásamlega tónlistarþátt í morgun, Blik: http://www.ruv.is/sarpurinn/blik/16072014-0 en þar voru kunnugleg lög leikin í nýjum búningi. Lagið á ca 27 mín hitti mig beint í hjartastað. Það er danski trúbadorinn Povl Dissing sem syngur Det var en lördag aften við nýjan takt og texta. Ég fyllist af orku og sumargleði.
Svarti engillinn
Um helgina var haldið málþing til að heiðra minningu Matthíasar Viðars Sæmundssonar (1954-2004), fræðimanns og kennara í íslenskum bókmenntum við Hí. Matthías var eftirminnilegur karakter, ávallt var hann svartklæddur og dulúðugur, kennslustundirnar voru uppljómun, hann brýndi nemendur sína óspart og og skrifaði viðstöðulaust á töfluna í kennslunni. Afköst hans í fræðunum voru gríðarleg og sýn hans á bókmenntir skörp og djúp. Áhrifa hans gætir víða og ómögulegt að segja hverju hann hefði áorkað frekar hefði hann ekki látist um aldur fram. Í tilefni af málþinginu grúskaði ég í gulnuðum glósum úr HÍ og rifjaði upp gamla daga. Fyrir tuttugu árum, á vormisseri 1994, kenndi Matthías námskeið á M.A stigi sem hét Bókmenntir í lausu máli 1550-1800. Það var metnaðarfullt og krefjandi námskeið eins og allir kúrsar sem hann kenndi og svona lagði hann það upp:
„Á þessu námskeiði verður öðru fremur fjallað um bókmenntir og menningu tímabilsins frá 1750 og fram á öndverða 19. öld. Hugað verður að uppkomu „nútímalegs“ frásagnarskáldskapar með lestri og túlkun prentaðra og óprentaðra texta frá þessum tíma. Í því samhengi verður fengist við hugmyndir M. Bakhtins um „skáldsagnagervingu“ og samband epísks skáldskapar, rómönsu og skáldsðgu, með sérstöku tilliti til íslenskra aðstæðna. Jafnframt þessu verður fjallað um „sjálfsmyndun“ í ævisögum 18. aldar, uppkomu þeirra og tengsl við alþjóðlega ævisagnaritun. Í því samhengi verður hugað að tilurð og upplausn „kristinnar“ sjálfsmyndar með hliðsjón af verkum Foucaults, heilags Ágústínusar og G.G. Harpham. Námskeiðinu verður skipt í þrjá hluta:
1. Fyrirlestrar um bókmennta- og menningarsögu (6 vikur)
2. Sjálfsmyndunarfræði. Heimspekileg og táknfræðileg umfjöllun (4 vikur)
3. Verkefni og fyrirlestrar nemenda (3 vikur)…“
Er óhætt að segja að námskeiðið breytti fálmkenndri menntunarstefnu minni og fræðimennsku, ég smitaðist af eldmóði Matthíasar og lagði í framhaldi stund á 18. aldar fræði, tók síðan fleiri kúrsa hjá honum, skrifaði lokaritgerð undir hans leiðsögn um ferðasögur Íslendinga frá upphafi til 1835 og hef grúskað í þeim fræðum síðan.
Með mér á þessu námskeiði forðum daga voru m.a. Eirikur Gudmundsson, Steinunn Haraldsdóttir, Sigríður Þórðardóttir, Jón Özur Snorrason, Þröstur Helgason, Eva Hauksdottir, Halldóra Thoroddsen, Laufey Einarsdóttir, Guðlaug Gísladóttir, Svanhildur Gunnarsdóttir, Þ. Kári Bjarnason og Hermann Stefánsson, allt hörkulið og áhugasamir nemendur sem síðan hafa látið að sér kveða á ýmsum sviðum menningarinnar. Á þinginu héldu tveir nemendur sem voru á námskeiðinu áhugaverð erindi, þeir Hermann og Þröstur. Því miður náði ég að aðeins 1/3 af þinginu vegna anna í félagslífinu en hugga mig við að rúv var á staðnum. Ég bý enn að því sem Matthías kenndi um rof og samhengi, þekkingu, vald og skynsemi, ofbeldi, sársauka, dauða og geðveiki í bókmenntum fyrri alda. Minningin lifir um merkismanninn og engilinn svarta, Matthías Viðar Sæmundsson.
Kvennafangelsið
Einfalt próf sem kennt er við Alison Bechdel er notað sem greiningartæki á myndefni til að mæla og sýna hlut kvenna. Þrjú skilyrði þurfa að vera til staðar til að standast prófið. Efnið verður í fyrsta lagi að innihalda fleiri en tvær nafngreindar konur, helst í aðalhlutverkum, þær þurfa í annan stað að eiga samtal og samskipti sem í þriðja lagi mega ekki snúast um karlmenn. Merkilega fáar bíómyndir og sjónvarpsefni standast þessar kröfur fyllilega, einkum gerist það sjaldan að samtöl kvenna snúist um annað en karla.
Sjónvarpsþáttaröðin Orange is the New Black (OitNB) stenst Bechdel-prófið og er að auki spennandi, fyndin, dramatísk og vel leikin. Sagan segir frá ungri og fallegri, hvítri konu (Taylor Schilling) sem afplánar rúmlega árs mánaða fangavist í Bandaríkjunum fyrir glæp sem hún framdi fyrir alllöngu. Á meðan bíður kærastinn (Jason Biggs) spenntur eftir að hún losni en hvorugt þeirra órar fyrir því hvað betrunarvistin hefur í för með sér fyrir þau bæði. Þættirnir, sem gerðir voru 2013, voru fyrst sýndir í netsjónvarpi og hafa notið mikilla vinsælda og eru nú sýndir á Stöð 2. Söguþráðurinn er að einhverjum hluta byggður á samnefndri bók Piper Kerman sem afplánaði 15 mánuði í kvennafangelsi í Danbury, Connecticut. Handritshöfundur þáttanna er Jenji Kohan (f. 1969) sem einnig skrifaði handrit Weeds.
Í kvennafangelsinu komast persónurnar auðvitað hvergi, þær sitja uppi hver með aðra í endalausum átökum á öllum tilfinningaskalanum. Morðingjar, fíklar og vændiskonur takast á um goggunarröð, völd og áhrif, ást og kynlíf, fríðindi, skömm og heiður og allt er dýru verði keypt. Stutt innslög úr fortíðinni varpa ljósi á persónurnar og ástæður fyrir fangelsisvistinni. Ástin blómstrar í skugga rimlanna en afbrýðin, baknagið og slúðrið þrífst líka vel. Það sem forðar OitNB frá því að verða bara sápufroða er að ekki er dregin fjöður yfir misrétti, misnotkun, valdníðslu og kynþáttafordóma sem viðgangast, svo ekki sé minnst á spillingu og mútur þeirra sem ráða. Það er lýðum ljóst að fangelsismál í Bandaríkjunum eru fyrir löngu komin í öngstræti, bæði í opinberum og einkareknum fangelsum. Einn af hverjum 100 Bandaríkjamönnum er bak við lás og slá, og helmingur þeirra sem situr inni afplánar dóma vegna fíkniefnabrota. Um 40% fanga eru svartir og fjöldi þeirra er meiri en samanlagður fjöldi þræla í Ameríku um 1850. Þetta endurspeglar ekki síst slaka þjóðfélagsstöðu svartra þar í landi, einkum ungra karlmanna sem vegna fátæktar og vonleysis leiðast út í glæpi.
Það er varla hægt að segja að tekist sé á við kynþáttafordóma og klisjur á markvissan hátt í OitNB enda vandratað framhjá pyttunum. Í fangelsinu halda konur af sama kynþætti sig yfirleitt saman í hóp og mynda gengi eða klíkur. Konurnar eru á ýmsum aldri, svartar, asískar, spænskumælandi og hvítar, með sín sérkenni og sitt tungumál og slangur. Aðalpersónan Chapman er vissulega forréttindapíka því hún er hvít, vel máli farin og menntuð, ætli þættirnir hefðu notið eins mikillar athygli eða orðið eins vinsælir ef aðalpersónan hefði verið svört? Það er óvíst að fólk af öðrum litarhætti en hvítum sé sátt við sína fulltrúa í þáttunum þar sem klisjurnar eru alls ráðandi, t.d. mæla asísku konurnar varla orð frá vörum, spænskumælandi hópurinn er hatursfullur og óðamála og þær svörtu eru orðljótar. Fangaverðirnir eru líka klisjulegir, t.d. „Pornstache“ sem er hinn versti dólgur og sér um eiturlyfjadreifingu í fangelsinu. Kynferðislegt ofbeldi, niðurlæging og annað ofbeldi í fangelsismyndum þar sem karlar eru aðalpersónur er af öðrum toga en í OitNB, bæði grófara og blóðugra. Kynlíf stendur með blóma í kvennafangelsinu en tvískinnungs gætir í afstöðu handritshöfundar því það er spurning hvort kynlíf milli kvenna í þáttunum sé bara krydd og stuð handa hvítum gagnkynhneigum áhorfendum eða hvort fengist er af alvöru við fjölbreytileika og frjálslyndi. Chapman er bísexúal, hún hittir Alex (Laura Prepon), fyrrum ástkonu sína í fangelsinu, og styttir sér stundir með henni. Lesbíur í fangelsinu endurspegla því miður leiðar og klisjulegar staðalímyndir, t.d. Crazy Eyes og Big Boo sem eru karlalegar, frakkar og grófgerðar. Hins vegar er saga Sophiu (Laverne Cox), kynskiptings með eiginkonu og barn utan múranna, áhugaverð og dramatísk og þykir leikkonan sýna snilldarleg tilþrif í túlkun sinni.
Þáttaröðin Orange is the New Black sýnir vel hvernig fangelsisvist getur dregið fram það allra versta í fólki og vekur upp spurningar um vald, glæp og refsingu. Í fangelsinu gildir frumskógarlögmálið fyrst og fremst og því fær Chapman fljótt að kynnast. Hún var ekki forhertur glæpon þegar hún fór í fangelsið en hún verður það hægt og örugglega í betrunarvistinni. Fleiri seríur er í smíðum enda formúlan um kynlíf, ofbeldi og húmor í hæfilegum skömmtum þrautreynd – og svínvirkar.
Hressar týpur
Sumarbækurnar streyma nú inn á markaðinn og fylla metsölulistana, léttar og spennandi, fljótlesnar, ódýrar kiljur sem fara vel í vasa. Flestar eru þýddar, misvel, en ein og ein frumsamin og því ber að fagna. Ein þeirra er Þessi týpa eftir Björgu Magnúsdóttur sem kom út nýlega. Bókin er sjálfstætt framhald af fyrstu bók Bjargar, Ekki þessi týpa, og segir frá fjórum ungum og hressum vinkonum í Reykjavík. Sjónarhornið í sögunni skiptist á milli þeirra fjögurra en þær eru ólíkar týpur, Inga er snobbaður lögfræðingur í úthverfi með fullkomnunaráráttu, Bryndís vanrækt alkabarn, Tinna er soldið óljós og Regína fyndin og forhert. Sögumaður heldur utan um alla þræði, gefur öllum köflum lýsandi heiti og kynnir aðstæður í upphafi hvers þeirra með smáu letri þótt treysta mætti flestum lesendum til að ráða í efnið án þessara hjálpartækja. Í heild er sagan létt og skemmtileg aflestrar og auðvelt að gleyma sér í sumarhitanum við trylltan brúðkaupsundirbúning Ingu, vonlaust samband Bryndísar við lúðann Gumma, brussugang Regínu og hikandi fálm Tinnu í blaðamennsku og makaleit. Stundum er gengið fullhratt til verks við að ganga frá lausum endum í sögunni, t.d. í umsátri Rafns fjölmiðlastjörnu sem endar jafnsnöggt og það byrjaði og þegar Regína er tekin úr umferð með því að pakka henni ofan í farangursgeymslu. Margt er fyndið, bæði uppákomur og orðaskipti en það er líka slegið á viðkvæma strengi, stundum tekst það vel og stundum miður. Nauðgun og anorexía eru alvörumál sem afgreidd eru af fullmikilli léttúð. Ýmislegt er fyrirsjáanlegt í sögunni, s.s. hlutverk tengdamóðurinnar, hommans Jóns Ting og besta vinarins, Davíðs. Senur með Bryndísi og Regínu eru sterkastar enda mest spunnið í þeirra persónur. Sagan er aldrei leiðinleg og nær hámarki þegar brúðurinn tilvonandi grípur til örþrifaráða. Margt minnir á hressa unglingabók, bæði í byggingu, söguþræði og persónusköpun. Í málfari og stíl mætti sitthvað betur fara og fyrstu efnisgrein sögunnar (sem hér fer á eftir) og þeirri síðustu hefði að ósekju mátt eyða úr handritinu áður en bókin fór í prentun.
Er ég bara blind dúfa í voldugri krumlu sem kreppist allt í einu saman? Eða áttavillt dádýr sem veiðist í lásboga úti í skógi af því að það veit ekki í hvorn fótinn á að stíga? Flækir ef til vill fótleggina saman af taugaveiklun og endar nokkrum tímum síðar í bútum í ofni hjá þýskum skógarverði. Eða er þetta eitthvað allt annað? Hann á ekkert tilkall til athygli minnar en fær hana samt á þess að ég hafi nokkra stjórn á því (5).
Skvísubók eða unglingabók, merkimiðinn skiptir ekki öllu en það þarf alltaf að vanda sig. Björg á eftir að þroskast sem höfundur og sögumaður og það verður áhugavert að fylgjastmeð því, hana skortir hvorki hugmyndir né eldmóð.
Merkilegur pinni sem alkunnur var um allt land
Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson (1826-1907) var fræðimaður og skáld, snillingur á mörgum sviðum en gekk illa að nýta hæfileika sína af ýmsum ástæðum. Hann ritaði sjálfsævisögu, Dægradvöl, sem prentuð var löngu eftir hans dag og Mál og menning gaf út nýlega í kilju í flokknum „íslensk klassík“ með skýringum og athugasemdum Ingvars Stefánssonar úr útgáfunni frá 1965. Dægradvöl er eitt af lykilverkum íslenskrar bókmenntasögu. Hún skipar sérstakan sess meðal sjálfsævisagna, m.a. vegna þess að Gröndal hlífir engum í frásögninni, allra síst sjálfum sér, og vegna þeirra áhrifa sem hún hefur haft á íslenskrar bókmenntir, t.d. á skrif Þórbergs Þórðarsonar. Nú síðast varð lítið atvik sem minnst er á í verkinu kveikja að skáldsögunni Sæmd eftir Guðmund Andra Thorsson (355-6). Dægradvöl hefur varðveist í handriti í Landsbókasafni, bæði í styttra uppkasti og sem rúmlega 500 blaðsíðna endurgerð með fíngerðri og fallegri rithönd Gröndals. Textinn er innblásinn, andríkur og meinfyndinn, með neðanmálsgreinum, útstrikunum og innskotum, hann flæðir viðstöðulaust fram og mörgu ægir saman: minningum, skáldskaparpælingum, samfélagsgagnrýni, mannlýsingum og vonbrigðarausi; og allt á gullaldarmáli.
Sögunni er skipt í kafla eftir tímaröð. Æskuárunum er lýst í skipulegum texta, sem morar af margs konar staðar- , náttúru- og mannlýsingum. Í gegnum þær glittir í lítinn strák, sílesandi og teiknandi, sem þráir ást og viðurkenningu og særist í samskiptum sínum við annað fólk enda „ekki vanur að vera með mönnum“ eins og mamma hans sagði (98). Skemmtilegar eru lýsingar hans á skólalífinu á Bessastöðum, bæði á hrekkjum piltanna, kennurunum og kennsluháttum. Sjálfur segist hann vera latur meðalsluksari og þegar hann útskrifast er hann stefnulaus og óráðinn um framtíðina og foreldrar hans láta hann sjálfráða: „en hefði nokkur maður þurft leiðbeiningar eða áminningar, þá var það ég; lífið var fyrir mér eins og fagur draumur, ég vissi ekkert, hvað ég vildi, ég hafði enga hugmynd um embættislestur, og mér datt ekki í hug, að maður þyrfti að vinna fyrir sér; allt sem ég gerði, það gerði ég út í bláinn, tilgangslaust, einungis mér til gamans eða einhverrar ánægju“ (155). Eins og glópur fór hann í háskólann í Kaupmannahöfn, var áhugalaus við námið enda stundaði hann það án nokkurs takmarks eða tilgangs. Gröndal segir þegar hann horfir um öxl að Hafnardvölin hafi haft slæm áhrif á sálarlíf hans, valdið „alvöru hans undir niðri“ þótt hann væri „glaður ofan á og haft gaman af lífsnautn og fyndni“ (185). Rúmlega þrítugur hefur hann ekki lokið neinu háskólaprófi, slarkað og sukkað, eitthvað ort og skrifað en ekkert af viti, „sundurtættur af sorg og eymd“. Um hríð dvaldi hann í klaustri án þess þó að fá nokkra sáluhjálp en náði að einbeita sér að skáldskap. Loks lauk hann prófi í norrænum fræðum, fyrstur Íslendinga, náði sér í konu og gerðist kennari í Reykjavík en missti konuna, hraktist svo frá kennarastarfinu vegna þunglyndis og drykkjuskapar, og harkaði ýmislegt upp frá því, skrifaði, orti og teiknaði, einmana og fátækur. Allt þótti honum sér andsnúið og enginn vildi neitt hafa að gera með „þennan merkilega pinna sem alkunnur var um allt land“ (365). Undir lok sögunnar er tímaskynið farið að riðlast og tíminn hleypur frá honum. Hann reynir að skapa heild úr smáatriðum, minnisleiftrum og gloppóttum brotum en hrekst alltaf út í óreiðu og stefnuleysi í skrifunum sem enda síðan snögglega, á dæmigerðum bituryrðum um „hvernig ég var flekaður, með refjum og lygum og yfirgangi…“ (392).
Fánýti, vonbrigði og sársauki gegnsýra ævisöguna og einmanakenndin er leiðarstef. Gröndal er útilokaður, beiskur og vonsvikinn, dægradvölin snýst upp í dægurþras. Brugðið er upp óvægnum myndum af t.d. Jóni Sigurðssyni, Fjölnismönnum, Matthíasi Jochumssyni, Grími Thomsen og fleiri kunnum 19. aldar mönnum sem og alþýðufólki samtímans, og gagnrýnum lýsingum á aldarfari og tíðaranda. Fræg er lýsing hans á rímnaskáldinu Sigurði Breiðfjörð, og örlögum hans: „Sigurður var gildur meðalmaður, ljótur og luralegur, og auðsjáanlega spilltur og tútinn af slarki; hann gekk á grófum kalmúksfrakka og var fullur, þegar hann gat. Hann dó úr sulti á lofti í „Hákonsenshúsi“, Íslendingum til sóma“ (92).
Það kemur skýrt fram í sögunni að Gröndal upplifir sig öðruvísi en aðrir menn. Hann stóð alltaf í skugga föður síns, Sveinbjarnar Egilssonar, skálds og þýðanda, þótt hann nyti góðs af orðstír hans í mörgu. Hann passaði hvergi inn, tilheyrði hvorki menntamannaklíkunni sem skipti með sér embættum og bitlingum í samfélaginu, þjóðskáldunum né alþýðu manna. Í Dægradvöl birtist ráðvilltur og vanmetinn snillingur, viðkvæmur sveimhugi og ídealisti í fjandsamlegu og þröngsýnu samfélagi sem einkennist af stéttaskiptingu, klíkuskap og kjaftagangi. Alla tíð var Gröndal ósáttur við sinn hlut og það brýst út í sögunni, í kæruleysi, biturri kaldhæðni og sárri öfund yfir velgengni annarra. En hann fegrar ekki mynd sína heldur leyfir sér alltaf að vera hann sjálfur, fúllyndur en fyndinn karl sem á endanum hætti að vonast eftir langþráðri viðurkenningu og grúfði sig yfir hugðarefni sín í litlum kofa út við sjó.

